Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1996, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1996, Blaðsíða 18
26 FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ1996 íþróttir DV Pétur úr leik en Sigurður á von - Pétur kastaði 19,17 en spjótkastinu frestað vegna veðurs Pétur Guðmundsson kastaði kúlu 19,17 metra á upphitunarmóti á há- skólavelli i Atlanta í gærkvöldi. Hann náði því ekki lágmarkinu sem Ólympíunefnd íslands hafði sett honum fyrir leikana sem var 19,50 metrar. Sigurður Einarsson átti að keppa í spjótkasti en hætta þurfti mótinu vegna ausandi rigningar sem skall á skömmu eftir að það hófst. „Því miður náði Pétur ekki að sýna sínar hestu hliðar og þetta þýð- ir að hann kemst ekki á ólympíu- leikana. Sigurður er hins vegar í þeirri sérstöku stöðu að tvö mót í röð hjá honum hafa farið forgörðum vegna veðurs. Hann hefur því ekki fengið þau tækifæri sem til stóð. Mótinu var frestað til sunnudagsins og þá fer spjótkastkeppnin fram en við í Ólympíunefndinni munum ákveða á morgun hvort Sigurður fær þá tækifæri til að ná lágmark- inu,“ sagði Júlíus Hafstein, formað- ur Ólympíunefndar, við DV í nótt. Sárt aö fá ekki tækifæri „Það er sárt að fá ekki tækifæri til að keppa í Atlanta því ég er loks- ins laus við meiðslin og á uppleið. Ég hef kastað 19,73 og 19,52 metra í upphitunarköstum og veit að þetta er allt að koma. Kúluvarpið í heild hefur verið á niðurleið undanfarin ár og á síðasta HM dugði að kasta 19 metra til að komast í úrslit. Ég er að kasta í kringum 19,20 metra og það gæti vel dugað til að komast i úrslit- in í Atlanta," sagði Pétur Guð- mundsson við DV í nótt. „Annars er ég fúll út i að fá ekki að vita fyrr en 3. júli að ég þyrfti að kasta 19,50 metra í ár. Það var kom- ið aftan að okkur og við hefðum æft öðruvísi ef það hefði legið fyrir frá byrjun," sagði Pétur. -VS Grótta komst af botninum Grótta sigraði HK, 3-1, í 3. deildinni í knattspymu á Sel- tjai'narnesi i gærkvöldi. Ragnar Egilsson kom Gróttu yfir, Stein- dór Elíson jafnaði fyrir HK en undir lokin skoraði Óttar Eð- varðsson fyrir Gróttu og síðan gerðu HK-ingar sjálfsmark. Grótta komst með þessum sigri af botninum og upp í 5. sæti deildarinnar. -VS ÍH vann Létti ÍH sigraði Létti, 2-1, i toppslag í A-riðli 4. deildarinnar í gær- kvöldi. Magnús Scheving gerði bæði mörk ÍH en Engilberg Frið- finnsson svaraði fyrir Létti. Aft- urelding er efst í A-riðli með 18 stig en síðan koma Léttir með 17, ÍH með 16 og Njarðvík meö 14 stig. -VS Mild til Spánar Spænska knattspymufélagið Real Sociedad samdi í gær við sænska landsliðsmanninn Hak- an Mild frá Gautaborg. Hann fer til Spánar eftir leiki Gautahorg- ar í forkeppni Evrópukeppni meistaraliða í haust. Francis samdi aftur Gerry Francis skrifaði í gær undir nýjan tveggja ára samning við Tottenham og fær hann 35 milljónir króna fyrir samning- inn ásamt aukagreiðslum. Rússi til Arsenal? Heimasíða Arsenal á Verald- arvefnum greindi frá því að Bruce Rioch ætti í samningavið- ræðum við rússneska landsliðs- manninn Omania Tedradez sem leikur með Vladikavaz.. Þá hefur Rioch einnig verið orðaður við Robert Jarni sem spilar með Real Betis á Spáni. Sampdoria vill Bilic Króatiski landsliðsmaðurinn Slavan Bilic hefur vakið mikla athygli hjá West Ham og einnig í Evrópumótinu í knattspyrnu og greindi ítalska blaðið Tuttosport frá því að Sampdoria væri mjög spennt fyrir því að fá Bilic til liðs við sig. Thomas hættur við? Ray Evans, framkvæmdastjóri Liverpool, bauð Michael Thomas nýjan þriggja ára samning og vill hann ólmur halda í Thomas sem er nú á Ítalíu í viðræðum við Reggiana og Verona sem hafa sýnt honum áhuga. Worthington til Stoke Lou Macari, framkvæmda- stjóri Stoke, er búinn að semja viö vinstri bakvörðinn Nigel Worthington sem lék með Leeds. -DÓ/JGG Þórir Sigfússon ráðinn þjálfari Fylkis: Rann blóðið til skyldunnar Þórir Sigfússon var í gær ráðinn þjálfari 1. deildar liðs Fylkis í knattspyrnu í stað Magnúsar Pálssonar sem sagt var upp störf- um á mánudag. Þórir þjálfaði í fyrsta skipti í 1. deild í fyrra þegar hann tók við Keflvíkingum um miðjan júní og stýrði þeim út tímabilið. Hann hefur áður þjálf- að hjá Fylki og þá yngri flokka. Þór- ir hóf störf strax í gær og stýrði þá sinni fyrstu æfingu hjá Árbæjarlið- inu. „Mér líst vel á hópinn, ég held að mannskapur sé fyrir hendi til að gera betur en til þessa. Það er erfitt fyrir mig að dæma um hugarástand leikmanna eftir slæmt gengi að und- anfornu, eflaust eru þeir þrúgaðir og ósáttir með sjálfa sig en það er mitt verkefni að reyna að snúa málum í rétta átt. Mér rann blóðið til skyldunnar þegar til mín var leit- að, ég hef búið í Ár- bænum í sjö ár og er tilbúinn að leggja mitt af mörkum til að koma liðinu í betri stöðu,“ sagði Þórir í samtali við DV í gær- kvöldi. Þórir Sagði að helsta vandamálið væri meiðsli leikmanna sem væru nokkur þessa dagana. „Enes Cogic, Ómar Valdi- marsson og Aðalsteinn Víglundsson eru meiddir og tvisýnt um þá fyrir Valsleikinn á sunnudag. Þetta skýrist betur á næstu dögum en við munum fyrst og fremst einbeita okkur að einum leik í einu og næsti mótherji er Valur,“ sagði Þórir Sig- fússon. -VS Þórir Sigfússon. Nýtt met í NBA-deildinni í nótt: Juwan Howard fær 7,3 milljarða - ljóst aö Shaq slær metið fljótlega Juwan Howard, körfuknattleiks- maðurinn efnilegi sem hefur leikið með Washington undanfarin tvö ár, skrifaði í nótt undir stærsta samn- ing í sögu NBA-deildarinnar. Nýja félagið hans, Miami Heat, greiðir honum rúmlega 7,3 milljarða króna fyrir sjö ára samning og hann er fyrsti leikmaðurinn sem gerir samning að andvirði 100 milljónir dollara eða meira. Allt bendir til þess að metið standi stutt. Orlando og LA Lakers bjóða nú til skiptis í Shaquille O’Neal, miðherja Orlando. Hann hefur þegar hafnað 8 milljarða boði frá Orlando en talið er að Lakers sé tilbúið að greiða honum 9,4 millj- arða króna. -VS Jón Grétar Jónsson: Missir af fyrsta leiknum Jón Grétar Jónsson, fyrirliði Valsmanna í knattspymunni, fékk sem kunnugt er rautt spjald í bikar- leiknum við KR í fyrrakvöld. Hann verður þar með í leikbanni gegn Fylki á sunnudaginn. Það verða mikil viðbrigði fyrir þennan reynda leikmann því Jón Grétar hefur ekki misst úr deilda- leik í sjö ár eða síðan í júlí 1989. Þá m •• * i sjo ar var hann leikmaður með KA og missti af leik liðsins gegn Þór en hefur síðan spilað 122 leiki í röð i 1. deildinni, með KA og Val. Þar með er Gunnar Oddsson, fyr- irliði Leifturs, sá af núverandi leik- mönnum 1. deildar sem lengst hefur leikið samfleytt. Gunnar hefur nú leikið 109 leiki í röð í deildinni. -VS Eiín Siguröardottir er ein af þremur keppendum sem fara á ÓL í Atlanta til að keppa í sundi fyrir íslands hönd. Elín Sigurðardóttir: „Lendir í 25.-30. sæti í 50 m skriðsundi" Það eru þrír keppendur sem taka þátt í sundi á Ólympíuleikun- um í Atlanta fyrir íslands hönd. í gær kynntust lesendur DV Loga Jes Kristjánssyni, sem keppir í 100 m baksundi, en í dag er það Elín Sigurðardóttir sem íþróttadeild DV kynnir. Ragnheiður Runólfs- dóttir sundþjálfari hafði þetta að segja um Elíni. Hefur næga reynslu „Elín Sigurðardóttir hefur lengi keppt fyrir íslenska landsliðið í sundi og hefur því næga reynslu til að keppa á Ólympíuleikunum í Atlanta. Hún hefur í gegnum árin eilítið skipt um aðalgreinar og náð ágætisárangri í þeim öllum. Nú síðast hefur hún lagt megin- áherslu á 50 m skriðsund og náði ólympíu- lágmark- inu í þeirri grein. Hún sýndi mest styík sinn þeg- ar hún náði lág- markinu sjálfu og bætti sig þar töluvert. Hún hefur haft nægan tíma til að einbeita sér að sundæfingum og hefur haft þjálfara sinn sér til hjálpar þar. Þetta er þó stærsta mót sem Elín hefur tekið þátt í svo það verður áhugavert að fylgjast með henni í Atlanta," sagði Ragn- heiður. Elín æfir með Sundfélagi Hafn- arfjarðar og hefur gert það frá upphafi sundferils síns undir handleiðslu úrvals þjálfara. Ætti mikil og góð þjálfun hennar að nýtast henni vel í Atlanta. Hinn kunni sundþjálfari, Klaus Júrgen Ohk, hefur séð um þjálfun hennar undanfarið og er víst að hún hefur lært mikið af þessum reynda sundþjálfara. Elín er að keppa á sínum fyrstu ólympíuleikum og verður eflaust gaman að fylgjast með henni ásamt öðru íslensku afreksfólki. Færri lélegir og meöalgóöir „Eftir þeim upplýsingum sem maður hefur i sambandi við það hversu margir keppa og annað slíkt þá spái ég henni svona 25. til 30. sæti. En við höfum engar upp- lýsingar nema listann yfir 50 bestu í ár, og hún er langt frá því að komast inn á hann, og listann yfir 150 bestu í fyrra," sagði Guðmund- ur Harðarson sundþjálfari í sam- tali við DV. „ Ég er mjög spenntur að sjá kepp- endalist- ann þvi það verða færri lé- legir og færri meðalgóðir á þessum ólympíuleik- um en hefur verið undanfarna leika. Á öllum stórmótum hingað til syndir aðeins þriðjungur kepp- enda á betri tíma en þeir eru skráðir á og til dæmis í 50 m skriðsundi lenda kannski 10-15 manns á 1/10 úr sekúndu. Ef Elín er réttum megin við það þá eru það bara fimm til tíu sæti,“ sagði Guðmundur. Á morgun verður þriðji sundkeppandinn kynntur, Eydís Konráðsdóttir. -JGG Elín Sigurðardóttir Aldur: 23 ára Félag: Sundfélag Hafnarfjaröar Besti árangur: íslandsmet í 50 m skriðsundi, 26,79 sekúndur í 50 m laug, íslandsmet í 25 m laug í 50 m skriðsundi, 26,33 sekúndur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.