Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1996, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996
3
pv________________________________________Fréttir
Ekkert lát á deilum um skólahaldið í Mývatnssveit:
Oddviti neitar samvinnu
- segir Eyþór Pétursson, formaður rekstrarstjórnar Skútustaðaskóla
„Ef oddvitinn er oddviti allrar
sveitarinnar þá hjálpar hann okkur
að ná þessu fjármagni. Sveitar-
stjórnin var búin að segja að hún
ætlaði ekki að sækjast sjálf eftir
þessum styrk úr jöfnunarsjóði sveit-
arfélaga og því gætum við sótt um
hann sjálf. Nú segir oddvitinn að
ólöglegt sé að hafa þennan hátt á,“
segir Eyþór Pétursson, bóndi í Bald-
ursheimi við Mývatn og formaður
rekstrarstjórnar einkaskólans á
Skútustöðum.
Eyþór sagðí að skólinn þyrfti
nauðsynlega að fá styrk til að
standa undir skólaakstri vegna
skólans á Skútustöðum. Möguleiki
er að fá þetta fjármagn, um eina og
hálfa milljón króna, úr jöfnunar-
sjóði sveitarfélaga en einkaaðilar
geta ekki sótt um slíkan styrk. Lög-
um samkvæmt geta sveitarstjórnir
einar fengið fé þaðan.
„Við höfum fengið vilyrði um
þetta fé hjá félagsmálaráðuneytinu,
með því skilyrði að sveitarstjórnin
annist milligönguna. Við töldum í
Björgun-
arskóli á
Gufu-
skálum?
DV, Akranesi:
Búist er við því að starfshópur,
sem dómsmálaráðherra skipaði til
að kanna tillögur um að stofna al-
þjóðlegan björgunarskóla á Gufu-
skálum á Snæfellsnesi, skili af sér í
byrjun febrúar. Verið er að kanna
hvernig hægt er að koma skólanum
á fót, hvernig rekstri hans verði
háttað og fjármagnað.
í skýrslu, sem þeir Ingi Hans
Jónsson og Valgarð Halldórsson
gerðu fyrir Snæfellsbyggð og Slysa-
varna- félag íslands, kemur fram að
með þvi að stofna skólann myndu
skapast möguleikar á samræmdri
menntun björgunarmanna. Skoskur
sérfræðingur, sem Slysavarnafélag-
ið fékk til að leggja mat á skýrsluna,
lagði eindregið til að skólinn verði
stofnaður. Skoski sérfræðingurinn
rekur einn stærsta björgunarskóla
heims sem útskrifar þúsundir nem-
enda á ári. Stór hluti þeirra er sér-
deildarhermenn frá Evrópu og Am-
eríku. -DÓ
Reykhólahreppur:
Söluverð hita-
veitunnar
52 milljónir
Ijósi fyrri yfirlýsinga að það væri í
höfn en nú virðist oddvitinn og
meirihluti hreppsnefndar ætla að
svíkja það,“ segir Eyþór.
Málið verður tekið upp á hrepps-
nefndarfundi á fimmtudaginn og
sagðist Eyþór vonast eftir farsælli
lausn þá. Á Skútustöðum eru nú 23
börn við nám í einkaskóla en ekki
náðist samstaða um rekstur skóla í
sveitinni fyrir veturinn.
Leifur Hallgrímsson, oddviti
Skútustaðahrepps, sagði í samtali
við DV að það væri andstætt reglu-
gerð jöfnunarsjóðsins að taka pen-
inga með þeim hætti sem aðstand-
endur skólans á Skútustöðum vildu.
„Sveitarstjórnin var líka búin að
móta þá stefnu að sækja ekki um fé
til annars en grunnskóla hreppsins
og sá grunnskóli er í Reykjahlíð en
ekki á Skútustöðum. Það er heldur
ekki eðlilegt að sveitarsjóður sé að
leppa fyrir einkaskóla til að ná út
peningum," sagði Leifur.
Hann sagði það skoðun meiri-
hluta hreppsnefndar að sækja ekki
um akstursstyrk fyrir skólann á
Skútustöðum. Hann vildi þó ekkert
fullyrða um hver yrði niðurstaðan á
hreppsnefndarfundinum á fimmtu-
dapinn -GK
litrar al bensini fylgja hverjum bensinjeppa
Reykhólahreppur hefur selt
Orkubúi Vestfjarða hitaveitu
'hreppsins og er söluverðið 52 millj-
ónir króna. Að sögn Þórðar Jóns-
sonar, oddvita Reykhólahrepps, var
hitaveitan seld végna fjárhagsörð-
ugleika hreppsins. Þórður sagði að
hún hefði verið það helsta sem hægt
hefði verið að gera fé úr.
Nýr sveitarstjóri hreppsins er
Guðmundur Ingólfsson úr Hnífsdal.
Hann mun, að sögn Þórðar, taka til
starfa mjög bráðlega. -ÞK
Leiðrétting
í grein í blaðinu 22. janúar um
Björn Jónsson, prófast í Borgar-
fjaröarprófastsdæmi, slæddist mein-
leg villa. Hið rétta er að Björn tók
guðfræðipróf 1952 en ekki gagn-
fræðapróf eins og stendur í grein-
inni. Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum. -ÞK
•úrval al góðum jeppum á góöu verði og á einstökum kjörum
•vaxtalaust lán til 24 mánaða að upphæð allt að 1 millján króna
•ef pó kaupir Pensínjeppa fylgja eitt púsund lítrar af bensíni