Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995
Dagur í lífi séra Páturs Þórarinssonar:
Mikid annriki
á aðventunni
Síðastliðinn laugardagur var
ágætur dagur hjá mér. Ég vaknaði
tímanlega til að undirbúa kirkju-
skóla og lagði af stað um klukkan
10 um morguninn ásamt konu
minni suður í Svalbarðskirkju en
þar hófst kirkjuskóli klukkustundu
síðar. Konan mín er min hægri
hönd í þessu starfi, en þarna mætti
mikill fjöldi og viö áttum góða
stund saman í klukkutíma.
Við renndum heim í hádeginu og
síðan af stað aftur, nú til Grenivík-
ur en þar var ég með kirkjuskóla
klukkan hálftvö. Þar var sömu sögu
að segja, allt gekk ljómandi vel og
að því loknu komu verðandi ferm-
ingarbörn í kirkjuna á Grenivík til
að undirbúa sig fyrir aðventukvöld
sem var haldið kvöldið eftir. Við
fórum í gegnum helgileik, upp-
lestra og fleira og þessu lauk um
klukkan hálffjögur.
Þegar heim kom náði ég í síðustu
mínúturnar af fótboltáleiknum í
sjónvarpinu sem er vítamín sem ég
fær yfirleitt beint í æð á laugardög-
um eigi ég þess nokkum kost. Ég
hef mikinn áhuga á ensku knatt-
spyrnunni sem hefur tekið stakka-
skiptum með tilkomu margra góðra
leikmanna.
Að því loknu settist ég við tölv-
una og fór að semja. Ég samdi pistil
fyrir kvöldmat sem ég flutti í
svæðisútvarpinu á mánudag, og eft-
til Eskifjarðar, Reyðarfjarðar og
Húsavíkur til að tala þar á aðventu-
kvöldum þannig að það er mikil yf-
irferð á manni þessa dagana og
talsverð heimavinna viö undirbún-
ing. Sérstaklega er mikil undirbún-
ingsvinna með börnunum og ung-
lingunum fyrir þessi aðventukvöld
en ég legg upp úr því að þeir hafi
eitthvað fram að færa og taki virk-
an þátt á þessum kvöldum bæði í
formi söngs og helgileiks.
En þetta er mjög' ánægjulegur
tími, mikið annríki en virkilega
gefandi. Ég finn þó aldrei fyrir því
að þetta þreyti mig, það er frekar
að þetta komi barninu í mér til að
finna fyrir jólunum. í fyrra fór
þetta fram hjá mér þar sem ég lá á
sjúkrahúsi og það er afskaplega góð
tilfinning að geta verið heima um
jólin, sinnt sínum prestsverkum og
verið með fjölskyldu sinni. Það eru
forréttindi sem maður fínnur til eft-
ir að hafa reynt annað.
Rétt áður en ég sofnaði á laugar-
dagskvöldið greip ég aðeins í bók.
Það er orðin eins konar helgiathöfn
hjá mér að taka bókina Þeim varð á
í messunni sem inniheldur sögur af
kollegum minum og sjálfum mér,
og lesa örlítið. Þetta er saklaust
grín og skemmtilegt, og afskaplega
gott og jákvætt fyrir hugann að
sofna út frá þessari lesningu.
ir kvöldmatinn settist ég við tölv-
una aftur og undirbjó aðventu-
kvöldið á Grenivík. Það var komið
ansi vel fram á kvöldið þegar ég
loks sniglaðist í rúmið. Þetta var
mér drjúgur dagur og ég þurfti ekki
langan tíma til að hverfa inn í
draumalandið.
Dagamir á aðventunni eru marg-
ir mjög áþekkir þessum. Það eru
ýmsar samverustundir í skólunum
með börnunum og aðrar með gamla
fólkinu. Ég undirbý þrjú aðventu-
kvöld hér í prestakallinu, einnig
hef ég farið á aðventunni afla leið
Finnur þú fimm breytingar? 338
- Það er yndislegt að sjá hvernig þessi litlu dýr njóta sín í náttúrunni.
Nafn: _
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð þrítugustu og
sjöttu getraun reyndust vera:
1. Anna Eiríksdóttir 2. Þorsteinn Karlsson
Kleppsvegi 44 Bæjargili 110
105 Reykjavík 210 Garöabæ
Myndirnar . tvær virðast
við fyrstu sýn eins en þeg-
ar betur er að gáð kemur í
ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum
verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu
merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og
senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilis-
fangi. Að tveimur vikum
liönum birtum við nöfn
sigurvegaranna.
1. verðlaun:
ELTA útvarpsvekjari að verðmæti kr.
4.275, frá Bræðrunum Ormsson, Lág-
múla 8, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1.790. Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagiö með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 338
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík