Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1996, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1996
3
dv_______________________________________________________________________Fréttir
Nýtt og glæsilegt skip Eimskips:
Fjórði Brúarfossinn
lagðist að bryggju í gær
Hinn nýi Brúarfoss Eimskips lagöist aö bryggju í Sundahöfn í gær og tóku dráttarbátar Reykjavíkurhafnar á móti því
ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-Líf. Á innfelldu myndinni er Engilbert Engilbertsson, skipstjóri Brúarfoss, aö
sýna Heröi Sigurgeirssyni, forstjóra Eimskips, brú skipsins. DV-myndir PÖK
Nýtt skip Eimskips, Brúarfoss,
lagðist að bryggju i gær. Þetta er
stærsta skip Eimskips og mun það
leysa eldri Brúarfoss af hólmi.
„Það var geysilega gaman að sigla
skipinu hingað. Við fengum mjög
gott veður og þetta lofar allt góðu
eins og sagt er,“ sagði Engilbert
Engilbertsson, skipstjóri nýja skips-
ins.
„Það er góð tilfinning að stjórna
skipinu. Það tekur að sjálfsögðu
tíma að læra á hlutina en þetta kem-
ur. Þetta er allt annað skip en það
síðasta sem ég var á. Það er miklu
þyngra og má líkja þeim við stóran
trukk og lítinn Volkswagen."
„Við lögðum af stað á föstudags-
kvöldið fyrir tæpum tveimur vik-
um. Við höfum verið að prófa skip-
ið og stíluðum inn á að vera komn-
ir hingað í dag. Þetta er skip sem
getur gengið 18 mílur, sem er mun
meiri hraði en á hinum skipunum,"
sagði Engilbert.
„Við tókum nokkra fragt með, þó
ekki fullfermi. Það veitir ekki af þar
sem þetta er okkar lifibrauð."
Hinn nýi Brúarfoss er íjórða skip
Eimskips sem ber þetta nafn. Sá
fyrsti var smíðaður 1927, annar 1960
og sá þriðji var keyptur 1988 en nýja
skipið leysir hann af.
„Þetta skip er endurnýjun á
skipakosti Eimskips. Með þessu
skipi og öðru sem við munum taka
á leigu erum við að fara alfarið yfir
í gámatlutningakerfi. Það teljum við
vera hagkvæmara kerfi og ódýrara í
rekstri,“ sagði Hörður Sigurgests-
son, forstjóri Eimskips, við komu
skipsins.
„Þetta er nokkur biti, skipið kost-
ar 1550 milljónir. Það er smíðað í
Stettin í Póllandi eftir þýskum
teikningum og hafa menn verið að
smíða skip eftir þeim frá 1985
þannig að það eru til systurskip eða
skyld skip sem eru í siglingum um
höfin og hafa reynst mjög vel.“
Hörður sagði samskiptin við Pól-
veijana hafa verið ágæt. Þeir luku
smíðinni í meginatriðum á réttum
tíma eða þremur vikum seinna en
gert hafði verið ráð fyrir.
„Ég var í Póllandi þann 16. apríl
þegar skipinu var hleypt af stokk-
unum og var þá búið að smíða 48%
af skipinu. Núna, 1. júlí, er skipið
komið til íslands þannig að þetta
hefur allt saman staðist og gengið
ágætlega.
Við erum mjög ánægðir með
þetta skip. Það er nokkuð við vöxt í
það verkefni sem því er ætlað og
vinnur systurskip þess á móti því.
Nú verður það okkar verkefni að
auka flutninga, ekki bara til og frá
íslandi heldur verður þetta skip líka
liður í því að auka flutninga okkar
yfir hafið. Þá er ég að tala um flutn-
inga frá Evrópu til Kanada og
Bandaríkjanna og jafnvel eitthvað
austur á bóginn lika,“ sagði Hörður.
-SF
Herra ísland:
Leitaö eftir sportlegum herrum
Fegurðarsamkeppni íslands
stendur nú fyrir því að velja
„Herra tsland 1996“. Undankeppn-
ir munu fara fram í öllum lands-
hlutum i júlí og ágúst í sumar og
úrslitakeppnin verður síðan hald-
in á Hótel íslandi 13. september
nk. Sigurvergarinn hlýtur, auk
fjölda glæsilegra verðlauna, þátt-
tökurétt í keppninni Mr. Europe,
sem fram fer í Kaupmannahöfh í
október. Leitað verður eftir sport-
legum herrum á aldrinum 18-36
ára og 184 cm eða hærri. -RR
EVBILAUMBOÐ ehf.
Grand Cherokee V-8 '93
ek. 41 þús. km.
Suzuki Sidekick JX '96.
Nýr bíll.
Verð frá:
149.900!
Staðgreitt
Powerbook 190/190cs
Nufærðu
íyrirfetðna!
Tölva fýrir þá sem eru á ferö og flugi
og vilja nýta tímann betur.
Apple-umboðið
Skipholti 21 • Sími 511 5111 • Heimasíðan: http://www. apple. is