Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1996, Blaðsíða 24
Halim Al ræður ekkert við stórar
stelpur.
Vanþakklætið eru
laun heimsins
„Sko, ég verð nú að segja það
að ef þetta er lýsing Þorbjörns á
málinu þá verður hann bara að
fá að hafa sína lýsingu í friði.
Þetta er svo fjarri öllum sanni.
Ég held að það eigi við í þessu
máli, því miður, máltækið að
vanþakklætið sé laun heimsins.
Ef þetta er hans málflutningur
þá held ég að best sé að segja
ekki neitt um málið.“
Friðrik Pálsson forstjóri SH, í Tímanum
Ummæli
Enginn getur þvingað
stórar stelpur
Ekki ég, enginn dómari, getur
þvingað stórar stelpur. Ef þær
eru þvingaðar í einn eða tvo
daga til að vera einhvers staðar
fara þær bara úr húsinu."
Halim Al, í DV.
Tvöfaldar fylgi sitt
Þjóðvaki tvöfaldar fylgi sitt -
kominn í eitt prósent.
Fyrirsögn í Alþýðublaðinu
Prestar á grafarbakk-
anum
Hið gamla fyrirkomulag hefur
síðan riðlast í Reykjavík og það-
an hefur óreglan breiðst um
landið, fyrst í gegnum íjölmenn-
ustu staðina þar sem eru fleiri
en einn prestur og dæmi eru um
aö örfáir prestar hafi laun af kol-
legum sínum með því að standa
alla daga á grafarbakkanum og
hirða allar tekjur af prestþjón-
ustu við jarðarfarir.
Sr. Flóki Kristinsson, í DV
Brúðkaup
Sá maður sem oftast hefur gift
sig er Bandaríkjamaðurinn og
fyrrverandi baptistapresturinn
Glynn „Scotty“ Wolfe. Hann hef-
ur gift sig 27 sinnum. Glynn
gekk í fyrsta hjónabandið 1927
en er núna giftur Daisy Delgado
sem er fædd 1970.
Flest hjónabönd konu eru 21,
en hún er einnig frá Bandaríkj-
unum og heitir Linda Lou Essex.
Hún giftist og skildi við 15 menn
(suma oftar en einu sinni) á
tímabilinu frá 1957 til 1988.
Blessuð veröldin
Elstu og yngstu brúðhjón
Elstu brúðhjónin eru Harry
Stevens sem giftist Thelmu
Lucas. Harry var þá 103 ára og
Thelma 84. Brúðkaupið fór að
sjálfsögðu fram á elliheimilinu
sem þau voru bæði íbúar á.
Þá giftu þau Minnie Munro,
103 ára, og.Dudley Reid, 83 ára,
sig árið 1991 og varð Minnie þar
með elsta brúður sem sögur fara
af.
Yngsta brúðurin var frá
Bangladesh, 3 mánaða þegar
brúðkaupið fór fram. Brúðgum-
inn var nærri fjórum sinnum
eldri eða 11 mánaða.
36
FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1996
Víða bjartviðri
Yfir Skotlandi er allvíðáttumikil
988 mb lægð sem þokast austnorð-
austur og grynnist.
Veðrið í dag
Búist er við norðaustangolu eða
kalda en hafgolu sunnan- og vestan-
lands í dag. Það verður skýjað en að
mestu þurrt á Norðurlandi, dálítil
rigning á Austurlandi en annars
verður víða bjartviðri. Þó er hætt
við síðdegisskúrum sunnanlands.
Hiti verður á bilinu 5 til 14 stig,
hlýjast suðvestanlands að deginum.
Sólarlag í Reykjavík: 23.51
Sólarupprás í Reykjavík: 3.14
Síðdegisflóð í Reykjavik: 21.03
Árdegisflóð á morgun: 9.30
Veörid kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjað 7
Akurnes léttskýjaö 6
Bergsstaðir alskýjað 7
Bolungarvík skýjaö 7
Egilsstaðir rigning og súld 5
Raufarhöfn alskýjaö 6
Stórhöfði léttskýjaó 9
Helsinki skýjaö 14
Kaupmannah. rigning 13
Stokkhólmur skýjaö 15
Þórshöfn skýjaö 8
Barcelona þokumóóa 22
Frankfurt rign. á síð.kls. 16
Glasgow úrkoma í grennd 11
Hamborg rigning 16
London skýjað 13
Madríd heiðskírt 18
Mallorca léttskýjað 19
París skýjað 18
Róm heiöskírt 18
Valencia þokukmóð 21
Vín léttskýjaö 17
Winnipeg léttskýjað 20
Fannar Jónasson, framkvæmdastjóri Fjórðungsmóts hestamanna:
Bestu hestar landsins á mótinu
„Þetta er fjóröungsmót sunn-
lenskra hestamanna sem þýðir að
hingað koma hestar úr Suður-
landsfjórðungnum. Hann nær frá
Lómagnúpi í austur að Hvalfjarð-
arbotni í vestri. Það þýðir að flest
stærstu hestamannafélögin á land-
inu eru í þessum fjórðungi, þar
með talin félögin í Reykjavík og á
Reykjanesi, þannig að þetta kemst
næst því að vera landsmót," segir
Fannar Jónasson, framkvæmda-
sfjóri Fjórðungsmóts hestamanna.
„Stór hluti bestu hesta landsins
hafa þátttökurétt á þessu móti.
Einnig verður opið töltmót hér en
í því mega keppendur alls staðar
Maður dagsins
af landinu taka þátt ef þeir hafa
náð 80 punktum."
Mótið er á Gaddstaðaflötum við
Hellu. Á mótinu eru tvö meginsýn-
ingaratriði. Þar ber fyrst að nefna
gæðingakeppni, A og B flokk gæð-
inga, og svo er keppt í bama-,
imglinga- og ungmennaflokkum.
Að sögn Fannars er ungmenna-
flokkurinn frekar nýr af nálinni.
Með honum er verið að gefa fólki
Fannar Jónasson.
tækifæri sem komið er af bams-
aldri en er ekki tilbúið í þann
harða slag sem fer fram á milli
reyndra keppenda í gæðinga-
keppni.
Keppnin stendur yfir meira og
minna alla mótsdagana, fyrst með
forkeppni, svo dómum og svo úr-
slitum þannig að segja má að alltaf
sé verið að fikra sig nær því að
finna bestu hrossin. Bestu hrossin
munu koma fram I úrslitum á
lokadegi.
„Hinn stóri þátturinn í svona
mótum era kynbótasýningar. Þar
eru sýnd kynbótahross, bæði
hryssur sem einstaklingar, hryss-
ur með afkvæmum og stóðhestar,
annaðhvort sem einstaklingar eða
með afkvæmum. Mótið verður
mjög sterkt varðandi kynbótasýn-
ingar. Farið hafa fram forkeppnir
og hérðassýningar bæði hér á
Hellu og i Reykjavík og víðar og er
ljóst að þetta verður mjög sterkt
kynbótamót."
Fannar er viðskiptafræðingur
og rekur hann bókhalds- og fast-
eignaþjónustu.
„Ég er giftur Hrafnhildi Krist-
jánsdóttur skrifstofukonu og eig-
um við þrjú böm, Birki Snæ, Köru
Borg og Rakel Hrund. Ég hef
hestamennsku að áhugamáli og á
eitthvað af hestum sjálfur.“
Mótið var sett í gær kl. 14 og
lýkur þvi á sunnudaginn.
Er fyrirmynd.
Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki.
Guðmundur Benediktsson var
atkvæðamikill í leik KR og
Breiðabliks.
Mjólkur-
bikar-
keppni
karla
í kvöld klárast 16 liða úrslit í
Mjólkurbikarkeppni karla. Fylk-
ir mætir Skallagrimi, Grindavík
mætir KA, Þór A. mætir Leiftri
og Valur mætir Stjömunni. Það
íþróttir
má því búast við fótboltaveislu í
kvöld.
Á morgun verður svo dregið í
8 liða úrslit keppninnar.
Þá era 3 leikir í 4. deild í
kvöld.
Bridge
Siðari leikur Dana og Norðmanna
í kvennaflokki á Norðurlandamót-
inu var sýndur á töflu og útlitið var
ekki bjart fyrir dönsku stúlkurnar
þegar fjögur spil voru eftir í fyrri
hálfleik. Þá var staðan 45-8 fyrir
Noreg en dönsku stúlkumar fengu
38 impa í síðustu fjórum spilum
hálfleiksins og voru yfir, 46-45. En
það dugði skammt því norsku stúlk-
urnar skoraðu látlaust i síðari hálf-
leik og unnu leikinn, 25-5. Norsku
stúlkurnar náðu fimm góðum spil-
um í röð þar sem þær skoruðu 11,
16, 9, 10 og 13 impa og það bil var
ekki hægt að brúa. Hér er spilið þar
sem þær græddu 16 impa. Suður
gjafari og allir á hættu:
a K1083
V KD5
♦ KG2
4 862
4 Á97652
«4 G87
•f 10
* ÁD7
4 --
«4 62
4 ÁD98765
4 KG105
Suður Vestur Norður Austur
Lotte Anna M. Bettina Grethe
44 44 dobl p/h
Hin norska Anna Maria var ekki
óheppin með blindan i spilinu. Hún
spilaði tvisvar að háspilunum í
blindum og gerði sér mat úr hjarta-
litnum og fékk 10 slagi (missti slagi
á tromp, hjarta og tígul). Sagnir
gengu þannig á hinu borðinu í
leiknum:
Suður Vestur Norður Austur
Gunn Stense Anna L. Jette
14 14 2G pass
34 pass 3G p/h
Danska stúlkan Jette spilaði
spaðadrottningu út, fékk að eiga
þann slag og spilaði næst spaða-
gosa. Stense drap á spaðaás og spil-
aði hjartagosa. Anna setti kónginn,
austur ásinn og hefði nú þurft að
spila laufí til að hnekkja þremur
gröndum. Þegar það fannst ekki,
fékk sagnhafi 10 slagi og 16 impa
sveifla.
ísak Öm Sigurðsson