Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1995, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1995, Qupperneq 28
FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 Moskva hefur breyst. Kóka kóla í stað hamars og sigðar „Það vekur ónéitanlega at- hygli að í staðinn fyrir hamar og sigð eru kóka kóla skilti út um allt.“ Ey'vindur Erlendsson, í Al- þýðublaðinu um Moskvu. Plokkfiskur og pitsa „Þetta var ósvikinn plokkfisk- ur, æðislegur, eitthvað svo inni- Ummæli lega langt frá pitsudraslinu sem þessi umkomulausa þjóð er farin að neyta sýknt og heilagt." Steingrímur St.Th. Sigurðsson, i DV. Gáfur frá Laugarvatni „í gær hitti ég gáfaða mann- eskju frá þeim tima þegar gáfna- ljósin komu frá Laugarvatni." Guðbergur Bergsson, í DV. Hverfur ekki á einni nóttu „Sá málefnaágreiningur sem er milli Alþýðuflokks og Alþýðu- bandalags hverfur ekki á einni nóttu eða á einum fundi.“ Sighvatur Björgvinsson, í DV. Leikrit á Broadway ganga sum hver árum saman. Leikhús og leikrit Stærsta bygging heims, sem notuð er fyrir leikhús, er þjóð- þingsbyggingin (Ren min da hui tang) við Torg hins himneska friðar í Peking í Kfna. Bygging- unni var lokið 1959 og nær það yfir 5,3 hektara. í húsinu eru tiu þúsund sæti og þótt það sé ekki byggt sérstaklega sem leikhús er það stundum notað sem slíkt. Stærsta hús sem gagngert er byggt fyrir leiksýningar er Entertainment Center í Perth í Ástralíu. Þar eru sæti fyrir átta þúsund manns. Leiksviðið er 1148 fermetrar. Þetta er samt Blessuð veröldin ekki stærsta leiksviðið í heimi. Það er í Ziegfield Room í Reno í Nevada. Upp með sviðinu eru 53 metrar af göngubrúm og er það búið þremur lyftum, sem geta borið 1200 dansmeyjar, tveimur snúningspöllum, sem eru 19,1 metri í þvermál hvor um sig, og 800 sviðsljósum. Sýningamet á söngleik Broadway er frægasta leikhús- gata í heimi og þar ganga söng- leikir árum saman. Það er þó ekki þar sem sýningamet á söng- leik var sett heldur í West End í Lúndúnum. Verkið ?r The Black and White Minstrels Show sem seinna var nefnt Magic of the Minstrels. Það var sýnt 6464 sinnum í Victoria Palace á árun- um 1962-1972. Sýningar hófust aftur í júní 1973 en lauk endan- lega 8. desember 1973. Léttskýjað sunnanlands Norðanátt er á landinu, víða st- inningskaldi vestanlands í fyrstu en annars kaldi. É1 á Vestfjörðum, slydda eða rigning með köflum á Norður- og Austurlandi en léttskýj- að sunnanlands. í kvöld og nótt verður fremur hæg austlæg átt á Veðrið í dag landinu og úrkomulítið. Snýst í lítið eitt vaxandi suðaustan- og austanátt sunnanlands með morgninum. Hiti frá 6 stigum syðst á landinu niður í 2ja stiga frost á Vestfjörðum. Á höf- uðborgarsvæðinu verður norðaust- ankaldi og léttir til. Hiti -1 til 3 stig. Sólarlag í Reykjavík: 17.29 Sólarupprás á morgun: 8.05 Síðdegisflóð í Reykjavík: 20.29 Árdegisflóð á morgun: 8.54 (Stórstreymi) Heimild: Almanak Háskólans Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri rigning 2 Akurnes léttskýjaö 5 Bergsstaöir slydda 1 Bolungarvík snjókoma -2 Egilsstaöir rign. og súld 2 Grímsey snjókoma -2 Keflavíkurflugvöllur léttskýjaó 0 Kirkjubcejarklaustur léttskýjaö 5 Raufarhöfn súld 4 Reykjavík alskýjað 1 Stórhöföi léttskýjaö 2 Helsinki alskýjaö 9 Kaupmannahöfn alskýjaö 12 Ósló alskýjaö 12 Stokkhólmur rigning 11 Þórshöfn skúr 7 Amsterdam rigning 15 Barcelona þokumóöa 17 Chicago rigning 12 Frankfurt þoka í grennd 10 Glasgow skýjaö 5 Hamborg þokumóöa 13 London léttskýjaö 15 Los Angeles heiöskírt 17 Lúxemborg þokumóóa 12 Madríd léttskýjaö 9 Mallorca þokumóóa 14 New York heiöskírt 8 Nice léttskýjaö 13 Nuuk heiöskírt -3 Orlando þokumóða 21 Valencia þokumóóa 16 Vín þokumóöa 2 Winnipeg léttskýjaö 5 Magnús Geir Þórðarson, verkefnastjöri hjá Leikfélagi Reykjavíkur: Aldrei verið meira líf í Borgarleikhúsinu Eins og flestir hafa sjálfságt tek- ið eftir hefúr farið fram mikil starfsemi í Borgarleikhúsinu á vegum Leikfélags Reykjavíkur í upphafi leikárs og eru ekki aðeins leiksýningar í húsinu, heldur tón- leikar og settar upp málverkasýn- ingar svo dæmi sé tekið. Það hefur verið starf nýráðins verkefnastjóra LR, Magnúsar Geirs Þórðarsonar, að koma þessari starfsemi af stað og er ekki annað að sjá en að vel hafi tekist til: „Ég var ráðinn til koma af stað nýjungum í starfsemi leikhússins og við byrjuðum á að bjóða fram- sæknum myndlistarmönnum að setja upp verk i forsal Borgarleik- Maður dagsins hússins. Þá höfum við opnað leik- húsbókasölu, sem er nýjung, þar sem boðin eru leikrit sem til eru á prenti á íslenskri tungu og eins flytjum við inn tímarit og helstu perlur leikbókmenntanna á erlend- um tungumálum. Tónleikaröðin sem við erum með á þriðjudögum hefur farið betur af stað en við þorðum að vona. Við höfum reynt að velja saman dagskrá sem okkur Magnús Geir Þórðarson. finnst einkennast af metnaði og fjölbreytileika. í síðustu viku vor- um viö að fara af stað með mjög spennandi verkefni að mínu mati, Heimsókn í Borgarleikhúsið, sem miðar að því að fræða böm um leiklist, sögu hennar, Borgarleik- húsiö sjálft og vinnu í leikhúsi. Við bjóðum níu ára krökkum i dagsheimsókn til okkar, en þaö hefur verið skoðun leikhúsfólks að skort hafi á að böm kæmust í snertingu við leikhúsið. Með þess- ari dagskrá verður reynt að bæta úr því. Þá má geta þess að við erum að undirbúa hádegisleikhús sem verður starfrækt á laugardög- um, þar sem fólk getur notið leik- listar og tónlistar. Fleira er á dag- skrá hjá okkur, meðal annars höf- undasmiðja og einnig er nýjung hjá okkur, samstarf um leiksýning- ar við önnur atvinnuleikhús og verða sex slíkar sýningar í vetur.“ Magnús Geir er lærður leikstjóri og lauk námi á þessu ári. Mun hann næsta sumar heyja frumraun sína í Borgarleikhúsinu: „Ég hef verið viðloðandi leiklist í mörg ár, rak meðal annars Gamanleikhúsið sem var leikhús ungs fólks. Þegar ég lauk menntaskóla fór ég strax í leikstjóranám til Englands og kem úr náminu í þetta starf. Jafnframt þvi er ég að undirbúa fyrstu upp- setningu mína, Stonefree, sem er nýjasta leikrit Jims Cartwrights og verður það sýnt næsta sumar á Stóra sviðinu, en heimsfrumsýn- ing á verkinu verður í West End næsta vor. Við verðum sem sagt aðeins nokkrum vikum á eftir að sýna leikritið. Ég hef verið að þýða verkið og gert það í náinni sam- vinnu við Cartwright og er á leið- inni í næstu viku til London að undirbúa sýningima með honum. Myndgátan Lausn á gátu nr. 1352: «1,1 V'"" ^. jr ♦ ‘C r BYÞOR- Svefndrukkinn EYÞo1\—a- Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. Bikarkeppni í handbolta í kvöld hefst bikarkeppnin í handbolta og eru þrír leikir á dagskrá. Fylkir leikur við HK, Kefiavík við b-liðs Aftureldingar og ÍH leikur gegn KR. Allir leik- imir hefjast kl. 20.00. Þá er einn leikur í 2. deild karla. Þór á Ak- ureyri leikur viö Ármann kl. 21.00. íþróttir Tveir leikir verða í körfubolt- anum. í 1. deild kvenna fer fram viðureign Njarðvíkinga og Grindvíkinga í Njarðvíkum kl. 20.00 og í 1. deild karla leika í Hafnarfirði ÍH og Reynir, Sand- gerði. Skák Erfitt var að ná áttum í stöðu Svíans Jonny Hector og Danans Erlings Morten- sen, sem birt var í DV á mánudag, því að lykilpeð hvíts á d7 prentaðist illa. Skákin var tefld á svæðamðtinu í Reykjavík fyrr á árinu. Itarleg umijöllun Sævars Bjarna- sonar um mótið er í nýjasta tölublaði tímaritsins Skákar sem út kom fyrir skömmu. Hector hafði hvitt og átti ieik: 25. He8+! og svartur lagði niður vopn. „Svartur lendir í skemmtilegu (leiðin- legu!) afbrigði af kæfmgarmátinu," segir Sævar. Áfram gæti teflst: 25. - Hxe8 26. Db4+ Kg8 27. Re7+ KfB 28. Rg6++ Kg8 29. Df8+ Hxf8 30. Re7 mát! Hvítur getur einnig sparað sér ómakið af drottningar- fóminni og skotið inn í 29. leik (eða fyrr) dxe8=D+ og mát í næsta leik. Jón L. Árnason Bridge Þrátt fyrir að Jón Baldursson og Sævar Þorbjömsson hafi unnið á Minningarmóti Einars Þorfinnsson- ar, sem fram fór á Selfossi um síð- ustu helgi, er ekki þar með sagt að þeir hafi sloppið við mótbyr í mót- inu. Þeir voru til dæmis ekki heppn- ir í þessu spili í 14. umferð mótsins. Þeir spiluðu þá gegn Halldóri Svan- bergssyni og Kristni Kristinssyni. Sagnir gengu þannig, suður gjafari og enginn á hættu: * K865 •* Á97 f D10964 * 6 Suður Vestur Norður Austur Halldór Jón B. Kristinn Sævar 2G 3G p/h Tveggja granda opnun Halldórs Svanbergssonar í suður lýsti veikri hendi með langan lit og Jón Bald- ursson ákvað að segja þrjú grönd. Sá samningur var passaður út og út- spil suðurs var lítill spaði. Jón spil- aði strax tígli í öðrum slag en Krist- inn stökk upp með ásinn og spilaði hjarta. Þar með voru sagnhafa allar bjargir bannaðar úr því að lauflitur- inn brotnaði ekki og suður hafði nægar innkomur tO þess að fría spaðalit sinn. Spfiið fór 3 niður sem tryggði NS mjög gott skor i spilinu. Jón og Sævar létu þetta áfall þó ekki á sig fá og enduðu með 264 stig í plús, tveimur stigum meira en Ein- ar Jónsson og Ragnar Hermannsson sem enduðu í öðru sæti. ísak Örn Sigurðsson 4 A D4 ■f G853 * ÁKD842 4 G * G865: f Á7 4 G105!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.