Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1996, Qupperneq 12
12
FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ1996
óháð
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. j
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aöstoöarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI11,
blaöaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI14,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuöi 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblaö 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Vestræn sneypuferð
Atlantshafsbandalagið er búið að missa tökin á Bosn-
íudeilunni eins og spáð var hér í blaðinu fyrir tæpum
mánuði. Bandalagið hefur endurtekið mistök forverans í
friðarhlutverkinu, Sameinuðu þjóðanna, enda missa
liðsmenn þess í buxurnar, ef þeir sjá Serba.
Sænski stjórnmálamaðurinn Carl Bildt leikur sama
sorgarhlutverkið á vegum Vesturlanda í vitleysunni í
Bosníu og Bandaríkjamaðurinn Cyrus Vance, Bretinn
David Owen og Norðmaðurinn Thorvald Stoltenberg
höfðu áður leikið á vegum Sameinuðu þjóðanna.
Undarlegast er við þá sneypuferð, sem nú stendur yfir,
að hún felur eingöngu í sér endurtekið efni. Reynt er að
þvæla Serbum til að skrifa undir hitt og þetta og síðan
lýst yfir árangri. Samt er gömul 100% reynsla fyrir því,
að ekki er neitt að marka undirskriftirnar.
Þótt Carl Bildt sé aumkunarverður í Bosníu, er þó
hlutur Bills Clintons Bandaríkjaforseta hálfu aumari.
Hann barði saman svokallað Dayton samkomulag, sem
núna er svo gersamlega hrunið, að ekki stendur steinn
yfir steini, þrátt fyrir hernámið á Bosníu.
Atlantshafsbandalagið er með fjölmennan her í Bosn-
íu og gæti haft þar tögl og hagldir. Serbar eru búnir að
átta sig á, að þetta er sami puntudúkkuherinn og áður
var þar á vegum Sameinuðu þjóðanna, og eru löngu
hættir að taka nokkurt mark á Dayton-samkomulaginu.
Carl Bildt og erindrekar Bandaríkjastjómar em af og
til með marklausar hótanir, til dæmis um að endurnýja
viðskiptabann á Serbíu. Allir vita, og bezt þessir auðnu-
leysingjar Vesturlanda, að Serbar taka ekkert mark á
þessum hótunum, af því að þær eru kunnuglegar.
Þessa dagana eru Serbar og Bosníu-Serbar að grínast
með Bildt út af formsatriðum í kringum völd stríðs-
glæpamannsins Radovans Karadzic í Bosníu. Bildt grey-
ið reynir að teygja og toga túlkanir sínar í þá átt, að ein-
hvern veginn sé Karadzic við minni völd en áður var.
Um svipað leyti eru eigendur herja Atlantshafsbanda-
lagsins búnir að ákveða, að kosningar verði í Bosníu,
eins og ekkert hafi í skorizt, þótt Öryggisstofnun Evrópu
hafi formlega komizt að raun um, að ekkert skilyrðanna
fyrir frjálsum kosningum hafi verið uppfyllt.
Á sama tíma eru að koma fram upplýsingar hjá Stríðs-
glæpadómstólnum í Haag, sem sýna, að stríðsglæpir
Serba í Bosníu eru miklu meiri og hrikalegri, en áður
hefur komið fram í fjölmiðlum. Þessir glæpir eru svo
voðalegir, að ekki er lengur prenthæft að fjálla um þá.
Einnig hefur komið fram, að sumir glæpanna voru
beinlínis framdir á verndarsvæðum Sameinuðu þjóð-
anna og með vitund fulltrúa samtakanna. Liggur nú
beinast við að ætla, að Sameinuðu þjóðirnar verði kærð-
ar fyrir samábyrgð á sumum stríðsglæpum vitfirrtra
Serba.
Flest bendir nú til þess, að sveitir Atlantshafsbanda-
lagsins leggi á flótta frá Bosníu öðrum hvorum megin
við áramótin, þegar Serbar hafa náð þeim árangri, sem
þeir stefndu að, og ekkert stendur eftir af þeim markmið-
um, sem Vesturlönd settu sér með afskiptum sínum.
Síðan munu stjórnmálaleiðtogar og herforingjar Vest-
urlanda reyna að gleyma, hvemig þeir endurtóku ná-
kvæmlega sömu mistökin á vegum Atlantshafsbanda-
lagsins og starfsbræður þeirra höfðu áður framið á veg-
um Sameinuðu þjóðanna nokkrum mánuðum áður.
Bosnía er orðin að minnisvarða um siðferðilegt, at-
gervislegt og hemaðarlegt hrun þeirra stofnana, sem
hafa talizt homsteinar vestrænnar menningar.
Jónas Kristjánsson
dagbSað
1—
pm. Jl
Próf segja nákvæmlega ekkert um hæfileika til mannlegra samskipta, tjáningar, sköpunargáfu, forystu og virkra
athafna, segir m.a. f grein Jóns í dag.
Frami Rannveigar Rist:
Fordæmi fyrir ungt fólk
Ráðning Rannveigar Rist sem
forstjóra ÍSALs hefur vakið verð-
skuldaða athygli og mikil og já-
kvæð viðbrögð um,allt þjóðfélagið.
Fram hefur komið í fjölda blaða-
greina að undanfömu að Rannveig
er búin ótrúlega
fjölþættum hæfi-
leikum sem og
reynslu til starfs-
ins. Hún hefur
beina reynslu af
„störfunum á gólf-
inu“, sem vélstjóri
og vélvirki. Við
þetta bætist tvöföld
háskólamenntun í
vélaverkfræði og
viðskiptafræði. Að
auki hefur hún
starfað mörg sum-
ur við erfiðar að-
stæður með föður
sínum heitnum,
Sigurjóni Rist, sem
var annálaður
dugnaðarforkur og
frumkvöðull í
vatnamælingum
hér á landi.
Til að komast að
sem vélstjóri varð
Rannveig að sækja
hart á karlaveldið,
gera margítrekað-
ar tilraunir til að
fá pláss og horfa á
minna menntað
fólk tekið fram yfir
sig hvað eftir ann-
að. Mikla seiglu
þarf til að standast slíkt. Hún er
fáum gefin. Við allt þetta bætist að
Rannveig fær hvarvetna lof fyrir
greind, skilvirkni, ákveðni og lip-
urð i mannlegum samskiptum.
Víðtæk reynsla
Reynsla Rannveigar sem hér er
lýst er mjög frábrugðin þeirri
reynslu sem flestir þeir sem kom-
ast í valda- og í stjórnunarstöður
hér á landi hafa notið eða sótst eft-
ir. Þótt hérlendis sé algengt að
námsfólk vinni almenn störf á
námsárum sínum þá er sennilega
fátítt að það hafi þá breidd sem
einkennir feril Rannveigar. Yfir-
leitt er bóknámið nánast allsráð-
andi og raunveruleg reynsla af
skornum skammti.
skírteinum sem blekið er varla
þornað á.
Þessi „rússneska rúlletta" í stöð-
uráðningum hefur gefist mjög mis-
jafnlega. Stöku menn hafa spjarað
sig. Aðrir hafa gert slík mistök sak-
ir reynsluleysis að þeir bera barr
sitt ekki eftir það. Starfsframi
þeirra hefur því verið eins og
hraðakstur fram af hengiflugi út í
örugga brotlendingu.
Skýringarnar
Hluti af skýringunni á þeim
furðulegu mannaráðningum sem
víða hefur mátt sjá byggist á al-
kunnum tilhneigingum til óhóf-
legs klikuskapar. Einnig skiptir
máli landlæg oftrú á einhæfu bók-
námi og prófgráðum. Sú hugmynd
er úthreidd að nemandi, sem hefur
náð góðum prófum, sé hæfur til
margháttaðra verka sem hann hef-
ur mjög gloppótta þekkingu og
reynslu til að sinna eða jafhvel
alls enga.
Góð próf eru að vísu sannarlega
vottur um greind og iðni og vís-
bending um getu til að takast á við
ófyrirséð verkefni. Þau segja á
hinn bóginn nákvæmlega ekkert
um hæfileika til mannlegra sam-
skipta, tjáningar, sköpunargáfu,
forystu og virkra athafna. Allt
þetta eru lykilatriði fyrir góðan
stjórnanda. Ef eitthvert þeirra
bregst getur viðkomandi brugðist
algerlega sem stjómandi. Háar
einkunnir eru alls ekki örugg vís-
bending um árangur í stjórnunar-
stöðum.
Fordæmi fyrir ungt fólk
Sérstök ástæða er til að vekja at-
hygli ungs fólks á því að draga
lærdóm af frama Rannveigar Rist.
Líklegt virðist að hann sé að veru-
legu leyti byggður á meðvituðum
langtímaákvörðunum og stefnu.
Alltof fátítt er að íslendingar hugi
að slíku, hvað þá heldur fram-
kvæmi það. Sá sem vill ná langt
verður nánast ávallt að vera tilbú-
inn að leggja á sig mikla og
langvarandi vinnu við að byggja
upp þekkingu sína og reynslu sem
og aðrar forsendur. Þetta skipu-
leggur enginn fyrir hann. Hann
verður að gera það sjálfur.
Harðnandi alþjóðleg samkeppni
mun valda því á komandi árum að
fólk verður í auknum mæli að
byggja á raunverulegri getu í stað
klíkuskapar eða heppni. Full
ástæða er til að óska Rannveigu
Rist til hamingju með frama sinn
og íslensku þjóðinni með það góða
fordæmi sem þessi ráðning gefur.
Jón Erlendsson
Óharðnað fólk í
áhrifastöðum
Góður árangur í at-
vinnulífi byggist öðru
fremur á stjórnendum
sem hafa breiða reynslu
og næma heildarsýn á
verkefni þeirra fyrir-
tækja sem þeir stýra allt
frá einfaldasta til hins
flóknasta. Ennfremur
reynslu við að takast á
við raunhæf og fjöl-
breytt verkefni. Hér á
landi hefur verið allt of
mikið um að óharðnað
og reynslulítið fólk með
mjög gloppóttar for-
sendur hefur verið tek-
ið inn í stjórnunarstöð-
ur á þeim grundvelli
einum sem felst í próf-
„Hér á landi hefur verið allt of
mikið um að óharðnað og reynslu-
lítið fólk með mjög gloppóttar for-
sendur hefur verið tekið inn í
stjórnunarstöður
Kjallarinn
Jón Erlendsson
ylirverkfræðingur
Upplýsingaþjónustu
Háskólans
Skoðanir annarra
Forseta gert erfitt fyrir?
„Það er dálítið einkennilegt þegar stjómmálafor-
ingjar, sem ekki hafa ávallt verið í fararbroddi um
sameingingu vinstri manna, koma nú fram á völlinn
og reyna að túlka úrslit forsetakosninganna sem sér-
stakt innlegg í þessa sameiningu. Eins og áður segir
er áframhald þessarar umræðu einungis til þess að
gera nýkjömum forseta, sem tekur við embætti um
næstu mánaðamót, fyrstu skrefin í embætti erfiðari
en ella.“ Úr forystugrein Tímans 3. júlí.
Forseti og fjölmiðlar
„Það er skiljanleg afstaða og ber að virða, að ný-
kjörinn forseti haldi sig til hlés þar til eftir embætt-
istöku og á meðan fráfarandi forseti er enn í emb-
ætti. Erfiðara er að skilja, að nýkjörinn forseti vilji
ekki svara spurningum útbreiddasta dagblaðs þjóð-
arinnar um úrslit kosninganna sjálfra, jafnvel þótt
þær séu bomar fram á mánudegi. Morgunblaðiö
hlýtur hins vegar að skýra lesendum sínum frá því,
hvers vegna blaðið hefur birt umsögn allra annarra
frambjóðenda um kosningaúrslitin en ekki þess
frambjóðanda, sem kjörinn var til embættisins."
Úr forystugrein Mbl. 3. júlí.
Hraðbyri til fortíðar
„Nú bendir ekkert til annars en gamla flokkseig-
endaklíkan geti siglt Alþýðubandalaginu hraðbyri
til fortíðar . . . Þegar Alþýðubandalagið var gert að
formlegum stjómmálaflokki árið 1968 var nmnið úr
gildi ævafornt ákvæði í flokkslögum um að ölliun
bæri skilyrðislaust að hlýða ákvörðun meirihluta
miðstjómar. Þetta ákvæði átti rætur að rekjá til þess
tíma þegar íslenskir kommúnistar fengu línuna frá
Kreml... Með brotthvarfi Ólafs Ragnars Grfmsson-
ar er endanlega staðfest að Alþýðubandalagið er
pólitískt minjasafn."
Úr forystugrein Alþbl. 3. júlí.