Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1996, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1996
Fréttir
Þoka var mikil á Búrfelli í nótt og átti að bíða birtingar í morgun með aö herða leitina. Til þess kom þó ekki því spor-
hundur fann stúlkuna um klukkan fjögur í nótt. DV-myndir GS
Lögregla frá Selfossi og um 60 björgunarsveitarmenn ieituðu ungversku
stúlkunnar í nótt. Eftir að bíll stúlkunnar fannst sunnan Búrfells í gærkvöldi
fann sporhundurinn slóð hennar upp á fjallið.
Leitin að ungversku stúlkunni Angélu Cseho bar loks árangur í nótt:
Stúlkan fannst látin í
stórgrýti uppi á Búrfelli
- hafði fest bíl sinn, læst honum og síðan gengið upp á fjallið
3. maí. Hringir úr
bílasíma af „jeppavegi'
í nágrenni Selfoss.
Sporhundur fann ungversku
stúlkuna Angélu Cseho látna í stór-
grýtisurð uppi á Búrfelli, skammt
frá Búrfellsvirkjun, um klukkan
flögur i nótt. Lík hennar var flutt
með lögreglubU til Selfoss í morgun.
„Við vorum að skipuleggja víð-
tækari leit þegar hún fannst. Það
var mjög dimmt af þoku fyrripart
nætur og síðan átti að bæta við
mannskap og hefja leitina af aukn-
um krafti um leið og birti. Þá fann
sporhundurinn hana,“ segir
Ámundi Kristjánsson, björgunar-
sveitarmaður frá Búrfellsstöð, en
hann stjórnaði leitinni í gær og
nótt.
Um 60 manns voru í leitinni í nótt
og átti að bæta við 50 tU að leita í
dag. TU þess kom þó ekki. Svo virð-
ist sem stúlkan hafi hrapað tU bana
og er ekki að sjá að dauða hennar
hafi borið að með grunsamlegum
Stuttar fréttir
Undrun í Tyrklandi
Sendiherra íslands í Tyrklandi
segir að dómsmálaráðherra landsins
sé undrandi á þvi hversu langur tími
hafi liðiö frá því Sophia Hansen hef-
ur fengið að hitta dætur sínar og að
engum viöurlögum hafi verið beitt.
Þetta kom fram á RÚV.
Aukinn innflutningur
InnUutningur fyrstu íjóra mánuði
ársins var 10-15% meiri en á sama
tíma í fyrra en Þjóðhagsstofhun haföi
spáð 5% aukningu. Davíð Oddsson
sagði á aöalfúndi VÍS í gær að þetta
væri hættumerki í þjóðarbúskapnum
i annars góðu árferði. -bjb
Viltu að fleiri gefi kost á sér
í fosetaembættið?
Guðrún Berndsen var með Galsa í hlýðniæfingum þegar DV var á ferð í Víði-
dal. Útivistarmenn hafa að undanförnu notið blíðviðrisins og vonandi helst
sú gula á lofti eitthvað enn um sinn. DV-mynd GS
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já iJ
Nel _2j
Leitin að Angelu
14.-15. maf. BTII
stúlkunnar fannst
fasturí Búfellsskógi,
skammt sunnan
Búrfellsvirkjunar um
kl. átta í gærkvöld.
Sporhundur rakti
slóð hennar upp á
Búrfell og þarfannst
hún látin í gjótu um
kl. fjögur í nótt.
3. maf. Kaupir
kort á bensínstöt
Skeljungs viö
Skógarhlíö.
3. maí. Hringir í
sambýlismann úr
Hverageröi.
DV
hætti, að sögn lögreglu. Hafði stúlk-
an komið að hamrabelti á leið upp
fjallið, klifraö upp í það en hrapað
til bana.
í gær var ákveðið að herða leitina
að stúlkunni. Höfuðáhersla var lögð
á að finna bíl hennar en hún hafði
farið á fostudag úr Reykjavik á litl-
um Nissan Sunny og síðast látið
vita af sér frá Selfossi þann dag.
Hún kvaðst þá ætla að skoða landið.
í gærkvöldi fundu menn frá Búr-
fellsstöð bílinn í Búrfellsskógi, á
enda vegarslóða, nokkra kílómetra
fyrir sunnan virkjunina. Að sögn
Gunnars H. Sigurðssonar, eins
þeirra sem fann bílinn, var hann
fastur en þó höfðu lyklar verið tekn-
ir úr honum og hurðum læst.
Eftir að bíllinn var fundinn var
þegar ákveðið að fá sporhund til að
rekja slóð frá bílnum. Reyndist slóð-
in liggja upp á fjallið og þar fannst
líkið svo um klukkan fjögur í nótt.
Angéla Cseho var 21 árs gömul.
Hún kom hingað til lands í janúar
til að vinna sem nektardansmey á
skemmtistaðnum Bóhem. Hún var
hætt störfum þar en bjó hér með ís-
lenskum sambýlismanni. -GK
Stuttar fréttir
Sakaruppgjöf óheimil
Vinnuveitendum verður fram-
vegis óheimilt að falla frá rétti til
að veita verkalýðsfélögum sakar-
uppgjöf vegna meintra ólöglegra
aðgerða í kjarabaráttu. Sam-
kvæmt RÚV var þetta meðal
þeirra breytinga sem gerðar voru
á lögum VSÍ á aöalfundi þess í
gær.
Engin úrræði
Fjármálaráðuneytið hefúr eng-
in úrræði til að fylgja eftir inn-
heimtu á þungaskatti og er þröng-
ur stakkur skorinn til þess að
refsa þeim sem skjóta sér undan
greiðslum skattsins. RÚV greindi
frá þessu.
Marel kaupir í Slippnum
Marel hefur keypt fjórðungs-
hlut í Slippstöðinni á Akureyri
fyrir 40 milíjónir króna.
Of geist farlð
Foreldrar í Hafnarfirði óttast
að bæjaryfirvöld fari of geist við
að móta nýtt skipulag grunnskóla-
haids og héldu fund í gærkvöldi
um flutning grunnskólanna frá
ríki til bæjarins.
Óánægja með samninga
Tveir af hverjum þremur eru
óánægðir með núverandi fyrir-
komulag kjarasamninga og tæp-
lega 63% eru sammála því að
auka völd hins almenna félaga í
verkalýðsfélögum á kostnað
stjórna og trúnaðarmannaráða.
Þetta eru meðal niðurstaðna skoð-
anakönnunar sem Gallup gerði
fyrir félagsmálaráðuneytið.
Laun Dana skoðuð
Forsætisráöherra hefui' beðið
Þjóðhagsstofnun að kanna ítar-
lega launamun hér á landi og í
Danmörku. Davíð greindi frá
þessu á aðalfúndi VSÍ í gær.
Mótfallnir lokun
Hjúkrunarfræðingar og ljós-
mæður Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur hafa sent frá sér
ályktun þar sem lokun stöövar-
innar er harðlega mótmælt. -bjb