Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1996, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996
Stuttar fréttir
íranir falsa
íranska myntsláttan prentar
og falsar hundrað dollara seöla,
að sögn bandarísku sjónvarps-
stöðvarinnar ABC.
Frestun hafnað
Dómstóll í ísrael hafnaði í
morgun beiðni morðingja
Rabins forsætisráðherra um að
réttarhaldinu yfir honum verði
frestað.
Jeltsín harður nagli
Borís
Jeltsín Rúss-
landsforseti
sagði í morg-
un að hann
gerði sér enn
vonir um að
leysa deilurn-
ar í Tsjetsjen-
íu viö samn-
ingaborðiö en hann hét því að
ganga milli bols og höfuðs á upp-
reisnarmönnum í lýðveldinu.
Fokker í vanda
Fokker flugvélaverksmiðjurn-
ar hollensku ramba á barmi
gjaldþrots eftir að Daimler Benz
samsteypan í Þýskalandi hætti
fjárstuðningi.
íhuga samstarf
Leiðtogar breska Verkamann-
aflokksins og flokks frjálslyndra
demókrata íhuga að eigá sam-
starf að loknum kosningum sem
verða í síðasta lagi á næsta ári.
Léttir til
Stjórnvöld í Mexíkó hafa af-
létt neyðarástandi í höfuðborg-
inni vegna mikillar mengunar
þar síðustu daga.
Viðræður bráðum
Vonast er til að viöræður SÞ
við íraka um sölu á olíu til að
kaupa matvæli geti hafist á
næstunni.
Hafna beiðni Rushdies
Þýsk stjóm-
völd höfnuðu í
gær áskorun
rithöfundar-
ins Salmans
Rushdies um
að þrýsta á
írani um að
aflétta dauða-
dóminum yfir
rithöfundinum vegna bókarinn-
ar Söngva satans.
Júpíter endurmetinn
Vísindamenn kunna að þurfa
að endurskoða kenningar sínar
um myndun Júpíters eftir að
geimfarið Galfleó sendi nýjar
upplýsingar tfl jarðar.
Faiin vopnabúr
Bandarísk stjómvöld em hálf-
vandræðaleg þessa dagana yfir
leyndum vopnabúrum í Austur-
ríki frá dögum kalda stríðsins
sem þarlend stjórnvöld fréttu
fyrst af um helgina.
Forsetar ákærðir
Tveir fyrmm forsetar Suður-
Kóreu voru í morgun ákærðir
fyrir uppreisnaráróður gegn rík-
inu í tengslum við fjöldamorð
hersins á mótmælendum.
Boutros kátur
Boutros
Boutros-Ghali,
framkvæmda-
stjóri SÞ, lýsti
í gær yfir
ánægju sinni
með kosning-
arnar sem
Palestínu-
menn héldu
um helgina og sagði þær traust-
an grundvöll undir sjálfsákvörð-
unarrétt þeirra.
Clinton í sjónvarpi
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
flytur ræðu um ástand og horfúr
í landsmálum í kvöld og verður
henni sjónvarpað.
Reuter
Utlönd
Fundur týndra skjala í Whitewater-málinu bakar forsetafrúnni óþægindi:
Hillary stefnt til að
vitna fyrir kviðdómi
Hillary Rodham Clinton, forseta-
frú Bandaríkjanna, hefur verið
stefnt tfl að bera vitni frammi fyrir
kviðdómi í Whitewater-málinu.
Verður hún yfirheyrð um skyndi-
legan fund skjala sem verið hafa
týnd i tvö ár og rannsóknarnefndin
í málinu hefur ákaft leitað. Stefnan
þykir vera áfall fyrir forsetafrúna
en málið hefur sett svip sinn á setu
eiginmanns hennar í forsetastóli og
verið vatn á myllu óvina hans með-
al repúblikana sem vilja koma í veg
fyrir endurkjör hans í nóvember.
Hillary verður fyrsta eiginkona
starfandi forseta sem dregin er fyrir
kviðdóm. Kviðdómurinn mun
ákvarða hvort einhver tflraun hafi
verið gerð af hálfu Hillary til að
hindra framgang réttvísinnar en
týndu skjölin hafa komið henni í
afar óþægilega stöðu. Forsetahjónin
neita staðfastlega að hafa gert nokk-
uð ólöglegt og segja málið fyrst og
fremst snúast um pólitík.
Ástæða þess að Hillary er látin
vitna fyrir kviðdómi er aö 4. janúar
sl. fundust skjöl frá síðasta áratug
sem varða störf Hillary í lögmanns-
fyrirtæki. Eiginmaður hennar var
þá fylkisstjóri Arkansas. Skjölin
greina í smáatriðum frá lögfræði-
vinnu Hillary fyrir sparisjóð í Ark-
ansas sem fór á hausinn og kostaði
skattborgarana hátt í 400 milljónir
króna. Sparisjóðurinn var í eigu
manns sem átti í samstarfi við Clin-
ton-hjónin um rekstur bygginga-
verktakafyrirtækis sem nefnist
Whitewater.
Carolyn Huber, yfirmaður per-
sónulegra samskipta forsetans,
sagði rannsóknarnefnd þingsins í
síðustu viku að hún hefði rekist á
skjölin í bókaherbergi Hvíta húss-
ins i ágúst. Hún setti þau í kassa og
rakst ekki aftur á þau fyrr en fimm
mánuðum seinna. Þá fyrst var skjöl-
Hillary Clinton.
unum skilað tfl rannsóknarnefndar-
innar.
Hillary sagðist ánægð yfir að
skjölin skyldu loks fundin en hún
segir þau staðfesta að vinna hennar
fyrir sparisjóðinn hafi verið minni
háttar.
Hillary verður spurð spjörunum
úr á fostudag ásamt þremur aðstoð-
armönnum úr Hvíta húsinu og lög-
mönnuni Clinton-hjónanna. Yfir-
heyrslurnar eru þáttur í gagnaöflun
málsins en þýða ekki að hún sé
grunuð um ólöglegt athæfi.
Andstæðingar Clintons hafa líkt
Whitewater-málinu við Watergate-
málið þar sem reynt var að hylma
yfir innbrot í Watergate-bygging-
una. Það mál neyddi þáverandi for-
seta, Richard Nixon, til að segja af
sér, fyrstan bandarískra forseta.
Hillary hefur fallið í áliti almenn-
ings vegna Whitewater-málsins en
hún átti áður í vök að verjast vegna
aðildar að uppsögnum starfsfólks
ferðaskrifstofu Hvíta hússins vorið
1993. Reuter
Þessi Kínverji lét skort á bekkjum ekki koma í veg fyrir að hann fengi sér lúr í veðurblíðunni í Peking í gær. Hann hafði komið sér þægilega fyrir í tré í al-
menningsgarði og virtist njóta eftirmiðdagslúrsins til fullnustu. Símamynd Reuter
Gíslar uppreisn-
armanna fá frelsi
NATO til aðstoðar
stríðsglæpadómara
Yfirmaður sextíu þúsund
manna gæsluliðs NATO í Bosníu
sagði í gær að gert hefði verið
samkomulag við Richard Goldsto-
ne, yfirmann striðsglæpadóm-
stólsins í fyrrum Júgóslavíu, um
aöstoð við rannsókn meintra
voðaverka.
„Við Goldstone komum okkur
saman um þann stuðning sem
sveitir okkar munu veita mönn-
um hans þegar þeir rannsaka
íjöldagrafir og undirbúa mál á
hendur stríðsglæpamönnum,"
sagði Leighton Smith aðmíráll, yf-
irmaður NATO-liðsins.
Smith lét þessi orð falla í mynd-
veri í Pale, höfuðvígi Bosníu-
Serba, steinsnar frá heimili
Radovans Karadzics Serbaleið-
toga sem hefur verið ákærður fyr-
ir stríðsglæpi.
Gæsluliðar NATO munu ekki
elta upþi stríðsglæpamenn en þeir
munu handsama þá verði þeir á
vegi þeirra.
Goldstone sagði í Sarajevo að
menn hans mundu hefja vett-
vangsrannsóknir mjög fljótlega.
Rannsóknarmenn segja að sjö
þúsund múslíma sé saknað frá því
Serbar lögðu undir sig griðasvæði
SÞ í Srebrenica í júlí í fyrrasum-
ar. Reuter
Ráðgjafi Díönu hættur
Patrick Jephson, nánasti ráðgjafi
Díönu, prinsessu af Wales, er hætt-
ur störfum fyrir prinsessuna. Er
það í annað skipti sem maður úr
starfsliði Díönu hættir störfum í
kjölfar umtalaðs sjónvarpsviðtals
við hana i nóvember. Fráhvarf
Jephsons þýðir að Díana hefur ein-
göngu almennt skristofufólk sér til
aðstoðar í augnablikinu en hún
mun vera að leita að nýjum ráð-
gjafa.
Jephson hefur verið hægri hönd
Díönu í mörg ár og var með í ferð
þegar Díana skrapp til Bandaríkj-
anna fyrr í mánuðinum.
Blaðafulltrúi Díönu, Geofirey
Crawford, hætti störfum skömmu
eftir að viðtalinu umtalaða var sjón-
varpað en þar viðurkenndi hún
framhjáhald og efaðist um hæfileika
Karls rikisarfa til að verða konung-
ur.
Reuter
Tsjetsjenskir uppreisnarmenn
ætla að leysa flesta gísla.sína úr
haldi í dag en þeir eru þó fremur
súrir í broti yfir að vera stimplaðir
sem hryðjuverkamenn eftir gísla-
tökumálin að undanförnu.
Movladí Údúgov, talsmaður
Dzhokhars Dúdajevs, leiðtoga að-
skflnaðarsinna í Tsjetsjeníu, bauð
fréttamönnum að vera viðstadda
frelsun gíslanna í morgun í bænum
Nóvogroznenskíj í Tsjetsjeníu.
Búist er við að Dúdajev muni
leggja blátt bann við frekari árásum
á óbreytta borgara en óvíst er hvort
allir uppreisnarmenn muni hlýða.
Salman Rúdajev, sem setti allt á
annan endann þegar hann og félag-
ar hans tóku gísla í Dagestan fyrir
hálfum mánuði, kom úr felum í gær
til að verja gerðir sínar.
„Rússnesk yfirvöld neyddu okkur
út í þetta til að verja heiður okkar
sem manna,“ sagði Radújev við
fréttamenn á leynilegum stað í
Tsjetsjeníu þar sem nokkrir gísl-
anna eru í haldi. „Ég endurtek að
við munum berjast tfl síðasta blóð-
dropa.“
Radújev sagði að hópur sinn hefði
tekið 83 gísla með sér þegar hann
braust út úr herkví Rússa um þorp-
ið Pervomajskaja. Hann sagði að í
Salman Radújev er í felum í
Tsjetsjeníu. Símamynd Reuter
gíslahópnum væru 53 óbreyttir
borgarar, þar af sex konur, en hinir
gíslarnir væru lögregluþjónar.
Radújev lék á als oddi og gerði að
gamni sínu við gíslana en einn
þeirra sagðist hafa farið sjálfvfljug-
ur með uppreisnarmönnunum þar
sem Rússar hefðu skotið á þá.
„Hvemig er hægt að sanna að
hann sé ekki bófi?“ sagði hinn
skeggprúði Radújev og benti á gísl
með nokkurra daga skegghýjung á
hökunni. „Þú þama, þú ert með
skegg, þú ert ekta bófi,“ sagði Radú-
jev. Gíslinn hló taugaveiklunarlega.
Údúgov sagði að farið yrði með
lögregluþjónana í gíslahópnum eins
og stríðsfanga og þeir yrðu aðeins
látnir lausir í skiptum fyrir upp-
reisnarmenn í haldi Rússa. Reuter