Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1996, Blaðsíða 11
MANUDAGUR 24. JUNI 1996
Fréttir
11
DV
Hafsteinn Númason sem missti allt í Súðavíkurhamförunum:
Fæ ekki húsið bætt
nema ég sé sáttur
Hafsteinn Númason, sem missti
allt sitt í snjóflóðunum í Súðavík í
fyrra, hefur engar bætur fengið fyr-
ir íbúðarhús sitt sem þurrkaðist af
yfirborði jarðar í hamfórunum í
janúar í fyrra. Ágreiningur er milli
hans og ofanflóðanefndar um bó-
taupphæðina sem byggð er á gögn-
um Fasteignamats ríkisins. Þá hef-
ur ofanflóðanefnd hafnað því að
greiða Hafsteini og konu hans út þá
bótaupphæð sem þeim hefur verið
ákvörðuð en hugsanlega viðbót síð-
ar, þegar ágreiningsmálin hafa ver-
ið leyst. „Þeir vilja ekki borga mér
neitt fyrr en ég er sáttur,“ segir Haf-
steinn við DV.
Hafsteinn telur að mat það sem
liggur til grundvallar þeirri bóta-
fjárhæð sem nefndin hefur ákveðið
sé of lágt og í því m.a. ekki tekið til-
lit til ýmissa endurbóta sem gerðar
voru á húsinu áður en hamfarimar
riðu yfir. Þá sé bótaupphæðin ekki í
samræmi við bótaupphæðir fyrir
sambærileg hús, heldur lægri. Hann
segir að bæði hann og lögmaður
sinn hafi ítrekað gengið eftir því að
fá að sjá matsgögnin hjá Fasteigna-
matinu en ekki fengið og ýmsu ver-
ið borið við, svo sem því að sá sem
sér um húsin í Súðavík sé i fríi.
„Ég get ómögulega orðið sáttur
fyrr en ég hef fengið öll gögn í hend-
ur frá Fasteignamatinu sem bóta-
upphæðin er sögð byggjast á og þau
get ég ekki fengið einhverra hluta
vegna, sem ég ekki skil,“ segir Haf-
steinn við DV.
Hafsteinn Númason hefur engar
bætur fengið fyrir íbúöarhús sitt
sem þurrkaöist af yfirboröi jaröar í
hamförunum í janúar í fyrra.
Að sögn Ágústs Bjömssonar,
sveitarstjóra í Súðavík, er forsaga
þessa ágreinings sú að þeir sem
misstu fasteignir sínar í snjóflóðun-
um í Súðavík 1995 fengu húsin bætt
af Viðlagatryggingu samkvæmt þá-
verandi brunabótamati húsanna, en
það mat var í lægri kantinum. í des-
ember 1995 var lögum um varnir
gegn snjóflóðum og skriðuföllum
breytt og sett í þau heimildará-
kvæði um að endurmeta megi þess-
ar fasteignir þannig að bætur eig-
endanna yrðu sambærilegar bótum
til þeirra sem misstu fasteignir í
flóðunum á Flateyri síðla árs 1995.
Vandinn í tilfelli Hafsteins og nokk-
urra annarra Súðvíkinga sé sá að
hús þeirra eru horfin og ekki hægt
að endurmeta þau, heldur verði að
byggja á gögnum sem til eru um þau
hjá t.d. Fasteignamati ríkisins, en
ekkert sé hins vegar um það í nýju
lögunum hvemig eigi að vinna
þetta endurmat.
„Það er rétt hjá Hafsteini að hús
hans og nokkurra annarra eru und-
ir meðallagi matsverðs húsa í Súða-
vík og það er verið að skoða hvers
vegna þetta misræmi er,“ segir
Ágúst Bjömsson við DV. „Ég hef
beðið um það fyrir hönd þessara
húseigenda að fá að vita hvað það er
í lýsingum og gögnum Fasteigna-
matsins sem gerir það að verkum að
húsin eru fyrir neðan þetta meðal-
tal. Ofanflóðanefnd er að skoða það
og hefur heitið að taka fullt tillit til
ábendinga eigendanna. Málið er því
í fullri vinnslu og alls ekki búið að
loka því. Það gengur hins vegar
hægar að útkljá það heldur en 'maö-
ur hefði kosið,“ segir Ágúst.
Ágúst kveðst jafnframt hafa ítrek-
að farið fram á við ofanflóðanefnd
að Hafsteinn og hinir húseigendum-
ir sem um ræöir fengju greiddan
strax þann hluta bótanna sem er
óumdeildur. „Ég er mjög ósáttur við
að fá neitun við því. Ég tel það rangt
að greiða ekki hinn óumdeilda
hluta út strax,“ segir Ágúst Bjöms-
son, sveitarstjóri í Súðavík. -SÁ
KENWOOD
kraftur, gϚi, ending
Stef numót
Njóttu þess að dvelja á Hótel Eddu I sumar og eigðu stefnu-
mót við landið þitt í hlýlegu og heimilislegu umhverfi. Boðið
er upp á fjölbreyttar veitingar frá morgni til kvölds þar sem
veittur er sérstakur barnaafsláttur. Hægt er að velja milli
gistingar í uppbúnum herbergjum eða svefnpokaplássi.
[ næsta nágrenni hótelanna eru ótal möguleikar á skemmti-
legri útivist þar sem öll fjölskyldan getur fundið eitthvað við
sitt hæfi.
Fimmta nóttin er frí!
< Ef dvalið er í uppbúnu herbergi í fjórar nætur
l á Hótel Eddu í sumar er fimmta nóttin án
; endurgjalds sem jafngildir 20% afslætti af
s hverri gistinótt. Tilboðið gildir út árið 1996.
Ferðaskrifstofa Islands • Skógarhlíð 18 • 101 Reykjavík • Sími 562 3300
Heimasíða: http://www.arctic.is/itb/edda