Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996
13
Fréttir
Suöurnes:
„Varnarliðið ætlar að
girða af fornar minjar"
- og meinar aðgang Islendinga aö þeim
DV, Suðurnesjum:
„Okkur var synjað um að fá að
merkja og enduryekja forna þjóðleið
frá Stafnesi um Ósabotna út í Hafn-
ir. Síðan hef ég fengið þær upplýs-
ingar að Varnarliðið hyggist girða
þetta svæði af. Þá mun það einangr-
ast - forna þjóðleiðin og þær merki-
legu fornminjar sem þarna eru
verða í stórhættu. Munu jafnvel
eyðileggjast og glatast ef Varnarlið-
ið ætlar að nota svæðið fyrir heræf-
ingar og annað slíkt,“ sagði Jóhann
D. Jónsson, ferðamálafulltrúi Suð-
urnesja, í samtali við DV.
Ferðamálasamtök Suðurnesja
sóttu um leyfi og heimild til að
merkja og kynna gönguleiðina frá
Stafnesi i Hafnir til Skipulags- og
byggingarnefndar varnarsvæðanna
hjá Varnarmálaskrifstofu utanríkis-
ráðunéytisins sem féllst ekki á er-
indið. Nefndin telur hins vegar að
aðstæður geti breyst innan fárra
ára þegar og ef umrædd aðstaða
Varnarliðsins verður lögð niður.
Að sögn Jóhanns er svæðið, sem
þeir vilja opna, inni á varnarsvæð-
inu en varnargirðingin er nokkur
hundruð metra frá sjó - langt frá
þjóðleiðinni sem ferðamálasamtök-
in vilja opna sem almenningsgöngu-
leið. Þeir fornu staðir sem eru á um-
ræddu svæði eru landnámsbærinn
Kirkjuvogur og uppskipunarstaður-
inn Þórshöfn en þar versluðu Þjóð-
verjar á 15. og 16. öld. Þá er á þess-
um slóðum áningarstaður séra Hall-
gríms Péturssonar - Hallgrímshell-
an.
„Við eigum ekki of mikið af minj-
um frá fyrri öldum á Suðurnesjum.
Þvi er það þjóðernismál að varnar-
liðið girði þetta svæði ekki af né úti-
loki íslendinga frá þessum minjum.
Við munum mótmæla því harðlega
og leita allra leiða til að fá þessari
ákvörðun þeirra breytt og að synj-
unin verði afturkölluð.
Áður en nefndin synjaði erindi
okkar talaði ég í vor við aðmírálinn
hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflug-
velli um að fá að opna þessa göngu-
leið. Hann sá ekkert því til fyrir-
stöðu á meðan fólk tæki ekki upp á
því að klifra yfir varnargirðingar á
svæðinu. Það kom mér síðan á
óvart að nefnd varnarsvæðanna
hafnaði beiðni okkar,“ sagði Jó-
hann D. Hann hefur kynnt sveitar-
stjórnarmönnum á Suðurnesjum
niðurstöðu í málsins.
Ferðamálasamtök Suðurnesja eru
þessa dagana að merkja fornar þjóð-
leiðir á Reykjanesi og undirbúa út-
gáfu á gönguleiðakorti fyrir al-
menning. Þvi er umrætt svæði mjög
mikilvægt í því átaki að opna
Reykjanes fyrir útivistarfólki.
ÆMK
Kort af svæðinu sem Varnarliðið ætlar að girða af að nokkru leyti.
Opal í staö umbúðaframleiðslu til Akureyrar:
Þetta er óneitanlega
annaö en um var talað 14 „öfnumskiiað
- segir bæjarstjórinn á Akureyri
DV, Akureyri:
„í meginatriðum er ég ánægður
með það-sem komið er hingað nú
þegar, eins og skrifstofu SH og það
sem gerst hefur í Slippstöðinni
Odda. Ég hef hins vegar efasemdir
um að hægt sé að leggja að jöfnu
sælgætisframleiðslu Opals og fram-
leiðslu Umbúðamiðstöðvarinnar
sem hingað átti að koma,“ segir
Jakob Björnsson, bæjarstjóri á Ak-
ureyri, um það hvernig hann metur
efndir Sölumiðstöðvar hráðfrysti-
húsanna vegna samningsins sem
gerður var á síðasta ári er ÚA-mál-
ið svokallaða var til lykta leitt.
„Við fögnum hverju fyrirtæki
sem hingað kemur og það á jafn við
um Opal og önnur. En ég hef mjög
miklar efasemdir um að sælgætis-
framleiðslan hafi sama þunga og
umbúðaframleiðslan sem er þjón-
usta við sjávarútveginn. Þrátt fyrir
sveiflur í sjávárútvegi er hann mjög
sterkur hér í bænum og í mínum
huga hefur umbúðaframleiðslan
mun meiri þunga. Ég vil þó ekki af-
skrifa Umbúðamiðstöðina algjör-
lega því það er verið að endurskoða
þessi mál af hálfu SH.“
- SH tók þá ákvörðun að flytja
Opal norðuh með 20 störf en í tilboð-
inu, sem gengið var að á sínum
tíma, var talað um 38 störf í um-
búðaframleiðslu. Þarna munar
einnig um helming í veltu, auk þess
sem umbúðaframleiðslunni fylgja
mun meiri umsvif og hægt að tala
um margfeldiáhrif í því sambandi.
Eru þetta svik?
„Miðað við að lesa bréf SH sem
við fengum í hendur um uppbygg-
ingu umbúðaframleiðslu hér í bæn-
um fellur sælgætisframleiðslan auð-
vitað í skuggann. Það munar enn
einhverju á störfum þrátt fyrir að
SH hafi stuðlað að 8 störfum við
plastframleiðslu en þeir hafi sagt að
þeir hafi uppi áform um að bæta
enn við störfum svo það er best aö
sjá niðurstöðuna.
Það er alveg rétt að við fréttum
ekki af þessu með Opal fyrr en frá
því var sagt í fjölmiðlum og vorum
ekki spurðir álits. Þetta er óneitan-
lega allt annað en um var talað,“
segir Jakob. -gk
Kristján Arnason og félagar hans
á B-lista í framboði til stjórnar og
trúnaðarráðs verkamannafélagsins
Dagsbrúnar hafa afhent Snæ Karls-
syni, formanni kjörstjórnar, lista
yfir 14 menn í framboði til trúnað-
arráðs.
Þegar framboði B-lista var skilað
til kjörstjórnar í síðustu viku úr-
skurðaði kjörstjórnin að 12 nöfn á
listanum væru ógild af ýmsum
ástæðum. Nú er búið að skila inn 14
nöfnum til viðbótar og segir Snær
að framboðslistinn sé nú „óaðfinn-
anlegur “
Framboðslisti A-lista uppstillin-
garnefndar hefur þegar verið úr-
skurðaður í fullu gildi. -GHS
Mest fjölgun í Gerða-
hreppi á Suöurnesjum
- ánægjuleg þróun,
DV; Suðurnesjum:
„Við erum mjög ánægðir og sáttir
með þessa þróun og ætlum okkur að
halda áfram á sömu braut. Hreppur-
inn hefur unnið að því að bæta
þjónustu við íbúana og fegra um-
hverfið, gert sveitarfélagið mjög að-
laðandi," sagði Sigurður Jónsson,
sveitarstjóri Gerðahrepps, viö DV.
Þar fjölgaði fólki mest á Suður-
nesjum í fyrra og einna mest á land-
inu öllu. Fjölgunin var 2,9% - aukn-
ing um 32 íbúa. í Gerðahreppi hefur
íbúum fjölgað síðustu tíu árin. Eru
nú 1152 en voru 1087 árið 1985.
„Höfuðástæðan fyrir þessari
aukningu er tiltölulega gott at-
segir sveitarstjóri
vinnuástand. Eitt mjög sterkt fyrir-
tæki er í sjávarútvegi, Nesfiskur,
sem hefur vaxið og blómstrað und-
anfarin ár. Þá eru mörg önnur fyr-
irtæki, bæði í sjávarútvegi og öðr-
um starfsgreinum, sem gera það
gott, þannig að atvinnuástand hefur
verið með því besta á Reykjanes-
svæðinu.
Hreppurinn og verktakar hafa
staðið að framkvæmdum, byggt nýj-
ar íbúðir og verð á íbúðum hefur
verið mjög hagstætt. Hreppurinn
hefur upp á margt að bjóða og það
er öruggt að fólk getur látið sér líða
mjög vel hér,“ sagði Sigurður Jóns-
son.
-ÆMK
t •
Aukablað um TOLVUR
Miðvikudaginn 24. janúar mun aukablað um tölvur fylgja DV.
Blaðið verður fjölbreytt og efnismikið en í því verður
fjallað um flest það er viðkemur tölvum og tölvunotkun.
í blaðinu verða upplýsingar um bæði hugbúnað og
vélbúnað, þróun og markaðsmál, nýjmigar í margnúðlun,
Internetið, tölvunotendur, aðlögun og breytingar á
eldri gerðum o.fl.
Þeim sem vilja koma á framfæri nýjungum og efni í
blaðið er bent á að senda upplýsingar til Jóhönnu
A.H. Jóhannsdóttur, DV, fyrir 15. janúar.
Bréfasíminn er 550-5727.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu
aukablaði vinsamlega hafi samband við Selmu Rut eða
Arnar Hauk, auglýsingadeild DV, hið fyrsta í
síma 550-5722.
Viiisamlegast athugið að síðasti shUadagur auglýsinga
er fimmtudaginn 18. janúar.
»\+Æ Auglýsingar
t .......... sími óöo rjiiin i,
Sími 550 5000, bréfasími 550-5727.