Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1996, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996
Fréttir
Ellert Vigfússon, framkvæmdastjóri íslenskra ígulkera hf.:
Ræö ekki fólk í vinnu án
þess að hitta það
- segist vera mjög óánægöur meö framkomu tveggja verkalýðsforingja
„Menn geta sent mér svona fax
eða bréf en það er alveg á hreinu að
ég ræð ekki fólk í vinnu hjá mér án
þess að hitta það og ræða við það.
Þessir menn eru velkomnir hingað
til viðræðna en þegar ég fæ svona
plagg með svona kröfum þá svara ég
því auðvitað ekki,“ sagði Ellert Vig-
fússon, framkvæmdastjóri íslenska
ígulkera hf. í Njarðvík, í samtali við
DV vegna vinnuumsóknar sem
hann hefur fengið frá þremur hafh-
flrskum verkamönnum.
Þeir Ásbjöm Helgason, Bjarnfreð-
ur Ármannsson og Sigurður Ásgeir
Runólfsson sendu atvinnuumsókn
til íslenskra ígulkera hf. þar sem
þeir sækja um vinnu með ákveðn-
um skilyrðum. Þeir vilja frá launa-
taxta VMSÍ fyrir sérhæft fisk-
vinnslufólk. Þeir vilja fá fríar ferðir
milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur
daglega. Þeir benda svo á að líklega
sé hægt að fá fleira verkafólk í
Hafnarfirði í vinnu á sömu skilmál-
um.
Flakar steinbít og
herðir með tilþrifum
DV, Suðureyri:
Vestfirðingar em þekktir fyrir
hertan steinbít og þegar vel tekst til
með herðingu er steinbíturinn lost-
æti. Guðbjöm Kristmannsson, út-
gerðarmaður á Berta, Suðureyri, er
einn af fáum sem flakar steinbít og
herðir með tilþrifum.
Guðbjöm selur eitt og eitt kíló en
er ekki í „bisness" eins og hann
kallar það. Steinbíturinn hans er
þekktur víða enda fær fólk vart
betri annars staðar. Fiskurinn er
flakaður og kúlaöur, síðan settur í
hreinan sjó.
Hann hengdi steinbít á hjall í
haust og smakkast hann vel, að
sögn manna sem komu í heimsókn í
harðfiskhjallinn fyrir skemmstu.
Gengu þeir heim með kippur yfir
öxl tyggjandi bragðgóðan ekta vest-
firskan steinbít.
Framtalsskyldar greiöslur úr verkfallssjóöi kennara:
Mismunandi óréttlátt
- segir Eiríkur Jónsson, formaður KÍ
„Samkvæmt skattalögum er þetta
framtalsskylt. í ljósi þess eru sendir
em út launamiðar. Við létum kanna
lögfræðilegu hliðina á þessu fyrir
okkur,“ segir Eirikur Jónsson, for-
maður Kennarasambands íslands,
um að kennurum sé gert að greiða
skatta af greiðslum sem þeir fengu
úr verkfallsjóði í kennaraverkfall-
inu á síðasta ári.
Aðspurður hvort eitthvert fram-
hald verði é málinu segir Eiríkur að
engin afstaða hafi verið tekin til
þess hvort menn vilji láta reyna á
að fá þessu breytt.
„Félagið vill náttúrlega fara að
lögum. Okkur finnst þetta óréttlátt.
Á það má benda að þeir sem staðið
hafa að Kennarasambandinu frá
1985 þegar sjóðurinn var stofnaður
hafa lagt þetta til hliðar og greitt
skatta af þessu. Nú era menn að
borga skatta af þessu aftur. Það má
benda á á móti að þeir sem hafa ver-
ið stutt í félaginu fengu sömu upp-
hæð úr sjóðnum í verkfallinu. Það
má því segja að þetta sé mismun-
andi óréttlátt eftir hversu lengi
menn hafa borgað í sjóðinn," segir
Eiríkur. -ÞK
Litli Eskfirðingurinn Marín:
Bandarískur
læknir vill koma
hingað til lands
Hugsanlegt er að bandarískur
læknir Marínar Hafsteinsdóttur,
litla Eskfirðingsins sem gekkst und-
ir hjartaaðgerð í Bandaríkjunum i
fyrra, komi hingað til lands til að
gera aðra aðgerð á Marínu. Komi
hann ekki verður Marín að fara
utan síðar á árinu til að gangast
undir aðgerðina á bamasjúkrahúsi
i Boston.
Samkvæmt upplýsingum DV get-
ur orðið verulegur spamaður af því
að bandaríski læknirinn komi hing-
að, að minnsta kosti fyrir Trygg-
ingastofnun ríkisins, en Karl Stein-
ar Guðnason, forstjóri Trygginga-
stofnunar ríkisins, segir að sér
komi á óvart hversu lág tala sé
nefnd.
Fullyrt er að það kosti um 150
þúsund krónur að fá lækninn, sem
að sögn hefur samþykkt að koma til
landsins, en þá er ótalinn kostnaður
við dvölina hér, aðstoðarfólk lækn-
isins og þess háttar og lendir sá
kostnaður að öllu eða einhverju
leyti á viðkomandi sjúkrahúsi hér.
Kostnaður við að senda sjúkling-
inn utan gæti hins vegar numið allt
að þremur milljónum og greiðist af
Tryggingastofnun.
„Læknar koma alltaf annað slagið
fíá útlöndum í svona erindagjörð-
um og við eram mjög jákvæðir fyr-
ir því að spara fé alltaf þegar hægt
er. Auðvitað er miklu þægilegra fyr-
ir fólkið að aðgerðin sé gerð hér
frekar en erlendis og það stendur
ekkert á því að þetta verði leyft, svo
framarlega sem menn telja það eðli-
legt,“ segir Karl Steinar Guðnason,
forstjóri Tryggingastofnunar ríkis-
ins.
-GHS
Verkamannafélagið Hlíf í Hafnar-
firði hefur ályktað um að Islensk íg-
ulker hf. sækist eftir ódýra vinnu-
afli og vilji þess vegna flytja inn
starfsfólk frá Asíu. Segir einnig að
fyrirtækinu standi til boða að ráða
verkafólk úr Hafnarfirði en hafi
ekki svarað skriflegri umsókn þre-
menninganna.
„Þessar kröfur þeirra eru ekki
raunhæfar. Ég keyri ekki fólk á
milli Njarðvíkur og Hafnarfjarðar
né held því uppi hér, það er alveg á
hreinu. En varðandi" kauptaxtann
þá greiði ég taxta sérhæfðs fisk-
vinnslufólks ef fólk er sérhæft ann-
ars ekki. Ég hef alla tíð greitt laun
samkvæmt umsömdum töxtum og
ég hef einnig greitt bónusa," sagði
Ellert Vigfússon.
Hann segist vera mjög óhress
með ummæli verkalýðsleiðtoganna
Kristjáns Gunnarsson í Keflavík og
Sigurðar T. Sigurðssonar í Hafnar-
firði um þau laun sem fyrirtækið
greiðir.
„Þessir ágætu menn hafa samið
um og skrifað undir ákveðna launa-
taxta fyrir verkafólk. Við greiðum
laun samkvæmt þeim en þá saka
þeir okkur um að fara illa með
verkafólk varðandi kaupgreiðslur.
Eftir hvaða töxtum eigum við að
greiða laun? Þetta kemur bara ekki
heim og saman hjá þeim og er ekk-
ert annað en tvískinnungur,“ sagði
Ellert Vigfússon.
-S.dór
Guðbjörn Kristmannsson í harðfiskhjallinum sem hann reisti í haust. Þar hangir hert ýsa og steinbítur.
DV-myndir R. Schmidt
Armúla 24 - Sími 568 1518