Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1996, Page 16
veran
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1996 DV
16
Um helmingur allra höfuðmeiðsla rakinn til hjólreiða:
Hjálmur sem ekki passar
gerir ekkert gagn
- segir Herdís Storgaard sem segir brotalöm í öryggi hjálma hár á landi
„Allir reiðhjólahjálmar sem hér
eru seldir eiga að vera með svokall-
aða CE-merkingu, nokkurs konar
gæða- og öryggismerkingu, en í ljós
hefur komið að svo er ekki. Við
erum að láta gera leit að þessu og
Neytendasamtökin fara í fyrirtæki
nú fyrir helgina (liðna helgi) og
kanna hvernig ástandið er hér á
markaðnum, skoða hversu margir
hjálmarnir eru og hve gamlir," seg-
ir Herdís Storgaard, sem unnið hef-
ur að öryggismálum barna hjá
Slysavarnafélagi íslands undanfarin
ár.
Herdís segir að hjálmar dugi bara
í fimm ár, í þeim sé efni sem brotni
niður í ljósi. Standi þeir óinnpakk-
aðir í verslunum skemmi ljósið þá
með tímanum. Innan i hjálmunum
eigi að vera dagsetning sem segi til
um aldur þeirra.
„Hér á landi eru enn sem komið
er ekki til neinar reglur um að
nauðsynlegt sé að vörum fylgi upp-
lýsingar um hvernig eigi að nota
þær. Rannsóknir frá Bandaríkjun-
um sýna að ef hjálmur er ekki rétt
á höfði barns t.d. þá er bara eins og
það sé hjálmlaust," segir Herdis og
bætir við að starfsfólk í mörgum
verslunum kunni í mörgum tilvik-
um ekki einu sinni að stilla hjálm-
ana. Því komi það henni ekki á
óvart að til hennar leiti stór hópur
fólks til þess að fá aðstoð við að
stilla hjálmana.
Að sögn Herdísar hafa um 120
þúsund reiðhjól verið seld á íslandi
síðan 1988 og helmingur allra höfuð-
meiðsla, sem glímt er við á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur, sé beint rakinn
til hjólreiðamanna, þeirra sem detta
eða verða fyrir bíl á hjólinu.
„Það er nauðsynlegt að reyna að
koma upplýsingum til fólks um
þessa hluti því samkvæmt könnun
sem ég gerði í fyrra á notkun leik-
skólabarna á hjálmum kom í ljós að
um 90 prósent þeirra notuðu hjálm-
ana vitlaust. Það eru til margar
gerðir af hjálmum og það er ekki
sama hvaða gerð er notuð við hvaða
aðstæður," segir Herdís. -sv
Rátt notkun lífsnauðsynleg
Réttar leiðbeiningar fylgja ekki
hjálmum í verslunum hér á landi og
því er fólk oft i hinum mestu vand-
ræðum með hvernig stilla eigi
hjálmana á höfuðið. í bæklingi sem
Slysavarnafélag íslands, lögreglan
og Umferðarráð hafa gefið út er far-
ið vandlega í þessa hluti. Þaðan eru
upplýsingarnar hér að neðan tekn-
ar.
Svampar í
réttri stærð
Inni í hjálminum eru merkingar sem
sýna stærð hans og þær öryggis-
prófanir sem hann hefur staðist.
Ummál höfuðsins skal vera milli
stærðanna sem upp eru gefnar inni
í hjálminum.
Tvær til þrjár stærðir af svömpum
fylgja hverri gerö og mikilvægt er að
velja þá svampaþykkt sem fær
hjálminn til að sitja þétt og vel á
höfðinu. Þess ber einnig aö gæta að
svamparnir séu festir rétt á þar til
geröa staði.
Ekki of þröngur
Eigi hjálmurinn aö koma aö gagni
verður hann að sitja rétt á höföinu.
Athugið að hjálmurinn sé ekki svo
þröngur aö hann haggist ekki. Sé
reynt að færa hann til með báðum
höndum, fram og aftur og til hlið-
anna, á hann að geta færst til um
nokkra millímetra.
Beint ofan á
Hjálminn á að setja beint ofan á höf-
uðið. Aftara bandið skal stillt á móti
fremra bandi þannig að eyraö lendi í
miöju V-forminu sem böndin
mynda.
Tveir fingur
Hökubandið á að stilla þannig að
spennan sé til hliöar en ekki undir
hökunni. Það má ekki vera lausara
en svo aö einn til tveir fingur komist
á milli.
Við hæfi
Séu börn reidd á hjóli er það algert
skilyröi að þau séu með hjálm við
sitt hæfi. Hægt er að fá hjálma á
börn sem eru níu mánaða gömul
eða eldri.
Gagnslaus
Sitji hjálmurinn ekki rétt á höfðinu
er hann svo til gagnslaus og veitir
einungis falska öryggiskennd. Alltof
aigengt er að hjálmurinn sé hafður
of laus og of aftarlega á höfðinu.
Þannig stilltur kemur hann að litlum
notum þegar á reynir.
Aðeins á hestbak
Reiöhjáimar eru eingöngu ætlaöir
fólki á hestbaki. Þeir eru sterk-
byggðir, ná langt aftur á hnakka og
hlífa vel til hliðanna. Þeir eru sér-
staklega hannaðir með þaö fyrir
augum að verja höfuðiö ef fall er
hátt í ósléttu undirlagi. Ekki er æski-
legt að nota reiðhjálm í staö hjól-
reiöahjálms.
Ekki á hjólið
ísknattleikshjálmar eru sérlega
sterkbyggðir enda ætlaöir til að
verja höfuöið gegn mjög þungum
höggum. Þeir eru auk þess djúpir
og hylja stóran hluta höfuðsins.
ísknattleikshjálmar eru gerðir ein-
göngu fyrir skautaíþróttir. Þá á alls
ekki aö nota sem hjólreiðahjálma.
Bara á skíðum
Líkt og mótorhjólahjálmar eru
skíðahjálmar hannaöir meö það fyr-
ir augum aö taka við falli á mikilii
ferð og höggum af hörðum árekstr-
um. Þeir eru djúpir og hylja allt höf-
uöið nema andlitiö. Skíðahjálma á
einungis aö nota viö skíðaiðkun.
Líka á brettin
og skautana
Allir þeir sem ferðast um á reiðhjóli,
hver og hvenær sem er, ættu að
nota hjólreiðahjálma. Þeir henta
einnig vel þeim sem fara um á hjóla-
brettum, hjólaskautum og línu-
skautum.
-sv
Reiðhjólahjálmar:
Fjórir öiyggisþættir
Um þessar mundir er verið
að vinna að gerð Evrópustaðals
sem ganga á frá í sambandi við
; hvaða skilyrði reiðhjólahjálmar
þurfa að uppfylla til þess að
heimilt verði að setja þá á
markað. Gengið er út frá fjór-
um þáttum, að sögn Herdísar
Staargard.
í fyrsta lagi er höggvörnin.
Þar eru hjálmarnir prófaðir
þannig að þeir eru settir upp á
kúlu sem líkist höfði, hún látin
detta niður af ákveðnum þunga
og mælitæki skoða hvemig
höggið dreifist á skelina. Efnið
í hjálminum á að vera þannig
að staðbundið högg utan á hann
dreifist eins og geislar um
hjálminn og minnkar þannig
heildaráhrif höggsins á höf-
uðið.
Verður að passa
I öðru lagi er skoðað hvernig
hjálmurinn mun koma til með
að passa á höfuð. Þá em það
svampar inni í hjálminum sem
eiga að sjá til þess aö hann sitji
kyrr á höfðinu. Ein gerð af
hjálmi verður að passa á mörg
ólík höfuð og því eiga svamp-
arnir aö gefa ákveðinn sveigj-
anleika.
Hökubandið togprófað
í þriðja lagi felst prófunin á
hjálmunum í því að hökuband-
ið er togprófað. Bandið er
spennt upp og það má ekki
slitna fyrr en eftir 50 kg tog.
Vemda heilann
ÍFjórða og síðasta prófunin er
svo til þess að sannreyna demp-
un á högg sem kemur beint
ofan á hjálminn. Þar sem
hjálmurinn á að vernda svæði
heilans á höggið að dreifast ná-
kvæmlega yfir allan hjálminn.
Fyrir yngri en sex ára
. Sérstakri gerð hjálma fylgir
svokölluð græn spenna. Hún er
sérstök öryggisspenna fyrir
börn, yngri en sex ára. Börnin
mega ekki hjóla ein úti í um-
ferðinni heldur einungis á ör-
uggum svæðum eða svokölluð-
um grænum svæðum. Börn
gleyma sér auöveldlega og eiga
það til að bregða sér af hjólinu
við eitthvert leiktæki án þess
að taka hjálminn af sér. Ef bam
með hjálm festir höfuðið ein-
hvers staðar á miili er mikil
hætta á ferðum því venjuleg
spenna opnast ekki fyrr en við
50 kg þunga.
Við 12 kg spennu
Græna spennan opnast hins
vegar við 12 kg þunga og bam-
ið losnar úr hjálminum áður en
illa fer.
Til að græna spennan virki
má hún ekki vera undir hök-
unni heldur til hliðar. Athugið
að græna spennan vemdar
barnið ekki lendi það í umferð-
arslysi því þar kann hjálmur-
inn að þurfa að taka við meira
eneinuhöggi. -sv
i