Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1996, Page 36
VkmMgst&lut lmi§mdaQÍmi 22.6/96
3 8 15
Heildarvlnningsupphæð
6.041.8
m i8 34 35 /
Vinningar Fföldi vinninga Vinningsupphæð
l.SqfS 3.637.700
2.4^5+, P 1- 358.230
3. 4 af 5 75 8.230
4. 3 qfT1 . 2.198 650
Vinningstölur
22.6/96
QÖMMs)
17; 129) (30
KIN
> cn o FRÉTTASKOTIÐ
CC 4—) LXJ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
S LT3 «=c Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
oo 3
I— LT3 I— >- LO S 550 5555
Frjálst.óháö dagblaö
MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ1996
Bolungarvík:
Maður stunginn
Ungur maður var stunginn þrí-
vegis í andlit og herðar. þar sem
hann sat í bíl sínum í Bolungarvík
aðfaranótt laugardagsins.
Hnífamaðurinn var settur inn en
félagar hans hugðust frelsa hann en
voru þá teknir líka enda búnir að
brjóta rúðu á lögreglustöðinni. -GK
Sparkað í lög-
reglumann
Lögreglumaður i Reykjavík hlaut
áverka í andliti þegar sparkað var í
hann við störf i Bankastræti seint í
fyrrinótt. Var hann að handtaka
ólátasegg sem veitti mótspyrnu.
Áverkamir munu ekki alvarlegir og
fékk lögreglumaðurinn að fara heim
eftir aðgerð á sjúkrahúsi. -GK
______EþlN I__
KJALFÁPIR I A£> BAKA
- SER VANDRÆÐI!
Leiöbeinendur Vinnuskólans fá fríar pitsur ef unglingarnir kaupa:
Ósmekklegt tilboð og
gersamlega siðlaust
- segir Arnfinnur Jónsson, skólastjóri Vinnuskólans
„Mér finnst þetta mjög ósmekk-
legt og gersamlega siðlaust tilboð.
Svona viðskiptamáti gengur bara
ekki upp,“ sagði Arnfinnur Jóns-
son, skólastjóri Vinnuskólans I
Reykjavik, um tilhoð sem barst
leiðbeinendum skólans frá þremur
pitsustöðum í höfuðborginni. Hér
er um að ræða pitsustaðina Domin-
os, Hróa hött og Pizzahúsið. í til-
boðum pitsustaðanna voru leið-
beinendum boðnar fríar pitsur og
kók ef unglingarnir keyptu pitsur í
einhverju magni. Pizzahúsið bauð
meira að segja þeim leiðbeinend-
um út að borða i lok sumars sem
mestu viðskiptin ættu við staðinn.
„Við vöruðum leiðbeinendur við
þessu tilboði á fundi áður en
Vinnuskólinn hófst og ég veit ekki
til þess að nokkur þeirra hafi tekið
þessu tilboði í sumar. Það er ekki i
okkar verkahring að taka svona til-
boðum og láta unglingana eyða sín-
um litlu launum i að kaupa pitsur
í vinnunni. Við höfum hins vegar
boðið unglingunum að koma með
pylsur eða annað kjöt að heiman
og grilla með leiðbeinendum sín-
um. En mér finnst að pitsustaðirn-
ir eigi að láta svona viðskiptatilboð
eiga sig enda ekki við hæfi að
mínu mati,“ sagði Arnfinnur.
„Þetta eru auðvitað ekkert ann-
að en viðskipti en ég viðurkenni að
þau eru á gráu svæði þar sem inni
í þeim fá leiöbeinendur pitsur sín-
ar fríar. Þetta hefur verið gert líka
í samráði við félagsmiðstöðvamar
því þarna er um stóran markhóp
að ræða. Svona viðskipti eiga sér
stað alls staðar í þjóðfélaginu og
eru mun alvarlegri en þessi sem
við bjóðum upp á,“ sagði Þórarinn
Ægisson, rekstrarstjóri Domino’s
Pizza, í samtali við DV um þetta
mál.
„Ég byrjaði með þetta tilboð til
Vinnuskólans sumarið 1994 og þá
og í fyrra var mikil ánægja með
þetta. Mér var þá meira aö segja
þakkað persónulega fyrir þessa
þjónustu af einum af yfirmönnum
Vinnuskólans. En núna varð ég
var við mikla óánægju og það hef-
ur ekkert verið pantað frá Vinnu-
skólanum í sumar. Viö höfum boð-
ið krökkunum pitsur á góðu verði,
töluvert undir meðalverði og leið-
beinendur fá þá hálfa pitsu fría og
kók með.
Það er kostnaður fyrir okkur að
senda frítt alla leið austur á Nesja-
veUi en við höfum aUtaf gert það
því við vildum bjóða krökkunum
upp á þessa þjónustu," sagði Þórar-
inn Ægisson. -RR
Holtavörðuheiði:
Mæðgur alvar-
lega slasaðar
Mæðgur slösuðust alvarlega og
voru fluttar með þyrlu á Sjúkrahús
Reykjavíkur í gærkvöld eftir um-
ferðarslys á Holtavörðuheiði.
Slysið varð á nýmalbikuðum
kafla norðanvert á heiðinni. BíU var
að fara fram úr bíl mæðgnanna og
fipaðist ökumaðurinn við það, fór of
utarlega í vegkantinn og velti bUn-
um. Klukkan var um sjö þegar þetta
gerðist en lögregla frá Hólmavík
kom á slysstað skömmu síðar.
Mæðgurnar voru komnar tU
Reykjavíkur á tíunda tímanum.
Ekki var vitað nákvæmlega um líð-
an þeirra í gærkvöld en að mati lög-
reglu voru þær alvarlega slasaðar.
BUl þeirra fór margar veltur og
eyðUagðist.
-GK
Hesti stolið úr rétt
- skilaði sér sjálfur daginn eftir
Hesti var stolið úr rétt við Uthlíð
í Biskupstungum á laugardags-
kvöldið. Hann hafði verið skilinn
þar eftir ásamt fleiri hestum meðan
eigandinn brá sér á dansleik.
Þegar huga átti að hestunum
klukkustund siðar var búið að stela
hesti og reiðtygjum og var þjófurinn
á bak og burt með feng sinn.
Hann virðist þó hafa séð að sér og
sleppt hestinum lausum því að
hann skilaði sér sjálfur daginn eftir.
-SF
Unglingar úr Vinnuskólanum við vinnu sína á Miklatúni.
pitsur ef unglingarnir kaupa pitsur í einhverju magni.
Pitsustaðirnir hafa boðið leiðbeinendum Vinnuskóians fríar
DV-mynd JAK
Veðriö á morgun:
Hiti allt
að 20
stig
Á morgun verður sunnan og
suðaustankaldi eða stinnings-
kaldi og rigning suðvestan- og
véstanlands en annars þurrt að
mestu.
Hiti 9 til 20 stig.
Veðrið í dag er á bls. 44
■0-
Opel flstráT
Verðhr.
1.199.000.-
Bílheimar ehf.
Sœvarhöföa 2a Sími: 525 90001