Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Side 23
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996
31
Fréttir
Fréttir af lélegri afkomu í frystingu og saltfiski:
Byrjaðir að vigbuast
fyrir kjarasamningana
- segir Pétur Sigurösson, formaður Alþýðusambands VestQarða
„Ætli megi ekki segja eins og Vil-
hjálmur Egilsson segir nú um skatt-
svikin að þetta sé stórlega ýkt. Ann-
ars er ég þeirrar skoðunar að Arnar
Sigurmundsson, formaður Samtaka
fiskvinnslustöðva, líti svo á að ekki
sé ráð nema í tíma sé tekið. Hann sé
að vígbúast fyrir kjarasamningana
síðar á árinu með því að hefja upp
þennan mikla barlóm og harmagrát
í upphafi ársins. Með því að hefja
grátinn nógu snemma verður tára-
flóðið orðið mjög stórt í desember
næstkomandi. Þeim tókst svo vel að
ná fram framlengingu í eitt ár á
kjarasamningunum um áramótin og
það kostaði þá sáralítið. Þessi des-
emberuppbót skilar sér ekki nema
svona 70 prósent vegna þess að fólk
þarf að hafa unnið 20 vikur á sama
vinnustað til þess að fá uppbótina.
Öryggið er nú ekki meira en þetta í
fiskvinnslunni," segir Pétur Sig-
urðsson, formaður Alþýðusam-
bands Vestfjarða, í samtali við DV.
Hann segir að þetta sé gamal-
kunnugt bragð hjá atvinnurekend-
um á kjarasamningaári.
„Hitt er svo annað að Þjóðhags-
stofnun gefur það út að verð á sjáv-
arafurðum hafi hækkað um rúm 13
prósent á síðasta ári. Að vísu held-
ur minna í bolfiski, það er í
flakapakkningum, en hækkunin þar
er samt sem áður 4 til 6 prósent. Og
á þessum tveimur árum sem kjara-
samningarnir gilda hækka laun
fiskvinnslufólks ekki um nema 5 til
6 prósent vegna þess að bónusinn
hækkar ekkert og hann mælist um
40 prósent af heildarlaununum..
Og við gerð núgildandi kjara-
samninga var létt af þeim veruiega
í sambandi við kauptryggingar-
samninga, því þeir þurfa ekki að
gera kauptryggingarsamninga fyrr
en fólk hefur starfað hjá þeim í 9
mánuði. Einnig greiðir Atvinnu-
leysistryggingasjóður fyrir þá at-
vinnuleysistryggingagjaldið af
kauptryggingunni og trygginga-
gjöldin voru felld niður. Svo mega
menn ekki gleyma því að aðstöðu-
gjaldið var fellt niður fyrir 2 árum.
Þess vegna þykir mér áróðursþefur
af harmagráti fiskverkenda nú,“
segir Pétur Sigurðsson.
-S.dór
íslenski markaðsklúbburinn, ÍMARK, afhenti í gær markaðsverðlaun klúbbsins 1996 við hátíðlega athöfn á Hótel
Loftleiðum. Verðlaunin afhenti Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, en þau eru veitt þeim aðila sem
þykir hafa skarað fram úr í markaðsmálum á síðasta ári. Verðlaunin að þessu sinni, þau fimmtu í röðinni, hlutu ís-
lenskar sjávarafurðir hf., ÍS, og hér sést framkvæmdastjórinn, Benedikt Sveinsson, hampa viðurkenningarskjalinu.
Úthlutunin kemur ekki á óvart þar sem ÍS átti góðu gengi að fagna á nýliðnu ári, ekki síst vegna útvegs í Kamtsjatka.
Þeir aðilar sem áður hafa hlotið ÍMARK-verðlaunin eru P. Samúelsson, Miðlun, Olís og íslensk ferðaþjónusta.
DV-mynd BG
Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva:
Þetta hefur ekkert
með kjara-
samninga að gera
- allt að 20 prósenta munur á afkomu fiskvinnslustöðva
„Því fer víðs fjarri að þessi frétta-
tilkynning okkar um lélega afkomu
frystingar og saltfiskverkunar hafi
eitthvað með gerð kjarasamninga í
lok ársins að gera. Ástæðan fyrir
því að við sendum fréttatOkynning-
una út núna er að við höfum fundið
það síðan í haust er leið að það hef-
ur heldur hallað á fiskvinnsluna og
var þó halli fyrir. Þegar svo afurða-
verð í desember var reiknað út
ákváðum við að taka áramótastöðu
og bættum við kostnaði sem kom í
janúar og búið var að semja um. Ég
verð að játa að breytingin til hins
verra kom okkur á óvart enda meiri
en við áttum von á,“ sagði Arnar
Sigurmundsson, formaður Samtaka
fiskvinnslustöðva, þegar gagnrýni
Péturs Sigurðssonar, formanns Al-
þýðusambands Vestfjarða, var bor-
in undir hann.
Nú hefur komið í ljós að þrjú
stærstu fiskvinnslufyrirtækin,
Grandi hf., ÚA og Fiskiðjan Skag-
firðingur á Sauðárkróki, eru ekki
rekin með tapi. Hvernig stendur á
því miðað við það sem segir í frétta-
tilkynningu Samtaka fiskvinnslu-
stöðva um 11 til 12 prósenta tap á
frystingu og söltun?
„Þeir segja samt sem áður að það
sé búin að vera þröng staða í botn-
fiskvinnslunni, sérstaklega í fryst-
ingunni. Þeir segja líka að þessi fyr-
irtæki hafi sérhæft sig á liðnum
árum og hagrætt með ýmsum hætti.
Það er einnig staðreynd að afkoma
einstakra fískvinnslufyrirtækja get-
ur verið aiit að 10 prósent í báðar
áttir frá núllinu hjá þeim bestu og
þeim lökustu. Þessi þrjú stóru fisk-
vinnslufyrirtæki, sem þú nefndir,
eru auðvitað í hópi þeirra allra
bestu og öflugustu I landinu," sagði
Arnar Sigurmundsson.
-S.dór
Sendinefnd Al-
þingis til Litháens
Sendinefnd á vegum Alþingis er
nú í Litháen í opinberri heimsókn í
boði þingsins þar í landi. Sendi-
nefndin er undir forsæti Ólafs G.
Einarssonar, forseta Alþingis, en
aðrir í sendinefndinni eru þing-
mennirnir Ragnar Arnalds, fyrsti
varaforseti Alþingis, Jón Baldvin
Hannibalsson, Jón Kristjánsson og
Guðmundur Hallvarðsson, auk
Friðriks Ólafssonar, skrifstofustjóra
Alþingis.
Tilefni heimsóknarinnar er að
þessa dagana minnast Litháar þess
að fimm ár eru síðan hrundið var
árás sovéska hersins á þinghúsið í
Vilníus.
DAGSBRUNARMENN
OPIÐ HÚS HJÁ A-LISTANUM, HVERFISGÖTU 33,
LAUGARDAGINN 13. JANÚAR FRÁ KL. 15.00 TIL 17.00
Frambjóðendur A-listans verða á staðnum og kynna róttækar
breytingar í stjórn félagsins og framsækna stefnuskrá listans.
ALLIR DAGSBRÚNARMENN VELKOMNIR
HEITT Á KÖNNUNNI
A-LISTINN, HVERFISGÖTU 33
L9TT1
Vinn ngstölur ,-----------
miðvikudaqinn: 10.01.1996
m
5 af 6
■fbónus
m
5 af 6
FJÖLDI
VINNINGA
2.000
UPPHÆÐ
Á HVERN VINNING
37.103.000
750.910
117.010
Aðaltölur:
(g(Í)(§)
4?) (44) (48
BONUSTOLUR
Heildarupphæð þessa viku:
113.949.690
á íst: 2.640.690
irinningur fór til Danmerkur, Noregs og Svíþjóöar
UPPLYSINGAR, SÍMSVARI 91- 68 15 11
LUKKULINA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PREHTVILLUR
Auglýsing
Framhaldsnámskeið í starfsnámi fyrir uppeldis- og meðferðarfulltrúa
og fólk í hliðstæðum störfum, s.s. stuðningsfulltrúa, starfsleið-
beinendur, gæslumenn o.fl.
Framhaldsnámskeiðið hefst 19. febrúar og stendurtil 19. apríl 1996.
(Vakin er athygli á misritun í Félagstíðindum þar sem segir að
námskeiðið hefjist 27. febrúar.)
Skilyrði fyrir inntöku á framhaldsnámskeiðið er að umsækjendur hafi
lokið grunnnámskeiði í starfsnámi. Framhaldsnámskeiðið spannar yfir
80 kennslustundir og fer kennsla fram að Grettisgötu 89, Reykjavík.
Frekarí upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá
Starfsmannafélagi ríkisstofnana,
Grettisgötu 89, Reykjavík, s. 562 9644.
Umsóknum ber að skila fyrir 20. janúar 1996.
Fræðslunefnd félagsmálaráðuneytisins