Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1996, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 1996
Útlönd
Sprengjur finnast í Lundúnaborg:
Reynt að bjarga frið-
arferlinu á N-írlandi
Stjórnmálamenn munu í dag
reyna að bjarga rústunum af friðar-
ferlinu á Norður-írlandi. Stjórnir
Bretlands og írlands halda neyðar-
fund þar sem reynt verður að bjarga
sáttaviðræðunum sem eiga að hef]-
ast aftur í Stormont-kastala í dag.
Reiði írskra þjóðernissinna vegna
þeirrar ákvörðunar lögreglu að
leyfa mótmælendum að ganga um
hverfi kaþólikka kom fram í nokk-
urra daga óeirðum í Belfast,
Londonderry og fleiri bæjum um
allt Norður-Irland og náði hámarki
með sprengju sem öfgafullir kaþ-
ólikkar komu fyrir á hóteli í bæn-
um Enniskillen. Ásakanir bárust á
víxl og ekki síst á milli bresku og
írsku stjórnanna.
„Við verðum að byrja aftur á því
að byggja upp friðarvilja," sagði
írski forsætisráðherrann John
Bruton sem vakti reiöi breskra
stjórnvalda með því að gagnrýna þá
ákvörðum lögreglu að hefta ekki för
göngumanna.
„Ummæli hans voru ekki til bóta
en það er nú allt að baki,“ sagði
John Major, forsætisráðherra Bret-
lands, í viðtali og neitaði um leið að
stjóm hans hefði haft áhrif á
ákvörðun lögreglunnar. Major sagði
báða aðila eiga sök á ofbeldinu og
slík framkoma yrði ekki þoluð.
Dermot McShane, þrjátíu og
fimm ára gamall fyrrum meðlimur í
INLA, klofningshópi úr IRA, var
jarðsettur i Londonderry í gær.
McShane er fyrsti maðurinn sem
lætur lífið í þessari nýjustu óeirða-
öldu á Norður- írlandi en hann lenti
fyrir herbíl á laugardaginn var.
í gær tókst bresku lögreglunni að
koma í veg fyrir yfirvofandi spreng-
utilræði írska lýðveldishersins þeg-
ar hún réðst með táragasi til inn-
göngu í hús í suðurhluta Lundúna-
borgar. Þar fann lögreglan sprengju-
gerðarefni sem nægt hefðu í þrjátíu
og sex sprengjur. Sjö menn voru
handteknir og er þetta í annað
skiptið sem lögreglan finnur mikið
magn sprengiefnis í húsi í Lundúna-
borg síðan IRA rauf vopnahléð í
febrúar síðastliðnum.
Reuter
Sambýliskona Dermots McShane, sem lét lífiö í óeiröunum á N-írlandi, sést
hér viö jaröarför hans í gær.
Jeltsín vakti furðu þegar hann aflýsti fundi með A1 Gore:
Spurningar um heilsufar
og drykkju verða áleitnari
Furðulegt uppátæki Borisar
Jeltsíns, þegar hann sagðist vera
farinn í fri og frestaði fyrirhuguð-
um fundi með A1 Gore, varaforseta
Bandaríkjanna, í gær hefur á ný
vakið upp spurningar um heilsu for-
setans og drykkju. Uppátæki
Jeltsíns kom Gore í bobba og í það
hlutverk sem hann hefði helst viljað
vera án: aö svara spumingum um
heilsufar Rússlandsforseta.
Bandarískir embættismenn
reyndu að gera lítið úr aíboðun
fundarins með Gore og þó ákveðið
hefði verið að Jeltsín mundi þrátt
fyrir allt hitta Gore um hádegi í dag
héldu vangaveltur um heilsufar
hans áfram.
Jeltsín hefur tvisvar fengið
hjartaáfall síðastliðið ár og þriggja
vikna hvarf hans þremur dögum
fyrir kosningarnar 16. júni hefur
komið flestum einkennilega fyrir
sjónir. Vakti þetta spurningar um
heilsu hans og meinta ofdrykkju og
ekki minnkuðu vangavelturnar þeg-
ar hann tilkynnti skyndilega að
hann mundi taka hálfsmánaðarfrí í
þann mund sem hann átti að hitta
Gore.
Bill Clinton Bandarikjaforseti
sagði í gær að hann hefði enga
ástæðu til að ætla annað en Jeltsín
væri við góða heilsu, hann væri
ekki haldinn alvarlegum sjúkdómi.
Sagðist hann fullviss um að nýend-
urkjörinn forseti mundi sitja kjör-
tímabilið á enda. Clinton sagðist
hafa talað viö Jeltsín i síma fyrir
nokkrum dögum og hefði Jeltsín þá
lýst yfir ánægju sinni með að Gore
kæmi í heimsókn til Moskvu. Sagði
Clinton að þörf Jeltsíns fyrir frí
væri ekki skrýtin í ljósi erfiðrar
kosningabaráttu. Hefðu talsmenn
Jeltsins einmitt sagt að hann væri
örþreyttur og þyrfti á fríi að halda.
Gore ætlar að nota fundinn með
Jeltsín í dag til að ræða átökin í
Tsjetsjeníu. Hann segir að engar
ákvarðanir hafi verið teknar en
veik von væri til að vopnahléi yrði
komið á aftur og rússneskar her-
sveitir hyrfu frá svæðinu. Reuter
Viktor Tsjernomirdín, forsætisráöherra Rússlands, skálar hér viö Al Gore, varaforseta Bandaríkjanna, og eiginkonu
hans, Tipper Gore, viö málsverö í Moskvu í gær. Jeltsín haföi þá komið Gore í vandræöi með því aö aflýsa fundi með
honum fyrr um daginn. Símamynd Reuter
Clinton óhress
meö afstöðu
til Kúbu
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sakar bandamenn sína í Evrópu
um að hundsa beiöni um að ein-
angra Kúbu en hann íhugar nú
hvort hann eigi að láta sérstök
lög gegn Kúbu koma til fram-
kvæmda. Utanríkisráðherrar
Evrópusambandsríkja ákváðu á
fundi sínum í Brussel í gær að
grípa til gagnaðgerða gegn
stjómvöldum í Washington falli
Clinton ekki frá umdeildum at-
riðum í Helms-Burton lögunum.
Búist er við ákvöröun Clintons í
dag.
í Washington þóttust menn sjá
merki þess að Clinton vildi forð-
ast að styggja bandamenn sína í
Evrópu en A1 Gore varaforseti
sagöi í Moskvu að Bandarikja-
stjóm væri staðráðin í aö beita
áframhaldandi þrýstingi á Kúbu
og koma stjóm Castros frá völd-
um. í Hvíta húsinu sagði tals-
maður forsetans að Evrópumenn
hefðu tekið skcikkan pól í hæðina
með því að kvarta yfir lögunum í
stað þess að koma meö tillögur
að einangrun Kúbu.
Biliö milli rikra
og fátækra
breikkar
Hinir ríku verða rikari og hin-
ir fátæku fátækari. Um 1,6 millj-
arður manna er lakar staddur en
hann var fyrir 10 árum. Svo seg-
ir í nýrri skýrslu frá þróunar-
verkefni Sameinuðu þjóðanna.
En hinir riku hafa það enn
betra. 358 milljarðamæringar
heimsins eiga meiri eignir en
nemur sameinuðum tekjum
þeirra landa þar sem 45 prósent
jaröarbúa eiga heima.
Talsmaður SÞ segir heiminn
skiptast í tvo efnahagslega póla
og sama sé upp á tengingum inn-
an einstakra ríkja. Ef fram held-
ur sem horfir veröi bilið milli
ríkra og fátækra ekki lengur
óréttlátt heldur ómannlegt.
Þrátt fyrir gríðarlegan hagvöxt
í 15 ríkjum síðastliðna þrjá ára-
tugi hefur 1,6 milljarður manna í
89 ríkjum það verra en fyrir 10
árum. Munurinn milli ríkra og
fátækra er mestur í þróunarríkj-
um en minni hjá iönvæddum
ríkjum. Reuter
Stuttar fréttir e»v
Jarðskálfti í Mexíkó
Kraftmikill jarðskjálfti skók
suðurhluta Mexíkó í gær. Engan
sakaði en titringurinn fannst í
höfuðborginni og margir fylltust
skelfingu enda eru Mexíkóbúar
vanir hörmulegum jarðskjálft-
um. Seinasti stóri skjálfti í land-
inu drap 23 manneskjur í októ-
ber sl.
Clinton í
Tvær nýjar
skoðanakann-
anir sýna að
Bill Clinton
hefur nú um
20 til 24 pró-
sentustiga
forskot á Bob
Dole í kapp-
hlaupinu að Hvíta húsinu.
Réttarhaldi frestað
Réttarhaldi yfir fjörutíu og
átta tyrkneskum lögreglumönn-
um, sem ákærðir hafa verið í
tengslum við morö á blaðamanni
sem var i haldi lögi-eglu, var
frestað í gær. Ekki er vitað
hvenær réttarhaldið fer fram.
Vélhjólamaður skotinn
Danskur meölimur mótor-
hjólagengisins Bandidos var
skotinn til bana nálægt
Drammen í Noregi í gærkvöldi.
Maöurinn var skotinn mörgum
sinnum í hausinn í yfirgefnu
klúbbhúsi og hann lést skömmu
síðar á sjúkrahúsi í Osló. Ekki
er vitað hver framdi ódæðið.
Juppe ekki svartsýnn
Alain
Juppe, for-
sætisráð-
herra Frakk-
lands, segir
að ríkisstjórn
hans sé
hvorki svar-
stýn né óvirk
í lausn vandamála. Yfirlýsing
hans kemur í kjölfar hvatningar
frá Jaqcues Chirac um að koma
hjólum atvinnulífsins á skrið.
Jarðskjálfti í Rússlandi
Jarðskjálfti, sem mældist 7,3
á Richtersskala, skók Kamchat-
kaskaga í Rússlandi í morgun.
Matareitrun I Japan
Meira en ljögur þúsund skóla-
börn eru nú orðin veik vegna
matareitrunar í Osaka í Japan.
Talið er að skólamálsverðir hafi
valdið faraldrinum sem ekki
hefur náðst að halda í skefium
Fundu marijúana
Lögreglan í Mexíkó gerði
fimm tonn af marijúana upptæk
og handtók 41 grunaðan um
fikniefnasmygl.
Internetsjónvarp
MSNBC
heitir ný
kapalsjón-
varpsstöð
þar sem
sjónvarps-
stöðin NBC
og tölvuris-
inn
Microsoft leggja saman krafta
sína. Munu notendur Intemets-
ins geta horft á stöðina í tölvum
sínum.
Vill friðarviðræður
Leiðtogi útlagastjómar Kúrda
á Ítalíu hefur boðið stjórnvöld-
um í Tyrklandi til friðarvið-
ræðna.
Verðlaunum lofað
Yfirvöld i Moskvu hafa lofað
67 milljónum tfi handa þeim
sem getur leitt til handtöku
þeirra sem stóðu að tveimur
sprengjutilræðum í borginni
fyrir helgi.
Tróðust undir
Um 60 manns tróðust undir
eða köfnuðu í miklum troðningi
sem varö á trúarhátíð hindúa á
Indlandi. Reuter
góðum gír