Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1996, Blaðsíða 17
16
FIMMTUDAGUR 18. JULÍ 1996
FIMMTUDAGUR 18. JULÍ 1996
25
Iþróttir
íþróttir
Eyjamenn töpuðu 2-1 í Tallinn:
Slysalegt
sigurmark
heimamanna
- góðir möguleikar ÍBV á heimavelli
Cantona á leið til
Blackburn Rovers?
Blackburn Rovers, enska úr-
valsdeildarliðið, hefur boðið
stjörnunni Eric Cantona, leik-
manni Manchester United,
samning upp á fjórar milljónir
punda. Eigandi Blackbum, Jack
Walker, og formaður félagsins,
Robert Coar, staðfestu áhuga
klúbbsins á Cantona. Aðstoðar-
ritari Manchester United, Ken
Ramsden, sagði: „Þetta mál
verður ekki einu sinni íhugað,
tilboðinu er sjálfkrafa hafnað og
Eric er ekki á leiðinni til Black-
bum eða einhvers annars
klúbbs."
Brann tapaði
Bodo/Glimt sigraði Brann, lið
Birkis Kristinssonar og Ágústs
Gylfasonar, 3-1, í 16-liða úrslit-
um norsku bikarkeppninnar í
knattspymu í gærkvöldi.
UEFA-úrslit:
ÍA-Sileks.....................2-0
Lantana-ÍBV...................2-1
FC Teuta-Kosice ..............1-4
Slavia Sofia-Inkaras Grifas .... 4-3
Becej-Mura....................0-0
Haka-Flora Tallinn............2-2
FC Jazz-Gf Götu ..............3-1
Hutník Krakow-Khazri Buzovna 9-0
Dinamo Tbilisi-Grevenmacher . 4-0
Zimbru Chisinau-Hajduk Split . 0-4
Pyunik Jerevan-HJK Helsinki . . 3-1
Neftchi Baku-Lokomotiv Sofia . 2-1
Zhalgiris Vilnius-Crusaders ... 2-0
Jeunesse d’Esch-Legia Varsjá . . 2-4
Maccabi Haifa-Partizan Belgrad 0-1
Beitar Jerusalem-Floriana .... 3-1
B71 Sandoy-Apoel Nicosia....1-5
Newtown-Skonto Riga..........1-4
Bohemians-Dinamo Minsk . ... 1-1
Portadown-Vojvodina..........0-1
Croatia Zagreb-Tirana........4-0
-JGG/VS
^Qizino.
ÍSLANDSMÓTIÐ
MIZUNO-DEILDIN
8. umferð
FOSTUDAGUR 19. JÚLÍ
Akranesvöllur
kl. 20.00
ÍA - ÍBV
Hlíðarendi
kl. 20.00
Valur - Breiðablik
Stjörnuvöllur
kl. 20.00
Stjarnan - KR
Akureyrarvöllur
kl. 20.00
ÍBA -Afturelding
Eyjamann töpuðu, 2-1, fyrir eist-
nesku meisturunum Lantana í fyrri
leik liðanna í forkeppni UEFA-bik-
arsins sem fram fór í Tallinn í gær.
Þessi úrslit gefa Eyjamönnum góðar
vonir um að komast áfram í keppn-
inni en þeir taka á móti Lantana í
Eyjum næsta miðvikudag.
Að sögn Tryggva Ólafssonar,
varaformanns knattspyrnuráðs
ÍBV, hefðu Eyjamenn hæglega getað
náð minnsta kosti jafntefli í leikn-
um. „Við áttum að fá vítaspyrnu eft-
ir kortér, þegar Rútur Snorrason
var klipptur niður í dauðafæri, og
fengum nokkur ágæt færi í fyrri
hálfleiknum. Á lokamínútunum, eft-
ir að þeir komust yfir, pressaði ÍBV
talsvert en tókst ekki að jafna,“
sagði Tryggvi.
Ekkert var skorað í fyrri hálfleik
en á 10. mínútu síðari hálfleiks
komst ÍBV yfir. Rútur átti þá skot
eftir aukaspyrnu, markvörðurinn
varði en Tryggvi Guðmundsson
fylgdi á eftir og skoraði. Aðeins
tveimur mínútum síðar jafnaði
Lantana með glæsilegu marki, beint
úr aukaspyrnu. Sigurmark heima-
manna kom síðan 12 minútum fyrir
leikslok, mjög slysalegt af hálfu
ÍBV. Eftir misskilning milli Frið-
riks markvarðar og varnarmanna
komst sóknarmaður Lantana fram-
hjá Friðriki og sendi boltann í tómt
markið. Áður var Friðrik búinn að
Svo kann að fara að leikmenn
eistnesku meistaranna í knatt-
spyrnu, Lantana, verði í vandræð-
um með að komast í síðari leikinn
gegn ÍBV í UEFA-bikarnum sem
fram fer í Eyjum næsta miðvikudag.
Lið Lantana er eingöngu skipað
rússneskum leikmönnum en þeir
eru ekki með eistneskan ríkisborg-
ararétt og hafa engin vegabréf. Þar
með getur verið mjög snúið fyrir þá
að ferðast á milli landa.
„Þeir hafa miklar áhyggjur af
þessu máli og telja ekki öruggt aö
þeir komist yfirleitt til íslands.
verja nokkrum sinnum glæsilega
eftir þunga pressu heimamanna.
„Við erum svekktir yfir að tapa
þessum leik en við skoruðum mark
sem getur reynst mikilvægt. Við
eigum möguleika á að komast áfram
ef við spilum af þolinmæði og fáum
góðan stuðning Eyjamanna,” sagði
Atli Eðvaldsson, þjálfari ÍBV, við
DV.
„Lantana er með reynda
leikmenn, eintóma Rússa, og marg-
ir þeirra eru fljótir og tekniskir. En
þessi leikur var vel spilaður af okk-
ar hálfu í 60 mínútur, síðasta hálf-
tímann voru menn hir.s vegar orðn-
ir þreyttir og misstu niður einbeit-
inguna. Það hefur verið mikið álag
á okkur, leikir á þriggja daga fresti
að meðaltali að undanfórnu og nú
fáum við kærkomna hvíld frá leikj-
um í eina viku,“ sagði Atli.
Lið ÍBV: Friðrik Friðriksson - Friðrik
Sæbjörnsson, Jón Bragi Amarsson, Her-
mann Hreiðarsson, Lúðvík Jónasson -
ívar Bjarklind (Nökkvi Sveinsson), Hlyn-
ur Stefánsson, Leifur Geir Hafsteinsson,
Bjarnólfur Lárusson - Tryggvi Guð-
mundsson (Kristinn Hafliðason), Rútur
Snorrason (Steingrímur Jóhannesson).
Áhorfendur á leiknum voru að-
eins 150-200, enda er Lantana skip-
að rússneskum leikmönnum og
stuðningur við félagið af hálfu Eist-
lendinga er enginn. Leikurinn fór
fram á aðalleikvangi Eistlendinga,
Kadriorg í Tallinn. -VS
Rússarnir eru landlausir í Eistlandi
og þetta gæti orðið þeim mjög erfitt.
Bæði hvað varðar að fara inn og út
úr Eistlandi og svo að fá landvistar-
leyfi annars staðar," sagði Atli Eð-
valdsson, þjálfari Eyjamanna, við
DV eftir fyrri leikinn í gær.
Eistlendingar hafa sett Rússum,
búsettum í landinu, þau skilyrði að
þeir þurfi að læra eistnesku til þess
að fá eistneskt ríkisfang. Þetta er
þaö sama og Rúnar Alexandersson
fimleikamaður átti við að stríða
áður en hann flutti til íslands.
-VS
Kemst lið Lantana
ekki til íslands?
- leikmennirnir eru flestir landlausir
Spalding - Spalding - Spalding - Spalding • Spalding
Austurbakki - Austurbakki - Austurbakki - Austurbakki
op - Flite Opi
Hlíðarvelli, Mosfellsbæ
20. júlí 1996.
18 holu höggleikur með og án forgjafar.
Veitt veröa glæsileg verðlaun fyrir 1.-3. sæti m/án forgjafar. Að auki
verða veitt tvenn nándarverölaun fyrir teighögg næst holu
á 9. og 18. braut.
Sami aðili getur ekki unnið verðlaun bæði með og án forgjafar.
Skráning er hafin í Golfskála Kjalar,
»' síma 566 7415
Spalding - Spalding - Spalding - Spalding • Spalding
Austurbakki - Austurbakki - Austurbakki - Austurbakki
Mihajlo Bibercic fagnar eftir aö hafa skoraö síöara mark Skagamanna gegn
Sileks í gærkvöldi.
Ólympíuleikarnir í Atlanta settir á morgun:
Jón Arnar á lokaæfingu
DV, Atlanta:
Lokaæfingin fyrir opnunarhátíð
Ólympíuleikanna í Atlanta fór fram á
Ólympíuleikvangi borgarinnar í gær-
kvöldi en leikamir verða settir þar á
morgun.
Fulltrúi íslands á æfingunni var
Jón Arnar Magnússon, tugþrautar-
maður, en hann er fánaberi íslands á
leikunum.
Sjö af níu keppendum íslands í Atl-
anta dvelja nú í Ólympiuþorpinu, all-
ir nema Vésteinn Hafsteinsson og
Guðrún AmcU’dóttir sem dvelja enn
um sinn í nágrannaborginni Athens.
Þangað fer Jón Amar reyndar aftur
að opnunarhátiðinni lokinni.
Islensku keppendumir búa saman í
húsi í þorpinu og eru mjög heppnir
því þeir fengu eitt af þremur bestu
húsunum á staðnum. Þar er allt til
alls og til dæmis er örstutt fyrir sund-
fólkið að ganga að keppnislauginni en
þar æfði það í fyrsta skipti í gær og
lét mjög vel af aðstæðum.
-MT
Steinar Adolfsson sækir aö Kiro Trajcek, markveröi Sileks.
DV-myndir ÞÖK
Skagamenn eiga
góða möguleika
- á að komast áfram í Evrópukeppninni eftir tveggja marka sigur á Sileks
ÍA (1) 2 Sileks (0) 0
1- 0 Bjarni Guöjónsson (44.) - eft-
ir laglegt gegnumbrot Ólafs Þórðar-
sonar barst boltinn til Bjarna inn á
markteig og pilturinn átti ekki i
vandræðum að leggja boltann í fjær-'
homið.
2- 0 Mihaljo Bibercic (73.) Harald-
ur Ingólfsson tók aukaspyrnu af um
20 metra færi. Markvörður Sileks
hélt ekki fóstu skoti Haraldar og
Bibercic fylgdi vel á eftir og skoraði.
Lið lA: Þórður Þórðarson - Stur-
laugur Haraldsson, Zoran Miljkovic
(Kári Steinn Reynisson 82.), Ólafur
Adolfsson, Sigursteinn Gislason -
Ólafur Þórðarson, Steinar Adolfsson,
Alexander Högnason, Haraldur Ing-
ólfsson - Mihaljo Bibercic (Stefán
Þórðarson 82.), Bjarni Guðjónsson.
Lið Sileks: Kiro Trajcek - Ljubo-
drag Milosevic, Igor Duzelov, Jov-
ance Bizimovski, Marjan Nacev -
Rade Karanfilovski (Borce Ivanov
82.), Vlatko Gosgyv, Dragan Vesilin-
ovski, Vlatko Ljusev (Aleksander
Ristgevski 67.) - Vanco Micevski, Zor-
an Boskovski (Miroslav Dzokic 77.).
Gul spjöld: Sturlaugur, Ólafur Ad-
olfs, Haraldur, Veselinovski.
Rauö spjöld: Engin.
Dómari: Byrne frá írlandi, slakur.
Skot: ÍA 9, Sileks 4.
Hornspymur: ÍA 12, Sileks 3.
Áhorfendur: Um 1500.
Fimmti heima-
sigurinn í röð
Skagamenn unnu í gærkvöldi
sinn fimmta Evrópuleik í röð á
heimavelli sínum á Akranesi en
þar hafa þeir hvorki tapað leik
né fengið á sig mark frá árinu
1989. Á þessum tíma hefur ÍA
sigrað Partizan Tirana, 3-0, Ban-
gor City, 2-0, Shelbourne, 3-0,
Raith Rovers, 1-0, og nú Sileks,
2-0. Að auki vann ÍA 1-0 sigur á
Feyenoord á Laugardalsvellin-
um.
-VS
„Það er erfitt að segja hvort þessi
tvö mörk duga og mér hefði liðið bet-
ur ef við hefðum bætt við einu til við-
bótar. Ég held að möguleiki okkar á að
komast áfram sé nokkuð góður en
menn mega ekki halda að það verði
auðvelt. Við eigum erfiðan leik gegn
KR í millitíðinni. Auðvitað setti veðr-
ið sinn svip á leikinn og það var mik-
il þolinmæðisvinna að spUa við þessar
aðstæður og það er langur vegur frá
því að þær hafi verið okkur til tekna,”
sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA,
eftir að Skagamenn höfðu lagt Sileks
að velli, 2-0, í fyrri leik liðanna í und-
ankeppni Evrópumóts félagsliða á
Akranesi í gær.
Veöriö lék aöahlutverkiö
Það er óhætt að segja að veðrið hafi
leikið aðalhlutverkið á Skaganum í
gær og leikmenn voru ekki öfunds-
verðir af að spila knattspyrnu i há-
vaðaroki og rigningu.
Skagamenn voru betri aðilinn cillan
tímann og reyndu sitt besta til að
halda knettinum á jörðinni og spila
skemmtilega knattspyrnu. Makedón-
íumennirnir hugsuðu fyrst og fremst
um að verjast og sýndu litla tUburði
til þess að sækja aö marki Skaga-
manna. Þeir áttu eitt hættulegt skot
aUan leikinn sem Þórður varði vel.
Fyrir utan mörkin tvö voru heima-
menn ekki að skapa sér mörg færi
enda þéttur varnarpakki að eiga við.
Heimamenn léku á móti rokinu í
fyrri hálfleik en þrátt fyrir það stjórn-
uðu þeir leiknum. Mihaljo Bibercic
skoraði mark á 12. mínútu en slakt
dómaratríó frá írlandi dæmdi markið
af vegna rangstæðu og voru menn
ekki sáttir við þá niðurstöðu dómar-
ans. Menn voru farnir að sætta sig við
markalausan fyrri hálfleik þegar hinn
ungi og skæði framherji, Bjarni Guð-
jónsson, náði að brjóta ísinn með
snyrtUegu marki á síðustu mínútu
hálfleiksins. Þetta var fyrsti Evrópu-
leikur Bjama og ekki amaleg byrjun
að skora mark í honum.
Síðari hálfleikurinn var að mestu í
eigu heimamanna en eins og í fyrri
hálfleiknum litu fá færi dagsins ljós.
Skgamenn voru þolinmóðir og upp-
skáru dýrmætt mark þegar Bihercic
skoraði síðara markið.
Eftir þessi úrslit verður að telja
möguleika Skagamanna á að fara
áfram nokkuð góða. Þeir mega þó ekki
slaka á klónni og halda að björninn sé
unninn. Makedóníumennirnir eiga ör-
ugglega eitthvað í pokahominu þegar
kemur tU síðari leiksins ytra eftir
viku. Skagamenn búa yfir mikilli
reynslu og þeir eiga að vera meðvitað-
ir um að fyrri hálfleik er aðeins lokið
í þessu einvígi.
Ekki of bjartsýnir
„Ég er auðvitað sáttur við sigurinn
en það hefði verið skemmtilegra að
skora fleiri mörk. Ég var mjög óhress
með dómarann og hann var að spjalda
okkur fyrir að vinna boltann á lögleg-
an hátt. Þetta er aUs ekki í höfn. Viö
fáum örugglega kröftuga mótspyrnu í
Makedóníu og við gerum okkur grein
fyrir að leikurinn verður erfiður. Við
megum ekki vera of bjartsýnir,” sagði
Ólafur Þórðarson, fyrirliði ÍA.
Það reyndi lítið á vöm ÍA í leiknum
og Þórð í markinu. Gaman var að sjá
Sigurstein aftur í liðinu en hann hef-
ur verið frá vegna meiðsla. Hann skU-
aði hlutverki sínu vel. Ólafur fyrirliði
barðist eins og ljón aUan leikinn og
lék vel fyrir liðið og sömu sögu er að
segja um Steinar Adolfsson. Haraldur
Ingólfsson var seigur að vanda og
framherjarnir Bjami og Bibercic vom
stórhættulegir og unnu vel saman.
Vegna veðurs og aðstæðna náðu
Skagamenn ekki að byggja upp sitt
landsfræga spil en miðaö við aðstæður
lék liðið í heUd ágætlega.
Erfiöir heim aö sækja
„Ég er þokkalega sáttur. Aðstæð-
urnar voru mjög erfiðar og erfitt að ná
upp spili við þessi skilyrði. Ég vona að
þessi tvö mörk dugi en ég hef trú á að
þetta lið sé erfitt heim að sækja. Við
þurfum bara að koma marki á þá úti
og gera okkur þetta auðveldara fyrir,”
sagði Haraldur Ingólfsson eftir leik-
inn.
Viö förum áfram
„Aðstæður til að spila knattspymu
voru hreint afleitar og mínir menn
hafa örugglega aldrei spUað i verra
veðri. Á þessum árstíma er hitinn
heima í kringum 35 gráður á móti 10
stigum, rigningu og miklu roki hér.
Akranes yann sannfærandi sigur en
þrátt fyrir það er ég sannfærður um
að við förum áfram í keppninni. Ég
gat ekki stillt upp mínu sterkasta liði
og í síðari leiknum koma 3-4 nýir inn.
Mér fannst leikmaður nr. 4 mjög
góður og hættulegur framherji (Bjami
Guðjónsson) og eins léku nr. 7 (Alex-
ander Högnason) og 11 (Haraldur Ing-
ólfsson) vel,” sagði þjálfari SUeks,
Zoran Smilewski, eftir leikinn.
-GH
Forseta
ÍSÍ var
ekki boðið
til Atlanta
Forseti Iþróttasambands ís-
lands, æðsti maður í íþróttastarfi
landsins, er ekki í hópi þeirra
sem Ólympíunefhd íslands bauð
á Ólympíuleikana í Atlanta 1996.
Þetta hefur mælst iUa fyrir í
röðum ÍSÍ og einn viðmælenda
DV þar sagði í gær að þetta væri
brot á öUum venjum og hefðum
varðandi ólympíuleikana. „Slíkt
boð kom á leikana í Barcelona
1992 og þar á undan höfðu forset-
ar ÍSÍ verið aðalfararstjórar á
ólympíuleika um langt árabil.
Þetta sýnir best hversu óæskileg-
ur þessi aðskilnaður Ólympíu-
nefndar og ÍSÍ er,“ sagði þessi
viðmælandi DV.
„Jú, það er rétt, ég hef ekkert
boð fengið. Ég hef hins vegar
ekkert um þetta spurt og mun
ekki gera það,“ sagði Ellert B.
Schram, forseti ÍSÍ, i samtali við
DV í gærkvöldi.
Aldrei staöiö til aö bjóöa
forseta ISÍ
„Það hefur aldrei staðið til að
forseta ÍSÍ væri boðið á leikana
og um það kom heldur aldrei til-
laga eða ósk frá ÍSÍ sem hefði get-
að sent hann á eigin kostnað. Það
er engin sérstök hefð fyrir því að
forseta ÍSÍ sé boðið á ólympíu-
leika. Sveinn Björnsson og Gísli
Halldórsson voru oft aðalfarar-
stjórar á ólympíuleika á meðan
þeir gegndu embætti forseta ÍSÍ,“
sagði Júlíus Hafstein, formaður
Ólympíunefndar íslands, þegar
DV náði tali af honum í Atlanta í
nótt.
Lítiö starfaö í
Ólympíunefnd
„Núverandi forseti er stjórnar-
maður í Ólympiunefnd en hefur
lítið starfað þar vegna tíma-
skorts. Hann hefur meðal annars
verið upptekinn við störf á veg-
um Knattspyrnusambands Evr-
ópu. Það eru mjög skýrar línur í
þessu máli sem snýst ekki um
persónur heldur embætti og
þetta er í raun mjög einfalt mál,“
sagði Júlíus Hafstein. -VS
íþróttir eru einnig á bls. 26
CITIZEN • Opið golfmót
Fyrirkomulag móts: TEXAS SCRAMBLE á Akranesi laugardaginn 20. júlí 1996.
Verðlaun fyrir 1., 2„ og 3. sæti.
Nándarverðlaun á 3/14 braut.
Nándarverðlaun á 7/18 braut.
Verðlaun fyrir holu í höggi á 7/18 braut: DRIVER, Callaway Big Bertha war bird.
Ræst verður út frá kl. 10.
Skráning í síma 431 2711 fimmtud. og föstud. frá 15-20.
Knattspyrnufélagið Þróttur heldur
almennan félagsfund fimmtudaginn 18. júlí
í Þróttheimum, kl. 20.00.
Umræðuefnið er „Þróttur í nýtt umhverfi“.
Allt áhugafólk um eflingu félagsins er
velkomið.
Þá eru foreldrar bama og unglinga hjá
félaginu hvattir til að mæta.
Aðalstjórn