Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1995, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1995, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1995 Spurningin Hvenær fórstu síðast út úr bænum? Jóhannes Þorsteinsson nemi: í október. Þá fór ég til ísafjarðar. Sandra Ósk Sigurðardóttir nemi: Fyrir viku í æfingabúðir á Laugar- vatni. Vilhelm Sigurðsson nemi: Fyrir viku til Selfoss að keppa í hand- bolta. Kristján Guðmundsson nemi: Fyr- ir tveim vikum á sveitaball í Þjórs- árveri. Jórunn Atladóttir nemi: Það er svona mánuður síðan, þá fór ég í sumarbústað. Ragnheiður Stefánsdóttir nemi: Fyrir um fgaðijil háUmh'manuði á sveitaball. Lesendur________________ Löggæsla hér og í Bretlandi Breskur lögreglumaður við umferðargæslu. Skarphéðinn H. Einarsson skrif- ar: Sífellt kvartar fólk um að lögregl- an sinni illa sínum störfum, bæði á landsbyggðinni og í höfuðborginni. Um helgar safnast fólk saman í miðju höfuöborgarinnar, oft allt að 8.000 manns, þegar skemmtistöö- unum er lokað. Ber þar mest á ungl- ingum en ekki eru gamlingjar þó al- veg fríir við þátttöku i þessum mannsöfnuði. Hluti þessa hóps verð- ur eins og villidýr, rúður eru brotn- ar, matarleifar liggja á víð og dreif og menn standa upp við veggi og kasta þar frá sér vatni eins og ekk- ert sé og kvenfólk í húsasundum. Ég las nýlega í blaði fyrirsögn: „Það þarf að aga þessa þjóð“ og var þar vitnað í núverandi menntamála- ráðherra af öðru tilefni. Það er rétt; íslendingar eiga mikið ólært miðað við aðrar siðmenntaðar þjóðir. Ég hef séð í breskum borgxun hvernig málum er háttað þar. Eftir að skemmtistaðir loka, ýmist kl. 12 á miðnætti eða kl. 1 eftir miðnætti. Þá hraðar fólk sér heim á leið. Við leigubflastæði raðar fólk sér upp í einfalda röð. Sama gerist við stræt- isvagnastöðvar. Ruðningur og há- vaði eru óþekkt fyrirbæri. Allt fer fram í rólegheitum. Væri enda fólk tekið í vörslu lögreglu fyrir háreisti. í þaö hefla tekið ber fólk mikla virðingu fyrir lögreglu í Bretlandi. Lögreglumenn fá góð laun og því fást mjög hæfir menn til starfa. Einnig eru eftirlaun þessara manna góð. Almenningur á að sýna löggæslu- mönnum meiri virðingu. Það tekur sinn tíma að læra það. En það þarf að aga þessa þjóð og það meira en lítið ef hér á að komast á lík hefð og í Bretlandi og öðrum nágrannaríkj- um. Viljum við skoðana- lausan forseta? Kristinn skrifar: í DV 15. nóv. sl. birtist lítið les- endabréf frá Friðjóni nokkrum þar sem hann segir að það sé „engin hæfa að gæla við það“ að kjósa fólk sem starfað hefur að stjómmálum sem forseta heldur eigi að finna skoðanalausan eða „hlutlausan“ að- ila. Ekki veit ég hvað Friðjóni geng- ur til með þessu því ekki ómakar hann sig til að rökstyðja þessa skoð- un sína, enda augljós vandkvæði á því. Það er harla einkennilegt að halda því fram að útiloka eigi fólk, sem einhvern tíma hefur verið kos- ið til að gegna ábyrgðarstöðum, frá því að gegna embætti forseta. Þetta fólk hefur vissulega viðrað skoðanir sínar og tekið afstöðu til margs kon- ar mála en það á ekki að standa í vegi fyrir því að það geti tekið þátt í forsetaframboði. Allir hafa sínar skoðanir og hugmyndir um lífið og tilveruna og verðandi forsetafram- bjóðendur hljóta að verða að gera grein fyrir skoðunum sínum. Kjósendur þekkja skoðanir stjóm- málamannanna og verk þeirra en þeir þekkja ekki skoðanir allra hinna sem hafa verið nefndir sem vænleg forsetaefni; þeirra sem eng- an vilja styggja og vilja vera vinir allra (a.m.k. fram yflr kosningar) og geta ekki tekið af skarið og upplýst kjósendur um skoðanir sínar. Þeir sem hins vegar ætla sér að verða teknir alvarlega sem forsetafram- bjóðendur munu vitaskuld greina kjósendum undanbragðalaust frá hugmyndum sínum og skoðunum og þannig er krafan um hlutlausan frambjóðanda í rauninni út í hött. Það er enginn hlutlaus. Það vekur mönnum því kátínu hvemig Friðjón hringsnýst í mál- flutningi sínum. Maðurinn sem vill fá skoðanalausan og hlutlausan for- seta heldur því fram í sama lesenda- bréfi að ef enginn slíkur finnist þá skuli forsetaembættið sameinast embætti forsætisráðherra! - Þar fór nú krafan um hlutleysi fyrir lítið. Endurbætur á Reykjavíkurflugvelli? Uppfyllir Reykjavíkurflugvöllur ekki lengur alþjóðlegar öryggiskröfur til far- þegaflugs? Gunnar Guðjónsson skrifar: Sem íbúi utan þéttbýlissvæöisins við Faxaflóa langar mig að leggja nokkur orð í umræðuna um innan- landsflugið og hugsanlega tilfærslu þess frá Reykjavík tfl Keflavíkur. Ég vil taka það fram strax að flutning- ur innanlandsflugsins til Keflavík- urflugvallar er sjálfsagður í mínum huga. Landsbyggðarfólki, sem fer „suður“, eins og það er kallað þótt flogið sé héöan eða þaðan af land- inu, ætti ekki að muna um þann tíma sem það tekur að aka því frá Keflavík til Reykjavíkur. Og auk þess eru ekki allir að fara til Reykja- víkur heldur annaö sunnan borgar- innar eða beint til útlanda. Það sem alvarlegast er þó við Reykjavíkurflugvöll er að hann er sagður óhæfur til notkunar við full- komið farþegaflug. Flugbrautimar em meira og minna í óstandi og það kostar um einn og hálfan milljarð króna að gera þær upp einar sér. Þá er ótalið allt annað svo sem lending- arbúnaður af fullkomnustu gerð. Völlurinn uppfyllir þvi engan veg- inn alþjóðlegar kröfur. Þó er beint til hans erlendum þotum, jafnt með þjóðhöfðingja sem hinn almenna flugfarþega. Að sjálfsögðu er það ekki bara mál ríkisins og Reykjavíkurborgar hvort innanlandsflug fyrir farþega heldur áfram að vera staðsett í Vatnsmýrinni. Hér er líka um ör- yggisatriði fyrir farþega og jafnvel fleiri að ræða. Ráðamenn geta ekk- ert ábyrgst að ekki verði dauðaslys af völdum óhappa yfir borginni. Og þaö er ekki bara ríkisins að segja tfl um það að innanlandsflug verði áfram í Reykjavík. Ég held að borg- arbúar veröi að hafa eitthvað um það að segja hvort þeir séu tilbúnir að taka á sig viðbótarskattheimtu vegna framkvæmda fyrir milljarða króna og margra ára vinnu vegna endurbóta á Reykjávlkurflugvelli. Frábærir áróð- ursfundir VÍS Helga skrifar: Mig langar til að þakka VÍS fyrir frábæra áróðursfundi sem fýrirtækið hefur gengist fyrir handa ungum ökumönnum. Son- ur minn, 19 ára, fékk boð um að mæta á slíkan fund og kom alveg uppnuminn heim. Mér er sagt að fundir þessir séu afar áhrifa- miklir og fjalli um afleiðingar umferðarslysa án þess að verið sé að predika yfir krökkunum. Ég er viss um að fundurinn hef- ur áhrif á son minn enda hefur hann ekki tekið af sér bílbeltið undir stýri eftir að hann sótti fundinn. Hann kom einnig heim með blað sem í eru viðtöl við ungt fólk sem lent hefur í alvar- legum umferðarslysum. Ég færi VÍS bestu þakkir fyrir að reyna að hafa áhrif á unga fólkið í um- ferðinni. Ef vátryggingafélögin eyða sjóðum sinum í slíka fundi er fénu vel varið. Meirihluti til forsetakjörs Gunnþórunn skrifar: Þjóðvaki hefur beint því til Al- þingis að lög verði sett um að forseti verði að hafa meirihluta í forsetakosningum og kjósa verði á milli tveggja efstu manna sé at- kvæðamagn undir 50%. Nú er að sjá hvort hinir þingflokkamir hafa þor eða skilning á þessu máli. Það á ekki að vera bara leikur að komast til æðstu met- orða í þjóðfélaginu. Tillaga Sivjar drepin á þingi Einar Magnússon skrifar: Margir munu eflaust taka und- ir tillögu Sivjar Friðleifsdóttur alþm. um jöfnxm atkvæðisréttar. Ekki hafa aðrir þingmenn haft það þor til að bera að ýta því máli á flot með þingsályktunar- tillögu. - En tillagan var drepin i fæðingu. Þingflokkur framsókn- armanna sá til þess. Allir rétt- sýnir menn munu þó styðja Siv á Alþingi í þessu sanngjama máli. Bindindis- dagurinn Loftur Magnússon skólastj. skrifar: Laugardagurinn 26. nóv. nk. verður bindindisdagxxr fjölskyld- xrnnar. Ég hvet alla til þess að gera þennan dag að bindindis- degi bragða ekki áfengi þennan dag. Því miður hefia stöðugt fleiri unglingar drykkju og þeir sem taka fyrsta sopann yngri. Unglingar og jafnvel börn virð- ast eiga auðvelt með að komast yfir vín eða landa. Það verður að stöðva með öllum tiltækum ráð- xnn. Og þá er stutt í hættxflegri vímuefni. Meö því að taka þátt í bindindisdeginum eram við að undirstrika og leggja okkar lóð á þá vogarskál að minnka ung- lingadrykkju og sýna vilja okkar í að koma í veg fyrir áféngis- neyslu barna og xmglinga. Landbúnaðar- stefnan glapræði Þorgeir S. Jónsson skrifar: Að eyða 2,7 milljörðum króna á ári næstu 5 árin í aðstoð við landbúnaðinn er glapræði. En hvers vegna mega bændur ekki verða gjaldþrota, rétt eins og aðr- ir einstaklingar eða illa reknar útgerðir? Ef styrkja á eina stétt en ekki aðra er þá ekki verið að mismuna íbúum þessa lands? Hér er Framsóknarflokknum rétt lýst. Væri ráöamönnxun ekki nær að lækka skattana með þess- um 2,7 milljörðum og leyfa bændum að rúlla geti þeir ekki rekið bú sín? Rétt eins og krafan er gagnvart okkxxr hinxxm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.