Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1996, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1996, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996 7 Fréttir Trúnaðarmaður kærir Verkamannafélagið Dagsbrún til ASI: Hin nýja stjórn lætur eins og félagsmálastofnun - segir kærandinn, Björgvin Þorvaröarson „Ég er búinn að kæra Dagsbrún vegna þess sérsamnings sem laun- þegasamtökin gerðu við Reykjavík- urborg um skólafólk í afleysinga- vinnu hjá borginni. Launataxti krakkanna er lægri heldur en lág- markstaxti Dagsbrúnar og ég tel að með því sé Dagsbrún að brjóta lög ASÍ. Hin nýja stjórn Dagsbrúnar lætur eins og hún sé félagsmála- stofnun og segist hafa fjölgað störf- um en borgi lægri launataxta í stað- inn. Það er því verið að kaupa störf fyrir lægri taxta eins og atvinnurek- endur gera. Það er ekki eðli laun- þegasamtaka að gera slíkt heldur eiga þau að halda uppi sem hæstum taxta og fá sem mest borgað fyrir sína umbjóðendur. Ég kaus hina nýju stjórn Dagsbrúnar því að hún ætlaði að keyra upp launataxta en ekki lækka þá,“ sagði Björgvin Þor- varðarson, verkamaður og trúnaðar- maður hjá Gatnamálastjóra, í sam- tali við DV í gær. Björgvin lagði fram kæru sína á hendur Dagsbrún á föstudag og líklegt má telja að mál- ið verði tekið upp hjá ASÍ í vikunni. Löglegt en siðlaust „Ég veit ekki nákvæmlega hver niðurstaðan verður en ég get alveg ímyndað mér að aðgerðir Dagsbrún- ar yrðu dæmdar löglegar með þeirri röksemdafærslu að fjölgað hafi störf- um sem yrðu annars ekki unnin. Ef þetta telst löglegt þá er það mjög sið- laust. Krakkarnir sjálfir eru mjög óánægðir með launataxtann og ég væri það líka í þeirra sporum. Krakkarnir borga félagsgjöld í Dags- brún og eiga því að vera í fullum rétti en eru það greinilega ekki,“ sagði Björgvin. Ekki brotið á neinum „Ég veit að Björgvin var mjög ósáttur við samningana. Hann einn mótmælti á fundi trúnaðarmanna Reykjavíkurborgar þegar farið var yfir samninga og það er nú oft þegar samningar eru gerðir aö ekki eru allir sáttir. Þessi samningur er þannig aö kauptaxtarnir í honum eru hærri heldur en i almennu samningunum. Hann tekur aðeins til 17 og 18 ára unglinga sem vinna við takmörkuð og afmörkuð verk- efni hjá borginni. Það eru vissir vankantar á þessum samningi en í heildina tel ég hann vera þokkaleg- an eins og staðan er í dag og það er ekki brotið á neinum," sagði Halldór Björnsson, formaður Dagsbrúnar, við DV um málið í gær. „Þetta var spurning um að koma einhverju skipulagi á vinnu ungling- anna þannig að þeir væru með ein- hverja samninga. Það hafði verið ágreiningur um að Reykjavíkurborg væri að taka menn inn í venjulega vinnuflokka á sérstökum kjörum sem voru lægri en kjörin hjá borg- inni sögðu 'til um. Þetta stóð allt í leiðindastappi í fyrrasumar en nú liggur alveg ljóst fyrir að hver maður sem tekinn er inn í afleysingar hjá borginni fer bara inn á venjuleg kjör eins og hver annar verkamaður. Munurinn á kauptöxtunum liggur hins vegar í hækkun á svokölluðum kostnaðarlið sem gerður var í febrú- ar á síðasta ári og fastir starfsmenn fá en þessir krakkar ekki. Þessi kostnaður er m.a. til að mæta matar- kostnaði fyrir okkar föstu starfs- menn sem hafa þetta sem aðalat- vinnu. í þessu tilfelli gerðum við þetta samkomulag því að borgin var að ráða 250-300 unglinga á þessum aldri. Þeir vinna sex tíma á dag en fá greitt fyrir sem svarar sjö tíma vinnu. Ef við hefðum sleppt því að gera þennan samning hefðu krakk- arnir verið samningslausir og því tel ég okkur ekki hafa gert neina slæma hluti. Við hefðum getað sleppt þvi að skipta okkur af þessu en vildum taka á okkur þessa ábyrgð og gerðum það,“ sagði Halldór enn fremur. -RR Ellefu þúsund tonn af malbiki á flugbrautina TIL ALLT AÐ 24 MANAÐA : DV, Akureyri: „Verkið hefur gengið mjög vel, við erum nokkuð á undan áætlun og ég reikna með að þessu ljúki í næstu viku. Því hversu vel hefur gengið er einkum að þakka að menn hafa lagt sig fram og unnið langan vinnudag, en einnig því hversu veð- urfar hefur veruið hagstætt,“ segir Helga Þórhallsdóttir staðarverk- fræðingur með framkvæmdunum á Akureyrarflugvelli. Þar eru starfsmenn frá Arnarfelli og Hlaðbæ-Colos að vinna við breikkun flugbrautarinnar úr 30 metrum í 45 metra en einnig er lagt malbikslag yfir alla gömlu flug- brautina. Að sögn Helgu fara um 11 þúsund tonn af malbiki í flugbraut- ina. -gk fÍKHSKI #r 11 1 ■pn Siquróar Gísla Wm isonar IAUKIN ÖKURÉTTINDI HF.I Framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóös: Ellefu umsóknir bárust Akureyrarflugvöllur: GREIÐSLUKJOR mákur Þráinn Bragason, Kristín Ólafsdóttir, Pétur Rassmussen, Þor- finnur Ómarsson og Þorgeir Gunn- arsson. Stjórn Kvikmyndasjóðs mun fjalla um umsóknirnar en menntamálaráðherra tekur endan- lega ákvörðun um hver hljóti stöð- una. -ggá Framkvæmdum við breikkun og malbikun flugbrautarinnar á Akureyrarflugvelli hefur miðað mjög vel. DV-mynd gk Náðu í aukin ökuréttindi á mettíma Tveggja vikna námskeið er að hefjast og er boðið upp á réttindi til aksturs leigu- og hópferðabifreiða fyrir þá sem hafa eldri réttindi. Einnig geta þeir sem hyggjast fá full réttindi tekið þátt í námskeiðinu að hluta og lokið því eftir sumarleyfi starfsmanna skólans. Við hvetjum þá sem áhuga hafa á stuttu en góðu námskeiði að skrá sig sem fyrst. Umsóknarfrestur um stöðu fram- kvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs ís- lands rann út 31. maí síðastliðinn. Eftirfarandi aðilar sóttu um: Baldur Hermannsson, Bessí Jóhannsdóttir, Einar Örn Benediktsson, Eiríkur Thorsteinsson, Eyjólfur Pétur Haf- stein, Haraldur Jóhannsson. Kor- ▲ • Myndlampi Black Matrix • 100 stöðva minni • Allar aðgerðir á skjá • Skart tengi • Fjarstýring • Aukatengi f. hátalara • íslenskt textavarp Mono A • Myndlampi Black Matrix • 50 stöðva minni « Allar aðgerðir á skjá 1 Skart tengi • Fjarstýring ' íslenskt textavarp BEKO fékk viðurkenningu í hinu virta breska tímariti WHAT VIDEO sem bestu sjónvarpskaupin 33.900 Mono ▲ • Myndlampi Black Matrix • 50 stöðva minni • Allar aðgerðir á skjá • Skart tengi • Fjarstýring . • Myndlampi Black Matrix • 50 stöðva minni • Allar aðgerðir á skjá • Skart tengi • Fjarstýring Á öllum tækjum er öryggi sem slekkur á sjónvarpinu þegar útsendingu lýkur! Umboðsmenn um allt land Reykjavík: Heimskringlan, Kringlunni.Raflækjaverslun fslands. Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf.Borgfirðinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Vestfirðir: Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Rafverk.Bolungarvík. Sfraumur.ísafirði. Norðurland: Kf. V-Hún.,Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi, Skagfirðingabúð.Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. KEA.Oalvlk. Kf. Þingeyinga, Húsavlk. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstóðum. Verslunin Vík, Neskaupsstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg.Grindavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.