Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Page 10
10
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996
íslenski arkitektaskólinn:
Sumarnámskeiðin 1995 kynnt í bæklingi
íslenski arkitektaskólinn hefur
sent frá sér bækling þar sem af-
rakstur sumarnámskeiðsins 1995 er
kynntur. Verkefhi nemendanna eru
kynnt auk frásagnar af starfsemi
skólans.
íslenski arkitektaskólinn hefur
staöiö fyrir sumamámskeiöum tvö
síöastliðin ár. Um alþjóðleg nám-
skeiö hefur verið að ræða. Af 60
nemendum hafa 15 íslendingar sótt
námskeiðin. Má segja aö þetta sé
fyrsti vísir að kennslu í byggingar-
list á íslandi. Undirbúningur er haf-
inn að næsta sumarnámskeiði. Leið-
beinendur á síðasta sumamám-
skeiði komu víða að. Einn þeirra
var frá íslandi en það var dr. Maggi
Jónsson, arkitekt og ráðgjafi við Há-
skóla íslands og menningarverð-
launahafi DV 1995 í byggingarlist.
Mjög er vandað til gerðar bækl-
ingsins sem er 42 siður, prentaður í
lit. Verk hvers nemanda eru kynnt
með ljósmyndum auk texta á ís-
lensku og ensku. Ljósmyndir eru
teknar af Ingimundi Magnússyni og
Kristjáni Magnússyni. -bjb
Úr leikritinu Himnaríki.
Himnaríki tilnefnt
til verðlauna
Leikritið Himnaríki - geðklof-
inn ’gamanleikur, eftir Áma Ib-
sen hefur
verið til-
nefnt fyrir
íslands
hönd til
Norrænu
leikskálda-
verðlaun-
anna 1996,
sem verða
afhent í þriðja sinn á Norræn-
um leiklistardögum í Kaup-
mannahöfn í júní í sumar. Leik-
ritið hefur verið til sýninga frá
því í haust hjá leikhópnum Her-
móði og Háðvöru í Hafnarfirði
og fengið feiknagóðar viðtökur.
í umsögn dómnefndar segir
m.a.: „Himnaríki er skemmti-
legt og kröftugt gamanleikrit,
ögrandi í framsetningu og ný-
stárlegt að formi. Leikritið nær
vel að fanga tilgangsleysi og
firringu ungs fólks í velferðar-
samfélagi nútímans. Leikritið
lýsir vel því nöturlega ástandi
sem gjarnan fylgir þeirri kröfu
að verða að „skemmta sér“, þ.e.
af viija fremur en mætti.
Leikhópurinn Hermóður og
Háðvör er rétt ókominn til
landsins af leiklistarhátíð í
Bergen í Noregi en þar var hon-
um boðið að sýna Himnaríkið.
Einnig er til athugunar að bjóða
hópnum á alþjóðlegu íeiklistar-
hátíðina í Bonn í júní á þessu
ári.
Önnur verk eftir Árna Ibsen
eru leikgerð af Oliver Twist
(1981), Skaldbakan kemst þang-
að líka (1984), Afsakið hlé (1989),
útvarpsleikritið Ský (1990), Fisk-
ar á þurru landi (1993) og Elín
Helena (1993).
Þjóðleikhúsið
biðst afsökunar
Þjóðleikhúsið hefúr sent frá
sér eftirfarandi yfirlýsingu
vegna frumsýningar annað
kvöld á Leigjandanum á Smíða-
verkstæðinu: „Þjóðleikhúsið
frumsýnir nk. laugardag, 13.
janúar, breska leikritið Leigj-
andann (The Lodger) eftir
Simon Burke í þýðingu Hall-
gríms H. Helgasonar. Svo
óheppUega vUl til að titUl þessi,
sem er þýðing á enska heiti
verksins, er samhljóða titli á
skáldsögu Svövu Jakobsdóttur,
sem út kom hjá HelgafeUi árið
1969 og vakti mikla athygli.
Skáldsagan var endurútgefin
árið 1979 og í þriðja sinn af For-
laginu árið 1994. Þjóðleikhúsið
vUl vekja athygli á að hér er um
aUt annað verk að ræða, mjög
svo óskylt að öllu efni og bygg-
ingu. Þjóðleikhúsið harmar að
nafhgift verksins kunni ef tU
vUl að geta valdið misskilningi
og biður Svövu Jakobsdóttur af-
sökunar á því!“
Ljóðaleikir
Bjargar Elínar
Björg Elín Finnsdóttur hefur
sent frá sér Jjóðabókina Ljóða-
leikir. Þetta er fyrsta ljóðabókin
en hún hefur áður gefið út bók-
ina í sólskinsskapi. Mörg ijóð-
anna í Ljóðaleikjum hafa birst í
Lesbók Morgunblaðsins. Nokk-
ur þeirra hafa einnig verið flutt
af höfundi í Ríkisútvarpinu.
í bókinni eru um 30 ljóð.
Skákprent sá um prentun og
teikning í forsíðu er eftir Gunn-
ar S. Magnússon myndlistar-
mann. -bjb
Menning
Alexander Melamid, til vinstri, og Vitaly Komar með Hannes Sigurðsson listfræðing á milli sín en hann stóð fyrir
komu þeirra til íslands. Bak við þá er „eftirsóttasta málverk þjóðarinnar" hulið segldúk þar sem myndatökur af verk-
inu verða bannaðar á meðan á sýningu stendur á Kjarvalsstöðum. DV-mynd GS
„Við höfum látið gera rannsóknir
af þessu tagi víða um heim. Niður-
stöðumar hafa almennt verið mjög
svipaðar hjá hinum ólíkustu þjóð-
um. Svo skemmtilega vildi til að við
fengum niðurstöður tveggja kann-
ana sama daginn, frá íslandi og
Kenia, og þær voru mjög svipaðar,
hvort sem þú trúir því eða ekki.
Blái liturinn er uppáhaldslitur allra
þjóða, fólk vill sjá landslagsmyndir
með fólki og dýrum og smekkurinn
er því mjög svipaður,“ sagði rúss-
neski listmálarinn Alexander Mel-
amid í samtali við DV en hann er
ásamt starfsfélaga sínum og sam-
landa, Vitaly Komar, kominn til ís-
lands í tilefni sýningar sem opnuð
verður á Kjarvalsstöðum á morgun.
Þar verða afhjúpuð tvö málverk
sem þeir hafa unnið samkvæmt nið-
urstöðum skoðanakönnunar sem
Hagvangur gerði fyrir ári síðan um
viðhorf íslendinga til myndlistar-
innar. Þeir máluöu annars vegar
„eftirsóttasta málverk þjóðarinnar"
og hins vegar „síst eftirsótta" mál-
verkið. Sýningin nefnist Val fólks-
ins og stendur til 18. febrúar.
Undanfarin tvö ár hafa Komar og
Melamid staðið fyrir skoðanakönn-
unum af þessu tagi og haldið sýn-
ingar í kjölfarið. Upphafið var könn-
un í Bandaríkjunum og hafa íslend-
ingar getað séð þau verk á Mokka-
kaffi undanfarna viku. í kjölfarið
kom skoðanakönnun í Rússlandi og
síðan hafa komið lönd eins og
Þýskaland, Finnland, Danmörk,
Frakkland, Tyrkland, Svíþjóð, Ken-
ía, Skotland og Úkraína, auk ís-
lands. Næst á dagskrá eru kannanir
í Indlandi og Kína og síðan koma
þær koll af kolli næstu tvö ár eða
þar til þeir félagar hafa safnað að
sér nægum efniviði til að mála „eft-
irsóttasta málverk í heimi“.
Hannes Sigurðsson listfræðingur
á veg og vanda af komu Komars og
Melamids til íslands og gerð könn-
unarinnar. Hann sagði i samtali við
DV að þetta væri einstakur viöburð-
ur hér á landi sem ætti eftir að
vekja athygli. Komar og Melamid
hafa aldrei komið til íslands og
Hannes útvegaði þeim allt það efni
sem hann komst yfir um íslenska
myndlist.
Uppáhaldsliturinn er blár
könnunarinnar kemur ýmislegt
fróðlegt í ljós. Könnunin náði til 1
þúsund íslendinga á aldrinum 18-67
ára sem spurðir voru 49 valspum-
inga. Uppáhaldslitur 31% íslendinga
er blár, ef marka má könnunina,
20% nefndu grænan og 14% rauðan.
Myndir af útivettvangi njóta mun
meira fylgis en lýsingar á innivett-
vangi, eða 80% á móti 4%. Um 53%
landsmanna kjósa raunsæismynd
sem líkist ljósmynd frekar en óhlut-
bundinn tjáningarstíl og 59% fannst
ákjósanlegt að ýkja raunveruleik-
ann. Langflestir álíta að myndlist
þurfi ekki endilega að miöla ein-
hverjum boðskap, eða 69% úrtaks-
ins. Aðeins 6% vildu hafa nakta
Eru listaverk á
þínu heimili?
Jgg 16%
849 '“.4
'py'
Mestur áhugi var á að hafa fiöll,
hraun eða óbyggðir á málverkum.
Langflestir vildu hafa stærð mál-
verka á við þvottavél eða 19 tommu
sjónvarp að flatarmáli.
Fimmtungur landsmanna
fer aldrei á listasöfn
Flestir eru reiðubúnir til að
greiða 30-60 þúsund krónur fyrir
málverk og 84% þátttakenda sögð-
ust vera með listaverk á heimilinu.
Sarpkvæmt könnuninni fer fimmt-
ungur landsmanna aldrei á listasöfn
en 39% oftar en tvisvar á ári.
Þegar spurt var um viðhorf til
listar nokkurra þekktra innlendra
og erlendra málara kom margt fróð-
legt upp á yfirborðið. Um 74% úr-
taksins þekktu ekkert til Þórarins
B. Þorlákssonar, 57% þekktu ekki
list Svavars Guðnasonar og 52%
þekktu ekki Louisu Matthíasdóttur.
Erró og Kjarval þekktu greinilega
flestir en viðhorfið var öllu jákvæð-
ara í garð Kjarvals.
Vitaly Komar sagði við DV að
flestar kannanir hafi leitt í Ijós að
fólk væri ekki að velta sér upp úr
fortíðinni eða nútíðinni heldur
framtíðinni, draumar fólks væru
flestir þeir sömu. „Þrátt fyrir mis-
munandi menningarheima er
paradísin nánast sú sama.“
Flestir vilja hálfklætt
eða nakið fólk
Aðspurðir um einhver sérein-
kenni niðurstaðna úr íslensku
könnuninni sögðu þeir lítið af slíku.
Þó mætti sjá mismun þar sem flest-
ir íslendingar vildu hafa fólk á mál-
verkum hálfklætt eða nakið á með
an aðrar þjóðir vildu fólkið í fullum
skrúða.
„Ef síst eftirsóttu myndirnar eru
skoðaðar þá kemur mestur mismun-
ur fram milli þjóða. Stærð verkanna
er öðruvísi, litur þeirra og uppbygg-
ing. Eftirsóttustu málverkin eru
yfirleitt stærri en því er þó öfugt
farið í Frakklandi,“ sagði Komar.
Þar sem ekki má taka ljósmyndir
af málverkunum á meðan sýning-
unni stendur voru þeir beðnir að
lýsa þeim. Þeir sögðu eftirsóttustu
myndina hafa landslag með íslensk-
um einkennum i bland við ímynd-
aðan veruleika. Síst eftirsótta
myndin sýndi skarpar línur og liti.
Meira vildu þeir ekki segja, sjón
væri sögu ríkari.
í tengslum við sýninguna verður
opinn fundur með Komar og Mel-
amid á Kjarvalsstöðum kl. 17 í dag.
-bjb
Sé litið á helstu niðurstöður manneskju fyrir augrnn á málverki.
Hvað má listaverkið kosta?
240 - 500 þús.kr.
120 - 240 þús. kr.
cio -120 þús. kr. .pSHHBHHÍÍHMHHBi
- 60 þús.kr. HHHHHHHHHHBHHHHI
15 - 30 þús.kr. HBBHHHHi
5-15 þús. kr. Hi
0 5 10 15 20 %'
PV
Eftirsóttasta og síst eftirsótta málverkið samkvæmt skoðanakönnun á íslandi:
Myndlistarsmekkurinn
svipaður og í Kenía
- rætt við Rússana Vitaly Komar og Alexander Melamid sem málað hafa verkin