Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1996, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 1996
11
Fréttir
Risatónleikar í Werchter í Belgíu:
Björk vakti meiri hrifn-
ingu en Bowie og Pulp
Björk Guðmundsdóttir sló held-
ur betur i gegn á risatónleikum
sem haldnir voru í Werchter í
Belgíu um síðustu helgi. Tugþús-
undir manna sóttu tónleikana sem
voru óvenju stórir þar sem það var
verið að fagna þvi að tveir áratug-
ir eru liðnir siðan þessir tónleikar
voru fyrst haldnir. Þrjátíu hljóm-
sveitir komu fram og meðal þeirra
voru flytjendur eins og David
Bowie, Pulp, Alanis Morrissette,
Red Hot Chilli Peppers og Rage
Against the Machine
íslenski fáninn á lofti
„Þetta var alveg meiri háttar
flott hjá Björk, hún skaraði fram
úr á þessum tónleikum," sagði
Marta Birna Baldursdóttir sem
sótti tónleikana í Werchter ásamt
vinkonu sinni, Sigríði Víðis Jóns-
dóttur. Hún segir að það hafi verið
mun meiri stemning en hjá David
Bowie sem mun hafa vakið næst-
mestu hrifninguna á tónleikunum.
„Eftir að Björk var búin að spila
kom Neil Young fram og þá
streymdi mannfjöldinn frá sviðinu
enda fólk greinilega búið að sjá
það sem það vildi sjá. Við vorum
alveg í loftinu eftir að Björk var
búin að spila og veifuðum islenska
fánanum ákaft,“ sagði Marta að
lokum.
-JHÞ
Björk Guömundsdottir heldur upp-
teknum hætti og heillar tónleika-
gesti með frábærri sviðsframkomu.
Nú síðast heillaði hún gesti á
risarokkhátíð í Werchter í Belgíu
upp úr skónum.
Ný kynslóð
af flæöilínum
Marel hf. og norska fyrirtækið
Hydrotech Gruppen AS hafa undir-
ritað samning sem gerir ráð fyrir
því að Marel hf. afhendi Hydrotech
Grubben AS laxaflæðilínukerfi,
ásamt flokkurum og skurðarvél.
Samningurinn er að upphæð 95
milljónir króna. Gert er ráð fyrir
afhendingu búnaðarins í haust og í
lok ársins.
Samningurinn er athyglisverður
þar sem samkvæmt honum er Mar-
el falið að þróa nýja kynslóð af
flæðilinum sem verður sérstaklega
hönnuð fyrir lax með áherslu á
vörumeðhöndlun. Vinnslukerfið
gerir einnig sérstaklega ráð fyrir
að framleiðslu í sérpakkningar.
Marel var valið til þessa verkefnis
vegna sterkrar stöðu fyrirtækisins
í vinnslukerfum fyrir bolfisk, en
nauðsynlegt var að þróa sérstakar
linur fyrir lax. Gert er ráð fyrir að
hin nýja lína komi til með að hafa
umtalsverð áhrif á það hvernig lax
verður unninn í Noregi á næstu
árum. Samstarfsaðili Marel við
þróun laxavinnslukerfisins er
Ingólfur Árnason, hönnuður frá
Akranesi.
Borgarráð
um flutning
Landmælinga
Borgcuráð lýsir undrun sinni á
þeirri ákvörðun rikisstjómarinnar
að flytja rótgróna rikisstofnun,
Landmælingar íslands, frá Reykja-
vík til Akraness, án sýnilegs rök-
stuðnings.
í tilkynningu frá borgarráði kem-
ur fram að það telji ráðstöfunina
fela í sér röskun á högum tuga
starfsmanna og fjölskyldna þeirra.
Einnig sé þetta atlaga að atvinnulífl
höfuðborgarinnar sem eigi undir
högg að sækja um þessar mundir,
að mati borgarráðs. Það hvetur rík-
isstjórnina til að standa betur að
undirbúningi slíkra mála og skoða
allar hliðar þess áður en hrapað sé
að fljótfærnislegum niðurstöðum.
-saa
Norræna ráðherranefndin:
Samræmd viðhorf
varðandi sjálfbæra
nýtingu skóga
Norrænir ráðherrar landbúnaðar
og skógarnýtingar hafa orðið sam-
mála um samræmd viðhorf í þá
veru að stuðla að sjálfbærri nýtingu
skóga á heimsvísu. Sjónarmið þessi
verða kynnt á fundi í sérfræðinga-
hópi Sameinuðu þjóðanna um skóg-
amýtingu síðar i haust. Norður-
löndin leggja m.a. áherslu á áætl-
anir í hverju landi fyrir sig um nýt-
ingu skóga svo og vistvæna um-
hirðu náttúrulegra skóga. Ráðherr-
ar landbúnaðar og skógarnýtingar
hafa hist á Húsavík á íslandi.
Norðurlöndin hafa nú á vettvangi
Norrænu ráðherranefndarinnar
orðið sammála um að leggja sameig-
inleg norræn sjónarmið fyrir sér-
fræðingahópinn um málefni skóga.
Ráðherrar telja að mikilvægustu
markmiðin skuli vera að stuðla að
sjálfbærri nýtingu skóga, að draga
úr minnkun skógaauðlinda heims-
ins og að varðveita fjölbreytileika
náttúrunnar. Samkomulagið skal ná
til allra skóga heimsins.
1114
IIS|
•J
Frá upptökum á kvikmyndinni Benjamín dúfa. Ekki hefur gengið sem skyldi að greiða öllum leikurunum launin sín.
DV-mynd GVA
Kvikmyndin Benjamín dúfa:
Leikarar hafa ekki fengið
sín laun að fullu greidd
Nú er liðið um það bil eitt rog
hálft ár síðan tökum lauk á kvik-
myndinni Benjamín dúfa. Ekki hef-
ur öllum gengið vel að fá greitt fyr-
ir vinnu sína við gerð myndarinn-
ar.
„Ég átti að fá launin mín greidd,
fimmtíu þúsund krónur, fyrsta des-
ember 1994, mánuði eftir að tökum
á myndinni lauk, og hef gengið eft-
ir þessu liggur við í hverri viku síð-
an. Alltaf er sagt að greiðslan komi
í næstu viku,“ sagði Matthías
Matthíasson í samtali við DV.
Matthías er 16 ára, einn þeirra
sem lék í myndinni Benjamín dúfa.
Tökum á myndinni lauk á árinu
1994. Matthías telur að með dráttar-
vöxtum sé upphæðin komin upp í
69 þúsund krónur.
„Ég hef forvitnast um hvort þeir
sem voru í álíka stórum hlutverk-
um og ég hafi fengið sínar greiðslur
og þeir segjast hafa fengið þær.“
„Ég hringdi í þann sem átti að sjá
um greiðslumar um miðjan júní en
hafði þá ekki náð í hann í töluverð-
an tíma. Ég sagði honum þá að ég
færi með þetta í blöðin ef hann
borgaði ekki. Þá borgaði hann mér
25 þúsund krónur og sagði að af-
gangurinn kæmi í næstu viku en
ekkert gerðist. Síðast talaði ég við
hann í lok júní og þá lofaði hann að
ég fengi það sem eftir var að greiða
daginn eftir en það kom ekki,“
sagði Matthías.
DV hefur itrekað reynt að ná
sambandi við framleiðanda mynd-
arinnar, Baldur Hrafnkel Jónsson,
síðan sunnudaginn 7. júlí og skilið
eftir skilaboð til hans. Þegar í hann
náðist, miðvikudaginn 10. júlí,
sagði hann að vegna fjárhagsörðug-
leika, sem rekja mætti til þess að
myndin var dýrari en áætlað var og
einnig að aðsóknin hefði ekki verið
eins og reiknað var með, hefði ekki
enn tekist að greiða öllum sín laun
en úr því yrði bætt í þessum mán-
uði.
Baldur sagðist hafa lofað Matthí-
asi að greiða afganginn nú um þetta
leyti og það hefði hann gert eftir
helgina.
DV hafði samband við Matthias
eftir samtalið við Baldur. Baldur
var þá nýbúinn að hringja í Matth-
ías og segja honum að afgangurinn
af laununum væri kominn inn á
reikning þess síðarnefnda. Greidd-
ar voru, samkvæmt upplýsingum
frá Matthíasi, 25 þúsund krónur inn
á reikninginn miðvikudaginn 10.
júli, sama dag og DV talaði við
Baldur. Þá hefur Matthías fengið 50
þúsund krónurnar en enga vexti.
Svo virðist sem vitneskjan um að
DV væri að vinna frétt um málið
hafi komið því til leiðar að Matthí-
as fékk þessar 25 þúsund krónur.
-ÞK