Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996
5
dv____________________________________________________Fréttir
Nýja sveitarfélagið á norðanverðum Vestfjörðum:
Kratar vilja viðræður um
vestfirskan „R-lista"
- framsóknarmenn og alþýðubandalagsmenn tilbúnir til viðræðna
Alþýðuflokksmenn á norðanverð-
um Vestfjörðum hafa sent bréf til fé-
lagshyggjuflokkanna á svæðinu þar
sem þeir óska eftir viðræðum um að
þessir flokkar bjóði fram sameigin-
legan lista við sveitarstjórnarkosn-
ingarnar sem fram eiga að fara 11.
maí í hinu nýja sameinaða en nafn-
lausa sveitarfélagi. Það samanstend-
ur af Þingeyrarhreppi, Mýrahreppi,
Mosvallahreppi, Flateyrarhreppi,
Suðureyrarhreppi og ísafjarðar-
kaupstað.
„Það er alla vega ákveðinn vilji
fyrir því að athuga þetta mál og að
menn fari í viðræður. Hvort það er
vilji hjá öllum flokkunum til að
gera þetta er önnur saga en það þarf
að kanna. Vissulega gæti orðið af
þessu enda þótt ég spái því að lík-
umar séu minni en meiri. En ég er
nú líka mjög lélegur spámaður,"
sagði Smári Haraldsson, leiðtogi Al-
þýðubandalagsins á ísafirði, þegar
DV ræddi þetta mál við hann.
„Ég hef nú ekki fengið bréfið frá
krötum en hef heyrt af því. Og ég
get ekki mikið sagt fyrr en ég hef
fengið það í hendur. En auðvitað
Keypti
sterkan
bjór í mat-
vöruverslun
„Þetta er kannski fyrsta skrefið í
átt til frjálsrar sölu á bjór. Mér
fannst þetta þó fyrst og fremst fynd-
ið,“ segir Þorkell Guðjónsson við-
skiptafræðinemi en hann keypti á
dögunum tvo sterka bjóra í mat-
vöruverslun í Reykjavík.
Veigarnar var að finna á bretti
með léttöli frá Víking hf. á Akur-
eyri. Tók Þorkell þrjá dósir og var
styrkleiki innihaldsins í tveimur
þeirra gefinn upp 5,6%. Segist Þor-
kell geta staðfest eftir neyslu að það
hafi verið rétt.
„Ég vakti athygli á þessu við af-
greiðslukassann en var bent á að
best væri að gleyma þessu og láta
sem ekkert væri. Ég skoðaði síðar
hvort fleiri sterkir bjórar væru á
brettinu en svo reyndist ekki vera,“
segir Þorkefl. Hann útiiokar þó ekki
að hann fari fleiri ferðir til að at-
huga hvort heppnin verður með
honum áfram.
-GK
Austfirðir:
Borgara-
fundir um
snjóflóða-
varnir
Efnt verður á morgun til borgara-
funda í Neskaupstað og á Seyðis-
firði um snjóflóðavarnir. Fundur-
inn í Neskaupstað verður klukkan
12.30 í Egilsbúð og á Seyðisfirði
verður komið saman í félagsheimil-
inu klukkan 18.00.
Þetta eru fundir hliðstæðir þeim
sem haldnir voru í haust á Vest-
fjörðum og Siglufirði. Fjallað verður
um framkvæmd snjóflóðavarna í
framhaldi af samþykkt nýrra laga
um stjórnskipulag snjóflóðamála.
Einnig verður rætt um stöðuna í
snjóflóðamálum almennt.
-GK
munum við hlusta. Við munum auð-
vitað ræða við menn. Það er enda
sjálfsögð kurteisi að ræða við menn
sem óska eftir því en ég þori engu
að spá um framhaldið," sagði Krist-
inn Jónsson, leiðtogi framsóknar-
manna á ísafirði, um málið.
Samkvæmt heimiidum DV telja
félagshyggjuflokkarnir að miklar
líkur séu á að Sjálfstæðisflokkurinn
nái hreinum meirihiuta í nýja sveit-
arfélaginu ef félagshyggjuflokkarnfr
bjóða fram hver í sínu lagi. Aftur á
móti telja margir að með vestfirsk-
um „R-lista“ geti hann fengið hrein-
an meirihluta. -S.dór
Þegar þú eignast góðan,
notaðan bíl frá okkur, getur
þú valið annað tveggja:
DÆMI UM GREIÐSLUR
af vaxtalausu láni
Verð bíls 800.000 kr.
Útborgun 200.000 kr.
Eftirst. 26.313 kr.
á mánuði í 24 mánuði
Allur lántökukostnaður
innifalinn
If&MtaSansl lán til
24 mánaða að upphæð
allt að 600 þús. kr.
pAn
—v
Ríflegan
aiGViON | UV-IIB UIQQÐ' L..M,y.n.fa I HIQViON
NOTAÐIR BÍLAR
SUÐURLANDSBRAUT12
SI'MI: 568 1200 beint 581 4060
Opið laugardag kl. 10-17
og sunnudag kl 13-17,
virka daga til kl. 19.