Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996
ifmæli
59
Sölvi Jónasson
Sölvi Jónasson trésmiður, Ból-
staðarhlíð 41, Reykjavík, er áttræð-
ur í dag.
Starfsferill
Sölvi fæddist á Hnjótshólum í
Örlygshöfn í Patreksfirði en ólst að
mestu upp á Bakka í Arnarfírði hjá
hjónunum Böðvari Pálssyni og
Lilju Árnadóttur.
Fyrstu hjúskaparár sín var Sölvi
bóndi og sjómaður og bjó þá í
Neðribæ í Selárdal í Arnarfírði.
Sölvi flutti til Bíldudals 1947 og
stundaði þar sjómennsku og smíð-
ar. Hann flutti svo til Reykjavíkur
í ársbyrjun 1957 og hefur átt þar
heima siðan. í Reykjavík vann
Sölvi lengst af við húsgagnasmíði
hjá Kristjáni Siggeirssyni og
einnig í Trésmiðjunni Meið.
Fjölskylda
Sölvi kvæntist 1940 Sigrúnu
Jónsdóttur, f. 29.7. 1908, d. 18.1.
1989, húsmóður. Hún var dóttir
Jóns Jónssonar og Guðmundu
Guðmundsdóttur sem bjuggu á
Dynjanda í Arnarfirði.
Dóttir Sigrúnar er Svanhildur
Tessnow, f. 30.3. 1935, var húsmóð-
ir í Borgarnesi, var gift Gísla V.
Halldórssyni en þau skildu og er
Svanhildur nú í Reykjavík.
Sonur Sölva og Sigrúnar er
Haukur, f. 20.10. 1940, kvæntur
Kristínu Árnadóttur og eiga þau
þrjár dætur, Sigrúnu Hrönn, f. 1.6.
1966, en sambýlismaður hennar er
Leifur Örn Svavarsson og eiga þau
eina dóttur, Hrefnu Hörn, Elínu
Helgu, f. 9.11. 1968, en sambýlis-
maður hennar er Konráð Vil-
hjálmsson og á Elín tvær dætur,
Kristínu og Guðlaugu Jónsdætur,
og Svanhildi Hrund, f. 18.7. 1977,
nema við Fjölbrautaskóla Breið-
holts.
Systkini Sölva: Guðjón Jónas-
son, f. 1900, d. 1901; Guðjón Jónas-
son, f. 29.6. 1904, d. 19.9. 1981, sjó-
maður á Patreksfirði, en hans kona
var Júlíana Ásgeirsdóttir, látin;
Kristín Jónasdóttir, f. 22.8. 1907, d.
18.3. 1970, húsfreyja á Kletti í
Geiradal, en hennar maður var
Ormur Grímsson, látinn, bóndi á
Kletti, þau eignuðust tíu börn; Val-
gerður Ingunn Jónasdóttir, f. 22.8.
1910, d. 18.6. 1995, húsmóðir á Pat-
reksfirði, var gift Sigurjóni Jó-
hannssyni, sjómanni og verka-
manni, og eignuðust þau fimm
börn, auk þess sem Valgerður eign-
aðist dóttur áður; Kristinn Jónas-
son, f. 12.10. 1912, d. 1970, vélgæslu-
maður hjá Áburðarverksmiðjunni
í Reykjavík en hans kona var Sig-
ríður Halldórsdóttir, látin, þau
eignuðust sex börn; Guðbjartur, f.
28.9. 1913, d. 5.8. 1958, sjómaður á
Bíldudal; Lára Jónasdóttir, f. 7.11.
1919, d. 8.2. 1941.
Foreldrar Sölva voru Jónas
Jónsson, f. 15.12. 1875, d. 22.2. 1965,
bóndi og sjómaður á Patreksfirði,
og k.h., Jóna Valgerður Jónsdóttir,
f. 31.1. 1878, d. 1961, húsfreyja.
Ætt
Jónas var sonur Jóns sterka,
vinnumanns á Auðshaugi og b. í
Rauðsdal, Einarssonar, b. á
Brekkuvelli, Bjarnasonar. Móðir
Jóns var Guðrún Jóhannsdóttir.
Móðir Jónasar var Ingibjörg,
vinnukona á Auðshaugi, Einars-
sonar, b. í Holtsfit, Símonarsonar,
og Guðrúnar Bjarnadóttur.
Jóna Valgerður var systir Torfa
i Kollsvík, afa Magnúsar Torfa
Ólafssonar, fyrrv. ráðherra, Torfa,
föður Ólafs, fyrrv. ritstjóra, og afa
Guðbjargar, móður Hildigunnar
Lóu, kaupmanns á ísafirði. Annar
bróðir Jónu Valgerðar var Hákon,
faðir Jóns, kaupfélagsstjóra á
Hnjóti. Jóna Valgerður var dóttir
Jóns, b. á Hnjóti I, Torfasonar, b. á
Hnjóti og á Brekku á Rauðasandi,
Bjarnasonar, b. á Sveinseyri, Jóns-
Sölvi Jónasson.
sonar. Móðir Torfa var Sigriður
Þorkelsdóttir. Móðir Jóns á Hnjóti
var Sólveig Bjarnadóttir, b. í
Breiðuvík, Sigurðssonar og Þór-
kötlu Leifsdóttur.
Móðir Jónu Valgerðar var Val-
gerður yngri Guðmundsdóttir, b. á
Auðshaugi og í Geitagili í Örlygs-
höfn, Hákonarsonar Guðmunds-
sonar. Móðir Valgerðar yngri var
Anna Jónsdóttir Thorberg, versl-
unarmanns á Geirseyri, og Sigríð-
ar Þóroddsdóttur Þóroddssonar og
Bergljótar Einarsdóttur.
Sölvi tekur á móti gestum í fé-
lagsmiðstöðinni Bólstaðahlíð 43 kl.
15.00 í dag.
Bjarni Jón Gottskálksson Höskuldur Bjamason
Bjami Jón Gottskálksson, bif-
reiðastjóri Stjómarráðsins, Gauks-
hólum 2, Reykjavík, er sjötugur í
dag.
Starfsferill
Bjarni Jón fæddist í Hafnarfirði
en ólst upp í Reykjavík. Hann hef-
ur lengst af stundað bifreiðaakst-
ur, lengst af hjá Stjómarráðinu,
eða sl. átján ár.
Fjölskylda
Böm Bjama Jóns og fyrrv. konu
hans, Christhildar Friðriksdóttur,
eru Ragnar, f. 27.8. 1949, vörubíl-
stjóri í Reykjavík, og á hann eina
dóttur; Gottskálk, f. 27.10. 1950, bif-
vélavirki í Reykjavík, kvæntur
Arndísi Hervinsdóttur og eiga þau
þrjú börn; Heiða, f. 23.9. 1963, hús-
móðir í Reykjavík, gift Helga
Magnússyni, verkstjóra hjá Nóa og
Síríusi; Hinrik, f. 4.10.1965, tónlist-
arkennari í Reykjavík, kvæntur
Sigurlínu Magnúsdóttur húsmóður
og eiga þau þrjú börn.
Foreldrar Bjarna Jóns: Gott-
skálk Jónsson, f. 31.5. 1899, fórst
með bv. Sviða 2.12. 1941, sjómaður
í Reykjavík, og Þórhildur E.M.
Bjarnadóttir, f. 16.5. 1891, húsmóð-
Ætt
Gottskálk var sonur Jóns, b. á
Króki í Ölfusi og á Hvoli, Björns-
sonar, b. á Bakkarholtsparti, Jóns-
sonar. Móðir Jóns var Þuríður
Jónsdóttir.
Móðir Gottskálks var Guðrún,
systir Gissurar, organista á Hvoli,
langafa Hannesar Hólmsteins Gis-
surarsonar dósents. Guðrún var
dóttir Gottskálks, b. á Sogni í
Grafningi og á Reykjum, Þórodds-
sonar, b. í Dalseli undir Eyjaíjöll-
um, Gissurarsonar. Móðir Gissur-
ar var Guðrún Sigurðardóttir,
systir Bjarna Sívertsen riddara.
Móðir Guðrún Gottskálksdóttur
var Salvör Ögmundsdóttir.
Þórhildur var dóttir Bjama, b. á
Heiði á Síðu, bróður Jóns, hrepp-
stjóra í Mundakoti, fóður Ragnars
í Smára. Bjami var sonur Einars,
b. á Heiði, Bjamasonar, b. á Heiði
Höskuldur Bjarnason verkamað-
ur, til heimilis að Hrafnistu í
Reykjavík, er áttatíu og fimm ára í
dag.
Starfsferil!
Til hamingju með
afmælið 12. maí
80 ára
Hreiðar Guð-
jónsson,
málarameistari,
Hrafnistu, Hafh-
arfirði.
Hreiðar tekur á
móti gestum á
heimili sonar
síns í Traðar-
landi 12, Reykja-
vík, á morgun,
sunnudaginn 12.5., milli kl. 15.00
Og 17.00.
Hallfríður N. Franklinsdóttir,
Túngötu 35, Siglufirði.
70 ára
Árni Jónsson,
Stekkjarflöt 5, Garðabæ.
60 ára
Sigriður Ólafsson,
Tjarnargötu 14, Reykjavík.
Helgi Guðmundsson,
Melgerði 39, Kópavogi.
50 ára
Haraldur Gauti Hjaltason,
Suðurgötu 80, Akranesi.
Róshildur Georgsdóttir,
Klausturhvammi 5, Hafnarfirði.
Konráð Gíslason,
Furuhlíð 7, Sauðárkróki.
Kristján Linnet,
Hverfisgötu 23B, Hafnarfirði.
Ragnar Jón Pétursson,
Fjarðarseli 8, Reykjavík.
Ingi Bóasson,
Laugamesvegi 63, Reykjavík.
Stefán Ingólfsson,
Látraseli 8, Reykjavik.
40 ára
Guðbjörg Garðarsdóttir,
Langholtsvegi 73, Reykjavík.
Kristinn Eiríksson,
Vesturási 54, Reykjavík.
Sigríður Knútsdóttir,
Brautarlandi 16, Reykjavík.
Raimund B. Brockmeyer
Urbschat,
Litla-Búrfelli, Svínavatnshreppi.
Guðjón Rúnar Ingimarsson,
Hofi, Skagahreppi.
Auður Jacobsen,
Veghúsum 31, Reykjavik.
Halldór Árni Guðfinnsson,
Sogavegi 176, Reykjavík.
Guðrún Garðarsdóttir,
Hamri, Mosfellsbæ.
Bjarni Jón Gottskálksson.
og á Fossi, Einarssonar, b. á Fossi,
Nikulássonar, b. í Hlíð undir Eyja-
fiöllum, Jónssonar, b. á Núpsstað,
Bjarnasonar, bróður Eiríks,
langafa Karitasar, móður Jóhann-
esar Kjarvals. Móðir Einars í Heiði
var Rannveig Jónsdóttir, systir Ei-
riks, afa Gísla Sveinssonar alþing-
isforseta og langafa Runólfs land-
græðslustjóra, föður Sveins land-
græðslustjóra, en bróðir Runólfs
var Páll yfirkennari, faðir Páls,
prests á Bergþórshvoli.
Móðir Þórhildar var Ragnhildur
Þorláksdóttir Jónssonar og Krist-
ínar Símonardóttur.
Bjarní Jón tekur á móti gestum
í Borgartúni 6 í kvöld frá kl. 19.00-
21.00.
Höskuldur fæddist að Klúku í
Bjarnarfirði á Ströndum en ólst upp
til sautján ára aldurs að Tungugröf
í Tungusveit hjá Ingimundi Ingi-
mundarsyni og Maríu Helgadóttur.
Höskuldur stundaði sjómennsku
frá unga aldri og fram á fimmtugs-
aldur en stundaði síðan almenna
verkamannavinnu þar til hann
hætti störfum fyrir aldurs sakir sjö-
tíu og átta ára. Hann og kona hans
bjuggu lengst af á Burstafelli á
Drangsnesi eða til 1995.
Fjölskylda
Höskuldur kvæntist 25.10. 1942
Önnu Guðrúnu Halldórsdóttur, f.
11.10. 1922, húsmóður. Foreldrar
hennar voru Halldór Guðmundsson,
bóndi á Bæ á Selströnd við Stein-
grímsfiörð, og Guðrún Petrína
Árnadóttir húsfreyja.
Börn Höskuldar og Önnu Guð-
rúnar eru Gunnhildur Höskulds-
dóttir, f. 24.6. 1941, húsmóðir og
saumakona í Reykjavík, gift Erling
Birki Ottóssyni verslunarmanni og
eiga þau tvo syni; Jóhanna Björk
Höskuldsdóttir Larsen, f. 21.2. 1943,
húsmóðir og hjúkrunarfræðingur í
Frederiksværk í Danmörku, gift
Hans John Larsen sótara og eiga
þau tvö börn; Bjarnveig Höskulds-
dóttir, f. 5.8. 1946, húsmóðir og
þroskaþjálfi í Mosfellsbæ, gift Ragn-
ari Sigurbjörnssyni, prófessor
verkfræði við HÍ, og eiga þau þrjái
dætur; Friðgeir Höskuldsson, f. 31.7
1947, skipstjóri og útgerðarmaður é
Drangsnesi, kvæntur Sigurbjörgi
Halldóru Halldórsdóttur, húsmóðui
og verslunarmanni, og eiga þau tvc
börn; Anna Guðrún Höskuldsdóttir
f. 4.10. 1949, húsmóðir og hár-
greiðslukona í Akurgerði í Ölfusi
gift Guðmundi Ingvarssyni bónda
og eiga þau saman einn son, auk
þess sem hún á son frá því áður
Auður Höskuldsdóttir, f. 14.9. 1952
húsfreyja á Drangsnesi, gift Jón:
Antoni Magnússyni skipstjóra o|
eiga þau fiögur böm; Halldór Hö
skuldsson, f. 30.10. 1958, stýrimaðui
á Drangsnesi, kvæntur Sunnu Jak
obinu Einarsdóttur, húsmóður of.
póstafgreiðslumanni, og eiga þai
tvö börn.
Systkini Höskuldar vora sex er
þau eru nú öll látin. Systkini haní
voru Elísabet Ragnhildur, húsmóðii
á Akureyri; Helga Soffia, húsfreyjc
á Drangsnesi; Elías, sjómaður oj
verkamaður á Mýrum á Drangs
nesi; Zophanías, sjómaður í Reykja
vík; Skúli, sjómaður, verkamaðui
og refaskytta á Drangsnesi; Sigurð
ur, smiður á Drangsnesi og síðar i
Hvammstanga.
Foreldrar Höskuldar voru Bjam:
Guðmundsson, bóndi á Klúku
Bjamarfirði, og k.h., Jóhanna Guð
mundsdóttir húsfreyja.
Höskuldur verður að heiman á af
mælisdaginn.
Reykjavíkurniótid 1996
Úrslitaleiknr • A deild
AÐAL-LEIKVMGURm
LAUGARDAL
Fyrsti grasleikurinn á
aðal-leikvanginum í Laugardal 1996
Fylkir - KR
Sunnudaginn 12. maí kl. 17:00
IÍOSSA NO\A bandiö leikur frá kl. 16 - 17
Mðaverd kr. 500 • frítt fyrir börn