Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1996, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996
Fréttir
11
DV
Fjárhagsstaða borgarsjóðs um áramót:
Skuldirnar hækkuðu
um 8,5 milljarða
á síðustu sex árum
Skuldasöfnun borgarinnar
- samanburður síðustu 6 ára -
1990
1991 1992 1993 1994 1995
Heildarskuldir borgarsjóðs námu
13,2 milljörðum króna um síðustu
áramót, samkvæmt upplýsingum
sem komu fram á blaðamannafundi
með borgarstjóra í síðustu viku, og
hafa þær aukist gríðarlega síðustu
sex árin, eða um 8.562 milljónir
króna. Mest jukust skuldirnar milli
ára 1993 og 1994 eða um 2.675 millj-
ónir króna og 1991-1992 um 2.393
milljónir en minnst 1990-1991. Þá
jukust þær aðeins um 480 milljónir
króna.
Borgarstjóri kynnti fjárhagsáætl-
un borgarinnar fyrir þetta ár á
borgarstjórnarfundi á fimmtudag. Á
blaðamannafundi fyrir borgar-
stjórnarfundinn sagði borgarstjóri
að veruleg hækkun hefði orðið á
rekstrargjöldum sem hlutfalli af
skatttekjum á tímabilinu 1992-1994.
Hæst hefði það numið 97 prósentum
árið 1994 en farið lækkandi síðan og
næmi árið 1996 84 prósentum.
„Þetta gefur þó ekki alveg rétta
mynd af rekstrarumfangi borgar-
sjóðs og hvernig það hefði þróast.
Inni í þessu eru vaxtagreiðslur sem
hafa hækkað mjög verulega," sagði
hún meðal annars.
Árin 1993 og 1994 námu rekstrar-
gjöld án vaxta sem hlutfall af skatt-
tekjum 84 og 93 prósentum. Árið
1994 er þetta hlutfall komið niður í
82 prósent 1995 og fer niður í 79 pró-
sent samkvæmt frumvarpinu. Borg-
arstjóri segir að stefnt sé að því að
ná þessu hlutfalli niður í 75 prósent
næstu árin.
„Meðal annars með þetta að mark-
miði hefur verið skipuð verkefnis-
stjórn embættismanna til að vinna
að gerð þriggja ára áætlunar um
rekstur, framkvæmdir og fjármál
borgarinnar. Við vonumst tO þess að
á fyrri hluta þessa árs verði hægt að
leggja fram slíka áætlun til af-
greiðslu í borgarstjórn. Það yrði þá í
fyrsta skipti sem slík áætlun yrði
gerð hérna,“ sagði borgarstjóri.-GHS
Dagsbrún:
Brýnast að virkja verkamenn
- segir Gylfi Páll Hersir
Gylfi Páll Hersir, verkamaður í
Stálsmiðjunni, telur að forysta
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar,
sem kjörin hafi verið í stéttabaráttu
fyrir nokkrum áratugum, hafi færst
fjær grasrótinni nær því að vera
þjónustustofnun við verkamenn.
Svo eigi þó ekki að vera, enda vilji
hann ekki kvarta undir skrifstof-
unni sem slíkri heldur eigi verka-
menn að ná aftur völdum í félaginu.
„Við erum ekki að kjósa misgóða
kontórista til að reka félagið sem
stofnun heldur á Dagsbrún að vera
félag félagsmanna. Aðalatriðið er að
auka lýðræði innan félagsins, virkja
félagana og ýta undir sérhver skref
sem verkamenn á vinnustöðum
taka til að færa sín réttindamál
fram á við.“
-GHS
Aukabla5 um
I Miðvikudaginn 31. janúar mun
aukablað um skatta og fjármál
i fylgja DV.
Blaðið verður fjölbreytt og efnisniikið en í því verð-
ur fjallað um flest það er viðkemur sköttum og fjár-
málum heimilanna.
Meðal efnis er skattframtal, húsnæðislán, heima-
banki, kreditkort, greiðsludreifing, leiðir til
sparnaðar o.fl.
Þeim sem vilja koma á framfæri upplýsingum og
efni í blaðið er bent á að senda upplýsingar til Evu
Magnúsdóttur, DV, fyrir 24. janúar.
Bréfasíminn er 550-5999.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa í
þessu aukablaði vinsamlega hafi samband við Selmu
Rut Magnúsdóttur eða Arnar H. Ottesen, auglýs-
ingadeild DV, hið fyrsta í síma 550-5722.
Skattfi.
'ei'ibc,
***ital
Un>ná
°8 í/Jn
"li
Viiisamlegast athugið að síðasti skiladagu
auglýsinga er fimmtudagur 25. janúar.
r
Auglýsingar
Sími 550 5000, bréfasími 550-5727.
full búd af geisladiskum á
vægast sagt
sprenghlægilegu verði!