Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1996, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 2. JULI 1996
11
Fréttir
Ný gjaldskrá færir Bifreiðaskoðun íslands hundruð milljóna i tekjur:
Stórkostleg yfirsjón
ráðuneytisins
- skerðir enn frekar samkeppnisstöðuna, segir Gunnar Svarvarsson hjá Aðalskoðun hf.
„Það er greinilegt á öllu að þessi
gjaldskrá er búin til uppi í Bifreiða-
skoðun og að ráðuneytið hafi sam-
þykkt hana óbreytta. Ég óttast stór-
lega að þegar Bifreiðaskoðun verði
skipt upp í tvö fyrirtæki, skoðunun-
ar- og skráningarfyrirtæki, muni
hið nýja skráningarfyrirtæki fá að
búa til gjaldskrá sem skoðunarstof-
ur þurfa að sætta sig við og verðu
því samkeppni í bifreiðaskoðun erf-
iðari. Þetta er stórkostleg yfirsjón
hjá ráðuneytinu og mér sýnist aö
stefnt sé aö því að búa til fyrirtæki
sem eigi að skila hundruðum millj-
óna króna i hagnað," segir Gunnar
Svavarsson hjá Aðalskoðun hf.
Ný gjaldskrá vegna skráningar-
og skoðunarmála var birt forsvars-
mönnum skoðunarfyrirtækjanna
Aðalskoðunar og Athugunar fyrir
tilviljun í dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu í gær. Gunnar segir að með
henni sé verið að skerða samkeppn-
isstöðu skoðunarfyrirtækja til mik-
illa muna þrátt fyrir ítrekuð loforð
og tilmæli um annað.
Vitleysan staöfest
„Þetta kemur gersamlega flatt
upp á okkur og ég hélt í alvöru að
dómsmálaráðuneytið væri að vinna
að framgangi málsins á annan veg
en þann að staðfesta þá vitleysu sem
verið hefur í gangi. Sú slæma sam-
keppnisstaða, sem við höfum verið
í, er nú gerð énn verri.“
Gunnar segir að Bifreiðaskoðun
hafi verið að innheimta gjald eins
og geymslugjald skráningarmerkja í
einhver ár án þess að fyrir þvi hafi
verið heimild í lögum. Athugasemd-
ir hafi verið gerðar vegna þessa
máls til umboðsmanns Alþingis en
enn hafi ráðherra ekki svarað þeim
athugasemdum.
„Yfirsjónir ráðuneytisins felast í
því að þama er gert ráð fyrir gjald-
skrárlið sem aldrei kemur til greina
að menn borgi, nokkuð sem ekki er
gert ráð fyrir í starfsleyfi okkar. Ég
get nefnt sem dæmi innfærslu skoð-
unarvottorða sem skoðunarfyrir-
tækjunum ber skylda til að senda
Bifreiðaskoðun. Fyrir hverja aðal-
eða endurskoðun á nú að fara að
borga 50 kr. fyrir færslu á blaði en
10 kr. fyrir rafrænar færslur. Ætli
megi ekki reikna með um 130 þús-
und færslum á ári og þá getur hver
maður reiknað hvað það færir BSKÍ
í tekjur," segir Gunnar.
Eðlileg gjaldskrá
Ólafur Walter Stefánsson, skrif-
stofustjóri dómsmálaráðuneytisins,
segir að hvert verk sem þurfi að
vinna taki tíma og kosti peninga.
Það að halda bifreiðaskrá kosti pen-
inga og einhvers staðar þurfi að
taka inn tekjur fyrir gjöldunum.
Hann sagðist ekki sjá annað en að
gjaldskráin væri eðlileg.
„Ég kann ekki að meta upp á
krónu hvert einstakt tilvik en ekki
var talin ástæða til þess að fetta
fingur út í þetta. Ráðuneytið er að
vinna að því að bæta samkeppnis-
stöðu þessara fyrirtækja eins og far-
ið hefur verið fram á og vænta má
niðurstaðna í því máli innan ekki
langs tíma,“ segir Ólafur Walter.
Aðspurður hvort þarna hafi ráðu-
neytið verið að staðfesta eitthvað án
þess að setja sig vel inn í málið seg-
ir Ólafur að málið hafi ekki verið af-
greitt í neinum flýti og að sumt í
þessari gjaldskrá sé frá fyrri tíð.
Gunnar mun eiga fund með ráðu-
neytismönnum í vikunni. -sv/saa
íslandsbanki í Húsi verslunarinnar:
Milljónir í leigu fyrir tóma
- fimmta hæðin ónotuð frá október í fyrra
hæð
Fimmta hæð Húss verslunarinn-
ar hefur staðið auð frá því að ís-
landsbanki flutti starfsemi sína að
Kirkjusandi í október í fyrra. Engu
að síður borgar bankinn fulla leigu
fyrir húsnæðið og mun gera það út
þetta ár.
í íslandsbanka fengust þau svör
að búið væri að leigja mikinn hluta
af því húsnæði sem losnaði við
flutninginn en þó væri eitthvað
óleigt.
„Við erum enn þá með 5. hæð á
leigu og stendur hún tóm. Við luk-
um flutningnum á Kirkjusand í
október á síðasta ári og leigusamn-
ingurinn stendur út þetta ár,“ segir
Sigurveig Jónsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi íslandsbanka.
„Búið er að endurleigja verulegan
hluta af því húsnæði sem losnaði
við flutninginn. Þessi hæð hefur
verið boðin til leigu í samvinnu við
eigendur. Þó að leigumarkaðurinn
hafi reynst betri en við þorðum að
vona hefur þessi hæð ekki leigst.
Það var reiknað með því fyrirfram
að erfiðlega gæti gengið að endur-
leigja þetta.“
Að sögn Stefáns Stefánssonar for-
stöðumanns Húss verslunarinnar, á
þetta ástand sér eðlilegar skýringar:
„Það er mikið framboð á svona
húsnæði og menn hafa kannski ekki
lagt ofurkapp á að leigja þetta út.
Það hefur ýmislegt verið inni í
myndinni og verið að skoða ýmsa
hluti. Þetta er dýrt húsnæði vegna
staðsetningar og aðstöðu og dregur
það kannski úr mönnum."
Fimmta hæðin er 530 fermetrar.
Ef reiknað er með að leigan sé 1000
krónur á hvern fermetra, sem er al-
gengt verð fyrir sambærilegt hús-
næði, er upphæðin sem íslands-
banki hefur þurft að reiða fram frá
nóvember á síðasta ári og út árið í
leigu (14 mánuðir) samtals um 7,4
milljónir fyrir ónotað húsnæði.
-SF
Námskeið fyrir sum-
arbústaðareigendur
- haldið í Skorradal í Borgarfirði
Áhugasamur sumarbústaöareigandi
sést hér í verklegri æfingu í endurlífgun.
Um síðustu helgi efndi Björg-
unarskóli Landsbjargar og
Slysavarnafélags íslands, i sam-
vinnu við Björgunarsveitina
Brák í Borgarnesi, til nám-
skeiðs fyrir sumarbústaðareig-
endur í Skorradal í Borgarfirði.
Markmiðið með þessu nám-
skeiði var að kenna sumarbú-
staðareigendum að bregðast rétt
við ef slys ber að höndum eða
þeir þurfa af einhverjum ástæð-
um að leita aðstoðar björgunar-
aðila. Á námskeiðinu, sem
byggðist á fyrirlestri og verkleg-
um æfingum, var fjallað um
ýmis atriði sem tengjast öryggi
sumarbústaðareigenda, t.d. end-
urlífgun, meðferð og flutning
slasaðra auk notkunar og með-
ferðar sjúkrakassa.
Alls tóku 25 sumarbústaðar-
eigendur í Skorradal þátt í nám-
skeiðinu og lýstu þeir yfir
ánægju sinni með þetta framtak
Björgunarskólans og Björgunar-
sveitarinnar Brákar ,-RR
MhMI
Islandsbanki hefur heila hæö á leigu án þess að nota hana í Húsi verslunar-
innar viö Kringluna 7. DV-mynd GVfl
.. Eskiijörður:
Olvaðir unglingar
á bryggjuhátíð
Nokkuð gekk á þegar haldin var
svokölluð bryggjuhátíð á Eskifirði
um helgina. Talsverð ölvun var í
bænum og eitthvað um að menn
fengju högg á nasimar.
Að sögn lögreglu söfnuðust ungl-
ingar víða af Austfjörðum saman á
Eskifirði vegna bryggjuhátíðarinn-
ar. Talsverð ölvun var meðal þeirra
og dæmi um að aka þurfti allt niður
í 14 ára unglingum til síns heima
vegna drykkju. -gk
Akranes:
Fyrrverandi
fræöslustjóri
íhugar kæru
Nýlega var gengið frá ráðningu
skólafulltrúa nýju skólaskrifstof-
unnar á Akranesi. Helga Gunn-
arsdóttir, námsráðgjafi og skóla-
stjóri Farskóla Vesturlands,
hlaut 6 atkvæði í bæjarstjórn og
var ráðin en Ingi Steinar Gunn-
laugsson hlaut 3 atkvæði.
Það vakti athygli að Sturla
Kristjánsson, fyrrum fræðslu-
stjóri, var meðal umsækjenda en
var ekki einu sinni kallaður í
viðtal. Mun hafa verið útilokaður
frá byrjun. Samkvæmt heimild-
um DV þykir ýmsum gengið
fram hjá Sturlu og kennarar við
Brekkulækjarskóla á Akranesi
hafa bent á það. Talið er að
Sturla íhugi nú að kæra ráðning-
una til jafnréttisráðs. -DÓ
Þjóðverjar
í bílveltu
Þýskir ferðamenn veltu bíla-
leigubifreið sinni á móts við Hlíð-
ardalsskóla í Ölfusi um helgina
en ökumaðurinn missti vald á
bifreiðinni í lausamöl.
Ferðamennirnir sluppu
ómeiddir en bifreið þeirra er
mikið skemmd. Þess má geta að
aðrir ferðamenn veltu bifreið frá
þessari sömu bílaleigu á sama
stað fyrir skömmu og virðist sem
erlendir ferðamenn eigi sem fyrr
í erfiðleikum með akstur á mal-
arvegum en þeir eru ekki vanir
þeim. -gk
Strandasýsla:
Þegar ein
beljan...
Sláttur hófst hér i sýslu á
nokkrum bæjum í síðustu viku
en það er allmiklu fyrr en á síð-
asta sumri, svo munar 2-3 vikum
enda var vorið gott og túnum
hlíft við vorbeit að þessu sinni.
Á stöku bæ er grasspretta að
verða þokkaleg á spildum i góðri
rækt og eru nokkrir bændur til
viðbótar farnir að viðra hey-
vinnutæki. En það er með upphaf
heyskapar margra bænda eins og
þvaglát kúnna að þeir eiga erfitt
með að halda aftur af sér með aö
hefja slátt þegar heyrist í hey-
skapartækjum nágrannans, jafh-
vel þó efstu grastopparnir nái
ekki nema skammt upp fyrir
gúmmiskóna. -Guðfinnur