Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1996, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1996, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 1996 33 Myndasögur Aðeins þú | gast bjargað Egyptalandil Við urðum að tórna ^^51 (jölskyldu þinni fyrir alla þjóðina! )ge'íni'ngu?|l Fréttir Mánuður búinn af laxveiðinni: Norðurá stendur sig langbest „Mér finnst þetta vera einkenni- legt sumar í laxveiðinni, fiskifræð- ingar spáðu góðri laxveiði. En það hefur klikkað í mörgum ám, eins árs laxinn hefur ekki mætt eins mikið og menn áttu von á,“ sagði veiðimaður í samtali í gærkvöldi. Byrjunin á þessu laxveiðisumri er einkennileg, Norðurá í Borgarfirði hefur komið langbest út og eru komnir 1.000 laxar úr ánni. Úr Laxá á Ásum, þar sem menn borga 120 þúsund fyrir daginn núna, eru að- eins komnir 190 laxar á land eftir 6 vikna veiði. Tveggja og þriggja punda laxar hafa verið að koma í ána síöustu daga. „Við erum komnir með 30 laxa eftir næstum eins dags veiði. Það er ekki mikið af fiski í ánni en smálax- inn er aðeins að mæta. Þetta mætti vera fjörugra hérna við Ásana núna á þessum tíma,“ sagði Geir Ericson á bökkum Laxár á Ásum í gærdag, reyndar með lax á. „Það er ekki mikið af fiski, alla vega sjáum við þá ekki. Eitthvað hefur komið af smálaxi síðustu daga. Árni Baldursson og Ólafur H. Ólafsson voru á undan okkar með erlenda veiðimenn. Þeir fengu 18 á fluguna, þeir reyndu ekki annað. Mér sýnist áin vera að skríða í 190 laxa núna, það er ekki meira,“ sagði Geir ennfremur. Vatnsleysið í veiðiánum virðist líka ætla að koma við kaunin á veiðimönnum. Ár eru margar hverj- ar vatnslitlar og sumar að þorna upp. Laxarnir eru orðnir sólbrúnir á bakinu, enda standa þeir upp úr sums staðar. Það virðist færast í vöxt þetta sumarið að veiða og sleppa en hvað lengi veit maður ekki. Ekki eru nú allir veiðimenn til í að sleppa laxin- um sem þeir hafa harist við í marga klukkutíma. Alla vega ekki ég. Veiðimenn eru svo sannarlega miskátir með byrjunina í laxveiðinni en þessi veiðimaður við Ytri-Rangá var óvenjuhress með sinn feng. Enda var fiskur- inn 12 pund og tók fluguna. DV-mynd G. Bender Hróarslækur: 25 bleikjur og einn lax „Það var gaman að þessu, fiskur- inn er greinilega að koma í lækinn. Á einum degi veiddust 25 bleikjur og einn lax,“ sagði veiðimaður sem var að koma úr Hróarslæk, rétt austan við Hellu. En fiskurinn virð- ist vera að koma í lækinn, það hafa veiðst nokkir laxar það sem af er sumri og bleikjan er til staðar. „Þetta er bleikja sem veiðist og þær stærstu eru kringum 3 pund. Það er gaman að veiða þarna,“ sagði veiðimaðurinn í lokin. VEIÐIMENN! Flugan í veiðiferðina Seljum veiðileyfi í Hróarlæk á 2.500 kr. Bleikja - Urriði - Lax Laugavegi 178, símar 551 6770 og 581 4455

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.