Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1996, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1996, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 1996 7 Fréttir Bandarískir friöarsinnar: Gera ut mann til að fylgjast með Ástþóri - samtökin Heimsfriður 2000 tortryggja Frið 2000 Bandarískur blaöamaður á veg- um samsteypu félaga friðarsinna sem nefnast Heimsfriður 2000, var á ferð á íslandi i kosningaviku for- setakosninganna til að fylgjast með athöfnum og gengi Ástþórs Magnús- sonar. Samtökin sem gerðu blaðamann- inn út af örkinni nefnast World Pe- ace 2000 og í samtali við DV sagði blaðamaðurinn, Steve Diamond að Ástþór Magnússon meö hornstein að heimsfriði í höndunum. DV-mynd GVA Setustofan í Efstaleiti: Húsfélagið áfrýjar Húsfélagið í Efstaleiti 12 sam- þykkti í gær að áfrýja dómi Hér- aðsdóms Reykjavíkur um breyt- ingar á sameigninni. Héraðsdóm- ur staðfesti í upphafi mánaðarins úrskurð umhverfisráðuneytisins um að íbúum væri óheimilt að setja upp milliveggi við setustofu við íbúð Bents Schevings Thor- steinssonar. „Við munum gera allt til að flýta málinu þannig að það verði tilbúið til flutnings í haust,“ seg- ir Sigiu-öur H. Guðjónsson hrl. hjá Húseigendafélaginu sem jafn- framt er lögmaður húsfélagsins. Bent Scheving Thorsteinsson hefur ákveðið að flytja til Banda- ríkjanna í haust eins og DV hefur skýrt frá. -IBS Hverfisgata: Engin stöðu- mælagjöld Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt að fella niður stöðu- mælagjöld við Hverfisgötu, frá Þjóðleikhúsi að Vitatorgi, meðan framkvæmdir við breytingu á göt- unni í tvístefnuakstursgötu standa yfir. Forsvarsmenn nokkurra fyrir- tækja við götuna rituöu fyrir skömmu bréf til ráðsins þar sem óskað var eftir niðurfellingu stöðumælagjalda á þeim forsend- um að framkvæmdimar drægju verulega úr umferð að verslunum og fyrirætkjum. Borgarráö gæti með þessu móti komið verulega til móts við fyrirtækin í götunni sem eiga mikið undir því að um- ferð um götuna sé greið. -SÁ nokkru og hefði verið ákveðið að gera sig út af örkinni til íslands, þegar samtökunum bárust fregnir af því að Ástþór væri í framboði í forsetakosningum á Islandi. Steve Diamond sagði að nokkurr- ar tortryggni gætti í garð Ástþórs meðal fólks sem hefði staðið framar- lega í friðarbaráttu undanfama ára- tugi. Meðal þess sem ýtti undir þá tortryggni væri það að Ástþór teldi upp í ritum og bæklingum, svo sem drögum að ársskýrslu Friðar 2000, ýmis félög og einstaklinga sem aldrei hefðu gerst meðlimir í sam- tökum hans, Friði 2000. Svo virtist sem það eitt nægði að hafa aðeins átt samtal við Ástþór til að komast á meðlimaskrá samtaka hans. Steve Diamond átti fundi með ýmsum sem tengst hafa friðarbar- áttu Ástþórs Magnússonar, þeirra á meðal Steingrími Hermannssyni seðlabankastjóra, sem titlaður er í fyrmefndri ársskýrslu Friðar 2000 sem Guardian - meðlimur níu manna eins konar öldungaráðs - sem ætlað er að tryggja að samtök- in Friður 2000 og einstakar deildir þeirra starfi samkvæmt því sem til er ætlast í stofnskrá. Steingrímur Hermannsson segir í samtali við DV að hann hafi tjáö bandaríska blaðamanninum að þótt hann sé mikili áhugamaður um frið- armál og telji hugmyndir Ástþórs athyglisverðar þá sé hann ekki „Gu- ardian“ eða meðlimur þessa öldung- aráðs. Hann segist jafnframt hafa tjáð Ástþóri hið sama og óskað eftir því að vera strikaður út af listanum yfir þessa öldungaráðsmeðlimi. Steingrímur Hermannsson er ekki sá eini sem kannast ekki við að vera meðlimur í samtökum Ástþórs. Anna Viðarsdóttir skrifstofustjóri studdi við bakið á flugi Friðar 2000 til Sarajevo um síðustu jól og varð þess vör að hún var komin á lista yfir meðlimi Friöar 2000 og lét strika nafn sitt út af honum. Ástþór talaði mikið um það í kosningabaráttunni á dögunum að haldinn yrði alþjóðlegur leiðtoga- fundur á Þingvöllum árið 2000. Steve Diamond segir við DV að þessi hug- mynd sé upphaflega komin frá bandarisku framtíðarrannsókna- stofnuninni Millennium Institute sem sett var á stofn að frumkvæði Jimmys Carters fyrrv. Bandaríkja- forseta. Hann kveðst óttast að nú þegar Ástþór hafi tekið þessa hug- mynd upp og kynni sem sína eigin þá geti það orðiö til þess að hug- myndin falli dauð niður vegna þess að Millennium Institute gefi hana einfaldlega upp á bátinn. -SÁ ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR ELDHÚS INNRÉTTINGAR BAÐ INNRÉTTINGAR FATASKÁPAR VÖNDUÐ VARA - HAGSTÆTT VERÐ Frí teiknivinna og tilboðsgerð N&ttdlúve, - fyrsta flokks frá >FOnix HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SlMI 552 4420 ARIEL HIKER DOME Kúlutjald. 3.4 kg. ' 2 manna. tjöldum HUSTJALD PARADÍSÓ Ifcti 4 manna áður 47.000 SWALLOW 30U Svefnpoki-5°C 1,6 kg. Fallegur og mjúkur með innri kraga. jÉMlmboðsaðilar um land allt: Höldur verslun, Glerárgötu.Akureyri If Borgarsport, Borgarnesi Verslunin Hamrar, Grundarfirði Þjótur, ísafirði Verslunin Laufið, Bolungarvík y -'ádur I 1.700 JURA gönguskór á 9.900 Kaupfélag V-Hún., Hvammstanga Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi Sportvík, Dalvík Bókarverslun Þórarins, Húsavík BH-bÚðin, Djúpavogi Akrasport, Akranesi Verlsunin Vík, Neskaupsstað ...þar sem ferðakgið byrjar! SEGLAGERÐIN ÆGIR Eyjaslóð 7 Reykjavík S. 51 I 2200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.