Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Side 6
miönd
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995
stuttar fréttir
Átta komust lífs af
Taliö er aö átta manns hafi
sloppið lifandi úr flugslysinu í
Kólumbíu á miðvikudagskvöld.
Fréttir um tölu lifenda eru
mjög á reiki.
Tölur lengi aö berast
Kommúnistar höföu afgerandi
forustu í rússnesku þingkosn-
ingunum þegar talning stóð enn
yfir, fimm dögum eftir kosning-
ai-nar. Ekki er búist viö endan-
legum úrslitum fyrr en á jóla-
dág.
Njósnaði Oleksy?
Lech Walesa lauk fimm ára
forsetatíð sinni á sama tíma og
kommúnistinn og fyrrum sam-
starfsmaður hans, Josef Oleksy
forsætisráðherra, er sakaöur um
aö hafa veitt njósnurum stjórn-
valda í Moskvu upplýsingar.
Peres hitti al-Assad
Samningamaður ísraela segir
vonir standa
til að Simon
Peres, for-
sætisráð-
herra ísraels,
hitti Hafez
al- Assad,
forseta Sýr-
lands, til við-
ræðna eftir 3-4 mánuði.
Fjárlög í gegn
Lamberto Dini, forsætisráð-
herra Ítalíu, kom fjárlögum
næsta árs í gegnum þingið.
Ragir að skera
Sjávarútvegsráðherrar ESB
ákváðu eftir næturlanga fúndi
að taka tillit til fiskvinnslufyr-
irtækja í landi og skera ekki
eins mikið niður í kvóta 1996 og
fiskifræðingar höfðu lagt til.
Óvíst um Papandreou
Læknar
sem annast
Andreas Pap-
andreou, for-
sætisráðherra
Grikklands,
segja hann
berjast við
enn aöra sýk-
ingu og sé ástand hans alvarlegt.
Öryggislögga skömmuð
Örygissveitir lögreglunar í
Vín voru gagnrýndar harðlega
fyrir að hafa ekki getað stemmt
stigu viö ofbeldi nasista í kjölfar
þess aö tveir nýnásistar voru
sýknaöir af ákærum um að hafa
sent fiölda bréfasprengna.
Gro Harlem seig
Gro Harlem Brundtland
gekkst fyrir mannaskiptum í
rikisstjóm sinni/Ekkert bendir
til að hún ætli að setjast í helg-
an stein, segist bjóða sig fram
viö þingkosningamar 1997.
Sprengjumanna leitað
Lögregla í Pakistan lofaði um
2 milljónum króna fyrir upplýs-
ingar sem leitt gætu til hand-
töku manna sem stóðu á bak
víð bílsprengju sem banaði 36
manns. Reuter/NTB
Kauphöllin í Tokyo
Vísitalan hækk-
aði um
rúm 300 stig
Hlutabréfavísitalan i Tokyo
hækkaði talsvert í.síðustu viku mið-
að við vikuna áður. Vísitalan var þá
skráð 19.653,25 stig, miðað viö
19.312,77 áður. Hlutabréfavísitalan í
Hong Kong lækkaði hins vegar lítil-
lega og.sama gildir i tlestum öðrum
kafttphöllum, í New York, Lundún-
uip ög'líka. Franjiftifct:
aír"
Litlar bréýtíngar úrðú á bensln-
Camilla gefst ekki upp þótt hún veröi aldrei drottning:
Ætlar alltaf að
standa með Karli
Þótt ákvörðun Karls, ríkisarfa
Breta, um að gifta sig aldrei aftur
þýði að Camilla Parker-Bowles, ást-
kona hans til margra ára, verði
aldrei drottning hefur hún ákveðið
að standa með Karli sínum í gegn-
um súrt og sætt. í breskum blöðum
í gær var haft eftir Camillu: „Ég
mun ætíð standa með þér, ástin
mín.“ Þá mun hún hafa sagt að það
ætti sér stað togstreita milli einstak-
lingsins og kerfisins og að í þessu
tilfelli yrði kerfið að hafa betur.
Camilla. sætti sig við að taka
stöðu ókrýndrar drottningar strax
daginn eftir að Karl samþykkti kröf-
ur móður sinnar um að lögskilnað-
ur gengi í gegn sem fyrst og sagði að
hann útlokaði annað hjónaband.
Hvort Karl er þreyttur og leiður á
hjónabandinu sem stofnun eða er að
reyna að ganga í augun á breskum
almenningi er ekki vitað en ákvörð-
un hans þykir setja Camillu að ei-
lífu í stöðu hjákonunnar.
Karl og Camilla hafa sést opinber-
Camilla Parker-Bowles.
lega saman við ýmsa viðburði und-
anfarið en almenningur er lítt hrif-
inn af „hinni konunni" í lífi hans.
Heldur því meira upp á Díönu.
Fjölmiðlar í Bretlandi sögðu frá
því sem þau kölluðu neyðarfund
Karls og Camillu og þar hefði hún
verið dæmd til að horfa á dýrðina
frá hliðarlínunni. Vinir Camillu
höfðu eftir henni að hún mundi
alltaf standa við hlið Karls, jafnvel
þó að hún yrði aldrei eiginkona
hans. Hún vill ekkert frekar en að
hann verði konungur, það séu örlög
hans og hann eigi það skilið.
Camilla hitti Karl fyrst á forugum
pólóvelli 1970 og varð þeim strax
hlýtt hvoru til annars. Síðar tók
Camilla að sér hlutverk hjákonunn-
ar, vinarins og huggarans sem eyði-
lagði hjónaband Karls og Díönu.
Díana hefur aldrei dregið dul á að
það var Camilla sem eyðilagði
hjónaband hennar og Karls og kall-
aði hana „Rottweilerinn" eftir sam-
nefndri hundategund. „Þetta var
þriggja manna hjónaband og þýddi
of mikO þrengsli," sagði hún.
Reuter
Hópur barna og foreldra í miðborg Sarajevo safnaðist saman hjá fslenska jólasveininum í gær í von um að fá frá hon-
um pakka sem íslensk fyrirtæki og einstaklingar hafa gefið. Sá á bak við skeggið er Þröstur Karlsson. Átti hann fullt
í fangi með að koma gjöfunum út þar sem flogið var með 11 tonn gjafa, fatnaðar og matvæla til Sarajevo í fyrradag
á vegum samtakanna Friður 2000. Símamynd Reuter
Dætur Richards Nixons, fyrrum Bandaríkjaforseta:
Fordæma mynd Olivers Stones
Dætur Richards Nixons, fýrrum
Bandaríkjaforseta, þær Triciá ög
Julie, fordæma nýja kvikmynd leik-
stjórans Olivers Stones sem nefnlst
Nixon og fiallar um forsetann sáluga.
Þær segja myndina afar villandi og
illkvittna og þar sé framin aftaka á
persónúnni. Þær fullyrða að Stone
hafi vísvitandi beðið þar til faðir
þeirra og móðir voru látin til að eiga
ekki á hættu að þau leituðu.lagalegs
' réftar síns. Dæturnar; .segja Stone
sjóða saman ímyndaða mynd af
, einkalífi Nixons sem sé til þess eins
að ófrægja og niðurlægja minning-
una um hann. Stone segir myndina
vera miðja vegu milli mannkyns-
sögu og skemmtunar. Haldi menn
fast við staðreyndir, skilji þær og
melti með það í huga, þurfi þeir ekki
að misskilja neitt. Reuter
■■ '' 1 ''
Kauphallir og vöruverð erlendis |
verði í síðustu viku. 92ja oktana ÁsS
bensín hækkaði um einn dollara og 3Í° jft
sama gildir um 98 oktana bensín. 305 [V
Hráolía hækkaði lítÚlega, fór úr. 300 j
17,92 dollurum tunnan í 18,20 doll- ■2953
ara. -290 %
Verð á sykri hefur hækkað lítil- 28.3^
lega á mörkuðum i Lundúnum og sama gildir um verð á kaffi. Reuter s
Spánn:
Bílsprengja drep-
ur liðsforingja
Liðsforingi í spænska hern-
um lét lífið þegar sprengja, sem
fest hafði verið á bíl hans,
sprakk þar sem hann ók á götu
í miðbæ Leon á Spáni í gær.
Fjórir slösuðust, þar á meðal
dóttir mannsins, og er óttast að
hún hafi misst báða fætur.
I gærdag hafði enginn lýst
ábyrgð á sprengingunni á hend-
ur sér en yfirvöld hafa Aðskiln-
aðarhreyfingu Baska, ETA,
grunaða. Þetta var fiórða
sprengjutilræðið á svipuðum
slóðum á rúmum mánuði. Að-
skilnaðarhreyfing Baska hefur
banað um 1000 manns, þar af
135 með bílsprengjum, síðan
hún hóf skæruhernað sinn fyr-
ir 26 árum. Takmarkið er stofn-
un sjálfstæðs ríkis Baska á
Norður-Spáni.
Kína:
Jingsheng áfrýjar
fangelsisdómi
Kínverski
andófsmað-
urinn Wei
Jingsheng,
faðir lýðræð-
ishreyfinga í
Kína, áfrýj-
aði í gær 14
ára fangelsis-
dómi sem hann hlaut í síðustu
viku fyrir að ætla að grafa und-
an stjómvöldum. Systir Weis
sagðist ekki eygja mikla von
um að dómurinn yfir bróöur
sínum yrði mildaður.
Systirin vonaðist til að áfrýj-
unarrétturinn mundi starfa fyr-
ir opnum tjöldum en taldi hæp-
ið að Wei fengi réttláta máls-
meðferð. Búist er við að réttur-
inn i Peking rétti bak við lukt-
ar dyr og vegi og meti þrjá
kosti: að staðfesta dóm undir-
réttar, minnka refsinguna eða
fara fram á ný málaferli.
Sviss:
16 meðlima sér-
trúarhóps saknaö
Lögreglan í Sviss leitar riú 16
meðlima sértrúarhópsins Reglu
hofs sólarinnar en þeirra er
saknað. í fyrra létu 53 meðlimir
hópsins lífið í hópsjálfsmorði í
Sviss og Kanada, þar á meðal
þriggja mánaða barn. Engin
skýring hefur fengist á sjálfs-
morðinu í fyrra en getgátur
voru uppi um að hópurinn
hefði staöið í stórfelldu pen-
ingaþvætti. Við líkfundina í
fyrra kom í ljós að margir
höfðu oröið fyrir skoti, verið
keflaðir eða undir áhrifum
lyfia.
Margrét Þórhild-
ur leggur á borð
Danska
konungsfiöl-
skyldan
bregður ekki
út af vanan-
um þessi jól
og nýtur
helgidaganna
í Marselis-.
borgarhöll í Árósum. Margrét
Þórhildur drottning og Henrik
prins eru þegar mætt á staðinn
og farin að undirbúa jóíin.
Ingrid drottning og Friðrik
krónprins koma á Þorláks-
messu. Jóakim og Alexandra,
sem giftu sig í nóvember, mæta
siðust en þau eru við brúðkaup
vinafólks í Bretlandi.
Margrét Þórhildur híeldur
faát í gamlar venjur og siði.
Fjölskyldan sameinast um að
skreyta jólatréð á Þorláks-
messukvöld en drottningin sér
ein um að leggja á borð á að-
fangadagskvöld. Fær enginn að
sjá dýrðina fyrr en jólamatur-
inn verður borinn fram, gæs og
enskur plómubúðingur.
Reuter/Ritzau
ov