Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1996, Side 16
i6 Qlveran
ÞRIÐJUDAGUR 16. JULI 1996
r
Heilsuefling aldraðra:
Bók tileinkuð and-
Hefðbundið sport á óhefðbundinn hátt:
Syndir daglega
í sjónum á Jaðarsbakka
- og jafnvel oftar en einu sinni á dag
DV, Akranesi:
Það eru ekki margir íslendingar sem synda reglulega
í sjónum sér til heilsubótar en Tryggvi Bjömsson er þó
einn þeirra. Hann er 69 ára skrifstofumaður hjá Sýslu-
mannsembættinu á Akranesi. Hann býr við Langasand
á Skaganum og er ekki að undra þótt fógur ströndin hafi
lokkað hann í sundsprett í sjónum. Tryggvi, sem ættað-
ur er af Ströndunum eins og margir afreksmenn, segist
hafa synt í sjónum síðan hann var krakki en mismikið
þó. Núna byrjar hann að synda í sjónum um miðjan maí
og syndir fram í miðjan september ef hitastig sjávar
leyfir. Eftir að Tryggvi flutti frá Ströndum á Jaðars-
bakkann hefur sundferðum hans farið tjölgandi. „Á Jað-
arsbakka er gott að fylgjast með flóðinu og ég syndi yf-
irleitt þegar komið er undir háflæði," segir Tryggvi.
Stundum syndir hann klukkan átta á morgnana og svo
aftur seinnipartinn eftir vinnu eða á kvöldin eftir því
hvemig stendur á flóði. „Sjórinn er oft ansi kaldur á
morgnana þegar sólin skín ekki en það er nú bara
hressandi," segir Tryggvi sem er um 15 mínútur í senn
í sjónum. En skyldi sjósundið hafa góð áhrif á Tryggva?
„Já, það er enginn vafl á því að ég verð allur miklu
viljugri og kraftmeiri eftir sundsprett í sjónum auk þess
sem ég fer alla daga ársins í sundlaugina á Jaðarsbökk-
um.“
Heilsuræktarráðleggingar
til eldra fólks
„Ég álít að sund sé með því besta sem maður gerir,
hvort sem er í sundlaug eða í sjó. Mér finnst ég verða
hressari við að fara í sjóinn en sundlaugin er mjög góð
líka og ég ráðlegg eldra fólki að fara í sund og ganga sér
til heilsubótar til að auka krafta sína,“ segir Tryggvi
sem gengur í og úr vinnu sinni, um 6 kílómetra á dag.
Hinn hressi og kraftmikli sundkappi á Skaganum sagði
að lokum að lítið væri um önnur áhugamál hjá sér.
Hann væri þó lítillega í félagsmálum. -DÓ
Tryggvi á fagurri strönd Skagamanna. Á neöri myndinni sést að hann er
hvergi banginn og hættir sér langt út. DV-myndir DÓ
Ymislegt á boðstólum
- litið inn í leikfimi
ISkýr framsetning efnisins er ekki
síst myndunum aö þakka. Hér er
sýndur aldursmunur á rauövín-
um en ólíkt hvítvínum lýsast þau
meö aldrinum. Þroskaöa Bor-
deaux-víniö er oröiö Ijósara og
rauöbrúnna.
anum í flöskunni
Bókaútgáfan Staka hefur gefið
út bókina Vín, vísindi, list eftir
vínbókahöfundana Hugh John-
son og James Halliday, sá síðar-
nefndi er líka víngerðarmaður.
Þetta er fyrsta bókin um vín-
fræði sem kemur út á íslensku.
Henni er ætlað að varpa ljósi á
Ívalkosti víngerðarmannsins eins
og þeir í raun eru. Höfundarnir
fylgja lesandanum gegnum hinn
erilsama heim víngerðarinnar,
skoða afleiðingar gamalla hefða
Iog áhrif nýjustu tækni og hug-
mynda víngerðarmanna í öllum
heimsálfum. Efnið er afar skil-
merkilega sett fram. Bókinni er
skipt upp í þrjá hluta sem tak-
markast við ákveðna hluta vín-
gerðarferlisins: í víngarðinum, í
víngerðinni og í flöskunni. Fal-
legar ljósmyndir og fjöldi skýr-
ingarmynda prýða bókina og
auka skilning lesandans á vín-
fræðunum. Á bókarkápu segir að
þetta sé rétta bókin fyrir alla
sem njóta þess að gefa sér tima
til aö setjast niður með glas af
víni og íhuga innihaldið. Bókina
tileinkuðu höfundar andanum 1
glasinu.
Friðjón Árnason og Guðmund-
ur A. Axelsson íslenskuðu bók-
ina sem er 232 bls. -saa
„Ég kem hingað í leikfími tvisvar
í viku,“ segir Stefán Jónsson sem
sækir leikfimitímana í þjónustumið-
stöð aldraða í Árbæ. „Þetta er ekk-
ert hopp og hí heldur teygjuæfíngar
og smáaflraunir, standandi, liggj-
andi og sitjandi. Boltar og teygjur
eru meðal þeirra áhalda sem notuð
eru í æfingunum," segir Stefán.
Hann er enginn nýgræðingur í
íþróttum því á árum áður var hann
mikill sundmaöur og keppti í sund-
bolta fyrir hönd íslands á Ólympíu-
leikunum í Berlín 1936. Einnig seg-
ist hann hafa stundað það sem nú
myndi kallast líkamsrækt, þó ekki
með lóðum enda höfðu þau ekki rutt
sér til rúms á þeim tíma. Stefán
syndir enn þá mikið, aðallega i
Laugardalslauginni og stundum í
Breiðholtslaug. Hann telur æfing-
arnar í leikfiminni mjög góðar og
eiga sinn þátt í því að halda sér í
formi. „Svo geng ég mikið og hratt.“
En ekki búa allir að íþróttaiðkun á
yngri árum. Margir sem æfa með
Stefáni eru að kynnast leikfimi í svo
til fyrsta sinn á ævinni.
Hvað kynjaskiptingu varðar segir
Stefán konurnar vera í meirihluta í
öllu sem tilheyrir tuskunum, eins
og hann kallar saumaskapinn, en
skiptingin sé svo til jöfn í leikfim-
inni. Þegar Tilveruna bar að garði
voru ekki margir I leik-
fimi en af þeim sem
höföu mætt voru kon-
ur í miklum meiri-
hluta. „Það fækkar
alltaf mikið á
gerist.
Fólk er á
faralds
fæti,“ út-
skýrði Stefán
Stundum vantar
viljastyrkinn
„Aðsóknin að leikfim-
inni er nokkuö
sveiflukennd,“
segir Jónas
Þ o r -
/w &
Hópurinn meö Jónasi þjálfara sínum. Þau vildu að
bjarnarson sjúkraþjálf-
ari sem kennir á mörg-
um þjónustumiðstöðv-
um aldraðra. Hann telur
ekki stóran hluta aldr-
aðra stunda leikfimi. „Ég
býð upp á tíma af mismun-
andi styrkleika og byrjend-
ur æfa eftir getu. Það gerist
samt stundum að fólk gefst fljót-
lega upp. Þá er það viljastyrk-
urinn sem vantar," segir Jónas
en tekur fram að þeir sem
sumrm ems og
gengur og
skýrt kæmi fram aö margir væru í sumarfrí þessa
dagana og því óvenju slæm mæting. DV-myndir ÞöK
haldi áfram lofi þetta og prísi og
finni mikinn mun á sér. Jónas mæl-
ir með leikfimi fyrir aldraða en ekki
síður göngum og sundi, sérstaklega
fyrir byrjendur. -saa
Stefán í jafnvægis- og
teygjuæfingu og ekki
annaö aö sjá en hann sé
í góöri æfingu.