Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995
25
Geysilegur körfuboltaáhugi er á Sauöárkróki eins og kunnugt er og ungling-
arnir í bænum nota flestar tristundir tii að leika körfubolta. Þessir hressu
strákar voru í frímínútum í grunnskólanum þar i bænum og það var tekið á
í körfuboltanum af fullum krafti eins og sjá má. DV-myndir gk
Kaffi Krókur á Sauðárkróki:
Kaff ihúsaandi með
menningarlegu ívafi
hjá okkur og þá höfum við haldið hér
ýmis fræðslu- og menningarkvöld.
Viö höfum haldið konu- og karla-
kvöld og fengið til okkar fyrirlesara
til að íjalla um ýmsa þætti mannlífs-
ins,“ segir María Björk.
Nú stendur fyrir dyrum stækkun á
KafTi Krók. „Við ætlum að taka í
notkun sal hér inn af kaffistofunni
og m.a. ætlar systir min, sem starfar
hjá mér, að kenna þar dans. Með
stækkun húsnæðisins getum við líka
komið betur til móts við óskir við-
skiptavina okkar. Það er að sjálf-
sögðu okkar aðalmarkmið og við
leggjum áherslu á persónulega þjón-
ustu og hlýlegt viðmót við gesti okk-
ar. Ef maður vill að viðskiptavinirnir
komi aftur verður maður að gefa af
sér,“ segir María Björk. Hún er með
fleiri járn í eldinum, er fréttaritari
Ríkisútvarpsins á Sauðárkróki og
mn nokkurra ára skeið birtist hún
landsmönnum sem þula í Ríkissjón-
varpinu.
„Þetta er ágæt vinna og ekki verri en hvað annað,“ sögðu þessir hressu
„skreiðarkarlar" sem voru að vinna við að hengja upp þorskhausa á Sauð-
árkróki. Þeir eru starfsmenn Fiskiðjunnar Skagfirðings og sögðu þorskhaus-
ana fara til Nigeríu þegar þeir væru tilbúnir til útflutnings.
Gylfi Krisqánsson, DV, Akureyii:
„Það tók
vissulega tíma
að kenna Skag-
firðingum að
fara á kaffihús
en þetta er allt
á réttri leiö og
gengur vel,“
segir María
Björk Ingvadóttir, veitingamaður
Kaffi Króks á Sauðárkróki, sem hún
á ásamt Ómari Braga Stefánssyni,
eiginmanni sínum. Þau opnuöu Kaffi
Krók í maí á síðasta ári í rúmlega
aldargömlu húsi við aðalgötu bæjar-
ins og hafa gert á húsinu miklar end-
urbætur svo það er orðið allt hið
glæsilegasta.
María Björk segir að hún leggi höf-
uðáherslu á að andinn í húsinu sé
kaffihúsaandi með menningarlegu
ívafi, að blanda saman fræðslu og
skemmtun. „Við erum yfirleitt alltaf
með málverkasýningar á veggjunum
SteinuUarverksmiðjan á Sauðárkróki:
Afkastageta
verksmiðj-
unnar f ullnýtt
mánuði ársins nam hagnaðurinn af
rekstrinum 16,5 milljónum króna og
tekjur námu 376 milljónum sem er
um 30% aukning frá fyrra ári.
Einar Einarsson segir að fyrirtæk-
ið hafi hægt og bítandi verið að vinna
sér markaði erlendis og sé komið
með nokkuð stöðugan útflutning sem
er 2-3 þúsund tonn á ári. „Nýting
verksmiðjunnar er orðin viðunandi
en hér innanlands er það að sjálf-
sögðu ástandið í byggingariðnaði
hveriu sinni sem ræður mestu um
framleiðsluna fyrir innanlands-
markaðinn," segir Einar. í fyrirtæk-
inu eru um 40 stöðugildi og það er
geysilega mikilvægt fyrir atvinnulíf-
ið á Sauðárkróki.
Gylfi Kristjánsson, DV, Ækureyri:
„Afkastageta verksmiðjunnar, sem
er um 6.500 tonn, verður fullnýtt í
ár. Salan hér innanlands verður um
2.700 tonn en árið er sérstakt að því
leyti að við tókum að okkur að fram-
leiða umtalsvert magn fyrir aðila í
Englandi," segir Einar Einarsson,
framkvæmdastjóri Steinullarverk-
smiðjunnar á Sauðárkróki.
Verksmiðjan varð 10 ára í síðasta
mánuði en hún er í eigu ríkissjóðs,
Sauðárkróksbæjar, finnska fyrir-
tækisins Partek og fleiri aðila. Fjór-
um sinnum á sl. 6 árum hefur verk-
smiðjan skilað hagnaði og í ár lítur
vel út með afkomu hennar. Fyrstu 8
Þrettán kvenfélög
starf a í Skagaf irði
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Aöildarfélög að Sambandi skag-
firska kvenna eru þrettán talsins og
eru á svæðinu frá Fljótum og Skaga
og fram í dali,“ segir Ingibjörg Kolka,
varaformaður sambandsins, um
starfsemi kvenfélaga í Skagafirði. Á
því svæði má m.a. finna elsta kvenfé-
lag landsins sem var stofnað árið
1869 í Hegranesi og er því 126 ára
gamalt.
Starfsemi kvenfélaganna í Skaga-
firði er með „hefðbundnum" hætti
ef svo má segja. „Félögin hafa ávallt
stuðlað að menningar- og líknarmál-
um, að ræktun og haldið ýmiss konar
námskeið. Okkar kjörorð eru hvað
við getum gert fyrir landið og meö-
bræður okkar en ekki hvað hægt sé
að gera fyrir okkur,“ segir Ingihjörg
Kolka. Hún segir að í kvenfélögunum
í Skagafirði séu um 270 konur. Þau
séu opið öllum konum eldri en 16 ára
og ekkert kynslóðabil sé til.
Um starfsemina segir Ingibjörg að
haldnar séu vinnuvökur og fé sé
safnað til menningar- og líknarmála.
Félögin hafa styrkt starfsemi tónhst-
arskóla, sjúkrahússins á Sauöár-
króki og minjasafnsins í Glaumbæ,
svo fátt eitt sé nefnt.
Þrjár skagfirskar kvenfélagskonur, Ingibjörg Kolka, varaformaður Sam-
bands skagfirskra kvenna, Helena Magnúsdótfir gjaldkeri og Helga Sigur-
björnsdóttir, formaður félagsins á Sauðárkróki.
Úr húsasmíðinni í
verslunarreksfur
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég lít ekki á
þessa verslun
sem litla versl-
un að því leyt-
inu að við reyn-
um að vera með
í samkeppninni
af fullum krafti
og bjóða það
verð sem tíðkast í stóru mörkuðun-
um,“ segir Ásgeir Einarsson, versl-
unarmaður í versluninni Hlíðar-
kaupum á Sauöárkróki, sem Ásgeir
stofnaði ásamt fóður sínum fyrir
tæpum 4 árum.
Ásgeir og faðir hans höfðu verið í
byggingarstarfsemi, byggt og selt
hús, og áttu húsnæðið sem hýsir
verslunina við Akurhlíð. „Húsnseðið
var búið að standa autt í nokkuö
langan tíma og til að koma því í nýt-
ingu urðum við að selja það eða hefja
í því einhveija starfsemi. Ég hafði
aldrei komið nálægt verslunar-
rekstri en það var samt ákveðið að
skella sér í þetta," segir Ásgeir.
Hann segir að reksturinn hafi
gengið vel með geysilega mikiUi
vinnu og meðfram verslunarrekstr-
inum hafi þeir feðgar verið smátt og
smátt að ljúka byggingu hússins. Um
samkeppnina í verslunarrekstrinum
segir hann að hún sé mjög hörð. „Við
reynum að halda vöruverðinu niðri
eins og frekast er kostur og fólk virð-
ist kunna að meta það. Okkar við-
skiptavinir eru alls staöar úr bænum
og bændur úr nágrannasveitunum
eru fariiir að láta sjá sig talsvert hér
sem er ánægjulegt. Þetta gengur upp.
Við höfum getað staðiö í skilum og
þá er ég ánægður," segir Ásgeir.
Kristinn leikur fyrir gesti í afmælis-
veislu DV á Sauðárkróki.
Frumsamið ef ni
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Kristinn Baldvinsson er ungur
Sauðkrækingur sem þó hefur lengi
verið tengdur tónlist á ýmsan hátt.
Hann hefur verið í hljómsveitum og
verið „rótari" hjá Geirmundi sveiflu-
kóngi svo eitthvað sé nefnt. En nú
hefur hann stigið fram á sviðið einn
síns liðs til að flytja frumsamda tón-
list. *
Kristinn lék fyrir gesti í afmælishá-
tíð DV á Sauðárkróki á dögunum og
vakti hrifningu. „Þetta er frumraun
mín að koma svona einn fram og
vissulega skemmtilegt," segir Krist-
inn. Hann er nú að íhuga útgáfu á
geisladiski með efni sínu og kann
leið hans að liggja í hljóðver til upp-
töku áður en langt um líður.
Guðmundur, t.v., lítur í eitt keranna
hjá Máka ásamt Snorra Birni Sig-
urðssyni bæjarstjóra sem kom við
hjá honum en Sauðárkróksbær er
stærsti hluthafinn í Máka hf. og á
um þriðjung hlutafjár.
Barraeldið á Sauðárkróki:
Stef nt að 70
tonna fram-
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Við erum með 8 þúsund seiði í
kerunum núna en þau eru úr klaki
frá í vor. Núna eru þau 6 grömm á
þyngd en 1 júní á næsta ári verða þau
orðin um 500 grömm og þá verður
fyrsta slátrunin hér,“ segir Guð-
mundur Ingólfsson, framkvæmda-
stjóri Máka hf. á Sauðárkróki, en það
fyrirtæki fæst viö nýjung í fiskeldi
hér á landi sem er barraeldi.
Barri er hlýsjávarfiskur sem hefur
mjög mikinn vaxtarhraða, og við eld-
ið hjá Máka er notuð ný aðferð með
sírennsli á upphituðum sjó, en Guð-
mundur er hönnuður þeirrar aðferð-
ar. Máki er í samvinnu við fyrirtæki
í Frakklandi, Svíþjóð og Noregi um
þetta eldi og fyrir skömmu veitti
Evrópusambandið 50 milljónir króna
til þessa verkefnis. Helmingur þeirr-
ar upphæðar kemur í hlut Máka.
„Með þessu fjármagni getum við
komið okkur upp stöð hér sem fram
leiðir 70 tonn af fiski á ári en mark-
aðsverð þess er um 50 milljónir
króna,“ segir Guðmundur. Hann seg-
ir reksturinn vera á réttri leið og á
næstunni fær hann um 350 þúsund
hrogn sem munu skila af sér a.m.k. «r
70 þúsund barraseiðum.