Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1996, Side 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996
Fréttir
i>v
Fyrirspurnum linnir ekki eftir auglýsingu í Trader:
Breskum heildsölum boð-
ið að selja í Kolaportinu
- sá fyrsti kom um helgina
í kjölfar auglýsingar í breska við-
skiptablaðinu Trader í byrjun des-
ember, þar sem Kolaportið auglýsir
eftir breskum heildsölum til að selja
vöru sína í Kolaportinu, hefur, að
sögn Jens Ingólfssonar, fram-
kvæmdastjóra Kolaportsins, ekki
linnt fyrirspurnum frá Bretlandi.
í grein sem birtist í Trader sam-
hliða auglýsingunni kemur meðal
annars fram að um 30 þúsund
manns komi um hverja helgi í Kola-
portið. Yfir 90% Reykvíkinga hafi
komið þangað og um 80% allrar
þjóðarinnar. Þá sé tungumálið ekki
vandamál, allir íslendingar læri
ensku í skóla. Bent er á að þúsund-
ir íslendinga fari til Bretlands ár-
lega til að versla og þeir hafi pen-
inga til að eyða. Þess vegna sé upp-
lagt fyrir Breta að fara sjálfir til ís-
lands með vöruna.
„Það hafa verið mikil viðbrögð
við auglýsingunni, það eru komnar
hátt í 200 fyrirspurnir og í gær
komu 14,“ sagði Jens í samtali við
DV sl. föstudag. „Þegar hafa nokkr-
ir komið til að skoða, einn aðili er
að koma í annað sinn og er búinn
að panta bás 17. febrúar. Hann verð-
ur til dæmis með á boðstólum hús-
gögn og annað til heimilisnota.
Við gerum okkur vonir um að
það muni hleypa lífi í Kolaportið að
fá sjóaða markaðsmen hingað,"
sagði Jens.
Hann sagði að ákveðið hefði ver-
ið að hafa Kolaportið opið þijár vik-
ur samfleytt þrisvar á ári - vor,
haust og fyrir jól. Svo kæmi til
greina að hafa opið á föstudögum.
„Þetta verður viðbót við það sem
fyrir er. Það sem vantar mest er
kompudót, vinsælt, notað dót. Það
virðist uppurið í landinu."
Erlendir kaupsýslumenn kanna aðstæöur í Kolaportinu:
Getum boðið gæða-
vöru á lágu verði
- verðlag á íslandi allt of hátt, segja James Scurrah og Cáthál O’Brien
James Scurrah frá London og
Cáthál O’Brien frá Dublin, sem
starfa saman að verslun, voru á ís-
landi um helgina að kanna aðstæð-
ur í Kolaportinu og verðlag á ís-
landi í kjölfar auglýsingar og um-
fjöllunar um Kolaportið í breska
viðskiptatímaritinu Trader. Þeir
ætla að byrja um miðjan febrúar að
selja í Kolaportinu.
Þeir sögðust í samtali við DV
vera mjög hrifnir af öllum aðstæð-
um og skipulagningu í Kolaportinu
og íslendingar væru einstaklega
vingjamlegt fólk. Þeir tóku reyndar
svo djúpt í árinni að segja að Kola-
portið væri besti markaður sinnar
tegundar sem þeir hefðu séð í Evr-
ópu og hefðu þeir verið víða. Lítið
segjast þeir hafa vitað um ísland
áður en þetta kom til og telja landið
eitt best varðveitta leyndarmál Evr-
ópu. Þá segjast þeir treysta sér til að
bjóða hér til sölu gæðavöra á lágu
verði og sögðust hlakka til að byrja.
Á laugardaginn fóru þeir í versl-
anir á Reykjavíkursvæðinu og
fannst verðlagið allt of hátt.
O’Brien og Scurrah hyggjast selja
alls konar varning í Kolaportinu,
þeir flytja inn sjálfir frá Austur-
löndum og segjast ná verðlagi niður
þannig. Til að byrja með verða þeir
með ýmsa hluti til heimilisnota, t.d.
eldhúsáhöld og þess háttar. Ætlunin
er að breyta til með hvað boðið
verður til sölu í hverri viku, það
mun fara eftir þvi hvað selst best og
um hvað er spurt. Ætlunin er að
flytja vöruna inn í gámum með
skipum. Þeir segjast munu ráða ís-
lendinga til starfa við afgreiðslu.
Jens Ingólfsson, framkvæmda-
stjóri Kolaportsins, sagði að um 20
aðilár væru i sömu hugleiðingum
og O’Brien og Scurrah þó að þeir
hefðu ekki staðfest bókanir sínar
enn. Hins vegar hefði einn breskur
kaupmaður birst á fóstudag og boð-
ið vöru sína í Kolaportinu um helg-
ina. -ÞK
James Scurrah, vinstra megin, og Cáthál O’Brien hyggjast byrja að bjóða varning sinn í Koláportinu um miðjan febr-
úar næstkomandi. DV-mynd TJ
Nýjung í símakerfinu - símtalspöntun
Ný þjónusta, símtalspöntun, hef-
ur verið tekin í notkun í almenna
símakerfinu. í henni felst sú nýjung
að unnt er að panta símtal við núm-
er sem er á tali þegar hringt er í
það.
Sá sem hringir í númer á tali ýtir
á 5 og leggur á. Um leið og sá sem
var á tali hættir að tala hringir sím-
inn hans og sömuleiðis síminn sem
pantað var úr. Um leið og tólunum
er lyft af á báðum stöðum er sam-
band komið á. Ef sá sem pantaði
símtalið svarar ekki innan 10 sek-
úndna þurrkast pöntunin út. Sömu-
leiðis þurrkast pöntunin út ef sá
sem var á tali talar lengur er 45
mínútur eftir að símtalspöntunin er
gerð.
Hægt er að panta 5 samtöl og
einnig geta 5 aðilar pantað samtöl
til hvers notanda. Til að afpanta
símtal er ýtt á #37# og eru þá allar
fyrri pantanir afpantaðar en til að
afpanta ákveðið númer er ýtt á #37*
símanúmerið slegiö inn og ýtt á #.
Símtalspöntun geta aðeins þeir
sem hafa tónvalssíma nýtt sér.
Gjaldið er 9,97 kr. í hvert sinn og
gjaldfærist á númerið. -ÞK
Kolaportið er tæplega sjö ára. Nú eru breskir kaupmenn farnir að bjóða þar
vöru sína. Þeir telja sig geta boðið gæðavöru á mjög hagstæðu verði.
DV-mynd JAK
Veðsetning lóða í Kópavogi:
Vil bíða
skýrslu bæjaÞ
lögmanns
- segir Helga Sigurjónsdóttir bæjarfulltrúi
„Eins og komið hefur fram í fjöl-
miðlum era skiptar skoðanir um
þetta, ýmsir lögfræðingar telja þetta
ekki eðlilega viðskiptahætti. Það
stendur orð gegn orði. Bæjarlög-
maður og bæjarritari telja þetta allt
í góðu lagi,“ sagði Helga Sigurjóns-
dóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi.
„Menn fá úthlutað lóð, fá hana af-
henta án þess að borga og geta byrj-
að að byggja, undirrita bara skulda-
viðurkenningu. Síðan geta þeir selt
þetta skuldabréf áður en farið er að
byggja. í flestum tilfellum hefur
þetta ekki orðið neitt vandamál,
menn hafa yfirleitt staðið vel að
verki en nokkrir hafa staðið sig illa.
Sumir, sem skipt hafa við þá sem
fengið hafa lóðimar, telja sig hafa
borið skarðan hlut frá borði,“ sagði
Helga.
Fjallað var um málið á bæjarráðs-
fundi á fimmtudaginn. Bæjarfulltrú-
ar fá núna fljótlega skýrslu um mál-
ið frá bæjarlögmanni.
Að sögn Helgu finnst henni koma
til greina að félagsmálaráðuneytið
skeri úr um þetta.
„Ég tel rétt að bíða skýrslu bæjar-
lögmanns. Mér virðist vafasamt að
veðsetja lóðir. Samkvæmt sveitar-
stjómarlögum fæ ég ekki betur séð
en það sé bannað að veðsetja land,“
sagði Helga Sigurjónsdóttir. -ÞK
Raufarhöfn:
Tilraunaborun
eftir heitu vatni
DV, Akureyri:
Um þessar mundir er unnið að
undirbúningi að tilraunaborun efth-
heitu vatni í landi Raufarhafnar-
hrepps og er áformað að bora fjórar
tilraunaholur.
Reynir Þorsteinsson, starfandi
sveitarstjóri á Raufarhöfn, segir að
öll hús á Raufarhöfn séu kynt með
rafmagni sem sé dýrt. Tilraunahol-
urnar verða boraðar nærri flugvell-
inum, á Höfðanum, og tvær holn-
anna uppi í heiðinni en þær verður
ekki hægt að bora fyrr en síðar þeg-
ar meira frost verður komið í jörðu
og hægt að fara um með þau tæki
sem til þarf.
„Já, við erum bjartsýnir á árang-
ur. Það var boruð hérna 320 metra
djúp hola við skólann á sínum tíma
sem gefur 22 stiga heitt vatn. Okkur
er sagt af mönnum hjá Orkustofnun
að það sé ekki spuming hvort hér
sé heitt vatn ef borað er nógu djúpt,
spurningin er hins vegar hversu
mikið vatn geti verið um að ræða og
hversu heitt,“ segir Reynh.
Hann segir að gefi frekari rann-
sóknir og tilraunaborun ekki já-
kvæðan árangur verði að öllum lík-
indum ráðist í byggingu sorporku-
stöövar og varminn frá henni nýtt-
ur t.d. til kyndingar á skóla, sund-
laug og íþróttahúsi. „Það sorp sem
safnast saman hér á ári er það mik-
ið að úr því gæti fengist orka sem
nægði til 65% af kyndingu á íþrótta-
húsinu, sundlauginni og 'skólan-
um,“ segir Reynir -gk