Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Qupperneq 34
38
róttir
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995
%
Batnand manni er best að lifa
Þegar rúmlega fjórðungi leikja í
NBA-deildinni er lokið er býsna
margt eftir bókinni en þó er ýmis-
legt sem hefur komið mönnum á
óvart. Það sem stendur öðru fremur
upp úr er þó framúrskarandi árang-
ur Chicago Bulls en margir eru á
þeirri skoðun að liðið hafi líklega
ekki leikið betur í mörg herrans ár.
Oft hefur staða Chicago um þetta
leyti verið góð og liðið oftast leitt
miðriðilinn en núna er liðið búið að
slá sinn besta árangur. Sem sagt lið-
ið hefur aldrei áður byrjað deildina
jafn vel. Hvað veldur þessari kröft-
ugu byrjun kunna ýsmir að spyrja.
Það er margt sem leggst á eitt til að
gera Chicago Bulls svo að gífurlega
sterku liði sem það er í dag.
Þegar vandræðagepillinn Dennis
Roadman var keyptur frá San An-
tonio á sl. sumri höfðu ýmsir á orði
að nú væri allt upp í loft hjá
Chicago. Roadman innan um stór-
stjörnunar Michael Jordan og
Scottie Pippen myndi gera allt vit-
laust. Roadman vildi alltaf vera í
sviðsljósinu hjá San Antonio, bæði
innan vallar sem utan. Frægur er
hann fyrir að lita á sér hárið, sem er
aðra vikuna rautt og gult þá næstu.
Einnig stóð hann í eilífum deilum
við dómara og ófá eru bönnin sem
hann hefur fengið eftir deilur við
þá.
Spár um að allt yrði vitlaust hjá
Chicago eftir komu Roadmans þang-
að hafa ekki gengið eftir, sem betur
fer fyrir bandarískan körfubolta.
Roadman sýnir allt annan og betri
mann hjá Chicago. Hann feliur vel
inn í umhverfið þar og leggur sig
vel fram á æfingum og er nú svo
komið að hann er orðinn mikilvæg:
ur hlekkur í liðinu. Allir sem þekkja
hann vita hvað býr í honum og hafa
ráðamenn Chicago náð öllu því
%n hliðin___________________
Vandræðagepillinn Dennis Roadman í leik með Bulls.
besta fram í honum. Máltækið segir
að batnandi manni sé best að lifa.
Það á svo sannarlega við um Road-
man. Chicago er á fljúgandi ferð og
flugið verður vart stöðvað fyrr en
titillinn verður kominn í öruggt hús
í United Center.
Pat Riley dáður
af öllum í Miami
Koma Pat Riley til Miami Heat
hefur valdið straumhvörfum í
glæpaborginni miklu. Riley var
fenginn til að koma liðinu, sem ekki
hefur nema fimm ára sögu í NBA,
til vegs og virðingar. Allir vissu að
það gerðist ekki á einni nóttu. Allir
yrðu að sýna verkefninu, sem Riley
var falið, þolinmæði. Riley er heldur
ekkert að gera sér skýjaborgir um
þetta lið sem hann hefur í höndun-
um í dag. Það er langtímaverkefni
að koma liðinu í fremstu röð og
betri mann í þá smíði gátu þeir í Mi-
ami ekki hugsað sér.
Þótt Riley hafi aðeins verið
skamman tíma í Miami er árangur-
inn þegar farinn að koma í ijós. Mi-
ami er í dag með rúmlega 50% ár-
angur sem er sá besti til þessa og
eru bjartsýnustu menn farnir að
gæla við það að liðinu takist að
komast í úrslitakeppnina. Það verð-
ur tíminn einn að leiða í ljós en með
töframanninn Pat Riley við stjórn-
völinn getur allt gerst. Riley ræður
öllu hjá Miami, hann er ekki bara
þjálfari heldur einnig framkvæmda-
stjóri. Hann styrkti liðið fyrir tíma-
bilið en hefur ekki sagt staðar
numið í þeim efnum. Riley ætlar að
keyra á þeim mannskap sem hann
hefur í höndunum í vetur en fyrir
næsta tímabil verða hendur látnar
standa fram úr ermum í því að ná
enn betri mönnum saman.
Riley hefur yfir ótakmarkaðri
reynslu að ráða og árangur hans
með lið í deildinni talar sínu máli.
Hann stýrði Los Angeles Lakers
fjórum sinnum til sigurs og stóð sig
vel með New York Knicks þó ekki
hafi honum tekist að leiða liðið til
sigur í NBA. Tækifærinu með Mi-
ami Heat gat Riley ekki sleppt. Þar
gefst honum enn eitt tækifærið til
að sýna hvað hann er snjall þjálfari
og einnig það að launin sem hann
þiggur hjá félaginu er svifandi há.
Hann sagði nýlega í blaðaviðtali að
peningar úr þessu skiptu hann engu
máli. Hann lifði fyrir körfubolta og
innan um hann vildi hann vera.
DV
Dellukarlinn í útvarpinu
Þorsteinn G. Gunnarsson, dagskrárgerðar-
maður á dægurmálaútvarpi rásar 2, sýnir á
sér hina hliðina að þessu sinni. Útvarps-
hlustendur ættu að kannast við rödd Þor-
steins en hann hefur um árabil verið einn af
stjórnendum síðdegisútvarpsins þar á bæ og
öðru hverju er hann hirðir Þjóðarsálar rásar
2.
Þorsteinn, sem um árabil fékkst við texta- og
hugmyndavinnu í auglýsingum, hefur upp á
síðkastið reynt fyrir sér í fararstjórastarfínu
og einblínt á Newcastle í því tilliti.
Sjálfur segist Þorsteinn vera dellukarl og
sökkva sér ofan í áhugamál sín sem helst eru
fluguveiði, skokk, ferðalög og útivist. Reynd-
ar segist hann svo mikill dellukarl að hann
óttast það að eignast fleiri áhugamál því
hann missir aldrei áhugann á þeim gömlu
heldur bætir bara i sarpinn:
Fullt nafn: Þorsteinn Grétar Gunnarsson
Fæðingardagur og ár: 7. desember 1960.
Maki: Svanhvít Jóhannsdóttir.
Börn: Lilja og Ari Gunnar.
Bifreið: Toyota 4runner.
Starf: Dagskrárgerðarmaður.
Laun: Dæmigerð fyrir ríkisstarfsmann.
Áhugamál: Silungsveiði með flugu, skokk,
matur og drykkur.
Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói?
Ekki nema einhverja smáaura sem ég fagn-
aði ógurlega.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Kasta flugu fyrir sprettharðan silupg.
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að
strauja skyrtur. Ég veit aldrei hvort ég á að
byrja á lihingunni eða ermunum.
Uppáhaldsmatur: Nautafiliet með fitu frá
Jónasi í Gallery kjöt, hedsteikt af sjálfum
mér.
Uppáhaldsdrykkur: Newcastle brown ale.
Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í
dag? Michael Jordan.
Uppáhaldstímarit: Fiskifréttir.
Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð
segir Þorsteinn G. Gunnarsson dagskrárgerðarmaður
fyrir utan eiginkonuna? Linda Björk Gunn-
arsdóttir, systir min. Þaö er svipur með okk-
ur systkinunum.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkisstjóm-
inni? Skiptir það nokkru máli. Er ekki öli
vitleysan eins?
Hvaða persónu langar þig mest að hitta?
Eric Clapton.
Uppáhaldsleikari: Anthony Hopkins.
Uppáhaldsleikkona: Sandra Bullock. Hún
er svo flott.
Uppáhaldssöngvari: Van Morrisson.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Enn hefur
enginn komist með tæmar þar sem Stein-
grímur Hermannsson hafði hælana.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Hómer
Simpson.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Góðir breskir
spennuþættir.
Uppáhaldsveitingahús: Argentína steikhús.
Hvaða bók langar þig mest að lesa? Það er
ekki enn búið að skrifa hana.
Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Rás
2 og niðurstöður skoðanakannana segja mér
að þorri landsmanna sé sömu skoðunar.
Uppáhaldsútvarpsmaður: „Auðvitað ég,“
sagði Anna Kristine. „Þú svarar þessu af
sannfæringu, annars...,“ sagði Sigurður G.
Tómasson. „Á ég að færa þér kaffi, Steini
minn," sagði Vilborg Davíðs. „Okkur hefur
nú alltaf komið vel saman," sagði Leifur
Hauksson og Kristín Ólafsdóttir sagði: „Þor-
steinn! Langar þig til að kyssa mig.“ En ég
læt fólk ekki hafa áhrif á mig, allra síst sam-
starfsfólk, og segi því eins og satt er: Svavar
Gests.
Á hvaða sjónvarpsstöð horfir þú mest?
Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: David Lett-
erman.
Uppáhaldsskemmtistaður: 44 off Shore, viö
bakka Tyneárinnar í Newcastle.
Uppáhaldsfélag í íþróttum? Oftast KA,
stundum Afturelding, iðulega ÍR, sárasjaldan
Valur og aldrei KR.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í fram-
tíöinni? Að hlaupa heilt maraþon eftir tvö
ár með Rósu Friðriksdóttur og öðrum sem
þora.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Fór í langa
og skemmtilega ferð með allri fjölskyldunni
um skosku hálöndin, Norður-England og Wa-
les. Gisti á sveitakrám, í heimagistingu og
hjá vinum og vandamönnum.
-ELA
msem
4