Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1996, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1996, Blaðsíða 36
m tii miki/s aó I \ > 18) (21) (29) KIN FRETTASKOTID SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjalst,óhað dagblað ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ1996 ^ hestbaki Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti unga stúlku sem dottið hafði af hest- baki á móts við bæinn Kross í Lund- arreykjardal síðdegis í gær. Sjúkra- bíll fór á vettvang en ekki þótti þor- andi að flytja stúlkuna með bíl þar sem talið var að bakmeiðsl hennar væru alvarleg. Stúlkan var flutt á Sjúkrahús Reykjavikur í Fossvogi en þar fengust ekki upplýsingar um líðan hennar í morgun. Samkvæmt upplýsingum DV mun stúlkan ekki hafa þurft að fara í aðgerð. -sv Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti stúlkuna þar sem ekki var taliö þor- andi að flytja hana með sjúkrabíl. Bakmeiðsl hennar voru álitin það al- varleg. DV-mynd S Féll af Bein í Þing- vallavatni Kafari, sem var að kafa í gjánni Silfra í Þingvallavatni síðastliðinn sunnudag, fann bein í vatninu sem talin eru geta ver- ið mannabein. Að sögn lögregl- unnar á Selfossi er aðeins um að ræða hluta úr kjálka og sýndist mönnum sem búturinn væri það stór að hann gæti varla verið úr manni. Tvær til þrjár tennur voru i kjálkanum og verða bein- in rannsökuð nánar á næstunni. -sv Innbrot í bíla: Tveir teknir Tveir menn á tvítugsaldri voru handteknir í Árbæjarhverfi á fjórða tímcmum í nótt eftir að hafa brotist inn í bíla. Þeir höfðu m.a. haft hljómflutningstæki upp úr krafsinu þegar lögreglan stöðvaði þá við iðju _^sína. Þeir hafa báðir komið við sögu ■ lögreglu áður. -sv VSÍ segir hækkun dagvistargjalda nema 18 prðsentustigum: Hærri leikskólagjöld valda verðbólgu „Það bendir ekkert til þess að verðbólga sé á uppleið. Það er hins vegar athyglisvert hvað það var sem gerði það að verkum að ein- hver verðbólga mældist í síðasta mánuði, en það er sú staðreynd að Reykjavíkurborg hækkaði dagvist- argjöld um 18%. Það er áhyggjuefh- ið,“ segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, í samtali við DV. Þórarinn segir að verðlag í land- inu sé stöðugt, ekki síst vegna þess að mjög virk samkeþpni sé í hinum samkeppnisháða hluta atvinnulífs- ins. Hins vegar sé ekki auðvelt að sjá við því sem stjómmálamenn- imir em að gera af þessum toga. Verðbólga er hér 2,5-2,8% sam- kvæmt vísitölumælingu Hagstof- umiar, sem er mjög nærri meðal- verðbólgu í rikjum Evrópusam- bandsins, en hækkunin á leikskóla- gjöldunum vegur þar mjög þungt. Bergur Felixson, framkvæmda- stjóri Dagvistar barna, segir af og frá að hækkunin vegi þetta þungt og hún sé hreint alls ekki 18% held- ur um þaö bil 7% og hafl Hagstofan ofáætlað verðlagsáhrif hennar í visitölunni. „Það varð breyting á leikskóla- gjöldum og þeir sem reikna út vísi- tölur vii-ðast eiga í ei-flðleikum með að reikna út áhrifin af ná- kvæmni," segir Bergur og segir að Hagstofan hafl með þessu móti hækkað skuldir landsmanna meira en ástæða var til. Bergur segir að gjaldskrár Dag- vistar barna hafi breyst verulega, bæði til lækkunar og hækkunar. Hæsta gjaldið hafi lækkað. Það hafi verið 19.600 lækkaði niður í 18.750. Þá hafi enn fremur verið tekinn upp systkinaafsláttur sem hafi áhrif á heildarpakkann þannig að meðalhækkunin nemi um 7% sem fyrr segir. Þetta er einnig mat Guðmundar Gylfa Guðmundssonar, hagfræð- ings ASÍ. Guðmundur Gylfi tekm- hins vegar fram í samtali við DV að upplýsingar um hækkanir leik- skólagjaldaima séu ófullnægjandi af hálfu Dagvistar bama, þannig að ekki sé hægt á grundvelli þeirra að reikna út raunverulega heildar- hækkun og verðlagsáhrif. Þessar upplýsingar hafi Hagstofan heldur ekki haft við útreikning vísitölunn- ar en hafi að því er virðist engu að síður ofinetið hækkunina allríflega. Guðmundur Gylfi segir að sé mat Dagvistar bama rétt á því að um sé að ræða 7% hækkun telji hann ekki ástæðu af hálfu ASÍ til að gera athugasemd við hana vegna þess að gjöldin hafi ekkert hækkað um fjögurra ára skeið þar til ný gjöld tóku gfrdi árið 1995. -SÁ R. TTl i fí | t 1! _• m " " { Ju p » u|JJ Undirbúningur er á fullu í Alþingishúsinu vegna innsetningar Ólafs Ragnars Grímssonar í embætti forseta íslands. í gær var verið að gera stokka til að fela leiöslur ofan í gólfinu í Alþingishúsinu. Þær hafa legið undir teppinu og hafa alþingismenn ekki getað gengiö um salinn þegar atkvæðagreiösla hefur staöið vegna hættu á aö slái út. DV-mynd GVA Sameiningarmál: Vilji hjá Þjóðvaka - segir Össur Skarphéðinsson „Mér sýnist að það sé mikOl vOji hjá þingmönnum Þjóðvaka að sam- einast Alþýðuflokki. Það er einnig viss áhugi hjá krötum en minni og með öðram hætti hjá Alþýðubanda- laginu. En ég fuOyrði að það hefúr enn ekkert ákveðið gerst í þessum málum annað en að menn hafa talað saman,“ sagði Össur Skarphéðins- son alþingismaður í samtali við DV. Eins og skýrt var frá í DV fyrir nokkru átti Jón Baldvin Hannibals- son óformlegan fund með Ágústi Einarssyni og Svanfríði Jónasdótt- ur, þingmönnum Þjóðvaka, í síðasta mánuði þar sem þessi mál voru rædd en engar ákvarðanir teknar, að sögn Svanfríðar. -S.dór Lögreglumenn í Atlanta á heimleið: Svikin loforð Nokkrir íslensku lögreglumann- anna, sem fóru tO Atlanta í sumar- fríinu sínu i sjálfboðavinnu á ólympiuleikunum, hafa gefist upp á aðbúnaðinum og eru nú á leið heim, að sögn Hilmars Þorbjörns- sonar hjá lögreglunni í Reykjavík. „Þeir telja sig ekki geta verið þarna af mörgum ástæðum. Fyrst og fremst var ekki staðið við það sem talað var um við þá. Þeim var lofað tólf daga námskeiði í öryggis- vörslu fyrir leikana. Þess vegna fóra þeir svona snemma. Nám- skeiðið var bara í einn og hálfan dag og síðan voru þeir aðgerða- lausir. Aðbúnaðurinn er einnig skelfOegur. Þeir vora settir inn í skóla í einu versta gettói Atlanta- borgar. Það bárast fregnir af því að norskur öryggisvörður hefði verið stunginn úti á götu og það er skotið á húsið á nóttunni og jafn- vel á menn á götunni,“ greinir Hilmar frá. Hann segir íslensku lögreglu- mennina í Atlanta hafa greint frá því að þeim hafi verið lofað leið- réttingum en aUt verið svikið. „Þeir segjast hafa annað við sum- arfriið sitt að gera en að hanga yfir þessari vitleysu. Þeir ætluðu að hafa gagn af þessu.“ Fréttir herma að stór hluti norsku, áströlsku og svissnesku lögreglumannanna, sem komu í sömu erindum og þeir íslensku, hafi snúið heim. Um 20 íslenskir lögreglumenn fóra til löggæslustarfa 2. júlí tO Atlanta í sjálfboðavinnu við örygg- isgæslu á ólympiuleikunum. -IBS "er verpból gA RÁ BARNASJÚK- DÓMUR? L O K I Veðrið á morgun: Gola eða kaldi Á morgun verður suðvestan- gola eða kaldi á landinu. Súld eða rigning öðru hverju sunn- an- og vestanlands en þurrt og víða bjart veður norðanlands og austan. Hiti verður á bOinu 10 til 18 stig, hlýjast á Norður- og Austurlandi. Veðrið í dag er á bls. 36 1 533-1000 r/ Ertu búinn að panta? dagar til Þjóðhátíöar FLUGLEIDIR Innanlandssími 50 - 50 - 200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.