Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1996, Blaðsíða 22
26
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 1996
Menning
Húsvísk fjölmiölun:
Heimarás og sex
erlendar rásir
DV, Húsavík:
Byrjað var að grafa fyrir jarð-
strengjum sem munu liggja frá hús-
næði Húsvískrar fjölmiðlunar á
Héðinsbraut-1 að Sjúkrahúsi Húsa-
; víkur í siðustu viku. Móttöku- og
sendibúnaðurinn verður á þaki
sjúkrahússins og verður þar einnig
settur upp diskur til móttöku á efni
frá erlendum sjónvarpsrásum.
Einnig verður sendibúnaðurinn á
sama stað.
Áætlað er að senda út 6 erlendar
rásir og eina heimarás. Að sögn Jó-
hanns Bjarna Einarssonar, tækni-
stjóra hjá Húsvískri fjölmiðlun,
munu útsendingar hefjast í byrjun
september, svo framarlega sem ekk-
ert óvænt kemur upp á.
-AGA
DV
Grafið fyrir jarðstrengjum.
DV-mynd Albert
I stöðugu sambandi!
Aö lokum keyptu Jara og Einar Mitsubishi MK-III farsíma meö númeri, ásamt fylgihlutum, á kr. 42.000.
Þaö geröu þau til þess aö Jara geti alltaf náö í Ejnar sem er sífellt á ferö og flugi. Einnig keyptu þau
AEG eldhúsviftu með filter á kr. 5.000. Fyrir afganginn keyptu þau sér pottablóm. Þau náöu aö kaupa
allt á listanum hér fyrir neðan fyrir 300.000 kr.
Þau hafa keypt allt milli himins og jaröar, s.s. sófasett-, sófaborð, borðstofuborð og-stéle, homskáp með
-§le4, hillusamstæðu, náttborð, rúmfatakista, þurrkara-,-vesk, blöndunartæki, oldhúsviftu, standiampa,
sjéfweifp, örbylgjuofn, farsíma og blóm.
DV gaf þeim 300.000 kr. í brúöargjöf til aö byggja upp framfíðarheimili sitt með hlutum sem þau fundu
í gegnum smáauglýsingar DV.
oWtmii lihimi^
Smáauglýsingar
550 5000
Egilsstaöir:
Áhuga-
verðar
sýningar
útileik-
hússins
DV, Egilstöðum:
Útileikhúsið „Hér fyrir austan“
frumsýndi 4. júlí en þetta er fjórða
árið sem leikhúsið starfar. Sýndir
eru tveir áhugaverðir leikþættir.
„Þegar lífið var síld, grútur og sæt-
ir strákar" eftir Ágústu Þorkelsdótt-
ur á Refstað í Vopnafirði sem lands-
þekkt er fyrir skelegga þætti í út-
varpi og fer Ágústa með eitt hlut-
verkið. Þar rifja stútungskellingar
upp minningar frá sildarárunum
eftir 1960 en ungar stúlkur sýna
okkur inn í þann minningaheim.
Þá er þáttur um Pál Ólafsson
skáld á Hallfreðarstöðum. Magnús
Stefánsson, kennari á Fáskrúðsfirði,
setti saman og flytur ágætavel svo
áhorfendur sjá Pál þar ljóslifandi.
Páll Ólafsson er eitt ástsælasta
skáld Austfirðinga og hér er sýnt er
hann kemur úr kaupstaðaferð á
Seyðisfjörð með kútinn undir hend-
inni og áir í Egilsstaðaskógi á leið
heim, Magnús er einnig leikstjóri
útileikhússins í ár. Þessir þættir
báðir eru hinir athyglisverðustu.
Þá á þjóðdansahópurinn Fiðrildin
stóran þátt í sýningunni sem áður
og kennir m.a. gestum einn dans.
Útileikhúsið sýnir á miðvikudags-
kvöldum til 14. ágúst. Það er nú að
verða nokkuð þekkt sem sjá má af
því að ferðaskrifstofa hefur sett það
inn á áætlun fyrir hópa sína.
Þannig verða 14 Japanir á sýningu
10. júlí. Erlendir gestir fá kynningu
á efni þáttanna á ensku, þýsku eða
frönsku og geta þannig notið þeirra
sæmilega.
-SB
Frá sýningu útilejkhússins í Hall-
ormsstaöarskógi síöastliöiö sumar.