Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1996, Side 10
10
MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 1996
Fréttir
Arður af kvóta allt að 39 prósent:
Þetta eru i sjalfu ser
réttir útreikningar
- en þetta kvótaverð getur ekki staðist til lengdar, segir Markús MölleOiagfræðingur
„Þetta er í sjálfu sér alveg réttur
útreikningur. Maður tekur bara
söluverð kvóta og síðan er leiguverð
hans arðurinn, þannig að ef sölu-
verð varanlegs þorskkvóta er 600
krónur, leiguverðið 90 krónur þá er
arðurinn 15 prósent. Ég held hins-
vegar að ástæðan fyrir þessu háa
leiguverði þorskkvóta sé að menn
eru að kaupa sig frá sektum og slík-
um vandræðum. Það gengur ekki
upp að leigja þorskkvóta á 90 krón-
ur kílóið. Það er ekki grundvöllur
fyrir hærra verði en 30 krónum fyr-
ir kílóið af þorski ef hann á að vera
undirstaða heillar atvinnugreinar,“
sagði Markús Möller, hagfræðingur
í Seðlabankanum, um þann mikla
arð sem eigendur kvóta ákveðinna
fisktegunda fá af honum.
Á Kvótamarkaðnum hefur verið
reiknað út hve mikinn arð aflakvóti
í hinum ýmsu fisktegundum gefur.
í þessum útreikningum er leigu-
verð fyrir kvóta arðurinn og kemur
í ljós að hann er mjög misjafn eftir
tegundum. Karfakvótinn gefur lang-
mest af sér. Söluverð varanlegs
karfakvóta er nú 115 krónur fyrir
kílóið en leiguverðið er 45 krónur
þannig að hann gefur 39 prósent
arð. Grálúðukvóti gefur 18,5 pró-
sent arð, rækjukvóti 18 prósent,
skarkolakvóti 16 prósent, þorsk-
kvóti 15 prósent, humarkvóti 13
prósent, ufsakvóti 3,4 prósent og
ýsukvóti 3,2 prósent.
-S.dór
Borgarnes:
23,3 milljónir í Skallagrímsvöll
Tilboð í jarðvegsframkvæmdir
og malbikun við Skallagrímsvöll í
Borgarnesi voru nýlega opnuð en
framkvæmdirnar eru liður i undir-
búningi fyrir landsmót ungmenna-
félaganna í Borgarbyggð á næsta
ári. Byggja á upp hlaupabrautir og
áhorfendastæði.
í jarðvegsframkvæmdirnar buðu
Borgarverk hf. og Loftorka hf. Sam-
þykkt var að taka tilboði Borgar-
verks sem hljóðaði upp á 5,8 millj-
ónir króna en tilboði Loftorku í
Borgarnesi í malbikunarfram-
kvæmdirnar. Það var upp á 17
millj. króna. Kostnaðaráætlun var
16,5 millj. króna en 8,1 milljón við
jarðvegsframkvæmdimar. -DÓ
F.h. Vatnsveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í byggingu loka- og
tengihúss Vatnsveitu Reykjavíkur viö Gullinbrú. Lokahúsið er um 27 m2.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 5.000 kr. skilatr.
Opnun tilboða: þriðjud. 9. júlí nk. kl. 11.00 á sama staö.
wr 101/6
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboöum í verkið
„Fossaleynismýrl, 1. áfangi - gatnagerö og lagnir".
Helstu magntölur eru:
Gröftur 10.500 m2
Holræsalagnir 970 m
Fylling 9.500 m3
Malarslitlag 2.160 m2
Verkinu skal að fullu lokið 1. október 1996.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá þriöjud. 25. júní nk. gegn
10.000 kr. skilatr.
Opnun tilboða: fimmtud. 4. júlí 1996 kl. 11.00 á sama stað.
gat 102/6 _____________________________________
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sfmi 552 58 00 - Fax 562 26 16
Þorskur Ýsa Ufsi Karfi Grálúða Skarkoli Rækja
Pvli
Anna Kristjánsdóttir vélstjóri fær hvergi vinnu:
Umsókn um verk-
stjórn yfir 8 vörubíl-
stjórum ekki svarað
- hefur sent inn 49 umsóknir um störf síðustu 8 mánuði
„Ég sótti meðal annars um að
verða verkstjóri yfir átta vörubíl-
stjórum. Ég talaði við ráðningar-
stjórann hjá fyrirtækinu en hef
ekkert heyrt frá honum síðan,“
segir Anna Kristjánsdóttir vél-
stjóri sem fyrir rúmu ári lét
breyta sér í konu á sjúkrahúsi í
Svíþjóð.
Kynskiptin voru gerð í apríl og
frá því í nóvember hefur Anna,
sem áður hét Kristján, sótt um
störf á 49 stöðum. Árangurinn er
harla rýr. Anna hefur fengið 10
neitanir en 39 hafa ekki virt hana
svars.
„Yfirleitt er sagt að búið sé að
ráða í störfin. Það er í sjálfu sér
heiðarlegt en i flestum tilvikum
kemur ekkert svar. Ég hef sent
mörgum stórum fyrirtækjum um-
sóknir en það virðist hvergi vera
laus staða. Á endanum gefst ég
auðvitað upp á þessu en ég held
samt enn í vonina,“ segir Anna.
Anna starfaði lengi sem vél-
stjóri og var þá á Fossum Eim-
skipafélagsins, frá því laust eftir
1970 og fram til 1989 að hún fór til
Svíþjóðar. Hún hefur ekki sótt að
nýju um starf sem vélstjóri á sjó.
Anna kom heim til íslands fyrir
þremur vikum og hefur þá hert á
leit sinni að vinnu. Árangurinn er
alls enginn. Anna segir að til
greina komi að flytja utan á ný en
ekki strax. Hún hefur íbúð hér á
landi en grunar að „þjóðkunnur
kynskiptingur" sé ekki vinsæll
starfskraftur. Fullgild vélstjóra-
réttindi og löng starfsreynsla
skipta þar engu. -GK
Þessir menn voru önnum kafnir viö aö taka upp malbik af Háaleitisbrautinni
þegar Ijósmyndara DV bar aö. Bíllinn, sem notaöur er viö verkiö, vakti verö-
skuldaöa athygli en þaö er gamall Ford, árgerö 1947. Snæbjörn Aöalsteins-
son keypti bílinn á Akureyri, geröi hann upp og nú er hann kominn í sitt upp-
runalega ástand og aftur á fullu í malbikunarvinnu, eins og á árum áöur.
DV-mynd Sveinn
Lítið um
ferðalög
vegna
fótboltans
Aðilar í ferðaþjónustu segja ferðir
íslendinga innanlands heldur færri
í júní í ár en á sama tíma í fyrra.
Ýmsir kenna Evrópumeistarakeppn-
inni í knattspyrnu um.
„Ég var búinn að segja í vetur að
það væri ekkert óeðlilegt ef við fær-
um í hliðstæðan júnímánuð úti á
landsbyggðinni og fyrir tveimur
árum. Það eru auðvitað fleiri íslend-
ingar í útlöndum en áður en það má
ekki gleyma þvi að júnímánuðir
1992 og 1994 voru tiltölulega veikir á
landsbyggðinni og það settu menn
svolítið í samhengi við alþjóðleg
knattspyrnumót. Fólk fer ekki á
tjaldstæði úti á landi þar sem ekki
er sjónvarp," segir Magnús Oddsson
ferðamálastjóri.
Hann kveðst ekki hafa ástæðu til
að ætla annað en að fólk færi og
skoði ísland eins og það hefur gert.
„Það er vonandi að ferðunum hafi
bara seinkað." -IBS
Slitlag á allan
Þjórsárdalsveg
DV, Suðurlandi:
Vegagerðin hefur samið við verk-
takafyrirtækið Suðurverk hf.,
Hvolsvelli, um framkvæmdir við
Gaukshöfða í Þjórsárdal. Um er að
ræða 7,7 km vegarkafla sem eftir er
að byggja upp og leggja bundnu slit-
lagi. Verkinu á að verða lokið fyrir
30. júni 1997. Þá verður Þjórsárdals-
vegur uppbyggður með slitlagi alla
leið á virkjunarsvæði Landsvirkjun-
ar við Búrfell.
Ellefu tilboð bárust í verkið. Til-
boð Suðurverks var næstlægst, upp
á 76,2 millj. króna, en lægsta tilboð-
ið, frá Ingileifi Jónssyni á Svína-
vatni, var aðeins 180 þúsundum
lægra. Kostnaðaráætlun var 99,2
milljónir króna. Stefnt er að því að
framkvæmdir hefjist í næsta mán-
uði, uppbyggingunni ljúki fyrir ára-
mót og slitlag verði svo lagt á veg-
inn á næsta vori. -jþ