Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1996, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 16. JULI 1996
Fréttir
Mörgum frystihúsum á AustQöröum veröur lokaö í 4 til 8 vikur:
Starfsfólk fær ekki greidd-
ar atvinnuleysisbætur
- þar sem lokunin er sögö vera vegna sumarleyfa
„Vegna þess að lokun frystihús-
anna er sögð vera vegna sumarleyfa
fær fólk ekki atvinnuleysisbætur
þann tíma sem frystihúsunum er
lokað. Þetta er auðvitað mikið
vandamál því sumt af fólkinu er
þegar búið að taka sumarfríið sitt,
þar sem menn vissu ekki um þessar
lokanir," sagði Margeir Margeirs-
son, formaður Verkcdýðs- og sjó-
mannafélag Stöðvarfjarðar, í sam-
tali við DV.
Hann segist ekki vilja sætta sig
við þessa niðurstöðu og þess vegna
sé verið að kanna það hvort þetta
stenst að greiða þeim ekki atvinnu-
leysisbætur sem búnir eru að fara í
sumarfrí.
„Frystihúsin hér í kringum okk-
ur loka flest einhvem tima. Það
verður lokað í alla vega mánuð
bæði á Djúpavogi og Breiðdalsvik.
Talað er um að á Eskifirði verði lok-
að í 6 vikur og 8 vikur á Reyðar-
firði. Á Fáskrúðsfirði verður senni-
lega ekki lokað nema í viku og í
Neskaupstað verður ekki lokað að
því að ég best veit,“ sagði Margeir.
Hann segir erfiðleika hjá frysti-
húsunum stafa af því að hjá þeim sé
birgðasöfnun og sá fiskur sem selst
fari á lágu verði.
„Auðvitað er það til í dæminu að
einhver frystihús verði ekki opnuð
aftur eftir sumarleyfi, maður heyrir
því fleygt. En menn binda ákveðnar
vonir við síldina. Hér á Stöðvarfirði
er hafinn undirbúninur fyrir síldar-
vinnslu, bæði frystingu og söltun.
Og þannig er það víðar. Ef vel geng-
ur, getur síldin skapað atvinnu í allt
að 5 mánuði," sagði Margeir Mar-
geirsson.
-S.dór
Stál og skip í Reykjanesbæ:
Verslunin endur-
byggð á sama stað
Á veiðum í Tjörninni
Ungur maður var handtekinn á hádegi á laugardag fyrir að reyna að veiða
fisk í Tjörninni í Reykjavík þó að ekkert væri þar að hafa á stöngina. Þegar
lögregla kannaði málið kom í Ijós að það átti að vera glens í steggjapartíi að
láta hann „veiða“ í Tjörninni. Manninum var sleppt og er ekki búist við að
neinir eftirmálar verði af veiðiferðinni.
-GHS/DV-mynd Sveinn
DV, Suðurnesjum:
„Það bendir allt til að við förum í
mjög hraða uppbyggingu. Við erum
að bíða eftir niðurstöðum tækni-
manna sem eru að skoða svæðið,
aðstæður og valkosti," sagði Guðjón
Stefánsson, kaupfélagsstjóri Kaup-
félags Suðurnesja. Félagið rak al-
hliða byggingarvöruverslun í Járn
& Skip í Keflavík sem brann til
kaldra kola nýlega.
Tekin hefur verið sú ákvörðun
stjórnenda kaupfélagsins að endur-
byggja Járn & Skip á sama stað. Frá
því að bruninn varð hefur öflugt
hreinsunarstarf staðið yfir og er
henni að ljúka í dag. Veggstoðirnar
standa einar og sér eftir og verða
brotnar þegar endurbyggingin
hefst.
Járn & Skip var 900 m2 að stærð
og talið er að tjónið sé á milli
Tæknimenn skoöa svæðið. DV-mynd ÆMK
100-150 milljónir. Verslunin hefur húsinu sem slapp naumlega í brun-
opnað bráðabirgðaverslun í pakk- anum. -ÆMK
Dagfari
Þeir fóru í fríið
Fólk gerir sér ýmislegt til dund-
urs í sumarfríum. Einn og einn
hefur vit á því að nota fríið til að
gera ekki neitt, enda eru sumar-
leyfi til þess hugsuð að fólk geti
hvílt sig og slappað af. Langsam-
lega flestir eru þó þeirri áráttu
ánetjaðir að skipuleggja sumarfrí-
in út í æsar. Þeir setjast upp í bíla
sína og endasendast landshluta á
milli úti á þjóðvegunum. Aðrir
eiga sér sumarbústaði og unna sér
ekki hvíldar við viðgerðir og end-
urbætur, gróðurstörf og land-
græðslu og ætla sig lifandi að
drepa í bakinu. Svo eru þeir sem
stunda veiðar eða ana upp um fjöll
og firnindi og allt er þetta fólk að
niðurlotum komið þegar það loks-
ins kemst úr sumarfríinu til starfa
á nýjan leik.
Já, það er margt bölið sem fólk
kallar yfir sig í sumarleyfunum.
Ekkert jafnast þó á við þá sjálfspín-
ingu og sjálfskaparvíti sem Al-
þýðuflokksfélag Reykjavíkur bauð
félagsmönnum sínum upp á um
síðustu helgi. Kratarnir efndu sem
sé til sumarferðalags um Borgar-
fjörð og buðu með sér í ferðalagið
fólki úr Alþýðubandalaginu og
Þjóðvaka til að ræða um hugsan-
lega sameiningu vinstri manna!
Féleg skemmtun það.
Það er sem sé ekki nóg að bless-
að fólkið gangi í Alþýðuflokkinn og
hafi það að áhugamáli að stunda
pólitík og láta sig dreyma um sam-
einingu vinstri flokkanna heldur
tekur það sér frí frá daglegum önn-
um sínum í pólitíkinni til að ferð-
ast upp í Borgarfjörð til að halda
áfram að tala um sameininguna.
í þessu ferðalagi féllu mörg fleyg
orð, meðal annars komst Bryndís
Hlöðversdóttir, þingmaður Alþýðu-
bandalagsins, svo að orði: að þjóð-
in hlyti að vera í meira lagi geggj-
uð að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson
sem forseta ef Alþýðubandalagið
væri eins geggjaður flokkur og
margir halda.
Þetta er auðvitað rétt hjá Bryn-
dísi, að þjóðin sé geggjuð og þarf
hvorki Alþýðubandalagið né Ólaf
Ragnar til að sanna þá kenningu,
en geðveiki íslendinga er ekki
nærri því komin á það stig að
vinstrimenn sameinist í einum
flokki. Það þarf meira til en kosn-
ingu Ólafs Ragnars og það þarf
meira til en sumarferðalag hjá Al-
þýðuflokksfélagi Reykjavíkur.
Því meir sem talað er um þessa
sameiningu því sundraðri verða
vinstrimenn og skýringin er ein-
föld: þeir eru sífellt að telja upp
það sem kemur í veg fyrir samein-
inguna.
Nú er það nýjast í sumarferða-
lagi kratanna að þeir fengu þing-
mann Alþýðubandalagsins til að
halda ræðu um það hvað Alþýðu-
bandalagið væri ómissandi í sam-
einingunni, enda sannfærðist þing-
maðurinn um það með kjöri Ólafs
Ragnars til forseta að Alþýðu-
bandalagið væri ekki eins klikkað-
ur flokkur og af hefur verið látið.
Forsetakjörið hefur með öðrum
orðum hleypt þeim allaböllum
kappi í kinn. Ekkert getur orðið úr
sameiningu nema aðrir flokkar
sameinist Alþýöubandalaginu. Það
gera vinsældir Ólafs Ragnars, sem
kemur úr Alþýðubandalaginu, og
hann hefði sem sé aldrei verið kos-
inn vegna þess að hann kemur úr
Alþýðubandalaginu heldur þrátt
fyrir það. Þetta fengu kratarnir að
heyra uppi í Borgarfirði þegar þeir
efndu til skemmtiatriða á áningar-
stað, .sem hlýtur að hafa verið
ferðalöngunum til óblandinnar
ánægju. Enda veltust þau um í
dögginni, í táknrænni sameiningu,
Össur og Ásta R. sem bæði hafa
skipt um flokka til að sameinast í
nýjum flokki, þótt þau séu enn sitt
í hvorum flokknum.
Já, þetta hlýtur að hafa verið
fínt sumarfrí hjá Alþýðuflokksfé-
lagi Reykjavikur, sem hélt upp á
helgarfríið með því að pína sig í
sjálfseyðingarhvöt sameiningar-
innar.
Dagfari