Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1996, Síða 19
18
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 1996
íþróttir
Sjö mörk og
5 rauð spjöld
- þegar Þróttarar lögöu ÍR naumlega, 4-3
1- 0 Heiðar Siguijónsson (5.)
2- 0 Þorsteinn Halldórsson (23.)
2-1 Kristján Brooks (53.)
2-2 Guðjón Þorvarðarson (63.)
2- 3 Guðjón Þorvarðarson (69.)
3- 3 Sigurður Hallvarðsson (72.)
4- 3 Hermann Karlsson (90.)
Það vai' sannkallað marka- og
spjaldaregn á Valbjamarvelli í gær-
kvöldi þegar Þróttur lagði ÍR með
miklum herkjum, 4-3, i 2. deildinni.
Varamaðurinn Hermann Karlsson
skoraði sigurmark Þróttar á loka-
sekúndum leiksins en þá hafði síð-
ari hálíleikurinn staðið yfir í 54
mínútur.
ÍR-ingar fengu að líta sex gul
spjöld í leiknum og fjögur rauð. Sig-
urjón Hákonarson og Kristján
Brooks voru reknir af velli undir
lokin fyrir klaufalegar sakir og eftir
lokaflautið fengu Kristján Guð-
mundsson þjálfari og einn leikmað-
ur í viðbót rauða spjaldið hjá Gísla
Guðmundssyni fyrir mótmæli.
Ágúst Hauksson, þjálfari Þróttar,
hafði fengið rauða spjaldiö korteri
fyrir leikslok.
Úrslitin virtust ráðin í hálfleik
eftir mikla yfirburði Þróttara en
leikurinn snerist við á ótrúlegan
hátt. ÍR náði forystu, 3-2, en Þrótt-
arar jöfnuðu og knúðu fram sigur-
inn þegar ÍR-ingar voru orðnir að-
eins níu.
Maður leiksins: Hermann
Karlsson, Þrótti. -VS
Erum i botnbaráttu
- jafntefli hjá FH og Víkingi, 1-1
1-0 Davlð Ólafsson (44.)
1-1 Arnar Hrafn Jóhannsson (82.)
„Ég held að við getum þakkað fyr-
ir þetta stig. Við vorum ekki nógu
einbeittir í síðari hálfleik og bökk-
uðum þá of mikið. Við verðum að
gera okkur grein fyrir því að við
erum í botnbaráttu og aðalmálið í
dag er að komast af hættusvæðinu,"
sagði Helgi Ragnarsson, hinn nýi
þjálfari FH, eftir 1-1 jafntefli við
Víking í 2. deildinni í gærkvöldi.
Leikurinn var kaflaskiptur og
voru FH-ingar sterkari í fyrri hálf-
leik og náðu forystu með laglegu
marki Davíðs Ólafssonar eftir hom-
spymu undir lok hálfleiksins. í síð-
ari hálfleik tóku Víkingar völdin og
leikurinn fór að mestu leyti fram á
helmingi FH. Mark Víkinga lá lengi
í loftinu en það var ekki fyrr en átta
mínútum fyrir leikslok sem hinn 17
ára gamli Arnar Hrafn jafnaði met-
in með laglegu skallamarki. Hjá FH
léku Guðlaugur Baldursson, Haf-
steinn Arnarson og Ólafur B.
Stephensen best en hjá Víkingi voru
Atlarnir Helgason og Einarsson
mest áberandi.
Maður leiksins: Atli Helgason,
Víkingi.
-GH
Sanngjarnt jafntefli
- Völsungs og Þórs á Húsavík, 1-1
DV, Húsavik:
1-0 Hjörtur Hjartarson (27.)
1-1 Hreinn Hringsson (44.)
Völsungur og Þór skildu jafnir,
1-1, í frekar þófkenndum leik í 2.
deildinni á Húsavík í gærkvöldi.
Þórsarar sýndu þó aðeins meira í
fyrri hálfleik en Völsungi tókst
samt að skora á undan. Ásmundur
Amarson fékk sendingu inn á víta-
teig, sneri sér snöggt við og skaut og
markvörður Þórs náði ekki að halda
2. deild
Fram 8 5 3 0 25-7 18
Skallagr. 8 4 3 1 144 15
Þróttur, R. 8 3 4 1 20-15 13
KA 8 3 3 2 16-14 12
Þór, A. 8 3 3 2 9-16 12
Víkingur, R. 8 2 3 3 12-10 9
FH 8 2 3 3 9-10 9
Völsungur 8 2 2 4 10-14 8
ÍR 8 2 0 6 8-22 6
Leiknir, R. 8 1 2 5 8-19 5
Markahæstir
Þorbjöm Atli Sveinsson, Fram ... 8
Þorvaldur M. Sigbjömsson, KA .. 7
Ágúst Ólafsson, Fram..........6
Sindri Grétarsson, Skallagr..5
boltanum og barst hann til Hjartar
sem skoraði örugglega. Það var svo
undir lok fyrri hálfleiksins sem
Þórsurum tókst að jafna og það var
Hreinn sem skoraði eftir mikla
pressu Þórsara.
Síðari hálfleikur var lítið fyrir
augað, bæði lið fengu færi til að
klára leikinn en þeim tókst ekki að
nýta sér þau og var því sanngjamt
jafntefli staðreynd.
Maður leiksins: Ásgeir Bald-
ursson, Völsungi. -GA
Bræðurnir urðu
Evrópumeistarar
Páll Tómas og Jón Hrói Finns-
synir leika ástralskan fótbolta í
Danmörku, eins og fram kom í
DV í gær, og um helgina spiluðu
þeir með úrvalsliði þaðan gegn
Englandi í London.
Danir gerði sér lítið fyrir og
unnu leikinn, 49-54, í jöfnum og
spennandi leik og eru því
Evrópumeistarar af því þessi
íþrótt er ekki spiluð víða. Þetta
telst ekki hátt skor, vanalega era
skoruð 100-150 stig, en lið geta
skorað mörk sem gefa annað
hvort sex stig eða eitt, þannig að
fimm stiga munur er alls ekki
mikið. Bræðurnir skoruðu ekki
en liðið stóð sig mjög vel. -JGG
Knattspyrnufélagið Þróttur heldur
almennan félagsfund fimmtudaginn 18. júlí
í Þróttheimum, kl. 20.00.
Umræðuefnið er „Þróttur í nýtt umhverfi“.
Allt áhugafólk um eflingu félagsins er
velkomið.
Þá eru foreldrar bama og unglinga hjá
félaginu hvattir til að mæta.
Aðalstjórn
Davíð fer
ekki til Möltu
DV, Suðurnesjum:
Körfuknattleiksmaðm'inn
Davíð Grissom hætti í gær við
að taka tilboði um að þjálfa og
leika með félagsliði á Möltu
næsta vetur.
„Þegar tilboðið kom fannst
mér það ekki nógu gott til að
fara þangað meö alla fjölskyld-
una. Ég ætla að hugsa minn
gang næstu daga, það gæti vel
verið að ég færi út en svo kemur
til greina hjá mér að hætta alfar-
ið í körfuboltanum," sagði Dav-
íð, sem lék með Keflavík síðasta
vetur. -ÆMK
Ottó til KA
Ottó Karl Ottósson gekk í gær
til liðs viö 2. deildar lið KA í
knattspyrnu en hann hefur verið
hjá Stjörnunni undanfarin tvö
ár. Ottó hafði aðeins tvívegis
komið inn á sem varamaður í
leikjum Stjömunnar í 1. deild-
inni í sumar en hann styrkir ef-
laust lið KAvemlega í barátt-
unni i 2. deild.
-VS
Tveir til Blika
Breiðablik fékk tvo leikmenn
til liðs við sig í gær. Halldór Páll
Kjartansson, lykilmaður úr 3.
deildar liði Ægis, er kominn í
Kópavoginn ásamt Sigurði Frið-
rikssyni, 19 ára pilti sem hefur
verið hjá Elfsborg í Svíþjóð und-
anfarin ár og spilað með ís-
lenska unglingalandsliðinu.
-VS
Ómar í Gróttuna
Grótta, sem vermir botnsæti 3.
deildar, fékk góðan liðsauka í
gær. Þangað eru komnir Ómar
Bendtsen, fyrrum leikmaður KR
og Fylkis, sem hefur verið í Dan-
mörku, Gústaf Elí Teitsson frá
Víkingi, Ragnar Egilsson frá
Þrótti, R., og þeir Sæbjöm Guð-
mundsson og Nökkvi Guð-
mundsson frá KR. -VS
Daníel og Unnar í Víöi
Daníel Einarsson úr FH er
kominn aftur í sitt gamla félag,
Víði í Garði. Víðismenn kræktu
i annan varnarmann í gær, Unn-
ar Sigurðsson frá Keflavík.
-vs
Sirrý í Stjörnuna
Kvennalið Stjömunnar fékk
góðan liðsauka í gær þegar Sirrý
Hrönn Haraldsdóttir, einn
reyndasti leikmaður Vals, gekk í
raðir Garðabæjarliðsins.
-VS
Siguröur í Ægi
Sigurður B. Jónsson, vamar-
maðurinn reyndi, hætti i gær
hjá FH-ingum og gekk til liðs við
3. deildar lið Ægis. Sigurður lék
áður með KR og ÍA í 1. deildinni.
-VS
Gústaf í Leikni
Gústaf Ómarsson, fyrrum fyr-
irliöi Breiðabliks, er genginn til
liðs við 4. deildar lið Leiknis á
Fáskrúðsfirði.
-VS
Haule í uppskurö
Davis Haule, enski sóknar-
maðurinn hjá Víði í Garði, þarf
að gangast undir uppskurð á hné
og missir af næstu leikjum liðs-
ins. -ÆMK
Jaxlar í Aftureldingu
Tveir gamalkunnir jaxlar úr
Víkingi, Bjöm Bjartmarz og Jón
Bjami Guömundsson, gengu í
gær til liðs við 4. deildar lið Aft-
ureldingar.
-VS
Sindri sigraði
Sindri vann Einherja, 2-3, á
Vopnafirði í D-riöli 4. deildar-
innar í fyrrakvöld.
Anthony Karl Gregory er kominn til Valsmanna á nýjan leik. Hann lék síðast með
Hlíðarendaliðinu árið 1993 og var þá markahæsti leikmaður þess í 1. deildinni með níu
mörk.
Anthony Karl
aftur til Vals
Anthony Karl Gregory, sóknarmaður
úr Breiðabliki, gekk í gærkvöldi frá fé-
lagaskiptum yfir í Val og er löglegur
með Hlíðarendaliðinu í dag. Gengið var
frá skiptunum skömmu fyrir miðnættið,
rétt áður en lokafresturinn rann út..
Anthony Karl, sem var að leika sitt
annað timabil með Kópavogsliðinu,
hafði ekki náð sér á strik í sumar, frek-
ar en margir aðrir leikmenn liðsins, og
vermdi varamannabekkinn í tveimur
síðustu leikjum liðsins í deildinni. Hann
er uppalinn Valsmaður og lék lengst af
með Hlíðarendaliðinu, en einnig með
KA um tíma, og sumarið 1994 spilaði
hann með Bodö-Glimt i norsku úrvals-
deildinni.
Anthony er þritugur og á að baki 135
leiki í 1. deild og hefur gert þar 50 mörk.
Hann hefur ennfremur spilað 5 lands-
leiki og ef Anthony nær sér á strik getur
hann styrkt Valsliðið verulega.
-VS
IR fær tvo leik-
menn frá Derby
- koma til landains á föstudag
Tveir enskir knatt-
spymumenn frá úrvals-
deildarliði Derby County
gengu í gær til liðs við 2.
deildarlið ÍR-inga og spila
með þvi út tímabilið.
Þeir heita Ian Ashbee,
19 ára gamall vamarmað-
ur, og Will Davies, tvítug-
ur sóknarmaður. Hvorag-
ur þeirra lék með aðalliði
Derby á síðasta tímabili,
Ashbee spilaði með vara-
liðinu en Davies var að
mestu frá vegna meiðsla.
Tímabilið 1994-95 lék
Davies hins vegar tvo lan Ashbee.
leiki með Derby í 1. deild
og Ashbee einn. Báðir eru þeir í 30
manna hópi Derby fyrir komandi tíma-
bil.
Þeir eru væntanlegir til landsins á
föstudag og verða með ÍR-ingum gegn
KA næsta þriðjudag.
„Við höfum náð góðum tengslum til
Derby og vonumst til þess að þau styrki
starfíð hjá okkur verulega, ekki síst ung-
lingastarfið. Leikmennimir munu að-
stoða við æfingar yngri flokka og við
Will Davies.
munum jafnframt eiga þess kost að
senda unga leikmenn til æfinga hjá Der-
by. Leikmannahópurinn hjá Derby er
það stór að forráðamönnum félagsins
þótti tilvalið að leyfa þessum tveimur að
spreyta sig á íslandi í tvo mánuði," sagði
Stefán Jóhann Stefánsson, formaður
knattspyrnudeildar ÍR, í samtali við DV
í gær.
-VS
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 1996
23
1. deild kvenna:
Stjarnan stóð
[i í Blikum
Breiðabliksstúlkur hafa ekki
tapað leik síðan í júní 1993 og
virðist lítið geta stöðvað þær
þessa dagana. Enn einn sigurinn
bættist við hjá þeim í gær þegar
þær sigraðu Stjörnuna, 0-4, í
Garðabæ.
Staðan var 0-0 í hálfleik. Gaf
Stjaman Breiðabliksstúlkum
aldrei frið í fyrri hálfleik og
komust þær lítið áfram. En í
seinni hálfleik kom fljótt i ljós
hversu sterkt lið Breiðablik er.
Ásthildur Helgadóttir skoraði á
56. mínútu, þá gerði Katrín
Jónsdóttir tvö mörk og það var
síðan Helga Ósk Hannesdóttir
sem kláraði dæmið með fjórða
markinu á síðustu mínútu leiks-
ins.
Stjömustúlkur börðust vel í
leiknum og er allt annað að sjá
til þeirra heldur en fyrr i sumar.
Átti Breiðablik ekkert svar við
baráttu þeirra enda komust þær
ekkert áfram í fyrri hálfleik.
Breiðablik hrökk samt í gang
fljótlega í þeim seinni og gerði út
um leikinn.
Á Akureyri gjörsigraði KR lið
ÍBA, 0-7. Olga Færseth skoraði
tvö mörk sem og Guðrún Jóna
Kristjánsdóttir. Ólöf Helga Helga-
dóttir, Olga Stefánsdóttir og Sara
Smart skoruðu siðan eitt hver.
Valsstúlkur sigruðu ÍBV ör-
ugglega, 3-0, á Hlíðarenda með
mörkum frá Bergþóra Laxdal,
frisi Andrésdóttur og frisi Ey-
steinsdóttur.
ÍA fóra létt með Aftureldingu
sem er stigalaust á botni Mizuno
deildarinnar og endaði leikurinn
1-5 í Mosfellsbæ í gær. Áslaug
Ákadóttir skoraði tvö mörk en
Margrét Ákadóttir, Kristín Hall-
dórsdóttir og Magnea Guðlaugs-
dóttir skoruðu eitt hver. Eyrún
Eiðsdóttir skoraði
heimamenn.
Staðan í deildinni:
fyrir
Breiðablik 7 7 0 0 35-3 21
KR 7 4 2 1 23-8 14
ÍA 7 4 2 1 19-8 14
Valur 7 4 2 1 17-9 14
ÍBA 7 2 1 4 9-20 7
Stjarnan 7 2 0 5 9-19 6
ÍBV 7 1 1 5 6-22 4
Afturelding 7 0 0 7 5-34 0
-ih/JGG
íþróttir
Magnúsi Pálssyni, þjálfara Fylkis, sagt upp störfum:
Marteinn er
efstur á blaði
- fundar meö Fylkismönnum í dag
Knattspyrnudeild Fylkis sagði
Magnúsi Pálssyni, þjálfara 1. deild-
arliðs félagsins, upp störfum sið-
degis í gær - í kjölfar tapsins
hrikalega gegn ÍAí bikarkeppn-
inni í fyrrakvöld, 9-2.
Leitin aö eftirmanni Magnúsar
hófst strax og ljóst er að Marteinn
Geirsson, sem þjálfaði Árbæjarlið-
ið um árabil, er efstur á óskalista
Fylkismanna. Þeir ræddu við hann
í gærkvöldi, samkvæmt heimildum
DV, og hann mun hitta stjómar-
menn félagsins á fúndi í dag. Lík-
legt er að þar skýrist, af eöa á,
hvort Marteinn taki við Fylkislið-
inu. Marteinn hefur verið 1 fríi frá
þjálfun síðan honum var ságt upp
störfum hjá Fram í byrjun tíma-
bilsins 1995.
Magnús Pálsson tók við Fylki
fyrir tímabilið 1995 og undir hans
stjóm vann liðið öraggan sigur í 2.
deildinni í fyrra. Fylkir byrjaði
Magnús Pálsson: Hefði viljað fá
tækifæri til að rifa liðið upp.
mjög vel í vor, vann Breiðablik,
6-1, í fyrstu umferð 1. deildarinnar
en hefur síðan tapað öllum sex
Marteinn Geirsson - ræðir við
Fylkismenn í dag.
leikjum sínum og svo bættist skell-
urinn gegn Skagamönnum við.
Engin uppgjöf hjá mér
„Ég var kallaður á fund áðan og
mér sagt að ákveðið hefði verið að
láta mig hætta með liöið. Þaö er
ekkert við því að ségja, fótboltinn
er svona og við skiljum sáttir. Ég
heföi hins vegar viljað fá tækifæri
til að rífa liðið upp eftir skellinn á
Akranesi og vonaðist til að fá tæki-
færi til þess gegn Val í næstu um-
ferð í 1. deildinni. Það var engin
uppgjöf hjá mér, ég var tilbúinn að
halda áfram.
Ég er hins vegar svekktur yfir
því að hafa ekki náð betri árangri
í sumar því það býr margt í Fylk-
isliðinu. Ég er ekki á því að við
höfum ofmetnast við sigurinn á
Breiðabliki, við voram að spila
ágætisleiki eftir það en heppnin
var ekki á okkar bandi,“ sagði
Magnús í samtali við DV í gær-
kvöldi.
-VS
Meistarar Vals
byrja gegn FH
Nú er ljóst að 1. deild karla í
handknattleik hefst miðvikudag-
inn 18. september. í fyrstu um-
ferðinni mætast Valur-FH,
Haukar-KA, Selfoss-Aftureld-
ing, ÍBV-Grótta, Stjarnan-ÍR og
Fram-HK. Keppni i 1. deild
kvenna og 2. deild karla hefst
hins vegar 5. október.
-VS
Liverpool reynir
aö fá Poborsky
Liverpool ætlar að bjóða í
tékkneska knattspyrnumanninn
Karel Poborsky á síðustu stundu
og reyna þannig að fá hann til
liðs við sig fremur en að hann
fari til erkióvinanna í Manchest-
er United. Poborsky mun. hitta
forráðamenn Liverpool í dag en
síðan talar hann við forráða-
menn Manchester United á
morgun. -JGG
Houston tryggði
sér Olajuwon
Hinn 33 ára gamli körfubolta-
maður Hakeem Olajuwon, sem
spilar með Houston Rockets, hef-
ur framlengt samning sinn um
fimm ár og hljóðar
samningurinn upp á 55-60 millj-
ónir dollara. Olajuwon átti þrjú
ár eftir af fjögurra ára samningi
sínum en þar var smáklausa sem
hefði getað gert hann frjálsan
eftir næsta tímabil. -JGG
Forsala á leik
Vals og KR
í kvöld mætast Valur og KR að
Hlíðarenda í 8 liða úrslitum
Mjólkurbikarkeppninnar í knatt-
spyrnu. Búist er við miklum
fjölda áhorfenda og verður for-
sala í Spörtu á Laugavegi 49 og í
Ástund í Austurveri. Leikurinn
hefst klukkan 20 en þarna eigast
við þau lið sem hafa unnið bik-
arinn í fimm skipti alls síðustu
sex árin.
/ Aðkoma frá
S Bústaðavegi
líiastæðl
Aöalvöllur
Stórleikur umferðarinnar á Hlíðarenda í kvöld kl. 20
^atu/jj
OII á vo
n\\W°
Aðkoma frá
Vatnsmýrarvej
Aðkoma frá
Öskjuhlíð
4*