Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1996, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1996
Fréttir
Brúðhjónin fengu ekki inni í kirkjunni að Möðruvöllum:
Gefin saman í rign-
ingunni fyrir utan
- kirkjan læst og sóknarprestur að heiman
Brúðhjón sem gefin voru saman á
Möðruvöllum í Hörgárdal sl. sunnu
dag fengu ekki inni í kirkjunni þai
með hina hátíðlegustu stund lífs
síns og voru því gefin saman í rign
ingarsudda í trjálundi skammt utar
við kirkjugarðinn þess í stað.
Ástæðan var sú að sóknarprestur
inn á Möðruvöllum, sr. Torfi Stef
ánsson Hjaltalín, hafði fyrii
nokkrum vikum neitað brúðhjónun
um um kirkjuna þegar þess var far
ið á leit við hann að brúðkaupií
færi fram þar og að sóknarprestur
inn á Dalvík, sr. Jón Helgi Þórarins
son, og sóknarprestur brúðhjón
anna gæfi þau saman. Nokkru síðai
mun séra Torfi hafa komið þeiir
boðum til brúðhjónanna að kirkjar
væri þeim heimil sl. sunnudag mef
því skilyrði að hann fengi sjálfur af
gefa þau saman.
Þegar síðastliðinn sunndagui
rann upp og brúðhjónin komu til
Möðruvalla ásamt brúðkaupsgest
um reyndist Möðruvallakirkja harð
læst og prestur ekki heima. Hann
hafði farið á prestastefnu og aðal-
fund Prestafélagsins í Kópavogi og
var enn ókominn til baka. Hann vai
enn ókominn nú í morgun þvi af
símsvari svaraði þegar hringt var i
símanúmer hans.
Brúðhjónin heita Sigríður
Bjarnadóttir, sérfræðingur á til-
raunastöð RALA á Möðruvöllum, og
Brynjar Skúlason skógfræðingur.
Sigríður sagði við DV að í sambandi
við kirkjuna hefði niðurstaðan orð-
ið sú að sóknarpresturinn hefði
hvorki játað né neitað þeim brúö-
hjónunum um hana á brúðkaups-
degi þeirra og þau hefðu því litið
svo á að hefðu þau látið opna kirkj-
una fyrir sér hefði það verið í óþökk
Brúðhjónin Sigriður Bjarnadóttir og Brynjar Skúlason ásamt sr. Jóni Helga Þórarinssyni, sóknarpresti á Daivík, sem
gaf þau saman í trjálundi utan við kirkjuna á Möðruvöllum sl. sunnudag. Kirkjan var læst og Möðruvallaprestur að
heiman.
sóknarprestsins.
„Flestir hefðu sjálfsagt tekið svör
hans sem nei, þótt hann hefði ekki
sagt beint nei við okkur,“ sagði Sig-
ríður við DV. „Viö hefðum sjálfsagt
getað fengið að vera í kirkjunni ef
við hefðum sótt það stíft og getað
fengið lykil hjá sóknamefnd, en það
er maður á Möðruvöllum sem hefur
lykil að kirkjunni og ég veit aö það
var vilji einhverra að við gerðum
það, en við ákváðum að gera ekkert
slíkt,“ segir Sigríður enn fremur.
Sr. Torfl Stefánsson Hjaltalín hef-
ur ítrekað flutt tillögur á presta-
stefnu, Prestafélagsfundum og öðr-
um samkomum kirkjunnar um að
sóknarprestar hafi einir rétt til að
DV- mynd Agúst Björnsson
framkvæma kirkjulegar athafnir í
kirkjum sínum og hafi sjálfdæmi
um hvort þeir hleypi öðrum prest-
um í „sínar“ kirkjur. Hann flutti
einmitt tillögur um þessi efni á nýa-
afstaðinni prestastefnu og á aðal-
fundi Prestafélagsins. -SÁ
Stórstjörnur Blur og Pulp þreyttar á stórborgarumhverfi:
Söngvari og bassaleikari Blur
kaupa íbúðir á íslandi
Pulp og Blur sigldu niður Hvítá í
gær. DV-mynd Björn Gíslason
Skartgripum og
myndbandstæki stoliö
Skartgripum og myndbandstæki
var stolið úr mannlausu húsi við
Breiðagerði. Þjófnaðurinn uppgötv-
aðist í gær. .rr
Það hefur væntanlega ekki farið
fram hjá neinum að breska stór-
sveitun Pulp heldur stórtónleika í
Laugardagshöllinni í kvöld.
Blaðamaður og ljósmyndari DV
hittu Pulp og Blur þegar þeir voru
að koma úr gúmmíbátaferð niður
Hvítá. Þeir voru himinlifandi yfir
ferðinni og sögðust aldrei á ævinni
hafa upplifað neitt jafn spennandi.
Jarvis, söngvari Pulp, sagði ferðina
hafa verið lygilega og hann væri
enn þá hissa að vera lifandi eftir
slíka svaðilfór. Jarvis, sem ekki lít-
ur út né hagar sér eins og popp-
stjama, sagðist hafa komið hingað
til lands á síðastliðnu ári og verið
yfir sig hrifinn af íslensku fjöllun-
um. „Ég var búinn að vera svo lengi
í stórborgarumhverfí að ég þoldi
ekki lengur við,“ sagði Jarvis. Ég
vildi vera nálægt náttúrunni og þvi
komum við allri hljómsveitinni
hingað. Ég vildi gjaman vera lengur
en því miður erum við bókaðir á
aðra tónleika. En það er alveg víst
að við komum aftur, og munum
njóta þess. Við ætlum að halda frá-
bæra tónleika í kvöld, annað er ekki
hægt hér. Við ætlum að njóta eins
mikjls af landinu og við getum á
þessum stutta tíma - við emm á
leiðinni í Bláa lónið núna að hita
upp fyrir kvöldið. Það er bara allt of
gaman hérna, við höfum vakað og
skemmt okkur og nú er kominn
timi á að halda góða hljómleika. Þið
eruð búin að vera með frábært tón-
listarfólk í Höllinni og við ætlum að
halda þeim heiðri uppi.
Þaö eru ekki bara Pulparar sem
eru hrifnir af landi og þjóð. Damon
Albarn hreifst svo af íslandi að
hann hefur keypt sér húsnæði hér
og bassaleikari Blur fylgdi í kjölfar-
ið og keypti sér einnig íbúðarhús-
næði hér á meðan hann var staddur
hér á landi. Ef einhverjir eiga skilið
nafnbótina íslandsvinir þá hljóta
þetta að vera mennirnir. -ggá
Dalvík og Þórshöfn:
Meirihluti íbúa
vill áfengisútsölu
Samhliða forsetakosningunum á
laugardaginn fór fram við-
horfskönnun íbúa Þórshafnar og
Dalvíkur um vilja þeirra til að opna
áfengisútsölur.
Á Þórshöfn greiddu 67,5% kosn-
ingabærra manna atkvæði. Já
sögðu 178 eða 80,9%, nei sögðu 36
eða 16,4%, auðir seðlar voru 6.
Lög heimila ekki að opna áfengis-
útsölu í byggöarlagi nema þar sem
íbúar hafa verið að minnsta kosti
eitt þúsund í þrjú ár en á Þórshöfn
eru ekki nema um 500 íbúar.
Á Dalvík, þar sem um 1500 manns
búa, greiddu 82,7% íbúa á kjörskrá
atkvæði. 539 sögðu já eða 62,6%, 304
voru á móti eða 35,7% og 15 skiluðu
auðu. -ÞK
muiM
j rödd
FOLKSINS
904 1600
Ertu sáttur við að samkynhneigðir
fái að taka upp staðfesta sambúð?
Sophia Hansen:
Beðið
staðfest-
ingar um
að Halim
hafi feng-
ið dóminn
„Við erum að biða eftir niður-
stöðu um það hvort Halim A1
hefur verið birtur dómurinn frá
13. júní. Ekkert er hægt að aðhaf-
ast í þessu máli fyrr en Halim
hefur fengið dóminn og staðfest-
ing borist um að hann hafi gert
það. Þá fyrst er hægt að sinna
umgengnisréttinum en fyrr
ekki,“ sagði Sigurður Pétur
Harðarson, stuðningsmaður
Spohiu Hansen, við DV í gær.
Samkvæmt dómi í undirrétti í
Istanbúl 13. júní sl. úrskurðaði
dómarinn að Sophia skyldi hafa
umgengnisrétt við dætur sínar í
júlí og ágúst ár hvert. Umgengn-
isrétturinn skyldi hefjast 1. júlí
og vara til 31. ágúst. Samkvæmt
þessu átti umgengnisréttur
Sophiu við dætur sínar að hefj-
ast í gær. Sophia er sem stendur
á íslandi og sagði Pétur að það
væri alger óþarfi fyrir hana að
vera í hitanum í Tyrklandi á
meðan staðan væri svona en hún
færa út aftur um leið og eitthvað
gerðist í málinu.
„Staðfesting á móttöku Halims
á dómnum má vænta í síðasta
lagi 10. júlí nk. og þá verður far-
ið að huga að því hvemig staðið
veröur að umgengnisréttinum,"
sagði Sigurður Pétur enn frem-
ur. -RR
Stuttar fréttir
Kynnti Bessastaði
Vigdís Finnbogadóttir, fráfar-
andi forseti islands, kynnti ný-
kjörnum forseta og eiginkonu
hans Bessastaði í gær.
Seiur hlutabréf
Meirihlutinn á Akureyri ætlar
að selja hlutabréf í ÚA fyrir um
einn milljarð króna, að sögn Út-
varps.
Svínakjöt lækkar í verði
Verð á svinakjöti hefur lækk-
að um 25-35% vegna offramboðs.
Moggi greindi frá.
Kostaði 25 milljónir
Kosningabarátta Ólafs Ragn-
ars Grímssonar kostaði að
minnsta kosti tæpar 25 milljónir
króna. Stöð 2 sagði frá. Barátta
hinna kostar á bilinu 13-30 millj-
ónir hver.
Valda röskun
Uppsagnir þroskaþjálfa geta
valdið mikilli röskim á Grein-
ingar- og ráðgjafarstöð rikisins í
Kópavogi. Sjónvarpið sagði frá.
Taka á sig verðskerð-
ingu
Bændur taka einir á sig verð-
skerðingu á mjólk þegar kvóti er
búinn. Nú styttist í að mjólk
verði hellt niöur eða seld á þriðj-
ungsverði til útflutnings, að sögn
Sjónvarps.
Samræma aldurinn
Heilbrigðisráðherra ætlar að
samræma aldur þeirra sem
mega afgreiða áfengi og tóbak og
kaupenda. Sjónvarpið sagði frá.
Ánægja minnkar
Skoðanakönnun Gallups sýnir
að 20% kjósenda eru ánægð með
störf heilbrigðisráðherra. í
fyrrasumar var talan 46%. Sjón-
vai-pið greindi frá. -GHS