Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Side 2
2
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996
Fréttir______________________________________________________________________________dv
Sala hlutabréfa Akureyrarbæjar í ÚA:
Hlutur bæjarins metinn
á tæplega 1,3 milljarða
DV, Akureyri:
„Það er samkomulag um það að
halda áfram á þeirri braut að selja
hlutabréf í eigu bæjarins. Varðandi
hlut bæjarins I Útgerðarfélagi Akur-
Reykhólahreppur:
Oddvitinn hefur
orðið fyrir
aðkasti og hættir
Stefán Magnússon, oddviti í
Reykhólahreppi, hefur myndað nýj-
an meirihluta með N-lista og einum
félaga sínum af L-lista. Listarnir
hafa náð samkomuiagi um að ráða
nýjan starfsmann á skrifstofu
hreppsins í stað sveitarstjóra en
Stefán hefur gegnt starfinu frá því
Bjarni P. Magnússon lét af störfum.
Þá tekur Þórður Jónsson við starfi
oddvita eftir tvær vikur en Stefán
lætur af því starfi af persónulegum
ástæðum.
„Við höldum áfram að vinna að
fjárhagsvanda sveitarfélagsins og
erum komin núna með tryggan
meirihluta. Nú þurfum við ekki að
óttast að ekki sé meirihluti í vissum
málum,“ segir Stefán.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum DV hafa Stefán og fjölskylda
hans orðið fyrir aðkasti í sveitinni
eftir að máli Bjarna P. Magnússon-
ar var vísað til RLR og mun það
vera ástæðan fyrir því að Stefán vill
draga sig í hlé frá oddvitastarfinu.
Aðspurður hvort Stefán láti und-
an þrýstingi félaga sinna, sem sam-
þykktu vantraust á hann í síðustu
viku, um aö segja af sér sem sveitar-
stjórnarmaöur, segist hann ekki
ætla að taka tillit til þess.
„Samkvæmt sveitarstjómarlög-
um get ég alveg setið áfram sem
sveitarstjórnarmaður,“ segir hann.
-GHS
eyringa er það að segja að við höf-
um ekki fullmótað það hversu hratt
verður farið í það mál,“ segir Jakob
Björnsson, bæjarstjóri á Akureyri.
Eignarhlutur bæjarins í ÚA er nú
rúmlega 53%. Nafnverð þess hluta
er 408 milljónir króna og síðasta
gengi bréfanna er 3,1. Söluverð hlut-
ar Akureyrarbæjar í fyrirtækinu er
því tæplega 1,3 milljarðar króna.
Jakob segir að Akureyrarbær
muni leita faglegrar ráðgjafar áður
DV, Akureyri:
Jakob Bjömsson, bæjarstjóri á
Akureyri, segist mjög undrandi á
þeim ummælum Helga Vilhjálms-
sonar, eiganda sælgætisfyrirtækj-
anna Góu og Lindu, að hann hafi
nánast hrakið Helga úr bænum með
súkkulaðiverksmiðjuna Lindu og
hafi ekkert viljað fyrir hann og fyr-
irtæki hans gera.
„Ég hef einu sinni hitt manninn
og þá kom hann til fundar við mig á
skrifstofu mína ásamt atvinnufull-
trúa Akureyrarbæjar. Tilefni fund-
arins var að ræða framtíö Lindu á
Akureyri við eigandann. Við höfð-
um heyrt að hann hygðist jafhvel
byggja yfir starfsemi Lindu í bæn-
um og tilgangurinn með því aö fá
hann á minn fund var m.a. að
en ráðist verði í sölu bréfanna og
þetta gerist ekki alveg á næstunni.
Hann segir að ekki hafi veriö tekin
ákvörðun um hvemig bréfin verða
seld, hvort einhverjum aðilum verði
gefinn kostur á að kaupa 10-15%
kynna honum hugsanlegar bygging-
arlóðir sem myndi henta fyrirtæk-
inu og kanna hvort við gætum veitt
honum einhverja fyrirgreiðslu.
Á þessum fundi sló Helgi úr og í
og það varð engin niðurstaða. Síöan
kemur þessi maður fram með þá
fullyrðingu að ég hafi hrakið hann
úr bænum og ekki er hægt að skilja
hann öðruvísi en að ég hafi beinlín-
is kastað honum út úr Linduhúsinu
gamla. Ég hafði þó ekkert méð það
hús að gera og hef aldrei haft,
Landsbankinn átti húsiö og annar
aðili eignaðist það síðan og leigði
það undir starfsemi SH og annan
rekstur sem tengdist ÚA-málinu
svokallaða. Ég skil ekki hvað mað-
urinn er að fara,“ segir Jakob.
-gk
eða hvort hlutur bæjarins fer á enn
fleiri hendur. „Það er meira um
vert að vanda sig en að flýta sér í
þessu og fjölmörg sjónarmið sem
taka þarf tillit til,“ segir Jakob.
-gk
Stuttar fréttir
Banki eykur umsvif
Umsvif íslandsbanka jukust á
síðasta ári. Útlán jukust um
6,5% og innlán um 5,4%. Rekstr-
arkostnaður bankans minnkaði
um 1.300 milljónir.
Hætta í háloftunum
Við lá að flugvél Atlanta lenti
í árekstri yfir Bogota í Kolumbíu
í byrjun mánaðarins. RÚV
greindi frá þessu.
20 ára vanskil
Lán sem ríkið veitti Laxár-
virkjun fyrir 20 árum virðast
hafa gleymst í kerfinu. Sam-
kvæmt RÚV hefur aldrei verið
borgað af þeim og ekki reiknaðir
af þeim vextir.
Met í síldarsöltun
Saltað var í fjörutíuþúsund-
ustu síldartunnuna hjá Síldar-
vinnslunni í Neskaupstað sem
bætti þar með fyrra íslandsmet
sitt.
Nýtt lyf vegna MS
Nýtt lyf fyrir sjúklinga með
MS-sjúkdóminn hefur verið sam-
þykkt af lyfjanefnd ríkisins.
Þetta kom fram í Mbl.
Útburöi bjargaö
Eigandi sölutumsins Draums-
ins við Rauðarárstíg í Reykjavík
hefúr bjargað sér frá útburði úr
húsnæðinu meö því að kaupa
það. Samkvæmt frétt Stöðvar 2
eru nágrannamir gramir.
Grásleppan gefur
Útflutningsverðmæti af grá-
sleppuvertíðinni í fyrra var vel á
annan milljarð króna. Tíminn
greindi frá þessu.
Lyfjagullegg
Reglugerð heilbrigðisráðherra
um samheitalyf sparaði ríkinu
253 milljónir á síöasta ári. í Tím-
anum er talað um gullegg.
Hálskirtlar úr Halldóri
Hálskirtlarnir vom nýlega
teknir úr Halldóri Ásgrímssyni
utanríkisráðherra. Eftir legu á
sjúkrahúsi þurfti Halldór að
þegja í nokkra daga, samkvæmt
frétt Stöðvar 2.
Simtöl á Interneti
íslenskir þjónustuaðilar fyrir
Jnternetið eru alvarlega að íhuga
að fara að þjónusta símtöl til út-
landa í samkeppni viö Pöst og
síma. Stöð 2 greindi frá þessu.
Prentsmiðja gjaldþrota
Prentverk Austurlands á Eg-
ilsstöðum hefur verið úrskurðuð
gjaldþrota vegna vangoldinni
opinberra gjalda.
-bjb
\ ■ slf. t (i
■T % j
:,
i •:
m '
Rembingskoss
Leikfélag Reykjavfkur hélt upp á 99 ára afmæli sitt í gær með viðhöfn í Borgarleikhúsinu. Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir borgarstjóri var viðstödd og hér fær hún rembingskoss frá verðandi leikhússtjóra, Viðari Eggertssyni. Eiginmað-
ur Ingibjargar, Hjörleifur Sveinbjörnsson, fylgist með. I ræðu sinni í gær tilkynnti Ingibjörg Sólrún að framlag borg-
arinnar til leikfélagsins hefði verið hækkað auk jjess sem Davfð Oddsson boðaði styrk frá ríkinu vegna aldarafmæl-
is félagsins á næsta ári. Þá hefur verið ákveðið að efna til samkeppni um leikhúsverk vegna tímamótanna.
DV-mynd GS
Bílaleiga Hassos Schiitzendorfs á íslandi:
10 bílar á
leiðinni til
landsins
Þýski auðkýfingurinn og ís-
landsvinurinn, Hasso Schútzend-
orf á Mallorea, tilkynnti á síðasta
ári að hann ætlaði að stofna úti-
bú böaleigu sinnar á íslandi. Nú
styttist í að það verði að vera-
leika því að sögn Sigurðar
Bjarnasonar, einkavinar Hassos
og umboðsmanns bílaleigunnar
hér landi, era 10 bílar á leiðinni
til landsins með skipi. Reiknað
er með að bílunum verði skipað
upp í Hafnarfj arðarhöfn í næstu
viku. Um er að ræða glænýja bíla
af gerðinni Fiat Punto og Suzuki
Vitara.
Bílaleigan mun heita Hasso-fs-
land ehf. og verður starfrækt í
Hafnarfiröi. Meðal þess sem
Hasso rekur á MaUorca er um-
fangsmikil bílaleiga sem fslend-
ingar hafa átt mikil viðskipti við.
Þau eru svo mikil að í heimsókn
sinni til íslands síðasta sumar
tilkynnti hann mikinn afslátt til
fslendinga sem skiptu við bíla-
leiguna á Mallorca.
Auk bílaleigunnar rekur
Hasso hótel og banka á Mallorca
og víðar á Spáni. Hann hefur ver-
ið talinn einn ríkasti maöur Evr-
ópu og sjálfur segist hann vera sá
ríkasti. Enn er hann að. Nú er
hann byrjaður að reisa 6 hektara
dýragarð á landareign sinni á
Mallorca sem mun kosta um 500
milljónir króna. Það sem meira
er. Hann ætlar að veita frían að-
gang i dýragarðinn. Stefnt er að
opnun dýragarðsins á næsta ári,-
Þetta yrði fyrsta dýragarðurinn í
sögu Mallorca, eins eftirsóttasta
ferðamannastaðar Evrópu.
-bjb
Bæjarstjórinn á Akureyri:
Égskil
ekki for-
stjóra Góu