Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1996, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1996, Blaðsíða 30
34 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1996 Afmæli Jón Kristinsson Jón Kristinsson, fyrrv. forstöðu- maður, Hjallalundi 18-304, Akur- eyri, er áttræður í dag. Starfsferill Jón fæddist að Kambfelli í Djúpa- dal í Eyjafirði og ólst þar upp og að Ytra-Dalsgerði til sex ára aldurs en hefur siöan átt heima á Akureyri. Eftir barnaskólanám var Jón tvo vetur í Gagnfræðaskóla Akureyrar og síðan tvo vetur i Iðnskóla Akur- eyrar þar sem hann nam rakaraiðn en þá starfsgrein stundaði hann um þrjátíu ára skeið. Þá tók Jón við for- stöðumannsstarfi við Dvalarheimil- ið í Skjaldarvík og síðan einnig við Dvalarheimilið Hlíð á Akureyri og gegndi Jón forstöðumannsstarfinu til sjötugsaldurs. Jón starfaði lengi í Góðtemplara- reglunni og með íþróttafélaginu Þór en hann var formaður þess í þrjú ár. Þá starfaði hann með Leikfélagi Akureyrar i rúm fjörutíu ár og var í tólf ár formaður þess. Hann er nú heiðursfélagi LA og Þórs. Þá var Jón um árabil meðhjálpari í Akureyrarkirkju og um skeið formaður bræðrafélags kirkjunnar. Hann var formaður áhugamanna- hóps sem stóð fyrir almennri fjár- söfnun og kom upp þrjá- tíu rúma hjúkrunardeild í Seli við Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri en vegna íjársöfnunar- innar hjólaði hann þá frá Akureyri til Reykjavík- ur. Hann er nú gjaldkeri Náttúrulækningafélags Akureyrar sem um ára- bil hefur staðið fyrir byggingu Heilsustofnun- arinnar Kjarnalundar við Kjamaskóg. Fjölskylda Jón kvæntist 9.5. 1940 Amþrúði Ingimarsdóttur, f. 12.7. 1918, d. 1993, húsmóður. Hún var dóttir Ingimars Baldvinssonar, póst- og símastjóra í Þórshöfn, og k.h., Oddnýjar Áma- dóttur húsmóður. Börn Jóns og Arnþrúðar eru Arn- ar, f. 21.1. 1943, leikari við Þjóðleik- húsið, búsettur í Reykjavík, kvænt- ur Þórhildi Þorleifsdóttur, leikhús- stjóra LR, leikstjóra og fyrrv. alþm., og eiga þau fimm böm, Guðrúnu Helgu, Sólveigu, Þorleif Örn, Odd- nýju og Jón Magnús; Helga Elín- borg, f. 28.12. 1945, leikari og leik- stjóri, búsett í Reykjavík, gift Örn- ólfi Árnasyni rithöfundi og eiga þau fjögur böm, Margréti, Jón Ragnar, Álfrúnu Helgu og Árna Egil, auk þess sem böm Margrétar og Þórs Eldon eru Sunna Eldon og Öm- ólfur. Kjördóttir Jóns og Amþrúðar er Arnþrúður, f. 6.12. 1955, leikskóla- kennari og háskólnemi I Reykjavík. Systkini Jóns: Stefanía Jóhanna, f. 4.5. 1919, hús- móðir og saumakona, gift Jónmundi Zopaníassyni, b. að Hrafnsstöðum við Dalvík, og urðu börn þeirra ellefu; Jóhann Júl- íus, f. 30.7.1921, bifvélavirki er starf- rækti Bifreiðaverkstæðið Viking á Akureyri, búsettur á Akureyri, kvæntur Guðrúnu H. Aspar, hús- móður og eru börn þeirra níu; Hannes Björn, f. 20.6.1928, efnafræð- ingur, búsettur í New Jersey í Bandaríkjunum, kvæntur Jóhönnu Hermannsdóttur og em böm þeirra fjögur. Foreldrar Jóns: Kristinn Stefáns- son, f. 17.7. 1891, d. 1.12. 1973, bóndi á Kambfelli í Eyjafirði og verkamað- ur á Akureyri, og k.h., Elínborg Jónsdóttir, f. 17.9. 1895, d. 1992, hús- freyja. Ætt Móðir Kristins var Jóhanna Magnúsdóttir, vinnumanns í Heið- arhúsum á Flateyjardal, Jónatans- sonar. Móðir Magnúsar var Aðal- björg Jónsdóttir. Móðir Aðalbjargar var Rannveig Magnúsdóttir, pró- fasts á Hrafnagili, Erlendssonar, fóður Guðlaugar, móður Péturs Guðjónssonar söngkennara, ættföð- ur Gudjohnsenættarinnar. Móðir Jóhönnu var Kristín Jóns- dóttir, b. á Heiðarhúsum, Jónssonar og k.h., Guðfinnu Arngrímsdóttur. Móðir Guðfinnu var Hugrún Björnsdóttir, lrm. á Stóru-Laugum, Amgrímssonar, af ætt Hrólfunga, bróður Páls, langafa Ólafar, langömmu Bjama Benediktssonar forsætisráðherra. Páll var einnig langafi ísaks, langafa rithöfundanna Stefáns Jónssonar og Thors Vil- hjálmssonar. Elínborg er dóttir Jóns, skipstjóra á Kálfsá í Ólafsfirði, Magnússonar, og k.h., Lísibetar Friðriksdóttur. Jón verður að heiman á afmælis- daginn. Jón Kristinsson Sigríður Hulda Ketilsdóttir Sigríður Hulda Ketils- dóttir húsmóðir, Esjubraut 4, Akranesi, varð sextug á laugardaginn. Fjölskylda Sigríður Hulda fæddist í Bolungarvík og ólst þar upp. Hún giftist 2.9. 1961 Birni Jónssyni, f. 5.10.1938, verksmiðjustjóra hjá HB á Akranesi. Hann er sonur Jóns Guðmundssonar, sem Sigrfður Hulda Ketils- er látinn, og Sigríðar dóttir. Steinsdóttur. Börn Sigríðar Huldu eru Kristján Þ. Einars- son, f. 1954, kvæntur Helgu Guðmundsdóttur og eiga þau þrjú börn; Þórhildur Bjömsdóttir, f. 1958, gift Albert Guð- mundssyni og eiga þau fjögur böm; Brynhildur Bjömsdóttir, f. 1961, gift Guðmundi Sigurbjöms- syni og eiga þau tvö böm; Ketill M. Bjöms- son, f. 1963, kvæntur Ingibjörgu Finnbogadóttur og eiga þau tvö börn; Elsa J. Bjömsdóttir, f. 1966, gift Huga Harðarsyni og eiga þau þrjú böm. Sigríður átti tólf systkini en fimm þeirra era látin. Systkini hennar á lífi eru Lovísa Maier, f. 20.8. 1921, búsett í Svíþjóð; Friðrik Ketilsson, f. 21.6.1923, búsettur á Akureyri; Lilja Ketilsdóttir, f. 21.4. 1932, búsett í Bolungarvík; Elías Ketilsson, f. 16.12. 1928, búsettur í Bolungarvik; Skúli Ketilsson, f. 5.11. 1930, búsett- ur á Akranesi; Guðlaugur Ketilsson, f. 24.10. 1934, búsettur á Akranesi. Foreldrar Sigríðar Huldu voru Ketill Magnússon, f. 16.8. 1885, d. 1962, og Guðlaug Jónsdóttir, f. 1893, d. 1988, húsmóðir. Sigríður Hulda er að heiman. Herdís Jónsdóttir Herdís Jónsdóttir, hjúkranar- fræöingur og húsmóðir, Hjalla- brekku 41, Kópavogi, varð fertug á laugardaginn. Starfsferill Herdís fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Háaleitishverfínu. Herdís var hjúkrunarfræðingur við Landspítalann í tíu ár en hefur einnig starfað við öldranarhjúkrun á Skjóli og við endurhæfingu á Grensásdeild Sjúkrahúss Reykjavík- ur. Þá hefur hún unnið við heilsu- gæslu sl. átta ár með hléum og starf- ar nú á Heilsugæslustöð Kópavogs. Fiölskylda Maður Herdísar er Stefán Rögn- valdsson, f. 7.5. 1953, framleiðslu- stjóri. Hann er sonur Rögnvalds Bjarnasonar og Ingveldar Stefáns- dóttur i Kópavogi. Böm Herdísar og Stefáns eru Jón Hannes Stefánsson, f. 7.10. 1979, nemi; Ásgerður Drífa Stefánsdóttir, f. 17.2. 1983, nemi; Stefán Ingi Stef- ánsson, f. 30.3. 1992. Bræður Herdísar eru Bjarni Jónsson, f. 19.1. 1949, verkfræðingur í Garðabæ; Snæbjöm Jóns- son, f. 21.5. 1962, verkfræð- ingur í Reykjavík. Foreldrar Herdísar voru Jón Hannes Snæbjömsson, f. 10.11. 1924, d. 6.9. 1985, endurskoðandi í Reykja- vik, og Ásgerður G. Bjama- dóttir, f. 1.1. 1920, d. 3.10. 1985, húsmóðir. Ætt Jón Hannes var sonur Snæbjamar Jónssonar og Herdísar Guðmunds- dóttur. Ásgerður var dóttir Bjarna Björnssonar og Margrétar Sigfúsdóttur. Fréttir Til hamingju með afmælið 2. júlí 90 ára Lýður Pálsson, Gautlandi 21, Reykjavík. 80 ára Málmfríður Jóhannsdóttir, Austurgötu 25, Hafnarfirði. Helga Eysteinsdóttir, Hrauni II, Ölfushreppi. 75 ára Högni Jónsson, Heiðarbæ 3, Reykjavík. Gerður Gestsdóttir, Sólheimum 27, Reykjavík. 70 ára Halldór Ingimundarson, Hverahlíð 17, Hveragerði. Adam Öm Ingólfsson, Mýrarvegi 120, Akureyri. Snorri Þór Rögnvaldsson, Goðabyggð 12, Akureyri. 60 ára Fríða Eydís Kristjánsdóttir, Hjarðarhaga, Aðaldælahreppi. Kristjana Guðmundsdóttir, Suðurhólum 28, Reykjavík. 50 ára Ragnar Karlsson, Norðurvangi 26, Hafnarfirði. Lovisa Visitacion Munoz, Furubyggð 3, Mosfellsbæ. 40 ára Sigríður Magnea Gestsdóttir, Leirubakka 26, Reykjavík. Guðmundur Halidór Jónasson, Helgamagrastræti 3, Akureyri. Rannveig Andrésdóttir, Reyðarhvísl 23, Reykjavík. Sjöfn Magnúsdóttir, Marbakka 8, Neskaupstað. Þorgrimur Þór Þorgrímsson, Skeljanesi 2 A, Réykjavík. Ásmundur S. Valdimarsson, Keilugranda 4, Reykjavík. Laufey B. Waage, Hringbraut 48, Reykjavík. Hjörtur C. Kristjánsson, Nesvegi 8, Grundarfirði. Jóhannes T. Sigursveinsson, Grandavegi 9, Reykjavík. Þorsteinn G. Þórhallsson, Laugamesvegi 94, Reykjavík. Elin Haraldsdóttir, Eyktarási 3, Reykjavík. Gerður Jónsdóttir, Skálatúni, Mosfellsbæ. Sigrún Jónsdóttir, Skálatúni, Mosfellsbæ. ^ Reykjanesbær: Iþróttadeildir í bænum fá góða styrki DV, Suðurnesjum: íþróttaráð Reykjanesbæjar gerði á dögimum samning við Golfklúbb Suðumesja vegna uppbyggingar á Hólmsvelli í Leira. Samningurinn felur í sér byggingu 300 m2 áhalda- húss, starfsmannaaðstöðu og lag- færingar á 7. og 8. braut. Kostnað- aráætlun GS er 20 milljónir og mun íþróttaráð greiða 2,1 milljón á ári næstu 5 árin. Þá var samið við Skotdeild Keflavíkur vegna ólympíuleika smáþjóða á íslandi 1997. Samning- urinn felur í sér framkvæmdir á svæði félagsins í Höfnum. Ákveðið hefur verið að keppni í skotfimi á leikunum verði þar. Áætlaður kostnaður við uppbyggingu svæð- isins er 11 milljónir. Gerður var samningur til 2ja ára að upphæð 4,5 milljónir. Samið var við knattspyrnudeild- imar í Keflavík og Njarðvík um rekstur íþróttasvæða. Keflavík fær 7,9 milljónir og Njarðvík 1,6 millj- ónir og er samningurinn fyrir 1996. Þá voru og gerðir samningar við fleiri íþróttadeildir í Keflavík og Njarðvík. Hlutur íþróttaráðs í samningiun við íþróttafélögin eru 25,4 milljónir. Þá var úthlutað úr Afreks- og styrktarsjóði íþróttaráðs og fengu ýmsar deildir 1500 þúsund vegna unglingastarfs. Það sem af er ár- inu hefur auk þess verið úthlutað 1120 þús. kr. Á fjárhagsáætlun 1996 eru 4 milljónir í Afreks- og styrktarsjóði. -ÆMK Fulltrúar félaganna sem hlutu styrki. DV-mynd ÆMK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.