Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1996, Síða 16
16
Iveran
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÁNÚAR 1996
Óþroskuð lungu
í bókinni Að eignast barn
segir að í lok 26. viku eigi barn
litlar lífslíkur ef það fæðist þá.
Frá því bókin var skrifuð hefur
tækninni fleygt fram. Gestur
barnalæknir segir frá barni
sem fæddist eftir 24 vikna með-
göngu. Mæður ættu því ekki að
örvænta þó börnin fæðist fyrir
tímann þó æskilegast sé aö
ganga með barnið 38-40 vikur. í
lok 26. viku eru lungnapípurnar
að þroskast enda þótt þær séu
ekki fullskapaðar enn. Lungna-
blöðrur myndast í lungunum en
lungun geta ekki starfað sjálf-
stætt. Barnið er farið að iðka
öndunarhreyfingar og æfa önd-
unarvöðvana. Húðin er i felling-
um því fita hefur ekki safnast
undir húðlagið.
Tölvur ekki
hættulegar
Margar verðandi mæður sem
vinna við tölvur hafa áhyggjur
af því að geislun skjáa og ljós-
ritunarvéla hafi skaðleg áhrif á
fóstur. Samkvæmt nýlegum
rannsóknum er það ekki skað-
legt fóstrinu.
Ferðalög
Konur ættu ekki að vera
hræddar viö að ferðast á með-
göngu séu þær frískar. Þær sem
hafa misst fóstur ættu þó að
fara varlega. í lengri bílferðum
er mjög æskilegt að taka sér
hvíld og fara út úr bílnum og
ganga um. Ekki er ráðlegt aö
konur sem komnar eru sjö mán-
uði eða lengra á leið fljúgi
vegna þrýstingsbreytinga í vél-
inni. Þungaðar konur ættu að
borða í hófi á meðan flogið er
því hætta er á flugveiki.
Líkamsrækt
Líkamleg og andleg líðan
kvenna batnar við líkamsrækt
á meðgöngu. Þegar hormónið
endorfln streymir út í blóðið
veldur það vellíðan. Konur geta
aukið sjálfsvitund sína með því
að æfa og eru fljótari að ná
fyrra vaxtarlagi aftur. Þrekið
eykst og konan býr sig undir
þau átök sem fæðingin er. Við
líkamsæfingar fær barnið súr-
efni í blóðið sem örvar efna-
skipti þess. Heilinn tekur að
starfa með fullum afköstum.
Hreyfingin sem fylgir likams-
rækt er róandi fyrir barnið þar
sem það vaggar með. Bamið
fær andlega örvun við adrena-
línið sem streymir um æðar
móðurinnar. em
I URVALI ^
ÞUMALÍNA
PÓSTHÚSSTRÆT113 - SÍMI 551 2136
Tíu prósent barna fyrirburar:
Minnsta barnið
tvær merkur
Eignaðist fjögurra marka barn:
Ég var
samt
ofur-
biartsýn
segir Lára Qttesen
„Mér brá aðeins þegar ég vissi að
ég átti að fara í keisara því ég var
bara gengin með 27 vikur. Ég var
samt ofurbjartsýn og efaðist ekki
eitt augnablik um að allt yrði í lagi.
Ég fékk að sjá drenginn daginn eftir
og mér fannst hann æðislegur," seg-
ir Lára Ottesen sem eignaðist dreng
ásamt eiginmanni sínum, Guðbjarti
Loftssyni frá Njarðvík, þremur
mánuðum fyrir tímann á siðasta
ári. Drengurinn var skírður Hólmar
Páll stuttu eftir fæðingu og spjaraði
sig vel þrátt fyrir að hann vó aðeins
ijórar merkur og var 36 sentímetra
langur.
„Læknarnir gerðu okkur grein
fyrir því að fyrstu sólarhringarnir
myndu skera úr um hvort Hólmar
hefði þetta af. Við leyfðum engum
neikvæðum hugsunum að komast
að og trúðum því allan tímann að
hann myndi lifa. Við fengum fyrst
að halda á honum þriggja vikna
gömlum en þá var hann 985 grömm.
Ég var svo stressuð að ég fékk harð-
sperrur í axlirnar," segir Lára.
Lára byrjaði i fæðingarorlofi þeg-
ar Hólmar Páfl fæddist en hann var
útskrifaður af Landspítalanum
þremur og hálfum mánuði efiir það.
Lára keyrði því á hverjum degi frá
Njarðvík til Reykjavíkur til þess að
vera með drengnum. Guðbjartur,
eiginmaður Láru, er sjómaður og
fylgdi henni þegar hann var í landi.
„Minnsta barnið sem við höfum
haft hér á deildinni og hefur lifað
fæddist 590 grömm en það eru rúm-
ar tvær merkur. Barnið er alveg
heilbrigt í dag,“ segir Gestur Páls-
son, barnalæknir á vökudeild Land-
spítalans.
Miðað við það barn var Hólmar
Páll nokkuð stórvaxinn. Að sögn
Gests er barn sem ekki er gengið
með fullar 37 vikur kallað fyrirburi
en misjafnt er eins og gengur
hversu löngu fyrir tímann börnin
boða komu sína.
„Það sem hefur háð okkur með
fyrirburana er hvað lungun hafa
verið óþroskuð. Það er algengt hjá
börnum sem fæðast fyrir tímann.
Fyrir fimm árum byrjuðum við að
nota surfactant, sem er efni sem
vantar í lungun hjá fyrirburum. Ef
efnið er ekki til staðar falla litlu
lungnablöðrurnar saman en þá
kemst súrefni ekki yfir í blóðið.
Einnig er farið að gefa móðurinni
stera ef hætta er á að barnið fæðist
fyrir tímann en þeir örva myndun
surfactant-efnisins," segir Gestur.
Gífurlegar framfarir hafa orðið í
þessum málum undanfarin ár. Ekki
er þó auðvelt að greina ástæðurnar
fyrir því að börn fæðast fyrir tím-
ann. Stundum er um að ræða galla í
leginu eða sýkingu. Leghálsinn
heldur ekki alltaf hjá konum sem
farið hafa i keiluskurð. Ef enginn
grunur leikur á sýkingu og sam-
dráttarverkir eru byrjaðir löngu fyr-
ir tímann er gefið lyf sem slakar á
samdráttunum. Mikilvægt er að
halda barninu inni þar til búið er að
gefa stera. Ef sýking er í leginu er
ekki reynt að stöðva fæðinguna því
þá er barnið í hættu. Hægt er að
bjarga börnum alveg frá 24. viku
meðgöngu en yfirleitt er það ekki
reynt fyrr.
„Þau börn sem hafa verið í önd-
unarvél og fengið súrefni eru yfir-
leitt með lungu sem viðkvæm eru
fyrir sýkingum fyrstu árin. Þau fá
oft astmaöndun og sýkingar í lung-
un. Þau eru oft búin að ná eðlilegum
vexti og þroska miðað við aðra
krakka þegar þau eru orðin tveggja
ára,“ segir Gestur.
-em
Hólmar Páll er montinn af því að geta gengið með fram öllum húsgögnun-
um enda verður hann eins árs á morgun. DV-myndir Ægir Már
Lára og Hólmar Páll en hann er farinn að nálgast jafnaldra sína að stærð.
Þetta var full vinna og meira en það,
að sögn Láru, og þessari baráttu
fylgdi mikið álag.
Fæðingarorlof lengist ekki sjálf-
krafa þó börnin fæðist fyrir tímann.
Lára átti eftir tæpan helming fæð-
ingarorlofsins þegar Hólmar kom
heim af sjúkrahúsinu. Þá var hann
orðinn fimmtán merkur.
„Ég vil að við fáum sex mánuði
heima eins og aðrir foreldrar því
við sem eigum fyrirbura eyðum
mörgum mánuðum á sjúkrahúsinu
og getum ekki unnið á meðan. Ég
fékk aukamánuð en var ætlaður
þrír og hálfur mánuður með
Hólmari heima. Ég fór heim með
tæplega þriggja mánaða barn sem
var jafnstórt og nýfætt. Barnalækn-
irinn í Keflavík mat stöðuna þannig
að Hólmar Páll gæti ekki verið hjá
dagmömmu þar sem hann væri svo
kvefsækinn og því fæ ég umönnun-
arbætur í tvö ár.
Eftir á að hyggja finnst mér þetta
hafa verið mikil lífreynsla og ekki
af verri endanum. Það hefur gengið
á ýmsu hjá okkur síðan hann kom
heim en hann er búinn að vera mjög
kvefsækinn. Hann er veill vegna
þess að lungun voru ekki full-
þroskuð þegar hann fæddist. Það er
mikið að þakka starfsfólki vöku-
deildar að þessi tími var ekki erfið-
ari.
-em