Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996 ifmæli 59 Sölvi Jónasson Sölvi Jónasson trésmiður, Ból- staðarhlíð 41, Reykjavík, er áttræð- ur í dag. Starfsferill Sölvi fæddist á Hnjótshólum í Örlygshöfn í Patreksfirði en ólst að mestu upp á Bakka í Arnarfírði hjá hjónunum Böðvari Pálssyni og Lilju Árnadóttur. Fyrstu hjúskaparár sín var Sölvi bóndi og sjómaður og bjó þá í Neðribæ í Selárdal í Arnarfírði. Sölvi flutti til Bíldudals 1947 og stundaði þar sjómennsku og smíð- ar. Hann flutti svo til Reykjavíkur í ársbyrjun 1957 og hefur átt þar heima siðan. í Reykjavík vann Sölvi lengst af við húsgagnasmíði hjá Kristjáni Siggeirssyni og einnig í Trésmiðjunni Meið. Fjölskylda Sölvi kvæntist 1940 Sigrúnu Jónsdóttur, f. 29.7. 1908, d. 18.1. 1989, húsmóður. Hún var dóttir Jóns Jónssonar og Guðmundu Guðmundsdóttur sem bjuggu á Dynjanda í Arnarfirði. Dóttir Sigrúnar er Svanhildur Tessnow, f. 30.3. 1935, var húsmóð- ir í Borgarnesi, var gift Gísla V. Halldórssyni en þau skildu og er Svanhildur nú í Reykjavík. Sonur Sölva og Sigrúnar er Haukur, f. 20.10. 1940, kvæntur Kristínu Árnadóttur og eiga þau þrjár dætur, Sigrúnu Hrönn, f. 1.6. 1966, en sambýlismaður hennar er Leifur Örn Svavarsson og eiga þau eina dóttur, Hrefnu Hörn, Elínu Helgu, f. 9.11. 1968, en sambýlis- maður hennar er Konráð Vil- hjálmsson og á Elín tvær dætur, Kristínu og Guðlaugu Jónsdætur, og Svanhildi Hrund, f. 18.7. 1977, nema við Fjölbrautaskóla Breið- holts. Systkini Sölva: Guðjón Jónas- son, f. 1900, d. 1901; Guðjón Jónas- son, f. 29.6. 1904, d. 19.9. 1981, sjó- maður á Patreksfirði, en hans kona var Júlíana Ásgeirsdóttir, látin; Kristín Jónasdóttir, f. 22.8. 1907, d. 18.3. 1970, húsfreyja á Kletti í Geiradal, en hennar maður var Ormur Grímsson, látinn, bóndi á Kletti, þau eignuðust tíu börn; Val- gerður Ingunn Jónasdóttir, f. 22.8. 1910, d. 18.6. 1995, húsmóðir á Pat- reksfirði, var gift Sigurjóni Jó- hannssyni, sjómanni og verka- manni, og eignuðust þau fimm börn, auk þess sem Valgerður eign- aðist dóttur áður; Kristinn Jónas- son, f. 12.10. 1912, d. 1970, vélgæslu- maður hjá Áburðarverksmiðjunni í Reykjavík en hans kona var Sig- ríður Halldórsdóttir, látin, þau eignuðust sex börn; Guðbjartur, f. 28.9. 1913, d. 5.8. 1958, sjómaður á Bíldudal; Lára Jónasdóttir, f. 7.11. 1919, d. 8.2. 1941. Foreldrar Sölva voru Jónas Jónsson, f. 15.12. 1875, d. 22.2. 1965, bóndi og sjómaður á Patreksfirði, og k.h., Jóna Valgerður Jónsdóttir, f. 31.1. 1878, d. 1961, húsfreyja. Ætt Jónas var sonur Jóns sterka, vinnumanns á Auðshaugi og b. í Rauðsdal, Einarssonar, b. á Brekkuvelli, Bjarnasonar. Móðir Jóns var Guðrún Jóhannsdóttir. Móðir Jónasar var Ingibjörg, vinnukona á Auðshaugi, Einars- sonar, b. í Holtsfit, Símonarsonar, og Guðrúnar Bjarnadóttur. Jóna Valgerður var systir Torfa i Kollsvík, afa Magnúsar Torfa Ólafssonar, fyrrv. ráðherra, Torfa, föður Ólafs, fyrrv. ritstjóra, og afa Guðbjargar, móður Hildigunnar Lóu, kaupmanns á ísafirði. Annar bróðir Jónu Valgerðar var Hákon, faðir Jóns, kaupfélagsstjóra á Hnjóti. Jóna Valgerður var dóttir Jóns, b. á Hnjóti I, Torfasonar, b. á Hnjóti og á Brekku á Rauðasandi, Bjarnasonar, b. á Sveinseyri, Jóns- Sölvi Jónasson. sonar. Móðir Torfa var Sigriður Þorkelsdóttir. Móðir Jóns á Hnjóti var Sólveig Bjarnadóttir, b. í Breiðuvík, Sigurðssonar og Þór- kötlu Leifsdóttur. Móðir Jónu Valgerðar var Val- gerður yngri Guðmundsdóttir, b. á Auðshaugi og í Geitagili í Örlygs- höfn, Hákonarsonar Guðmunds- sonar. Móðir Valgerðar yngri var Anna Jónsdóttir Thorberg, versl- unarmanns á Geirseyri, og Sigríð- ar Þóroddsdóttur Þóroddssonar og Bergljótar Einarsdóttur. Sölvi tekur á móti gestum í fé- lagsmiðstöðinni Bólstaðahlíð 43 kl. 15.00 í dag. Bjarni Jón Gottskálksson Höskuldur Bjamason Bjami Jón Gottskálksson, bif- reiðastjóri Stjómarráðsins, Gauks- hólum 2, Reykjavík, er sjötugur í dag. Starfsferill Bjarni Jón fæddist í Hafnarfirði en ólst upp í Reykjavík. Hann hef- ur lengst af stundað bifreiðaakst- ur, lengst af hjá Stjómarráðinu, eða sl. átján ár. Fjölskylda Böm Bjama Jóns og fyrrv. konu hans, Christhildar Friðriksdóttur, eru Ragnar, f. 27.8. 1949, vörubíl- stjóri í Reykjavík, og á hann eina dóttur; Gottskálk, f. 27.10. 1950, bif- vélavirki í Reykjavík, kvæntur Arndísi Hervinsdóttur og eiga þau þrjú börn; Heiða, f. 23.9. 1963, hús- móðir í Reykjavík, gift Helga Magnússyni, verkstjóra hjá Nóa og Síríusi; Hinrik, f. 4.10.1965, tónlist- arkennari í Reykjavík, kvæntur Sigurlínu Magnúsdóttur húsmóður og eiga þau þrjú börn. Foreldrar Bjarna Jóns: Gott- skálk Jónsson, f. 31.5. 1899, fórst með bv. Sviða 2.12. 1941, sjómaður í Reykjavík, og Þórhildur E.M. Bjarnadóttir, f. 16.5. 1891, húsmóð- Ætt Gottskálk var sonur Jóns, b. á Króki í Ölfusi og á Hvoli, Björns- sonar, b. á Bakkarholtsparti, Jóns- sonar. Móðir Jóns var Þuríður Jónsdóttir. Móðir Gottskálks var Guðrún, systir Gissurar, organista á Hvoli, langafa Hannesar Hólmsteins Gis- surarsonar dósents. Guðrún var dóttir Gottskálks, b. á Sogni í Grafningi og á Reykjum, Þórodds- sonar, b. í Dalseli undir Eyjaíjöll- um, Gissurarsonar. Móðir Gissur- ar var Guðrún Sigurðardóttir, systir Bjarna Sívertsen riddara. Móðir Guðrún Gottskálksdóttur var Salvör Ögmundsdóttir. Þórhildur var dóttir Bjama, b. á Heiði á Síðu, bróður Jóns, hrepp- stjóra í Mundakoti, fóður Ragnars í Smára. Bjami var sonur Einars, b. á Heiði, Bjamasonar, b. á Heiði Höskuldur Bjarnason verkamað- ur, til heimilis að Hrafnistu í Reykjavík, er áttatíu og fimm ára í dag. Starfsferil! Til hamingju með afmælið 12. maí 80 ára Hreiðar Guð- jónsson, málarameistari, Hrafnistu, Hafh- arfirði. Hreiðar tekur á móti gestum á heimili sonar síns í Traðar- landi 12, Reykja- vík, á morgun, sunnudaginn 12.5., milli kl. 15.00 Og 17.00. Hallfríður N. Franklinsdóttir, Túngötu 35, Siglufirði. 70 ára Árni Jónsson, Stekkjarflöt 5, Garðabæ. 60 ára Sigriður Ólafsson, Tjarnargötu 14, Reykjavík. Helgi Guðmundsson, Melgerði 39, Kópavogi. 50 ára Haraldur Gauti Hjaltason, Suðurgötu 80, Akranesi. Róshildur Georgsdóttir, Klausturhvammi 5, Hafnarfirði. Konráð Gíslason, Furuhlíð 7, Sauðárkróki. Kristján Linnet, Hverfisgötu 23B, Hafnarfirði. Ragnar Jón Pétursson, Fjarðarseli 8, Reykjavík. Ingi Bóasson, Laugamesvegi 63, Reykjavík. Stefán Ingólfsson, Látraseli 8, Reykjavik. 40 ára Guðbjörg Garðarsdóttir, Langholtsvegi 73, Reykjavík. Kristinn Eiríksson, Vesturási 54, Reykjavík. Sigríður Knútsdóttir, Brautarlandi 16, Reykjavík. Raimund B. Brockmeyer Urbschat, Litla-Búrfelli, Svínavatnshreppi. Guðjón Rúnar Ingimarsson, Hofi, Skagahreppi. Auður Jacobsen, Veghúsum 31, Reykjavik. Halldór Árni Guðfinnsson, Sogavegi 176, Reykjavík. Guðrún Garðarsdóttir, Hamri, Mosfellsbæ. Bjarni Jón Gottskálksson. og á Fossi, Einarssonar, b. á Fossi, Nikulássonar, b. í Hlíð undir Eyja- fiöllum, Jónssonar, b. á Núpsstað, Bjarnasonar, bróður Eiríks, langafa Karitasar, móður Jóhann- esar Kjarvals. Móðir Einars í Heiði var Rannveig Jónsdóttir, systir Ei- riks, afa Gísla Sveinssonar alþing- isforseta og langafa Runólfs land- græðslustjóra, föður Sveins land- græðslustjóra, en bróðir Runólfs var Páll yfirkennari, faðir Páls, prests á Bergþórshvoli. Móðir Þórhildar var Ragnhildur Þorláksdóttir Jónssonar og Krist- ínar Símonardóttur. Bjarní Jón tekur á móti gestum í Borgartúni 6 í kvöld frá kl. 19.00- 21.00. Höskuldur fæddist að Klúku í Bjarnarfirði á Ströndum en ólst upp til sautján ára aldurs að Tungugröf í Tungusveit hjá Ingimundi Ingi- mundarsyni og Maríu Helgadóttur. Höskuldur stundaði sjómennsku frá unga aldri og fram á fimmtugs- aldur en stundaði síðan almenna verkamannavinnu þar til hann hætti störfum fyrir aldurs sakir sjö- tíu og átta ára. Hann og kona hans bjuggu lengst af á Burstafelli á Drangsnesi eða til 1995. Fjölskylda Höskuldur kvæntist 25.10. 1942 Önnu Guðrúnu Halldórsdóttur, f. 11.10. 1922, húsmóður. Foreldrar hennar voru Halldór Guðmundsson, bóndi á Bæ á Selströnd við Stein- grímsfiörð, og Guðrún Petrína Árnadóttir húsfreyja. Börn Höskuldar og Önnu Guð- rúnar eru Gunnhildur Höskulds- dóttir, f. 24.6. 1941, húsmóðir og saumakona í Reykjavík, gift Erling Birki Ottóssyni verslunarmanni og eiga þau tvo syni; Jóhanna Björk Höskuldsdóttir Larsen, f. 21.2. 1943, húsmóðir og hjúkrunarfræðingur í Frederiksværk í Danmörku, gift Hans John Larsen sótara og eiga þau tvö börn; Bjarnveig Höskulds- dóttir, f. 5.8. 1946, húsmóðir og þroskaþjálfi í Mosfellsbæ, gift Ragn- ari Sigurbjörnssyni, prófessor verkfræði við HÍ, og eiga þau þrjái dætur; Friðgeir Höskuldsson, f. 31.7 1947, skipstjóri og útgerðarmaður é Drangsnesi, kvæntur Sigurbjörgi Halldóru Halldórsdóttur, húsmóðui og verslunarmanni, og eiga þau tvc börn; Anna Guðrún Höskuldsdóttir f. 4.10. 1949, húsmóðir og hár- greiðslukona í Akurgerði í Ölfusi gift Guðmundi Ingvarssyni bónda og eiga þau saman einn son, auk þess sem hún á son frá því áður Auður Höskuldsdóttir, f. 14.9. 1952 húsfreyja á Drangsnesi, gift Jón: Antoni Magnússyni skipstjóra o| eiga þau fiögur böm; Halldór Hö skuldsson, f. 30.10. 1958, stýrimaðui á Drangsnesi, kvæntur Sunnu Jak obinu Einarsdóttur, húsmóður of. póstafgreiðslumanni, og eiga þai tvö börn. Systkini Höskuldar vora sex er þau eru nú öll látin. Systkini haní voru Elísabet Ragnhildur, húsmóðii á Akureyri; Helga Soffia, húsfreyjc á Drangsnesi; Elías, sjómaður oj verkamaður á Mýrum á Drangs nesi; Zophanías, sjómaður í Reykja vík; Skúli, sjómaður, verkamaðui og refaskytta á Drangsnesi; Sigurð ur, smiður á Drangsnesi og síðar i Hvammstanga. Foreldrar Höskuldar voru Bjam: Guðmundsson, bóndi á Klúku Bjamarfirði, og k.h., Jóhanna Guð mundsdóttir húsfreyja. Höskuldur verður að heiman á af mælisdaginn. Reykjavíkurniótid 1996 Úrslitaleiknr • A deild AÐAL-LEIKVMGURm LAUGARDAL Fyrsti grasleikurinn á aðal-leikvanginum í Laugardal 1996 Fylkir - KR Sunnudaginn 12. maí kl. 17:00 IÍOSSA NO\A bandiö leikur frá kl. 16 - 17 Mðaverd kr. 500 • frítt fyrir börn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.