Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995 1 iV Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarfprmaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT114,105 RVIK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@ismennt.is - Auglýsingar: dvaugl@ismennt.is. - Dreifing: dvdreif@ismennt.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds. Ljós og friður Veöurspámenn segja, að íslenzku jólin verði köld og hvít að þessu sinni, mild og þurr, eins og flestum finnst, að þau eigi að vera. Eftir langan hlýindakafla, sem stað- ið hefur fram undir jól er snögglega genginn vetur í garð um aflt land með staðviðrum og greiðum samgöngum. Botni skammdegismyrkurs hefur þegar verið náð og nú tekur dag að lengja á nýjan leik. Hátíð ljóssins minn- ir okkur á þessi kaflaskil í tilverunni og gefur okkur tækifæri til að hugsa með tilhlökkun til komandi mán- aða. Ljósadýrð jólanna gefur okkur forskot á sæliina. Veraldleg umsvif jólanna eru í hámarki um þessar mundir. Jólahaldið endurspeglar óhjákvæmilega lífskjör og lífshraða þjóðarinnar eins og endranær. Sumir eru önnum kafnir við þjónustustörf og aðrir í ýmsu vafstri, sem þeir telja verða að fylgja jólaundirbúningi. Flestir fá senn tækifæri til að hægja á sér og njóta há- tíðar ljóss og friðar. Víða sameinast fjölskyldur í borð- haldi og gagnkvæmum gjöfum. Þannig hefur það lengi verið og verður væntanlega lengi enn. Þetta er fasti punkturinn í árstíðabundnum takti lífsins. Margt hefur þó breytzt, þegar horft er langt aftur í tím- ann. Jólaljósin eru fleiri og bjartari en fyrr. Tækni og auður gera okkur kleift að njóta jólanna betur en marg- ir forfeðra okkar gátu, þótt fólki takist auðvitað misjafn- lega að nýta sér velmegunina til betra lífs. Sumir eru fastir í eltingaleik við meint lífsgæði af ýmsu tagi, tilgangslausri eftirsókn einskisverðra hluta, sem kalla á enn hraðari hlaup á eftir nýjum óskum, er áður voru ekki til. íslenzku jólin hafa því miður löngum dregið dám af þessum taugaveiklaða vítahring. Hver verður að smíða sína gæfu sem bezt hann getur. Fólki ber ekki skylda að taka þátt í dansinum kringum meira eða minna ímynduð lífsþægindi. Við megum velja og hafna. Margt fólk kann að halda streitunni í hófi og ná raunverulegri gleði friðarins um jóladagana. Við þurfum einnig að átta okkur á, að brestir eru farn- ir að koma í velmegun þjóðarinnar. Þetta eru önnur jól- in í röð, sem einkennast af því, að fleiri íslendingar eru hjálpar þurfi en áður var. Með hægt vaxandi stéttaskipt- ingu fjölgar fólkinu, sem lifir við fátæktarmörk. Það er óþægileg tilhugsun, að harkan skuli jafnt og þétt vera að aukast í þjóðfélaginu og að þeim skuli fara fjölgandi, sem af ýmsum ástæðum eru ekki þáttakendur í velmeguninni, er flestir búa við. Það er vont fyrir fá- menna þjóð að þurfa að sæta vaxandi stéttamun. Um þessar mundir er verið að rýra kjör aldraðra, ör- yrkja, atvinnulausra, sjúklinga og barnafólks. Stórbætt afkoma atvinnulífsins hefur ekki endurspeglazt í auk- inni atvinnu og auknum tekjum almennings. Á sama tíma hafa þeir bætt hlut sinn, sem betur mega sín. Þessi aukni ójöfnuður í þjóðfélaginu mun fyrr eða síð- ar baka okkur og landsfeðrunum vandræði, ef taflinu verður ekki snúið við. Okkur er fyrir beztu að skilja nauðsyn þess, að allir telji sig vera gilda aðila að þjóðfé- laginu og séu sæmilega sáttir við innviði þess. Jólin eru hátíð barnanna, sem síðar munu erfa land- ið. Okkur ber að reyna að leggja okkar af mörkum til að stuðla að þvi, að þau komi til verkefna í tiltölulega sam- stæðu og réttlátu þjóðfélagi, sem er sátt við sjálft sig. Það er bezta jólagjöf okkar til afkomendanna. DV óskar lesendum sínum og landsmönnum öflum bjartra og friðsælla jóla og góðs gengis á næsta ári. Jónas Kristjánsson Barist um hver tekur við af Jeltsín Úrslit kosninga til Dúmunnar, neðri deildar Rússlandsþings, á sunnudaginn ráöa ekki hver stjórnar Rússlandi. Þar ríkir for- setastjórn: hann skipar ríkis- stjórnina og getur haft vantrausts- yfirlýsingu þingsins á hana að engu, sé hún ekki ítrekuð með auknum þunga. Til slíks verða engin skilyrði í nýrri Dúmu að því séð verður þegar talning at- kvæða er langt komin. Kosningarnar til Dúmunnar voru því öðrum þræði liðskönnun fyrir forsetakosningarnar sem fram eiga að fara í júní á næsta ári. Þá verður tekist á um raun- veruleg yfirráð yfir rússnesku rík- isvaldi. Þetta hefur sett meginsvip á málatilbúnað sigurvegara kosn- inganna, endurreists flokks kommúnista. Leiðtogi hans, Gennadí Sjúganov, segir nú opin- skátt að nýfengnum þingstyrk verði ekki beitt til að gera orra- hríð að Boris Jeltsín forseta og stjórn hans svo ekki sé spillt fyrir sigurmöguleikum kommúnista í forsetakosningunni. Annað mál er hverjum höndum kommúnistar færu um andstæð- inga sína og þar með nýgróðursett lýðræði og tjáningarfrelsi í Rúss- landi, væru þeir komnir með for- setavaldið. Jafnvel nú eru teknar að heyrast raddir um að sá tími geti komið að Jeltsín verði látinn standa ábyrgur gerða sinna, sér í lagi beri að kanna hvaða heimild hann hafi haft til að beita sér fyr- ir að Sovétríkin voru leyst upp.' Hvað sem því líður er Borís Jeltsín búinn að vera, jafnvel þótt héilsa hans geri hann færan um að fara í framboð í sumar. Þar á hann engar sigurlíkur lengur. Herferðin gegn Tsjetsjenum gerði út af við stjórnmálaferil hans. Einmitt þegar Rússar gengu að kjörborði buldi rússnesk stór- Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson skotahríð á Gudermes, næst- stærstu borg Tsjetsjeníu, svipuð þeirri sem lagði höfuðborgina Grosní í rúst fyrir tæpu ári. Þær 35 milljónir Rússa sem lifa á ellilífeyri og starfsfólk hjá halla- reknum rikisfyrirtækjum búa við hrakleg kjör. Lág laun greiðast seint og illa. Samtímis hefur einkavæðing í þágu gæðinga vald- hafa fært fámennum hópi mikinn gróða. Úr þessum jarðvegi, og auð- mýkingu vegna hrapsins úr risa- veldisstöðu, er sprottið fylgi kommúnista og þjóðernissinna- flokks Vladimirs Zhirínovskís. Yrðu framboð í forsetakosningu eitthvað í líkingu við það sem varð í kosningum til Dúmunnar, þar sem 43 flokkar buðu fram í listakosningu um helming 450 þingsæta, yrði síðari umferðin milli tveggja atkvæðahæstu fram- bjóðenda fyrirsjáanlega einvígi milli Zhirínovskís og merkisbera kommúnista. Eina leiðin til að af- stýra því er að lýðræðissinnar sameinist um eitt sterkt framboð. í listakosningunni kemst lík- lega aðeins einn flokkur lýðræðis- sinna yfir 5% fylgismarkið sem sett er til að fá úthlutað þingsæt- um. Það er Jabloko, undir forustu Grigoris Javlinskís. Hann hefur það meðal annars sér til ágætis að hafa aldrei verið viðriðinn stjórn Jeltsíns meðan forsetinn studdist við unga og ákafa umbótasinna. Viðleitni þeirra til skipulegrar kerfisbreytingar rann út í sand- inn, ekki síst vegna þess að þingið fékkst aldrei til að setja viðhlít- andi lagagrundvöll fyrir eignar- rétti, samningsskuldbindingum og einkavæðingu. Þá tóku við kerfis- vanir forstjórar og embættis- menn, eins og Viktor Tsjernomyrdín forsætisráðherra. Samanlagt hafa flokkar lýðræð- issinna hlotið atkvæðafylgi sem slagar hátt upp í styrk kommún- ista en vegna dreifingarinnar nýt- ast aðeins atkvæði, greidd Jabloko, til sæta í Dúmunni. Mest munar þar um flokk Égors Gaid- ars, fyrrverandi forsætisráðherra, sem stundum hefur verið sagður komast yfir 5% mörkin eftir því sem talning sveiflast dag frá degi. Horfur í forsetakosningunum velta mjög á því hvort Gaidar snýst til fylgis við forsetaframboð Javlinskis, þrátt fyrir fyrri vær- ingar þeirra. Að Jeltsín frágengn- um er búist við að Tsjernomyrdín gefi kost á sér en í úrslitaumferð tveggja efstu eru yfirgnæfandi lík- ur á að fylgi hans og annarra miðjumanna færist til Javlinskís frekar en framjóðanda kommún- ista. Það eina sem er víst að svo komnu er að næsta misserið snú- ast rússnesk stjórnmál öðru frem- ur um viðleitni forsprakka helstu stjórnmálaafla til að setja sig í stellingar til að keppa um forseta- embættið í júní. Grigorí Javlinskí, foringi Jabloko, greiðir atkvæði í kosningum til Dúmunnar. Símamynd Reuter skoðanir annarra r>v -------------------------- Bændur biðla til neytenda „Óvenjulegt bandalag hefur myndast. Bændur vilja fá néytendur í lið með sér í baráttunni fyrir ódýrari mat. Hingað til hafa hagsmunir bænda og neytenda ekki farið saman. Bændur hafa á síðari árum fengið æ minna fyrir framleiðslu sína. En verðið til neytenda hefur hreint ekki lækkað jafn mikið. Vísitala matvælaverðs hefur að mestu leyti fylgt almennri verðlagsþróun hin síðari ár. Þetta hlýtur að þýða að einhverjir hafa hlaupið burt með meiri gróða en áður. Úr forustugrein Dagbladet 21. desember. Opnun landamæra frestað „Fríverslunarsamkomulag Norður-Ameríkuríkja 1 heimilar frjálsari umferð mexíkóskra og banda- Irískra flutningabíla beggja vegna landamæranna. Það mun hafa í fór með sér mikla aukningu á viö- skiptum. En ótti manna við slys af völdum mexí- kósku bílanna norðan landamæranna og áhyggjur Mexíkóa af samkeppninni við Bandaríkjamenn hafa leitt til þess að opnun landamæranna var frestað.“ Úr forustugrein New York Times 21. desember. Kjarnorkan allt of dýr „Svíar verða fyrr eða síðar að horfast í augu við að það er engin framtíð í kjarnorkunni. Um daginn kvaö ríkisrekna breska kjamorkumálastofnunin, British Energy, sem rekur 16 kjarnorkuver lands- ins, upp eigin dauðadóm. Útskýringin var sú að kostnaðurinn við þau er of mikiÚ, það er of dýrt að geyma geislavirkan úrgang og verð á jarðgasi er svo lágt að kjarnorkan er ekki samkeppnishæf. Þá er bara að koma sér í gang og leggja niður kjarn- orkuverið í Barseback.“ Úr forustugrein Politiken 20. desember.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.