Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1995, Side 44
w* messur
Árbæjarkirkja: Aðfangadagur:
Opið hús á aðfangadag kl. 11, 4 s. í
aðventu, fyrir börn og foreldra í Ár-
bæjarsókn. Jólastund, söngur og
stjórnendur Arna og Guðrún úr
sunnudagaskólanum. Aftansöngur
kl. 18. Barnakór Árbæjarsóknar
syngur ásamt kirkjukór. Xu Wen
syngur stólvers. Kristján Stephen-
sen leikur á óbó í guðsþjónustunni
og flytur ásamt Hrefnu Eggertsdótt-
ur píanóleikara tónlist frá kl. 17.30.
Prestar safnaðarins þjóna við guðs-
þjónustuna.
Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14. Prestur sr. Guðmundur Þor-
steinsson. María Cederborg leikur á
I flautu. Halla Jónasdóttir og Fríður
Sigurðardóttir syngja „Þú helga
nótt“. Bjarni Thor Kristinsson syng-
* ur einsöng.
Annar jóladagur: Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Þór Hauksson þjónar fyr-
ir altari. Guðrún Karlsdóttir guð-
fræðinemi prédikar. Marta Hall-
dórsdóttir syngur stólvers. Söng-
hópurinn Smávinir leiðir söng.
Prestarnir.
Ásprestakall: Aðfangadagur:
Áskirkja: Aftansöngur kl. 18. Inga
J. Backman syngur einsöng.
Hrafnista: Aftansöngur kl. 14.
Kolbrún Ásgrímsdóttir syngur ein-
söng.
Kleppsspítali: Aftansöngur kl.
16. Kolbrún Ásgrímsdóttir syngur
einsöng. Árni Bergur Sigurbjörns-
son.
Jóladagur: Áskirkja: Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 14.00. Eiður Á.
Gunnarsson syngur einsöng.
Þjónustuíbúðir aldraðra v/Dal-
braut: Guðsþjónusta kl. 15.30. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
Breiðholtskirkja: Aðfangadag-
ur: Aftansöngur kl. 18. Jón Þor-
steinsson syngur einsöng.
Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14.
Annar jóladagur: Fjölskyldu- og
skírnarguðsþjónusta kl. 14. Barna-
kórinn syngur. Börn úr TTT-starf-
flytja helgileik. Sr. Gísli Jónas-
son.
Bústaðakirkja: Aðfangadagur:
Barnamessa kl. 11.00. Aftansöngur
kl. 18.00.
Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14. Fjölbreytt tónlist fyrir athöfn.
Einsöngur: Hanna Björk Guðjóns-
dóttir. Skírnarmessa kl. 15.30.
Annar jóladagur: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 14. Fjöl-
breytt tónlist með þátttöku barna-
og bjöllukórs. Skírnarmessa kl.
15.30. Organisti og kórstjóri í öllum
athöfnum er Guðni Þ. Guðmunds-
son. Pálmi Matthíasson.
Digraneskirkja: Aðfangadagur:
Hátíðarmessa kl. 18.
v Jóladagur: Hátíðarmessa kl. 14.
Annar jóladagur: Guðsþjónusta
kl. 14 með sérstakri þátttöku ferm-
ingarbarna. Organisti í guðsþjón-
ustunum Smári Ólafsson. Gunnar
Sigurjónsson.
Dómkirkjan: Aðfangadagur: Kl.
14. Þýsk jólaguðsþjónusta. Prestur
sr. Gunnar Kristjánsson, Reynivöll-
um. Organisti Marteinn H. Friðriks-
son. Einsöngur Jón Þorsteinsson.
Lesari dr. Alexander Olbrech. Kl.
15.30. Dönsk jólamessa. Prestur sr.
María Ágústsdóttir. Organisti Sig-
rún Steingrímsdóttir. Kl. 18. Aftan-
söngur. Prestur sr. Hjalti Guð-
mundsson. Dómkórinn syngur. Org-
anleikari Marteinn H. Friðriksson.
Kl. 23.30. Messa á jólanótt. Prestur
' sf. Jakob Á. Hjálmarsson. Organ-
leikari Ólafur Finnsson. Kvartett
syngur.
Jóladagur: Kl. 11. Hátíðarguðs-
þjónusta. Prestur sr. Hjalti Guð-
mundsson. Dómkórinn syngur. Org-
anleikari Marteinn H. Friðriksson.
Kl. 14. Hátíðarmessa. Prestar sr.
María Ágústsdóttir og sr. Jakob Á.
Hjálmarsson.
Annar jóladagur: Kl. 11. Hátíð-
armessa. Prestur sr. Jakob Á.
Hjálmarsson. Altarisganga. Kl. 14.
Jólahátíð barnanna. Prestur sr.
María Ágústsdóttir. Helgileikur,
jóiasaga, tónlist.
Miðvikud. 27. des.: Hádegisbæn-
ir kl. 12.10. Prestur sr. María
Ágústsdóttir. Lesmessa kl. 18.00.
Elliheimilið Grund: Aðfanga-
dagur: Guðsþjónusta kl. 16. Org-
anisti Kjartan Ólafsson. Guðmund-
ur Óskar Ólafsson.
Jóladagur: Guðsþjónusta kl. 10.
urganisti Kjartan Ólafsson. Guð-
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995 UV
mundur Óskar Ólafsson.
Eyrarbakkakirkja: Aðfanga-
dagur: Messa kl. 23.30.
Fella- og Hólakirkja: Aðfanga-
dagur: Aftansöngur kl. 18. Prestur
sr. Hreinn Hjartarson. Einsöngur:
Kristín R. Sigurðardóttir. Aftan-
söngur kl. 23.30. Prestur sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson. Einsöngur:
Kristín R. Sigurðardóttir. Barnakór
Fella- og Hólakirkju syngur.
Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14. Prestur sr. Hreinn Hjartar-
son. Einleikari: Luise Guðmunds-
dóttir. Börn úr æskulýðsstarfinu
sýna helgileik.
Annar jóladagur: Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 14. Prestur sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson. Einsöngur:
Lovísa Sigfúsdóttir, Bylgja Gunn-
arsdóttir. Við allar messurnar syng-
ur kirkjukór Fella-
og Hólakirkju. Org-
anisti Lenka
Mátéová. Prestarnir.
Frikirkjan
Reykjavík: Að-
fangadagur: Kl.
18.00 aftansöngur,
einsöngvarar: Erla B.
Einarsdóttir og
Svava Kristín Ing-
ólfsdóttir.
Aðfangadagur:
Kl. 23.30 miðnætur-
guðsþjónusta, ein-
söngvarar: Svava
Kristín Ingólfsdóttir
og Þuríður G. Sigurð-
ardóttir.
Jóladagur: Kl.
14.00 hátíðarguðs-
þjónusta, einsöngur:
Elísabet Hermund-
ardóttir. Organisti
Pavel Smid. Cecil
Haraldsson.
Gaulverjabæjar-
kirkja: Jóladagur:
Messa kl. 14.00.
Grafarvogs-
kirkja: Aöfanga-
dagur: Aftansöngur
kl. 18. Einsöngúr: Eg-
ill Ólafsson. Auður
Hafsteinsdóttir leikur á fiðlu frá kl.
17.30. Kirkjukórinn syngur. Mið-
næturguðsþjónusta kl. 23.30. Ein-
söngur Inga Backman. Kórfélagar
úr Hljómkórnum syngja.
Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14. Einsöngur: Bergþór Pálsson.
Einleikur á flautu: Guðlaug Ásgeirs-
dóttir. Hátíðarguðsþjónusta á Hjúk-
runarheimilinu Eir kl. 15.30.
Annar jóladagur: Útvarpsguðs-
þjónusta kl. 11. Einsöngur: Sigurður
Skagfjörð. Einleikur á trompet: Ei-
ríkur Örn Pálsson. Ritningarlestur:
Bjarni Grímsson, formaður sóknar-
nefndar, og Valgerður Gísladóttir
safnaðarfulltrúi. Skírnar- og barna-
guðsþjónusta kl. 14. Barnakór Graf-
arvogskirkju syngur undir stjórn
Áslaugar Bergsteinsdóttur. Organ-
isti og kórstjóri Bjarni Þór Jón-
atansson. Vigfús Þór Árnason, Sig-
urður Arnarson.
Grensáskirkja: Aðfangadagur:
Aftansöngur kl. 18. Prestur sr. Hall-
dór S. Gröndal. Hátíðarsöngvar
Bjarna Þorsteinssonar. Geirjón Þór-
isson syngur. Organisti Árni Arin-
bjarnarson.
Jóladagur: Hátíðarmessa kl. 14.
Einsöngur Sigurður Björnsson.
Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Org-
anisti Árni Arinbjarnarson.
Annar jóladagur: Messa kl. 14.
Skírn, altarisganga. Prestur sr.
Halldór S. Gröndal. Organisti Árni
Arinbjarnarson.
Grindavíkurkirkja: Aðfanga-
dagur: Aftansöngur kl. 18.00. Hljóð-
færaleikur nemenda Tónlistarskól-
ans frá kl. 17.30. Einsöngvari Guð-
mundur Sigurðsson. Aftanstund kl.
23.30. Barnakórinn syngur jólalög
frá kl. 23.00. Og hann syngur ásamt
kirkjukórnum við aftanstundina.
Jóladagur: Hátíðarmessa ' kl.
14.00. Börn borin til skírnar.
Kirkjuvogskirkja, Höfnum:
Jóladagur: Hátíðarmessa kl. 11.00.
Víðihlíð - dvalarheimili aldr-
aðra: Aðfangadagur: Helgistund
kl. 16.00. Barnakórinn flytur söng-
leik um „Jólaguðspjallið"
Sjúkrahús Suðurnesja, Kefla-
vík: Jóladagur: Helgistund kl.
12.30.
Kór Grindavíkurkirkju syngur
við athafnirnar. Organisti Siguróli
Geirsson og ásamt honum stjórnar
Vilborg Sigurjónsdóttir barnakórn-
um. Prestur Jóna Kristín Þorvalds-
dóttir. Sóknarnefndin.
Hallgrímskirkja: Aðfangadag-
ur: Aftansöngur kl. 18.00. Organisti
Hörður Áskelsson. Hamrahlíðarkór-
inn syngur. Hljómskálakvintett
Reykjavíkur leikur frá kl. 17.00. Sr.
Karl Sigurbjörnsson. Miðnætur-
messa kl. 23.30. Mótettukór Hall-
grímskirkju syngur. Organisti
Hörður Áskelsson. Sr. Ragnar Fjal-
ar Lárusson.
Jóladagur: Hátíðarmessa kl. 14.
Sr. Sigurður Pálsson.
Annar jóladagur: Hátíðarmessa
kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Háteigskirkja: Aðfangadagur:
Aftansöngur kl. 18. Prestarnir. Mið-
næturmessa kl. 23.30. Sr. Tómas
Sveinsson.
Jóladagur: Hátíðarmessa kl. 14.
Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.
Skírnarguðsþjónusta kl. 15.30. Sr.
Helga Soffla Konráðsdóttir.
Annar jóladagur: Hátíðarmessa
kl. 14. Sr. Tómas Sveinsson. Org-
anisti og kórstjóri við allar messur:
Pavel Manasek.
Hjallakirkja: Aðfangadagur:
Aftansöngur kl. 18. Prestur sr.
Kristján Einar Þorvarðarson. Ein-
söngur: Sigríður Gröndal. Kór
Hjallakirkju syngur. Miðnæturguðs-
þjónusta kl. 23. Tvöfaldur kvartett
syngur. Prestur sr. Bryndís Malla
Elídóttir. Organisti Smári Ólason.
Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14. Kór Hjallakirkju syngur.
Kristín Lárusdóttir leikur á selló.
Prestur sr. Kristján Einar Þorvarð-
arson.
Annar jóladagur: Barnaguðs-
þjónusta kl. 13. Prestur sr. Bryndís
Malla Elídóttir. Skólakór Hjalla-
skóla syngur undir stjórn Guðrúnar
Magnúsdóttur. Foreldrar eru hvatt-
ir til þátttöku ásamt börnum sínum.
Organisti í guðsþjónustunum Odd-
ný J. Þorsteinsdóttir.
Holtsprestakall í Önundarfirði:
Aðfangadagur: Aftansöngur í Flat-
eyrarkirkju kl. 18.00.
Jóladagur: Hátíðarmessa í Holts-
kirkju kl. 14.00. Sr. Gunnar Björns-
son.
Hraungerðisprestakall í Flóa:
Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta i
Villingaholtskirkju kl. 13.30. Hátíð-
arguðsþjónusta í Laugardælakirkju
kl. 15.00.
Annar jóladagur: Hátíðarguðs-
þjónusta í Hraungerðiskirkju kl.
13.30. Kristinn Ág. Friðfinnsson.
Hvammstangakirkja: Aðfanga-
dagur: Aftansöngur kl. 18. Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 23.30.
Annar jóladagur: Sjúkrahús
Hvammstanga, hátíðarguðsþjónusta
kl. 11. Vesturhópshólakirkja, hátíð-
arguðsþjónusta kl. 14. Tjarnar-
kirkja, hátíðarguðsþjónusta kl.
16.30.
Keflavíkurkirkja: Aðfangadag-
ur: Aftansöngur kl. 18. Blásarakvar-
tett leikur jólalög frá kl. 17.30. Guð-
mundur Ólafsson syngur einsöng.
Sr. Sigfús Baldvin Ingvason prédik-
ar og sr. Ólafur Oddur Jónsson
þjónar fyrir altari. Jólavaka kl.
23.30. Einsöngvarar: María Guð-
mundsdóttir, Ein'ar Júlíusson og
Guðmundur Sigurðsson. Sr. Sigfús
Baldvin Ingvason þjónar fyrir alt-
ari. Kór Keflavíkurkirkju syngur
við báðar athafnirnar. Organisti og
stjórnandi: Einar Örn Einarsson.
Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta
á Hlévangi kl. 10.30. Sr. Ólafur Odd-
ur Jónsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Félagar úr Kór Keflavíkur-
kirkju syngja við undirleik Einars
Arnar Einarssonar. Hátíðarguðs-
þjónusta í kirkjunni kl. 14. Andrés
Bjömsson leikur einleik á trompet.
Ólafur Oddur Jónsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór Keflavíkur-
kirkju syngur undir stjórn Einars
Arnar Einarssonar.
Annar jóladagur: Fermingar- og
skírnarguðsþjónusta kl. 14. Fermd
verður Ragnheið-
ur Ösp Sigurðar-
dóttir frá
Cambridge,
Massachusetts í
Bandaríkjunum,
p.t.a. Vallargötu
19, Keflavík. Fað-
ir hennar, Sigurð-
ur Sævarsson,
syngur einsöng
og Sigrún Sæv-
arsdóttir leikur á
básúnu. Ömmu-
bróðir Ragnheið-
ar, biskup ís-
lands, herra Ólaf-
ur Skúlason,
fermir hana. Kór
Keflavíkurkirkju
syngur undir
stjórn organist-
ans Einars Arnar
Einarssonar.
Kópavogs-
kirkja: Aðfanga-
dagur: Aft-
ansöngur kl. 18.
Miðnæturguðs-
þjónusta kl. 23.
Jóladagur: Há-
tíðarguðsþjón-
usta kl. 14. Jóla-
guðsþjónusta í
Sunnuhlíð kl. 15.15.
Annar jóladagur: Skírnar- og
fjölskylduguðsþjónusta kl. 14. Skóla-
kór Kársness syngur. Örn Falkner
er organisti við allar guðsþjónust-
urnar. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Landspítalinn: Aðfangadagur:
Messa kl. 14.30. Sr. Bragi Skúlason.
Jóladagur: Messa kl. 10. Sr. Jón
Bjarman.
Landspítalinn, deild 33 A: Að-
fangadagur: Messa kl. 14. Sr. Jón
Bjarman.
Kapella kvennadeildar: Að-
fangadagur: Messa kl. 15.30. Sr.
Bragi Skúlason.
Meðferðarheimilið Vífilsstöð-
um: Jóladagur: Messa kl. 11. Sr.
Bragi Skúlason.
Langholtskirkja: Aðfangadag-
ur: Aftansöngur kl. 18. Prestur sr.
Flóki Kristinsson. Hátíðarsöngvar
Bjarna Þorsteinssonar. Miðnætur-
messa kl. 23.30. Gregorskt tónlag -
Englamessan.
Jóladagur: Hátíðarmessa kl. 14.
Prestur sr. Flóki Kristinsson. Hátíð-
arsöngvar Bjarna Þorsteinssonar.
Annar jóladagur: Fjöl-
skylduguðsþjónusta - sunnudaga-
skóli kl. 14.00. Börn í Kórskóla
Langholtskirkju flytja áhugaverðan
helgileik: „Fæðing frelsarans" söng-
leikur eftir Hauk Ágústsson.
Laugarneskirkja: Aðfangadag-
ur: Jólaguðsþjónusta kl. 15.30 1
Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12. Fjöl-
skylduguðsþjónusta í , Laugarnes-
kirkju kl. 16.00. Ten-sing kór KFUM
og KFUK syngur. Jólagjafir afhent-
ar börnunum. Aftansöngur kl. 18.00.
Kór Laugarneskirkju syngur undir
stjórn Gunnars Gunnarssonar org-
anista. Drengjakór Laugameskirkju
syngur undir stjórn Friðriks S.
Kristinssonar. Dúfa S. Einarsdóttir
syngur einsöng. Ólafur Jóhannsson.
Jóladagur: Messa kl. 14. Guð-
mundur Karl Brynjarsson guðfræð-
ingur prédikar. Kór Laugarnes-
kirkju syngur undir stjórn Gunnars
Gunnarssonar organista. Laufey
Geirlaugsdóttir syngur einsöng.
Annar jóladagur: Jólaguðsþjón-
usta kl. 11 á Öldrunarlækningadeild
Landspítalans, Hátúni 10B. Skirnar-
guðsþjónusta i Laugarneskirkju kl.
14. Kór Laugarneskirkju syngur
undir stjórn Gunnars Gunnarsson-
ar organista. Ólafur Jóhannsson.
Fimmtud. 28. des.: Jólaguðsþjón-
usta kl. 20.00 í sal Öryrkjabanda-
lagsins, Hátúni 10, 9. hæð. Ólafur
Jóhannsson.
Mosfellsprestakall: Þorláks-
messa: Guðsþjónusta í Víðinesi kl.
11.00. Kirkjukór Brautarholtskirkju.
Organisti: Páll Helgason.
Aðfangadagur: Aftansöngur á
Reykjalundi kl. 16.00. Einsöngur:
Jón Þorsteinsson tenór. Kirkjukór
Lágafellssóknar. Organisti: Guð-
mundur Sigurðsson. Aftansöngur í
Lágafellskirkju kl. 18.00. Einsöngur:
Signý Sæmundsdóttir sópran. Mið-
næturguðsþjónusta í Lágafells-
kirkju kl. 23.30. Flautuleikur: Krist-
jana Helgadóttir.
Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta
í Lágafellskirkju kl. 14.00. Einsöng-
ur: Jón Þorsteinsson tenór.
Neskirkja: Aðfangadagur: Jóla-
stund barnafjölskyldunnar kl. 16.
Sr. Frank M. Halldórsson. Aftan-
söngur kl. 18. Einsöngur Ólafur
Kjartan Sigurðsson. Arnhildur
Reynisdóttir leikur á trompet. Sr.
Frank M. Halldórsson. Náttsöngur
kl. 23.30. Þóra Einarsdóttir syngur
einsöng. Orgel og kórstjórn Reynir
Jónasson. Sr. Halldór Reynisson.
Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14. Inga Backman syngur ein-
söng. Orgel og kórstjórn Reynir Jón-
asson. Sr. Halldór Reynisson.
Annar jóladagur: Jólasamkoma
barnanna kl. 11.00 í safnaðarheimil-
inu. Dansað í kringum jólatréð.
Jólasveinn kemur í heimsókn.
Prestarnir. Hátíðarguðsþjónusta kl.
14.00. Sr. Frank M. Halldórsson.
Fimmtud. 28. des.: Kirkjustarf
aldraðra. Guðsþjónusta kl. 14.00 á
vegum Ellimálaráðs og öldrunar-
þjónustudeildar Félagsmálastofnun-
ar. Kór barna úr Melaskóla syngur
fyrir athöfn. Sr. Ólöf Ólafsdóttir,
prestur á Skjóli, prédikar. Kór aldr-
aðra í Neskirkju syngur undir
stjórn Ingu Backman. Organisti
Reynir Jónasson. Sr. Guðlaug Helga
Ásgeirsdóttir og sr. Frank M. Hall-
dórsson þjóna fyrir altari. Almenn-
ur söngur. Kaffiveitingar eftir guðs-
þjónustu í safnaðarheimili.
Innri-Njarðvíkurkirkja: Að-
fangadagur: Aftansöngur kl. 18.00.
Sigurður Sævarsson syngur ein-
söng.
Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 11.00. Baldur Rafn Sigurðsson.
Ytri-Njarðvíkurkirkja: Að-
fangadagur: Jólavaka kl. 23.30.
Helgileikur og kertaljós.
Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14.00. Börn borin til skírnar.
Bylgja Dís Gunnarsdóttir syngur
einsöng. Baldur Rafn Sigurðsson.
Óháði söfnuðurinn: Aðfanga-
dagur: Aftansöngur kl. 18.
Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 15. Einsöngur Ingibjörg Guðjóns-
dóttir.
Seljakirkja: Aðfangadagur:
Guðsþjónusta í Seljahlíð kl. 14.
Helga Rós Indriðadóttir syngur ein-
söng. Sr. Valgeir Ástráðsson prédik-
ar. Aftansöngur í Seljakirkju kl. 18.
Barnakór Seljakirkju syngur. Sr.
Ágúst Einarsson prédikar. Hljóð-
færaleikur frá kl. 17.30. Kl. 23.30.
Miðnæturguðsþjónusta. Bergþór
Pálsson syngur einsöng. Sr. Valgeir
Ástráðsson prédikar. Jólalögin leik-
in í kirkjunni frá kl. 23.
Jóladagur: Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar.
Rannveig Fríða Bragadóttir syngur
einsöng.
Annar jóladagur: Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Ágúst Einarsson prédikar.
29. desember: Guðsþjónusta kl.
20.30. Þátttaka AA-fólks Seljakirkju.
Páll Karlsson prédikar. Kirkjukór
Seljakirkju leiðir söng og syngur
við allar guðsþjónustur kirkjunnar.
Organisti er Kjartan Sigurjónsson.
Seltjarnarneskirkja: Áðfanga-
dagur: Aftansöngur kl. 18. Þuríður
Sigurðardóttir syngur einsöng. Org-
anisti Vera Gulasciova. Prestur sr.
Solveig Lára Guömundsdóttir. Mið-
næturguðsþjónusta kl. 23.30. Alina
Dubik syngur einsöng. Organisti
Vera Gulasciova. Prestur sr. Hildur
Sigurðardóttir.
Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14. Martial Nardeau leikur á
flautu. Organisti Vera Gulasciova.
Prestur sr. Solveig Lára Guðmunds-
dóttir.
Stokkseyrarkirkja: Aðfanga-
dagur: Messa kl. 18.00.