Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Blaðsíða 12
eriend bóksjá LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995 Metsölukiljur I•••••••••••••♦« Bretland Skáldsögur: 1. Wllbur Smith: The Seventh Scroll. 2. Dick Francls: | Wlld Horses. 3. Terry Pratchett: Interesting Tlmes. 4. Doug Naylor: The Last Human. 5. Davld Guterson: Snow Falllng on Cedars. 6. Jane Austen: Prlde and Prejudlce. 7. Robert Goddard: Borrowed Tlme. 8. Maeve Blnchy: The Glass Lake. 9. Danlelle Steel: The Glft. 10. Catherlne Cookson: The Tlnker's Glrl. Rit almenns eölis: 1. S. Nye & P. Dornan: The A-Z of Bahavlng Badly. 2. Alan Bennett: Wrlting Home. 3. Nelson Mandela: Long Walk to Freedom. 4. S. Blrtwlstle & S. Conklln: The Maklng of Prlde and Prejudice. 5. Gary Larson: The Far Slde Gallery 5. 6. Andy McNab: Bravo Two Zero. 7. N.E. Genge: The Unofflclal Z-Files Companlon. 8. Carl Glles: Glles 1996. 9. lan Botham: Botham: My Autoblography. 10. Blll Watterson: Calvln & Hobbes lOth Annlversary Book (Byggt á The Sunday Times) Danmörk 1. Lise Nergaard: De sendte en dame. 2. Jung Chang: Vilde svaner. , 3. Klrsten Thorup: Elskede ukendte. 4. Robert J. Waller: Broerne I Madlson County. 5. Josteln Gaarder: Sofies verden. 6. Bret Easton Ellls: Uskrevne regler. 7. Peter Heeg: De máske egnede. (Byggt á Polltlken Sendag) vísindi Um aðskiljanlegar náttúrur Nóbelsins Nóbelsverðlaun ársins hafa verið afhent með konunglegri pomp og prakt í Stokkhólmi. En þótt sú skoð- un sé almenn að írska ljóðskáldiö Seamus Heaney sé vel að viður- kenningunni kominn halda deilurn- ar um þessi eftirsóttustu bók- menntaverðlaun allra tíma áfram og sýnist sitt hveijum, eins og gengur. Lýsandi dæmi um þá umræðu er eftirfarandi tilvitnun í grein eftir þekktan breskan blaðamann: „Fyrsta spurning: Hvað eiga Sully Proudhomme, Björnstjerne Björn- son, Jose Echegaray, Selma Lag- erlöf, Carl Spitteler, Wladyslaw Stanislaw Reymont, Roger Martin du Gard, Pearl Buck, Halldór Kiljan Laxness, Shmuel Yosef Agnon, Ivo Andric, Bertrand Russell og Win- ston Churchill sameiginlegt? Svar: þeir unnu allir bókmenntaverðlaun Nóbels. Önnur spurning: Hvað eiga Tol- stoy, Ibsen, Strindberg, Zola, Hardy, Gorky, Freud, Mandelstam, Akt- matova, Joyce, Conrad, DH Law- rence, Lorca, Rilke, Brecht, Na- bokov, Lowell og Calvino sameigin- legt? Svar: þeir fengu ekki Nóbel- inn.“ Þagnarmúr um störf akademíunnar Auðvitað ber fyrri nafnalistinn hér að framan þess merki að vera saminn af enskumælandi manni sem virðist hafa takmarkaðan áhuga á bókmenntum lítilla mál- svæða. Þannig eru vafalaust fleiri en íslendingar þeirrar skoðunar að Halldór Laxness hafi verið vel að Seamus Heaney tekur við bók- menntaverðlaunum Nóbels 1995 í Stokkhólmi. Umsjón Elías Snæland Jónsson Nóbelnum kominn. Engu að síður er ljóst að margir af merkustu rithöfundum aldarinn- ar hafa ekki fengið þessa æðstu við- urkenningu á bókmenntasviðinu - en það hafa hins vegar gert ýmsir höfundar sem nú þegar eru fallnir í gleymslu. Mikil leynd hvílir yfir störfum Sænsku akademíunnar að því er varöar Nóbelinn. En þrátt fyrir þann þagnarmúr er ýmislegt vitað um hvernig ákvörðun hvers árs gengur fyrir sig hvað formið varðar. Nokkur hundruð tilnefninga Akademíunni berast á hverju ári nokkur hundruð ábendingar um rit- höfunda sem ættu verðlaunin skilið. Skilafrestur þeirra sem samkvæmt reglunum hafa rétt til að benda á verðuga höfunda er til 1. febrúar ár hvert. Venjulega hljóta um 200 skáld fleiri en eina tilnefningu. Þessi nafnalisti er lagður fyrir fimm manna undirnefnd akademí- unnar sem velur fimmtán nöfn til frekari skoðunar. Eftir nokkra fundi fækkar nöfnunum í hámark sex. Sá nafnalisti fer til allra sem sæti eiga í akademíunni en þeir eru átján sem stendur. Þegar hausta tekur og umræður hefjast í akademíunni um þá fáu höfunda sem enn koma til greina leggur hver og einn félagi í aka- demíunni fram skriflegt álit. Síðan er málið rætt uns öllum er ljóst að meirihluti hefur myndast. Þá -er boðað til lokafundar þar sem form- leg atkvæðagreiðsla fer fram. Um helmingur félagsmanna í Sænsku akademíunni er skáld og rithöfundar en hinir eru háskóla- menn af ýmsu tagi. Þeir eru flestir í eldri kantinum; meðalaldurinn er yfir sjötíu ár. Núna eru í hópnum fjórar konur sem er óvenju mikið fyrir stofnun sem lengi hefur haft orð á sér fyrir aö vera hið mesta karlaveldi. I Metsölukiljur Bandaríkin Skáldsögur: 1. V.C. Andrews: Hlddel Jewel. 2. James Patterson: Klss the Glrls. 3. Jude Deveraux: The Helress. 4. Mary Hlgglns Clark: The Lottery Wlnner. 5. Jonathan Kellerman: Self-Defense. 6. Dean Koontz: Dark Rlvers of the Heart. 7. Tom Clancy & Steve Pieczenlk: Mlrror Image. 8. Davld Guterson: Snow Falllng on Cedars. 9. Rlchard Paul Evans: The Chrlstmas Box. 10. Nancy Taylor Rosenberg: Callfornla Angel. 11. George Dawes Green: The Juror. 12. Carol Shlelds: The Stone Dlarles. 13. Sandra Brown: Heaven’s Prlce. 14. Lawrence Sanders: McNally's Trlal. 15. Fern Mlchaels: To Have and to Hold. Rit almenns eölis: 1. Tlm Allen: Don't Stand to Close To a Naked Man. 2. Rlchard Preston: The Hot Zone. 3. H. Johnson & N. Rommelmann: The Real Real World. 4. Mary Plpher: Revlvlng Ophelia. 5. R. McEntire & T. Carter: Reba: My Story. 6. Tom Clancy: Flghter-Wlng. 7. Dorls Kearns Goodwln: No Ordlnary Tlme. 8. Davld Wlld: Frlends. 9. Paul Relser: Copplehood. 10. Delany, Delany & Hearth: Havlng Our Say. 11. Clarissa Plnkola Estés: Women Who Run wlth the Wolves. 12. M. Scott Peck: The Road Less Travelled. 'r 13. Thomas Moore: Care of the Soul. 14. B.J. Eadle & C. Taylor: Embraced by the Llght. 15. Joe Montana & Dlck Schaap: Montana. (Byggt á New York Tlmes Book Revl- ew) Eins árs börn eins og pabbi Vísindamenn ft-á Kaliforníu hafa komist að þvi að böm líkj- ast foreldrum sínum ekkert sér- staklega, að undanskildum eins árs krökkunum sem hafa alla jafna tilhneigingu tO að líkjast f pabba. í tilraun voru 122 manneskjur J fengnar til að skoða fjölskyldu- myndir frá ókunnugu fólki, myndir af foreldrunum á ýms- um aldri og bömunum eins árs, 10 og 20 ára. „Hinir tvítugu og tíu ára voru ekkert líkari raunverulegum foreldrum en fólki sem valið var af handahófi," segja vísinda- mennirnir i tímaritinu Nature. Það voru bara eins árs börnin sem líktust föður sínum, ekki móður. Ástæðurnar kunna að liggja í þróunarsögunni. Móðirin þekkir jú alltaf börnin sín, sama hvern- ig þau líta út, en ööru máli gegn- ir kannski um feðurna. Það gæti þvl hvatt föðurinn til afskipta af barninu ef það líkist honum. Risaeðlan vonbrigði Steingervt 70 milljón ára gam- alt risaeðluegg, sem vísinda- menn höfðu vonast til að geymdi fullþroskað fóstur, með beina- grind og öllu, olli vísindamönn- um vonbrigðum um daginn. Inni í egginu reyndist aðeins vera lítt þroskað fóstur sem veitir ekki mikla innsýn í þroska skepn- unnar. Umsjón Guðlaugur Bergmundssun Of mikið af vítamínum getur valdið fósturskaða Allir vita að hollur og góður matur er bráðnauð- synlegur vanfærum kon- um til að fóstrið þroskist eðlilega og úr verði heil- brigt barn. Nýjar rann- sóknir vísindamanna hafa bent á að hæfileg neysla á næringareínum á borð við fólínsýru dragi úr líkunum á því að kona eignist barn með fæðing- argalla í taugapipu, eins og klofinn hrygg. En það er með þetta eins og svo margt annað að allt er best í hófi og að meira er ekki endilega alltaf betra. Það segja að minnsta kosti rannsóknir sem gerðar hafa verið á neyslu ófriskra kvenna á A-vítamíni og líkunum á því að eignast bam með fæðingargalla. í grein, sem birtist ný- lega í New England Jo- urnal of Medicine, segir að óhófleg inntaka á A-vítamíni á meðgöngu- tímanum geti haft í fór með sér fjölda fæðingargalla sem flestir eigi upptök sín í heilanum. Það hefur verið á almanna vitorði í mörg herrans ár að mikið magn A og D vítamíns geti verið eitrað. Þess ber þó að geta að þetta mikla magn fæst að öllum líkindum ekki með neyslu næringarríkrar fæðu. Á hinn bóginn eru vítamín þessi nauðsyn- leg til að viðhalda góðri heilsu og þó sérstaklega mikilvæg fyrir fóstur- þroskann. Á undanfömum árum hafa menn hins vegar glatað þessu fína jafn- vægi sem þarf að viðhalda við inn- töku vítamína. Almenningur hefur flykkst í heilsufæðisverslanir og apótek til að kaupa vítamín og bæti- efni af ýmsum tegundum vegna mikillar aukningar á fréttaflutningi af hollustu þeirra og góðum áhrif- um. Allir vilja jú fá að njóta dýrðar- innar. Ófrískar konur ættu hins vegar að endurskoða inn- töku sína á vítamínum og steinefnum, ef flest þeirra eru fengin úr piUuglasi en ekki vénjulegum mat. í áðurnefndri rannsókn voru tuttugu og tvö þús- und ófrískar konur skoð- aðar og gögnum safnað um matarvenjur þeirra, lyfjanotkun og sjúkdóma á fyrstu þremur mánuð- um meðgöngunnar. Ávöxtur þungunarinnar var síðan skoðaöur með hliðsjón af gögnum þess- um. Niðurstööurnar urðu þær að meiri líkur væru á því að börn hefðu fæð- ingargalla ef mæður þeirra tóku meira en tíu þúsund alþjóðlegar ein- ingar af A-vítamíni sam- anborðið við fimm þús- und eininga inntöku. A-vítamín kemur úr fæðu eins og lifur, nýrUm, eggj- um og mjólk. Þá breytir líkaminn betakarótíni, sem kemur úr dökk- grænu og appelsínugulu grænmeti og *ávöxtum, í A-vítamín en það tengist ekki fæðingargöllum. í annarri grein í læknablaðinu var mælt með því að konur, sem eru ófrískar eða kynnu að verða það, tækju ekki meira en átta þúsund einingar af A-vítamíni og ættu líka að stilla neyslu á lifur og lifraraf- urðum í hóf. Stærsti róbóti í heimi í Þýskalandi er hafin fram- leiðsla á stærsta róbóta í heimi. í Skywash heitir hann og gegnir | því göfuga hlutverki að þvo far- i þegaflugvélar að utan. Róbóti þessi þvær þotumar ekki að- I eins fjórum sinnum hraðar en hreiftgerningamenn, heldur | leysir hann verkið betur af hendi. Róbóti þessi er með 33 metra langan arm úr ellefu hlutum. Liðamótin stjórnast af vökva- | dælum og hægt er að fetta arm- inn og bretta á alla kanta. Auga hugarins fundið Bandarískir vísindamenn I segjast hafa fundiö hugarins l auga, þann stað í heilanum sem l fólk notar þegar það hugsar um myndir. Það voru Stephen Kosslyn og félagar hans við Harvard háskólann sem fundu augaö með aðstoð svokallaðs PET-skanna. Tólf sjálfboðaliðar voru i fengnir til að hugsa um ýmsar myndir á meðan þeir voru í ; skannanum og komust vísinda- mennimir að því að sjónbörk- urinn er virkur bæði þegar til- 1 raunadýrin hugsa um myndir j og horfa á. „Sjónbörkurinn fer í gang þegar viðföngin loka augunum og sjá hluti fyrir sér,“ segja Kosslyn og félagar í grein í rit- I inu Nature. Vísindamennirnir báðu sjálf- boðaliðana, allt karlmenn, um að leggja á minnið myndir af venjulegum hlutum sem birtust á tölvuskjá. Svörun þeirra var borin saman við annan hóp manna sem höfðu bundið fyrir augun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.