Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1996, Síða 27
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1996
31
...................................................... - '
ÞJONUSTUMSGlMSmGSm
550 5000
STEINSTEYPUSOGUN
KJARNABORUN
• MÚRBROT »m
• VIKURSÖGUN
• MALBIKSSÖGUN SSÍ? Smm
ÞRIFALEG UMGENGNI VILHELM JÓNSSON
OG IÐNAÐARH U RÐIR
Eldvarnar-
hurðir
GLOFAXIHF.
ÁRMÚLA 42 • SÍMI553 4236
Öryggis-
hurðir
Smágröfuþjónusta - Lóðaframkvæmdir
JCB smágrafa á gúmmíbeltum
meö fleyg og staurabor.
Ýmsar skóflustærðir.
Efnisfiutningur, jarövegsskipti
þökulögn, hellulagnir,
stauraborun og múrbrot.
Ný og öflug tæki.
Guðbrandur Kjartansson
Kemst inn um meters breiöar dyr.
Skemmir ekki grasrótina.
Bílasímar 893 9318 og 853 9318
Loftpressur - Traktorsgröfur
Brjótum hurðargöt, veggi, gólf,
innkeyrslur, reykháfa, plön o.fl.
Hellu- og hitalagnir.
Qröfum og skiptum um jarðveg i
innkeyrslum, görðum o.fl.
Útvegum einnig efni. Qerum
föst tilboð. Vinnum einnig á
kvöldin og um helgar.
VÉLALEIGA SÍMONAR HF„
SÍMAR 562 3070, 852 1129, 852 1804 og 892 1129.
Steiiisteypusögtm G.T.
Steypusögun, múrhrot,
kjarnaborun
Sögum fyrir dyraopum og gluggum
Kjarnaborum fyrir lögnum
Þrifaleg umgengni, áralöng reynsla
Símar 892 9666 og 557 4171
NYTT
- TYGGJO - NYTT
Er Chroma Trim tyggjóiö besta
leiðin til aö losna við aukakílóin?
Eykur brennslu. Eykur orku. Byggir upp
vöövavefina. Dregur úr matarlöngun.
Mest seldi megrunarkúr í Ameríku.
ÚTSÖLUSTAÐIR: APÓTEKIN,
STÚDÍÓ DAN, ÍSAFIRÐI, og
HEILSUHORNIÐ, SELFOSSi,
eða uppl. í síma 567 3534.
Kársnesbraut 57 • 200 Kópavogi
Sími: 554 2255 * Bíl.S. 896 5800
L0SUM STÍFLUR ÚR
Wc
Vöskum
Niðurföllum
O.fl.
VISA/EURO
ÞJ0NUSTA
. ALLAN
S0LARHRINGIN
10ARA REYNSLA
VÖNDUÐ VINNA
Ný lögn á sex klukkustundum
i stab þeirrar gömlu -
þú þarft ekki ab grafa!
Nú er hœgt aö endurnýja gömlu rörin,
undir húsinu eba í garbinum,
örfáum klukkustundum á mjög
hagkvceman hátt. Gerum föst
verötilbob í klœöningar
á gömlum lögnum.
Ekkert múrbrot,
ekkert jarörask
24 ára reynsla erlendis
insmr
Myndum lagnir og metum
ástand lagna meb myndbandstœkni ábur en
lagt er út í kostnabarsamar framkvcemdir.
Hreinsum rotþrœr og brunna, hreinsum
lagnir og losum stíflur.
JLh
jl"
HREINSIBÍLAR
Hreinsibílar hf. Bygggöröum 6
Sími: 5S1 51 51
Þjónusta allan sólarhringinn
Geymið auglýsinguna.
Dyrasímaþjónusta
Raflagnavinna
ALMENN DYRASÍMA- OG
RAFLAGNAÞJÓNUSTA.
Set upp ný dyrasímakerfi og geri við
eldri. Endurnýja raflagnir í eldra húsnæði
ásamt viðgerðum og nýlögnum.
Fljót og góð þjónusta.
JÓN JÓNSSON
LOGGILTUR RAFVERKTAKI
Sími 562 6645 og 893 1733.
FJARLÆGJUM STIFLUR
úr vöskum.WC rörum, baökerum og niöur
föllum. Viö notum ný og fullkomin tæki.
RÖRAMYNDAVÉL
til að skoða og staðsetja
skemmdir í WC lögnum.
VALUR HELGASON
/SA 896 1100 • 568 8806
DÆLUBILL 568 8806
Hreinsum brunna, rotþrær,
niöurföll, bílaplön og allar
stíflur í frárennslislögnum.
VALUR HELGASON
Er stíflað? - stífluþjónusta
V/SA
Virðist rennslið vafaspil,
vandist lausnir kunnar:
hugurinn stefnir stöðugt til
stifluþjónustunnar.
Fjarlægi stíflur úr frárennslisrörum, innanhúss og utan.
Kvöld og helgarþjónusta. _ _ __
M w Heimasími 587 0567
Sturlaugur Jóhannesson Fars. 892 7760
Skólphreinsun Er stíflað?
Fjarlægi stíflur úr wc, vöskum, baðkerum og niðurföllum.
Nota ný og fullkomin tæki, rafmagnssnigla.
Röramyndavél
til að mynda frárennslislagnir og staðsetja skemmdir.
Ásgeir Halldórsson
Sími 567 0530, bílas. 892 7260 og
í E 852 7260, símboði 845 4577 2S
Aðsókn
í orlofs-
hús tók
kipp
SeyöisQöröur:
Fallbyssuskot
á hverjum
miövikudegi
DV, Seyðisfirði:
„Það hefur ekki stoppað sím-
inn hérna og öll orlofshúsin eru
bókuð.“ Þetta segir Óli Rafn
Sumarliðason hjá Verslunar-
mannafélagi Hafnarfjarðar. Fyr-
ir nokkrum vikum var greint frá
því í frétt að dræm aðsókn væri
í orlofshús félagsins. Síðan hefur
síminn ekki stoppað.
„Það eru bæði félagsmenn og
utanfélagsmenn sem hafa hringt.
Ég held að þeir séu alls um 600
hundruð. Það höfðu bara borist
70 pantanir fyrir þremur vikum
en þær höfðu venjulega verið um
140 á sama árstíma. Fólk hefur
verið seint að taka við sér núna
eða vonlaust um að fá hús,“ seg-
ir Óli Rafn.
Fréttin um litla aðsókn í or-
lofshús Verslunarmannafélags
Hafnarfjarðar hafði einnig áhrif
hjá öðrum stéttarfélögum. Hjá
Verkamannafélaginu Dagsbrún,
Starfsmannafélaginu Sökn og
Verkakvennafélaginu Framsókn
rigndi inn umsóknum. -IBS
Fyrir nokkrum árum tóku tveir snjallir
þúsundþjalasmiðir hér gamla fallbyssu
sem lengi hafði þénað sem bryggjupolli -
og endursmíðuðu hana. Víst var þetta
bæði þolinmæði- og vandaverk en tókst þó
mætavel. Tækniminjasafni Austurlands
var svo fenginn gripurinn til varðveislu.
Upphaflega er þetta sænsk smíði, unnin
fyrir danska herinn 1845.
Kanónunni var fundinn staður innan
við húsið að Hafnargötu 44, sem nú má
kallast ráðhús bæjarins - hýsir bæjarskrif-
stofu og tækniminjasafn. Húsið byggði fað-
ir Seyðisfjarðarkaupstaðar, Ottó Wathne,
1849 og bjó þar til dauðadags 1898. 1 þessu
húsi voru margar nýjungar sem þóttu æv-
intýralegar, heitt og kalt sjálfrennandi
vatn, miðstöðvarhitun og fleira sem áður
var óþekkt hérlendis.
Seyðflrðingar eru þess fullminnugir að í
þá tíð var þetta mikill hefðarstaður. í einu
allra vinsælasta skáldverki aldarinnar,
Heiðarbýlissögum Jóns Trausta, sem byrj-
uðu að koma út 1906, segir:....um þess-
ar mundir var runnin upp ný stjarna í
austri, sem skein yfir allt ísland. Það var
stjarna Seyðisfjarðar . . . Hvérgi þótti nú
björgulegra að búa en þar - og enginn stað-
ur virtist eiga glæsilegri menn úr öllum
áttum, . ..“
Þar sem virkar fallbyssur eru sem betur
fer almenningi framandi tæki, hefur verið
ákveðið að gestir og gangandi geti séð
skotið úr gömlu kanónunni kl. 17 á hverj-
um miðvikudegi í sumar. -JJ
Fréttir
Stórskotaliöar staöarins. Þorvaldur Jóhannsson bæjarstjóri
og Jóhann Sveinbjörnsson bæjargjaldkeri í hlutverki skytt-
unnar. DV-mynd Jóhann