Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Qupperneq 2
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996 JjV
Niðurstöður í doktorsritgerð Ingibjargar Jónsdóttur lífeðlisfræðings vekja mikla athygli í Svíþjóð
41
Minni hætta a krabbameini
ef fólk þjálfar reglulega
- hefur örugglega jákvæð áhrif á ónæmiskerfið og spurning með alnæmi og liðagigt
„Niöurstöður minar og fleiri vis-
indamanna benda til að minni
hætta sé á að fólk fái krabbamein ef
það æfir reglulega. Þær benda þann-
ig til að þjálfun hafi jákvæð áhrif á
ónæmiskerfið gagnvart veirusjúk-
dómum og krabbameini. Með því að
æfa höfum við áhrif á þetta. Síðan
er spumingin hvernig áhrif íþróttir
hafa á alnæmi og liðagigt," sagði
Ingibjörg Jónsdóttir, þrítugur ís-
lendingur og lífeðlisfræðingur, sem
vakti nýlega mikla athygli í Svíþjóð
þegar hún varði doktorsritgerð sina
í Gautaborg um áhrif þjálfunar á
ónæmiskerfið.
„Það hefur orðið gífurlegt ijöl-
miölafár út af þessari ritgerð
minni,“ sagði Ingibjörg sem kvaðst
hafa skýrt niðurstöður sínar út fyr-
ir hverjum fjölmiölinum á fætur
öðrum í Svíþjóð þar sem hún býr.
Ingibjörg hefur unnið með dýr við
rannsóknir sínar. Þannig hefur
krabbameinsfrumum verið spraut-
að í þau og síðan kannað hvemig
regluleg hreyfing hefur á viðkom-
andi einstakling.
„Við erum búin að sýna fram á að
virkni ónæmiskerfisins gegn veiru-
sýkingum eykst við ákveðna þjálf-
un. Ég hef sýnt fram á þetta með
dýratilraununum en aðrir, t.a.m.
hópur í Kaupmannahöfn, í fólki.“
Ingibjörg sagði jafnframt að
vissulega væri krabbameinsfrum-
um ekki sprautað í fólk þó að slíkt
væri gert við dýr eins og rottur. „En
það er gífurlegur munur á þeim dýr-
um sem „þjálfa og ekki þjálfa“,“
sagði Ingibjörg. Hún sagði að rann-
sóknir í Bandaríkjunum og Evrópu
bentu á hinn bóginn til að ofþjálfun
íþróttamanna minnkuðu virkni
ónæmiskerfisins.
Ingibjörg hefur fengið 55 þúsund
sænskar krónur í styrk frá Sveriges
centralfórening för idrottens fremj-
ande en hún segir þau samtök tengj-
ast íþróttasambandi Svíþjóðar.
Styrkurinn er yfirleitt veittur Svía
til framhaldsvinnu erlendis vegna
rannsókna sem tengjast því að þjálf-
un og íþróttir hafi áhrif gegn sjúk-
dómum og stuðli að því að fólk
hreyfi sig meira.
Ingibjörg Jónsdóttir er á leið
heim til íslands á næstu vikum og
mun hún þá halda fyrirlestur í Há-
skóla íslands.
-Ótt
logga - och di
lipper cancer
ty forskning visar att
notion gör kroppen
•larkare mot virus
>cb tumðrer
Úrklippa úr sænska blaðinu Aftonbladet en rannsóknir Ingibjargar hafa
vakið mikla athygli í Svíþjóð.
Hjónin Jón Baldvin Hannibalsson og Bryndís Schram nutu lífsins í gær í blíðviðrinu ásamt Huldu Jakobsdóttur,
ekkju Finnboga Rúts, föðurbróður Jóns, þegar Ijósmyndari DV rakst á þau í blíðviðrinu í Kópavogi. Þótt Jón Bald-
vin vilji ekkert segja um hvort hann ætli í framboð þá eru allar líkur taldar á að hann skelli sér í slaginn um stólinn á
Bessastöðum. Hann hefur m.a. fengið til þess mikinn stuðning úr Sjálfstæðisflokknum og hvatningar úr öllum átt-
um. Jón Baldvin mun tilkynna ákvörðun sína eftir helgi. DV-mynd S
Auglýsingasamningur Ástþórs Magnússonar og Eureka:
Riftum honum vegna vanefnda
- segir Júlíus Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eureka
SForsetaefnin á ferðinni:
Innanlands sem
utan um helgina
Forsetaframbjóðendurnir verða
á ferð og flugi um helgina, jafnt
í innanlands sem utan því Guðrún
Pétursdóttir verður í Noregi þar
sem hún mun fúnda á morgun
með íslenskum kjósendum búsett-
um i Osló og víðar í Noregi. Á
mánudag verður Guðrún gestur
norska ríkissjónvarpsins í þættin-
um Toppen en time.
Guðrún Agnarsdóttir verður
með menningar- og skemmtidags-'
skrá á kosningaskrifstofunni að
Ingólfsstræti 5 í dag. Þar koma
fram leikararnir Anna Kristín
Arngrímsdóttir, Amar Jónsson,
Bríet Héðinsdóttir og Lilja Guð-
rún Þorvaldsdóttir ásamt Árna
Harðarsyni tónlistarmanni og
fleiri listamönnum. Þá stendur
yfir málverkasýning Sjafnar Har-
aldsdóttur og Ingunnar Eydal í
húsakynnum kosningaskrifstof-
unnar. Ætlunin er að vera með
skemmtidagskrá framvegis á laug-
ardögum á skrifstofunni.
Pétur Kr. Hafstein er með stuðn-
ingsmannafundi á Akureyri í dag,
fyrst i Lindinni í hádeginu og á
| Greifanum síðdegis. Kosninga-
skrifstoía hans verður formlega
opnuð í Borgartúni 20 í fyrramálið
með morgunkaffl. Eftir hádegi á
J morgun verður Pétur á ferðinni
um Suðurland og heimsækir Skál-
holt m.a.
| Ólafur Ragnar Grímsson fundar
með nánustu stuðningsmönnum á
suðvesturhorninu þar sem barátt-
an framundan verður skipulögð.
Á morgun verður hann staddur
síðdegis á kosningamiðstöðinni að
Hverfisgötu 33.
i: Guðmundur Rafn Geirdal verð-
ur með kosningafund annað kvöld
í í nuddskóla sínum að Smiðshöfða
10. -bjb
„Við höfum rift samningi við
Friðarland hf. um birtingu og fram-
leiðslu umhverfisauelýsinga næstu
mánuðina, vegna vanefnda," segir
Júlíus Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri auglýsingafyrirtækisins
Eureka hf.
í frétt DV af auglýsingaherferð
Ástþórs Magnússonar í gær sagði
Róbert Árni Hreiðarsson, lögmaður
hans, að vanefndir samningsins
væru allar af hálfu Eureka, birting-
ar hefðu ekki verið með þeim hætti
sem samningar kvæðu á um og þess
vegna hefðu greiðslur verið stöðvað-
ar. Peningamir væm hins vegar til
og sýnilegir.
Júlíus ítrekar í samtali við DV að
Eureka hafi rift samningnum vegna
greiðslufalls en vill að öðru leyti
ekki tjá sig um málið.
Ýmis fleiri teikn era á lofti um að
Friður 2000 standi ekki á traustum
granni heldur en riftun Eureka hf. á
birtingasamningnum við rekstrar-
fyrirtækið Friðarland hf. Utanríkis-
ráðuneytinu hefur nýlega borist
krafa bresks aðila á hendur Ástþóri
Magnússyni og óskað liðsinnis við
innheimtu hennar. Samkvæmt
heimildum DV nemur krafan sjö
þúsund breskum pundum.
Bjami Sigtryggsson, upplýsinga-
fulltrúi ráðuneytisins, staðfestir að
krafan hafi borist ráðuneytinu en
áður hafi fleiri slíkar kröfur borist
erlendis frá. Hann vill ekki nefna
hversu háar þessar kröfur era en
segir að þeirri síðustu hafi verið
komið áfram til Verslunarráðs eins
og venja er í slíkum tilfeflum.
-SÁ
v
NIÐURSTAÐA
Eiga íslendingar að hefja
hvalveiðar í sumar?
,x ö d d
FÓLKSINS
904-1600
87%
stuttar fréttir
Skorar á ráðherra
Hjálmar Ámason þingmaður
* hefur skorað á menntamálaráð-
i herra að grípa tfl aðgerða gegn
ofbeldis- og klámmyndum á
| Sýn.
Vextir lækka
Landsbanki og sparisjóðir
lækka inn- og útlánsvexti á
| mánudag. íslandsbanki og Bún-
í aðarbanki lækka ekki vexti, að
I sögn Útvarps.
Skrópa í aflestur
Verktakar og bílstjórar telja
mönnum mismunað í inn-
heimtu á þungaskatti og ætla
1 að skrópa I aflestur á kíló-
; metramælum verði ekkert gert.
j Útvarpið sagði frá.
3,8% atvinnuleysi
í Atvinnuleysi hér mælist
| 3,8% og jafngildir því að 5.500
| einstaklingar séu atvinnulaus-
ir. Þetta er minnsta atvinnu-
leysi frá því í aprfl 1992.
Ber að lögskrá
Sýslumaður í Hafnarfirði
í segir að lögskrá beri strax
■ áhöfnina á Heinaste hér á
| landi, skv. RÚV.
Kæra til ráðuneytisins
Minnihlutinn í Vesturbyggð
hefur kært meirihlutann til fé-
2 lagsmalaráðuneytisms. Útvarp-
ið greindi frá.
8 milljónir söfnuðust
1 Um 8 milljónir söfnuðust til
s styrktar Sophiu Hansen í gær.
Yfirtekur kynbætur
Landbúnaðarráðuneytið hef-
ur samið við Stofnfisk hf. um
að taka yfir kynbætur á laxi og
2 rekstri kynbótaaðstöðunnar í
Kollafirði.
Árangurslaus leit
| Leitin að ungverska nektar-
J dansaranum hefur ekki borið
árangur. Síðast sást til hennar
| á Selfossi fyrir viku. Stöð 2
í sagði frá.
Fundur um skólamál
Hafnarfl arðarbær heldur op-
| inn fund um skólamál i Hafnar-
| borg á þriðjudagskvöld. -GHS