Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Side 8
sælkerinn LAUGARDAGUR 11. MAI1996 Pátur Kr. Hafstein forsetaframbjóðandi er sælkeri vikunnar: Smálúða með aspas og „Ég gríp í eldamennskuna jöfnum höndum en ég er ekki með neinar sérstakar sælkerakúnstir. Ég gríp bara i að búa tO venjulegan mat, ýmsa flskrétti eins og til dæmis steiktan fisk í raspi og flsk í eldíostu fati með aspas. Það gerir fiskinn aðeins betri en venjulega og svo er ósköp einfalt að hafa lambalæri. Við erum oft með kjúklinga og ég matbý þá jöfnum hönd um,“ segir Pétur Kr. Hafstein forseta- frambjóðandi. Pétur kveðst oftast bera fram og drekka vatn með fiskréttum og borði gjarnan hrísgrjón með fisk- inum og grænmeti af einhverju tagi, til dæmis salat, en svo eru að sjálfsögðu kartöflur oft á borðum. Hann segist ekki vera mikið í bakstri en bakar þó pönnukökur og vöfflur af miklum krafti. „Þær voru meira að segja kallaðar fógetavöfflur þegar ég var fyrir vestan,“ segir hann. Fiskur með aspas 500 g flskflök, helst smálúöa 1 msk. smjör lögg af sítrónusafa salt fogetavdfflur 1 lítil dós niöursoöinn aspas aspassupa, aspasmum. Fiskurinn er settur í eldfast fat og niðursoðn- um aspas raðað yfir hann. Sósunni er svo hellt yfir fiskinn og rétturinn settur í ofn í 15 mínútur við 225 gráður. Pétur segir að á sínu heimili sé aspasfiskurinn venjulega borinn fram með hrísgrjónum og fersku salati. „Það er langbest finnst mér,“ segir hann. Fógetavöfflur 2 bollar hveiti 3 msk. sykur 2 tsk. lyftiduft 2 egg 5 msk. brœtt smjörlíki eöa smjörvi 2 bollar mjólk Efnunum er blandað saman en brædda smjörinu er síðast bætt í. Eggjahvíturnar má þeyta, að sögn Péturs, en hann segir að sér finnist þó engin sérstök þörf á því. Vöfflurnar eru ’ bornar fram með sultu og rjóma og eru þá ánægjulegt Pétur Kr. Hafstein forseta- frambjóðandi er sælkeri vik- unnar. Pétur segist grípa í eldamennskuna þó ekki sé hann með neinar sérstakar kúnstir. Hann gefur hér upp- skrift að smálúðu með aspas og fógetavöfflum. matgæðingur vikunnar * Kryddepli í örbylgjuofni 2 stór epli kanill og sykur 2 dl þeyttur rjómi 2 msk. strásykur Yi tsk. kardemomma Skerið eplin í sneiöar og fjarlægiö kjarnann. Stráið kanil og sykri á eplin og setjiö þau á fat í örbylgjuoftiinn. Stillíð á mesta hita í 3-4 mínútur því að þá bráðnar sykur- inn og myndar sósu og eplin verða brún. Þeytiö rjóma með strásykri og kardimommu- Berið eplin fram heit með rjómanum. Kartöflumeðlæti - fyrir fjóra 1 kg kartöflur 3-4 dl rifinn ostur 3 egg nýmulinn pipar á hnífsoddi 2V2 dl maísolia Sjóðið kartöflurnar, skrælið og stappið. Hnoð- ið ostinn inn í kartöflu- stöppuna og búið til flatar kökur, um l'A cm í þver- mál. Þeytið egg, pipar og örlítið salt og veltið kart- öfluklöttunum upp úr blöndunni og steikið þá svo í heitri olíu. -GHS Kristján Már Magnússon sálfræðingur er matgæðingur vikunnar: Borða lifrarkæfuna oft heita í kvöldmat „Þegar ég bjó í kommúnu úti í Danmörku söfnuðum við uppskrift- um að fljótlegum réttum og þessi uppskrift var ein af þeim. Rétturinn er mjög góður en í honum eru rækj- ur, tómatar og hrísgrjón. íslendingar borða svo lítið af rækjum nema í brauðtertum að mér fannst þessi upp- skrift upplögð. Svo er ég með upp- skrift að lifrarkæfu, sem er svolítið sérstök en mjög góð,“ segir Kristján Már Magnússon, sálfræðingur á Ak- ureyri, en hann er matgæðingur vik- unnar að þessu sinni. „Ég hef verið svolítið í þvi að finna uppskriftir sem hægt er að gera með vinnunni svo að maður þurfi ekki að standa tímunum saman yfir matseld- inni en annars fer þetta ofboðslega mikið eftir því hvað ég hef mikinn tíma. Ég geri gjaman tvöfalda upp- skrift að lifrarkæfunni og frysti helminginn. Ég borða kæfuna oft heita í kvöldmat með einhverju súru og brauði og hef salat með,“ segir hann. Indverskar rækjur - fyrir fjóra 400 g rækjur 2 meðalstjórir laukar 1 dós tómatar ' 1 msk. paprika salt Laukurinn er skorinn gróft og steiktur í olíu á djúpri pönnu þangað til hann er glær. Tómötunum er hellt út í og látið sjóða í fimm mínútur. Rækjunum er síðan bætt við og þær látnar sjóða með í aðrar fimm mínút- ur. Rétturinn er kryddaður með pa- priku og salti. Þetta er mjög fljótlegur réttur sem er tilvalinh fyrir karla sem eru útivinnandi og hafa lítinn tíma þegar að þeim er komið í matargerð- inni. Með þessum rétti finnst mér best að hafa hrísgrjón sem eru soðin i 20 mínútur við vægan hita, einn bolli af hrísgijónum á móti tveim- ur af vatni. Ef hrísgrjón- in eru sett yfir áður en byrjað er á rækjurétt- inum er allt tilbúið á sama tíma. Auðveld lifrar- kæfa úr svínalifur 500 g svínalifur 400 g svínaspik 2 bollar hveiti 2 dl mjólk 1 kúfuð msk. allrahanda 1 kúfuð msk. negull 2 msk. salt 4 laukar % tsk. svartur pipar 5-6 hvítlauksrif Lifrin, spikið og laukurinn er hakkað einu sinni. Öllu hinu er blandað út í, hvítlaukurinn press- aður. Þetta er sett í form og bak- að í 45 mínútur við 200 gráð- ur. Það sem ekki er borð- að strax er gott að setja í álform óbak- að og frysta í þétt- lokuðum plast- poka. Fyrir fjög- urra manna fjöl- skyldu er til dæmis hægt að skipta kæfunni til helminga og setja helming- inn í frost. „Útivinnandi karlinn á þarna annað tromp uppi í erminni. Með heitri lifrar- kæfu er gott að borða ljóst rúgbrauð eða íkjarnabrauð, súrar gúrkur eða rauðrófur og grænt salat,“ seg- ir matgæð- ingur vik- unnar. Kristján Már skorai; Magnúsdóttur fram- -GHS Kristján Már Magnússon matgæð- ingur kynnir hér uppskrift að ind- verskum rækjurétti og iifrarkæfu úr svínalifur. DV-mynd Sigurður Hlöðversson á Ingibjörgu kvæmdastjóra. Matur frá Mexíkó: Humarkokkteill og skötuselur Matur frá Mexíkó hefúr til langs tíma verið tiltölulega sjald- séöur hér á landi en síðustu árin hefur færst í vöxt að íslendingar prófi sig áfram með framandleg- ar uppskriftir og stimdum eru þær með nýstárlegu kryddi. Hér á eftir koma uppskriftir að for- vitnilegum réttum, bæði forrétti og aðalrétti, sem hægt er að prófa. Kokkteill í forrétt - fyrir fjóra 450 g soöinn humar eöa rœkjur 2 stórir avókadó 12 laukur 2 hvítlauksrif 212 dl þeyttur rjómi eða sýröur rjómi 1 ferskur grœnn chilipipar 2 msk. nýpressaöur sítrónusafi 114 dl ólívuolía Öllu nema humrinum er blandað saman í matvinnsluvél þangað til sósan er orðin jöfh. í staðinn fyrir chilipiparinn er hægt að nota % af grænni papriku og cayennepipar til að fá græna litinn og sterkt bragð. Humrinum er skipt upp í nokkra bita og hann er lagður í lögum í glas ásamt sósunni. Kokkteillinn er látinn standa í ísskáp þar til hann er tilbúinn. Ceviche fyrir fjóra 400 gflak af skötusel eöa laxi 2 dl. nýpressaður sítrónusafi 2 msk. ólívuolía 2 hvítlauksrif 2 stórir tómatar, skornir í ten- inga 1 fint skorinn laukur 2 msk. ferskt koríander eöa persilja 3 msk. tómatdjús 1 msk. þurrkaö óreganó, má sleppa 1 msk. fint skoriö serrano-chili, má sleppa salt nýmalaöur pipar 90 g grœnar ólívur, niðurskorn- ar Fiskflökin eru skorin í ten- inga. Sítrónusafa er hellt yfir og fiskurinn látinn standa í tvo klukkutíma. Hitið hvítlaukinn í olíunni í 3 mínútur. Takið hvít- laukinn úr olíunni og kælið hana. Blandið tómatteningum, lauk, kóríander, tómatsafa, kryddi og hökkuðum ólívum saman og bætið kalda hvítlaukn- um út í. Skoliö fiskinn í köldu vatni og þurrkiö hann. Látið hann standa í 5 mínútur, skolið og þurrkið hann aftur. Setjið fiskinn saman við blönduna, salt- ið og pipriö. Skreytið réttinn með ólívum og sítrónubátum og beriö fram saltkex meö honum. -GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.