Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1996, Qupperneq 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1996
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1996
23
Iþróttir
íþróttir
2. deild:
Jafntefli hjá
Þór og Víkingi
á Akureyri
0-1 Hörður Theódórsson (23.)
1-1 Hreinn Hringsson (71.)
Það var ekki mikið að gerast í
þessum leik í gærkvöldi þar sem
Þórsarar og Víkingar mættust á Ak-
ureyri en leikurinn endaði með 1-1
jafntefli.
í fyrri hálfleik voru gestirnir
grimmari, voru meira með boltann
og uppskáru þeir mark snemma í
hálfleiknum. Víkingar spiluðu und-
an vindi og það virtist hjálpa til í
annars daufum fyrri hálfleik en
Víkingar voru 0-1 yfir er dómarinn
flautaði til hálfleiks.
Seinni hálfleikurinn var aðeins
líflegri og var allt annað að sjá til
Þórsaranna sem mættu sterkir til
leiks. Heimamenn pressuðu tölu-
vert og verðskulduðu að jafna leik-
inn en voru klaufskir að næla ekki
í öll stigin. Halldór Áskelsson fékk
algjört dauðafæri þegar lítið var eft-
ir en honum brást bogalistin og skot
hans var varið í horn.
Á heildina litið frekar daufur
leikur þar sem liðin skiptust á að
sækja sitt í hvorum hálfleiknum og
var jafnteflið því sanngjarnt.
Loksins hrukku
ÍR-ingar í gang
-þrjú mörk á 20 mínútum
0-1 Guðjón Þorvarðarson (3.)
0-2 Guðjón Þorvarðarson (17.)
0-3 Brynjólfur Bjarnason (21.)
1- 3 Steindór Elíson vsp. (43.)
2- 3 Róbert Amþórsson (54.)
„Við náðum að stilla okkur vel
inn á leikinn en þó er ekki búið að
laga stífluna í markaskoruninni því
þetta kom í smásprautu á 20 mín-
útna kafla,“ sagði Kristján Guð-
mundsson, þjálfari ÍR-inga, eftir
langþráðan 2-3 sigur sinna manna á
Leikni og sinn fyrsta í deildinni.
ÍR-ingar náðu að skora sitt fyrsta
mark í 2. deildinni eftir að hafa spil-
að 453 markalausar minútur og
voru þau þrjú talsins á stuttum
kafla. Þau voru öll eins, fyrirgjöf frá
vinstri þar sem dauðafrír maður
átti í engum erfiðleikum með að
skora.
Snemma i síöari hálfleik náðu
Leiknismenn að minnka muninn í
2-3 og eftir það voru þeir meira með
boltann en það voru ÍR-ingar sem
áttu þó nokkuð af hættulegum
skyndisóknum.
Leikurinn var opinn og skemmti-
legur en Ólafur Þór Gunnarsson,
markvörður ÍR-inga, sá tii þess að
sigurinn var þeirra og varði hann
m.a. vítaspymu á 15. mínútu í stöð-
unni 0-1.
Jón Þór Eyjólfsson var sterkur í
liði ÍR en hjá Leiknismönnum voru
það Steindór Elíson og Róbert Arn-
þórsson sem voru hættulegastir í
prýðisgóðum leik þar sem frískir
ÍR-ingar sigruðu nágranna sína í
Leikni.
Maður leiksins: Ólafur Þór
Gunnarsson, ÍR.
-ÞG
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Skallagríms, og Valdimar K. Sigurðsson, fyrirliði liðsins, á knattspyrnuvellinum í
Borgarnesi í gær. Lið Skallagrtms hefur komið mest á óvart í 2. deildinni í sumar og virðist stefna að sæti í 1. deild
í fyrsta skipti í sögu félagsins. DV-mynd Einar Pálsson
Skallagrímur á siglingu upp í 1. deildina í
fyrsta sinn í sögu félagsins?
- rætt viö fyrirliðann og þjálfarann um gott gengi Skallagríms í 2. deildinni í sumar
DV, Borgarnesi:
Ólafur Jóhannesson, þjálfari 2.
deildarliðs Skallagríms, og Valdimar
K. Sigurðsson, fyrirliði liðsins, eru að
vonum ánægðir með gott gengi
Borgnesinga á íslandsmótinu til þessa
en þar eru þeir I efsta sæti eftir sex
umferðir. DV hitti þá að máli í gær og
spurði þá fyrst hvað lægi að baki
þessum góða árangri liðsins það sem
af er sumri.
Ólafur: „Fyrst og fremst mann-
skapurinn. Þetta eru leikmenn sem
hafa fullan áhuga á því sem þeir eru
að gera og leggja sig 100% fram.“
Nú hefur Skallagrímur misst
sterka leikmenn frá því í fyrra:
Ólafur: „Já, liðið hefur misst
sterka leikmenn en fengið aðra sterka
leikmenn í staðinn. Þegar við erum
að tala um sterka menn þá erum við
að tala um sterka karaktera," og
Valdimar bætir við að það sé mikil-
samheldni í liðinu og mikill munrn- á
því að hafa þjálfara liðsins á staðnum
en ekki í öðru byggðarlagi eins og
undanfarin ár.
Á hvað var stefnt fyrir mótið?
Ólafur: „Stefna fyrir mótið var ein-
göngu að fara í hvern einasta leik og
gera sitt besta.“
Valdimar: „Við erum það lið sem
er ekki undir neinni pressu, en núna
fer hún að nálgast því við höfum enn-
þá ekki tapað leik og erum nú í topp-
sæti deildarinnar."
Hver er helsti styrkur liðsins?
Ólafur: „Það er eins og kom inn á
áðan, það er karakter liðsins plús að
það eru góðir fótboltamenn í liðinu.“
En veikleiki?
Valdimar: „Við gefum hann ekki
upp.“
Ólafur: „Við verðum að leyfa öðr-
um að finna hann, en við getum gefið
þeim punkta og okkar stærsti veik-
leiki er hvað við erum fáir. Engu að
síður er það einnig styrkur því þá
þjappast hópurinn betur saman og
það verður minna um fýlu og leiðindi
innan hópsins."
Milli hvaða liða haldið þið að
baráttana standi um sætin í 1.
deild?
Ólafur: „Þetta verða 5-6 lið en ég
tel að Fram fari upp og þeir eiga það
skilið því þeir hafa mannskapinn og
getuna til þess, hitt liðið sem fylgir
Fram upp get ég ekki sagt um.“
Er stemningin fyrir fótbolta að
koma upp aftur?
Valdimar: Já, hún er að koma upp
aftur en hún hefur snúist um
körfubolta undanfarin ár.
Ólafur: Mér finnst það með ólík-
indum að hér eru sömu karlarnir í
sínum hornum og áhorfendaijöldinn
hefur ekkert aukist frá því ég þjálfaði
hérna á árunum '84-'85 og vil ég
skora á Borgnesinga að fjölmenna á
völlinn og styðja við bakið á okkar
mönnum, því nú veitir okkur ekki af
í toppbaráttu 2. deildar.
-EP
Guðrún Arnardóttir grindahlaupari á leið á ólympíuleikana:
Gulu spjöldin urðu 158
Dómarar á Evrópukeppninni í knattspymu höfðu í nógu að
snúast. Alls lyftu þeir 158 gulum spjöldum á loft og 4 rauðum
spjöldum.
Gríðarleg aðsókn var að leikjum keppninnar. Alls voru
áhorfendur á öllum leikjunum á aðra milljón, nákvæmlega
1.125.385. Að meðaltali mættu 36.303 áhorfendur á hvern leik.
Alls voru greiddar rúmir 9 milljarðar króna í aðgangseyri.
Hver þátttökuþjóð, en alls voru þær 16, fær um 300 milljónir
króna í sinn hlut. Nýkrýndir Evrópumeistarar Þjóðverja fara
ekki snauðir frá keppninni því í þeirra hlut komu um 600
milljónir. Það var því ekki aðeins keppt um heiðurinn á
Wembley á sunnudaginn heldur gríðarlega fjármuni sem
koma sér örugglega vel.
-SK
- segir Þórdís Gísladóttir og spáir henni sjötta sæti á ÓL
þessi fjögur ár hafa verið lærdóms-
rík. Maður hefur lifað þar í vemd-
uðri veröld, það hefur verið séð um
allt fyrir mann, öll mót skipulögð
og séð til þess að maður komist inn
á þau mót sem hefur þurft og ekki
neinar peningaáhyggjur. En svo
um leið og maður er útskrifaður þá
fara öll þessi forréttindi sem maður
hefur haft og ég þarf að fara að sjá
um mig sjálf.”
Markmiðið að komast í
hverja umferð fyrir sig
Ég hef náð lágmörkunum bæði í
400 metra grind og 100 metra grind
en ég er ekki viss um hvort ég
keppi í báðum greinunum eða
hvort ég hleyp bara 400 metrana.
Árangur minn á þessu ári er senni-
lega einhvers staðar á meðal topp
20 í heiminum. Markmiðið hjá mér
er að komast í hverja umferð fyrir
sig. Það er alltaf erfitt að vera á
brautinni við hliðina á bestu hlaup-
urum heims en það þýðir ekkert að
eyðileggja einbeitinguna hjá sjálf-
um sér með því að vera alltaf að
hugsa um hvað hinn og þessi hleyp-
ur hratt. Það hefur verið stefna hjá
mér og þjálfarnum að komast upp
úr hverju hlaupi fyrir sig og þannig
mun ég undirbúa mig fyrir keppn-
ina, ” sagði Guðrún Arnardóttir.
Guðrún verður f úrslitum
“Ég hef mikla trú á því að Guð-
rún komist í úrslit í 400 metra
grind,” sagði Þórdís Gísladóttir,
fyrirliði íslenska frjálsiþróttalands-
liðisns. „Hún er mjög dugleg stelpa
og dugleg að æfa og ég held að hún
sé að uppskera það að hafa lagt sig
I þetta eins og þarf að gera. Hún er
geysilega sterk og hennar hæfileik-
ar eru þannig að hún kemur alltaf
sterk í lokin og tíminn hennar seg-
ir að þarna eigum við manneskju
sem er á góðri siglingu inn á topp-
inn og ég hef trú á því að hún eigi
eftir að sanna það á ólympíuleikun-
um. Guðrún hefur fengið mikla
reynslu, hún hefur verið áður á
ólympíuleikunum og henni kemur
til með að líða mikið betur núna.
Með því að vera i svona góðu formi
og hafa þessa reynslu, sem er svo
mikilvæg á þessum stóru mótum,
að geta barist fram í rauðan dauð-
ann þá held ég að ég geti spáð henni
sjötta sæti, hún tekur tvær á síð-
ustu 20 metrunum," sagði Þórdís.
Hefur sjálfstraustið í lagi
„Guðrún er komin alveg að topp
10 í heiminum og meðal þeirra sem
hún hefur verið að skjóta aftur fyr-
ir sig á þessu ári eru ekki ómerki-
legri manneskjur heldur en Safly
Gunnell sem hefur verið fremsti
grindahlaupari heims í langan
tíma. Guðrún er mjög sterkur
hlaupari sem hefur gott sjálfstraust
og kann nýta að sér það. Ég hef trú
á" því að hún hlaupi í úrslitunum á
ólympíuleikunum,” sagði Fríða
Rún Þórðardóttir, landsliðskona í
frjálsum, um Guðrúnu.
-ih
Guðrún Arnardóttir, sem Bjarni
Fel. nefndi einhvern tíma „rauðu
Ijónynjuna” er ein helsta von ís-
lands í frjálsíþróttakeppni Ólymp-
íuleikana í Atlanta. Um síðustu
helgi keppti Guðrún ásamt íslenska
kvennalandsliðinu í 1. deild Evr-
ópubikarkeppninnar í Bergen í
Noregi. Árangur Guðrúnar þar hef-
ur blásið lífi í vonir manna um að
hún nái að komast í úrslit i 400
metra grindahlaupi.
Guðrún hefur undanfarin fjögur
ár dvalið í Georgíu í Bandaríkjun-
um þar sem hún hefur lagt stund á
íþróttafræði samhliða því að æfa
undir stjórn landsliðsþjálfara Ba-
hamas. „Ég lauk skólanum núna í
vor og hef sótt um að komast að við
íþróttakennaraskólann á Laugar-
vatni. En það er samt óráðið hvort
ég fer þangað, ef ég fæ þar irini,
það fer eftir því hvernig mér geng-
ur á ólympíuleikunum,” sagði Guð-
rún Arnardóttir í samtali við DV.
„Ef mér gengur rosalega vel þá
langar mig til að halda áfram að
einbeita mér að hlaupunum og þá
þarf ég að gera einhverjar ráðstaf-
anir til að geta æft við góðar að-
stæður. En ef olympíuleikarnir
ganga ekki upp hjá mér þá fer ég á
Laugarvatn og held áfram að æfa
þar en það verður bara öðruvísi.”
Núna eru tímamót
Guðrún Arnardóttir, sem hér heldur sigurmerki á lofti eftir glæsilegt 400 metra grindahlaup í Evrópubikarkeppninni, er meðal
bestu grindahlaupara heims og á að mati sérfróðra fullt erindi í sjálft úrslitahlaupið á ólympíuleikunum. DV mynd ih
„Það eru viss tímamót hjá mér
núna. Það hafa verið forréttindi að
hafa fengið tækifæri til að æfa í
skólanum í Bandaríkjunum og
Körfubolti kvenna:
Frábær
árangur
á Möltu
íslenska kvennalandsliðið í
körfuknattleik náði hreint frá-
bærum árangri á alþjóðlegu móti
kvennalandsliða á Möltu en mót-
inu lauk á sunnudagskvöld.
íslenska liðið vann alla and-
stæðinga sína á mótinu og er
þetta besti árangur hjá íslensku
kvennalandsliði til þessa.
í fyrsta leik mótsins sigraði ís-
land lið Andorra með 100 stigum
gegn 39. Staðan í leikhléi var
42-19. Anna María Sveinsdóttir
skoraði 24 stig fyrir ísland og
Hanna Kjartansdóttir 14. Þetta er
stærsti sigur hjá islensku
kvennalandsliði frá upphafi.
Stórsigur gegn Möltu
Næst mætti íslenska liðið
Möltu og sigraði íslenska liðið
með 92 stigum gegn 52. Staðan í
leikhléi var 56-28 fyrir ísland.
Anna María Sveinsdóttir átti
stórleik og skoraði 35 stig en
Linda Stefánsdóttir kom næst
með 14 stig.
Yfirburðir gegn Kýpur
í þriðja leik sínum á mótinu,
sem nefnist Promotion Cup,
vann ísland lið Kýpur með 71
stigi gegn 41. Staðan I leikhléi
var 34-18, íslandi i vil.
Anna María Sveinsdóttir skor-
aði 18 stig fyrir ísland og Linda
Stefánsdóttir 16.
Sigur í riðlinum
Með sigrinum á Kýpur tryggði
íslenska liðið sér sigur í sínum
riðli á mótinu.
ísland mætti liði Lúxemburg í
undanúrslitum mótsins og þá tók
róðurinn að þyngjast.
íslenska liðið hafði þó sigur í
jöfnum leik, 59-55. Staðan í leik-
hléi var 30-27 fyrir ísland.
Leikurinn var jafn og
skemmtilegur og þetta var fyrsti
sigur Islands gegn Lúxemburg í
körfuknattleik kvenna.
Stig íslands: Anna Dís 18,
Erla Reynisdóttir 12, Linda Stef-
ánsdóttir 10, Helga Þorvaldsdótt-
ir 10, Anna María Sveinsdóttir 7,
Kristín Blöndal 1 og Hanna
Kjartansdóttir 1.
Fyrstu gullverðlaunin
Þá var komið að úrslitaleik
mótsins gegn liði Albaniu. Er
skemmst frá því að segja að lið
íslands lék skinandi vel allan
leikinn og tryggði sér öruggan
sigur í leiknum, 81-73, og þar
með á mótinu. Staðan í leikhléi
var 47-26.
Eins og tölurnar bera með sér
lék íslenska liðið frábærlega í
fyrri hálfleik og hefur íslenskt
kvennalið ekki leikið betur áður.
Skynsemin réð síðan ríkjum í
síðari hálfleik og sigur okkar
stúlkna var aldrei í hættu.
Þetta var stærsti og mesti sig-
ur sem íslenskt kvennalandslið
hefur unnið og má ljóst vera að
Sigurður Ingimundarson, lands-
liðsþjálfari, er að gera góða hluti
með liðið.
Stig íslands: Anna Dís 21,
Erla Reynisdóttir 18, Anna Mar-
ía Sveinsdóttir 17, Helga Þor-
valdsdóttir 12, Linda Stefánsdótt-
ir 11 og Hanna Kjartansdóttir 2.
Lokastaðan
ísland sigraöi sem sagt á
mótinu og liö Albaníu varð í
öðru sæti.
Lið Lúxemburgar varð í þriðja
sæti, Kýpur í íjórða sæti, Malta í
því fimmta, Wales í sjötta sæti,
Gíbraltar í sjöunda og restina
rak lið Andorra. -SK
Tvær góðar
til Eslöv
Handknattleikskonurnar
Svava Sigurðardóttir og
Hanna M. Einarsdóttir, sem báð-
ar hafa leikið með Víkingi, hafa
skrifað undir samning við
sænska úrvalsdeildarfélagið
Eslöv.
Þær Svava og Hanna munu
leika með sænska liðinu á næsta
keppnistímabili. Þær hafa báðar
leikið með Víkingi undanfarin ár
og Svava auk þess með íslenska
landsliðinu. Þær fóru til Svíþjóð-
ar á dögunum og leist mjög vel á
allar aðstæður hjá Eslöv. Koma
þeirra til Eslöv, sem er lítill bær
í útjaðri Malmö vakti mjög
mikla athygli og var þeim stöll-
um afar vel tekið.
Brottför þeirra til Svíþjóöar er
mikil blóðtaka fyrir lið Víkings.
-SK/-RR
Cantona
hætti við
að hætta
Eric Cantona, besti knatt-
spymumaðurinn í ensku knatt-
spymunni á síöasta leiktímabili,
hefur ákveðið að ieika áfram
með Manchester United.
Cantona hafði hótað að hætta
að leika í Englandi eftir að fyrir-
tæki hófu framleiðslu á vörum
og notuðu á þær nafn knatt-
spymuhetjunnar. Cantona kærði
fyrirtækin og um helgina siðustu
var kveðinn upp dómur þar sem
umræddum fyrirtækjum var
bannað að nota nafn Cantona á
vörunum.
Cantona tilkynnti í framhald-
inu að hann myndi halda áfram
að leika með United og anda ef-
laust margir stuðningsmenn
ensku meistaranna léttar.
-SK
Kluivert til
Man. Utd?
Breskt dagblað fullyrti í gær
að hollenski landsliðsmaðurinn í
knattspyrnu, Patrick Kluivert,
væri á leiðinni til ensku meistar-
anna Manchester United.
Blaðið segir að forráðamenn
United hafi veriö í stöðugu sam-
bandi við Ajax undanfarna daga
og að United hafi boöið 410 millj-
ónir króna í Hollendinginn.
Kluivert hefur neitað að fram-
lengja samning sinn við Ajax.
-SK
Tveir Tékkar
til Liverpool?
Ray Evans, framkvæmdastjóri
Liverpool, hefur mikinn hug á að
kaupa tvo leikmenn tékkneska
landsliðsins í knattspyrnu, þá
Patrick Berger sem leikur með
Borussia Dortmund og Karel Po-
borsky hjá Slavia Prag.
Evans hefur þegar boðið 310
milljónir króna í Poborsky, sem
einnig hefur verið orðaður við
Liverpool, Man Utd og Lazio. Á
næstu dögum mun Evans bjóða
270 milljónir króna í Berger.
-SK
ÍBV vann Aftureldingu
Eyjastúlkur náðu sér i dýrmæt
stig þegar þær báru sigurorð af
Aftureldingu 2-1 í Mizuno deild-
inni. Joan Nilsson og Anne Lie
skoruðu fyrir heimamenn en íris
Stefánsdóttir svaraði fyrir
gestina í spennandi leik.
-ÞoGu
Þýsku þjóðhetjurnar
Nýkrýndir Evrópumeistarar Þjóðverja sneru heim í gær og
það var heldur betur tekið vel á móti þeim. 30.000 manns voru
mættir á Römerberg-torgiö í Frankfurt til að sjá leikmennina
og allir sungu: „We are the champions!“
Á svölum bæjarskrifstofanna sýndu dauðþreyttir leikmenn
sem höfðu greinilega skemmt sér vel kvöldið áður eins og gef-
ur að skilja, langþráða bikarinn og tóku þeir síðan eina
„öldu“. „Hann er kominn heim, fótboltinn er kominn heim,“
söng fyrirliðinn Júrgen Klinsmann, hás útgáfa af söng Evr-
ópukeppninnar. „Móttökurnar eru í alla staði fi'ábærar,"
sagði Oliver Bierhoff, hetja Þjóðverja, sem skoraði bæði mörk
þeirra í úrslitaleiknum. Heimferð þeirra var svolítið sérstök
því Lufthansaþotan sem flutti þá frá London fékk heiðursfylgd
Tomado-herflugvéla. -JGG
Kouba til Deportivo?
Tékkneski markvörðurinn, Petr Kouba, fer samkvæmt
tékknesku fréttastofunni CTK til Deportivo Coruna á Spáni.
Umboðsmaður Kouba, Pavel Paska, sagði að samningurinn
væri tilbúinn og að Kouba myndi fljúga til Spánar á fimmtu-
daginn til að fara í læknisskoðun.
Engin smáatriði varðandi samningin voru gerð opinber og
hvorki náðist í Paska né Kouba, sem leikur með Sparta
Prague. Kouba var án efa einn besti markvörður Evrópu-
keppninnar þar sem hann bjargaði sínum mönnum oft vel en
þvi miður gerði hann ein dramatísk mistök og það í sjálfum
úrslitaleiknum. Varamaðurinn þýski, Oliver Bierhoff, fór
tvisvar sinnum illa með hann og í seinna skiptið sló hann
boltann í stöngina og inn og því unnu Þjóðverjar.
-JGG
„Getur barist
fram í rauðan
dauðann”