Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Side 24
32
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996
Sviðsljós
DV
4q VlIÍ|;LE(»A
ISLENSKI LISTINN ER BIRTUR i DV A HVERJUM LAUGARDEGI
OG SAMA DAG ER HANN FRUMFLUTTUR Á BYGLJUNNI FRÁ
KL. 16-18. BYLGJAN ENDURFLYTUR LISTANN Á MÁNUDAGS-
KVOLDUM MILLI KL. 20 OG 22.
Kynnir: Jón Axe| Ólafsson
Walter á góð-
um batavegi
Walter
Matthau er á
góðum bata-
vegi eftir
skurðaðgerð
sem hann
gekkst ný-
lega undir og
kom í veg
fyrir að hann kæmist í frum-
sýningarpartíið fyrir nýju
myndina Fúlli á móti. Félagar
hans og vinir hringja í hann til
að leita frétta, m.a. Sophia Lor-
en sem lék í myndinni. „Það
var á við jólagjöf að fá að
vinna með henni. Hún er svo
klár,“ segir Walter.
Gregory Peck
og frú ánægð
Á þessum
síðustu og
verstu hór-
dómstímum
er alltaf
ánægjulegt
að heyra af
Hollywood-
hjónabönd-
um sem endast lengur en
nýjasta ilmvatnsflaskan.
Gregory Peck, sá mæti leikari,
og eiginkona hans héldu nýlega
upp á 40 ára brúðkaupsafmæliö
sitt í hinni glaöværu Parísar-
borg. Sonur þeirra og dóttir
voru með þeim á þessari
ánægjustund.
Karlmaður efstur
á lista yfir verst
klæddu konurnar
Bandaríski útvarpsmaðurinn
Howard Stem lenti í efsta sæti á
lista tískugúrúsins Blackwells yfir
verst klæddu konur í heimi. Aö-
spurður hvers vegna karlmaður
væri í efsta sæti sagði talsmaður
Blackwells að úr því að Stem
klæddist eins og kvenmaður væri
hægt að dæma hann eins og kven-
mann. Á kápu metsölubókar sinnar,
Miss America, var Stem í „drag“-
klæðnaði.
Sú sem skipaöi efsta sæti listans í
fyrra, Camilla Parker Bowles, var
komin niður í sjötta sæti nú. Black-
weli útnefiiir Camillu drottningu
púkalegu kerlinganna. Leikkonan
Emma Thompson er í níunda sæti.
Blackwell vill helst senda tísku-
hönnuö hennar í dýflissuna.
í öðm sæti er rokksöngkonan Co-
urtney Love, sem Blackwell segir
ofsafengna „baby doll“, og í þriðja
sæti er Drew Barrymore.
Whoopy Goldberg er í fjórða sæti.
Courtney Love var í öðru sæti á list-
anum yfir verst klæddu konurnar.
Camilia Parker Bowles, ástkona
Karls Bretaprins, fékk umsögnina:
Drottning púkalegu kerlinganna.
Camilla lenti f sjötta sæti.
Um hana segir Blackwell: „Flestir
gamanleikarar leika gamanatriði en
Whoopi klæðist þeim.“
Blackwell, sem var gefið nafhið
Richard Selzer er hann fæddist í
Brooklyn í New York, hætti starf-
semi sinni í Los Angeles fyrir sex
árum. Talsmaður hans segir að nú
haldi hann eingöngu fyrirlestra. Að
sögn Blackwells hafa Nancy Reag-
an, Jayne Mansfield og Jane Russell
verið meðal viðskiptavina hans.
Beverly Johnson heitir þessi broshýra stúlka og er ofurfyrirsæta að atvinnu.
Hún var gestur við frumsýningu kvikmyndarinnar „Once upon a Time...
When We Were Colored" sem var frumsýnd í Hollywood í vikunni. Leikstjóri
myndarinnar er Tim Fteid en meðal leikara er konan sem lék eiginkonu Bills
Cosbys í sjónvarpsþáttum hans. Símamynd Reuter
Whoopi Goidberg var í fjórða sæti á
listanum yfir verst klæddu konur
heims. „Flestir gamanleikarar leika
gamanatriði en Whoopi klæðist
þeim,“ var umsögnin um hana.
I BODI COCA-COLA
ÍSLENSKIUSTINN EB SAMVINNUVERKEFNIBYLGJUNNAR, DV OG COCA-COLA A fSLANDI. USTINN ER NIÐURSTAÐA SKOÐANAKÓNNUNAR SEM ER FRAM-
KVÆMD AF MARKAÐSDEILD DV í HVERRIVIKU. FJÖLDI SVARENDA ER A BILINU 300-400, Á ALDRINUM 14-35 ARAAF ÖLLU LANDINU. JAFNFRAMT ER TEK;
•Ð MIÐ AF SPILUN Á ISLENSKUM ÚTVARPSSTÖÐVUM. ÍSLENSKI USTINN BIRTIST A HVERJUM LAUGARDEGI í DV OG ER FRUMFLUTTUR A BYGJUNNI A
LAUGARDÓGUM KL1S-18. LISTINN ER BIRTUR AÐ HLUTAl TEXTAVARPIMTV SJÓNVARPSSTÖÐVARINNAR. ISLENSKILISTINN TEKUR ÞÁTTIVAU „WORLD
CART“ SEM FRAMLEIDOUR ER AF RADIO EXPRESS ILOS ANGELES. EINNIG HEFUR HANN ÁHRIF A EVRÓPUUSTANN SEM BIRTUR ERITÓNUSTARBLAD-
INU MUSIC & MEDIA SEM ER REKK) AF BANDARlSKA TÓNLISTARBLAÐINU BILLBOARD.